Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Qupperneq 12
DV
Bíldudalur
Umboðsmaður óskast. Upplýsingar gefur Tone Sol-
bakk í síma 94-2268 og afgreiðsla DV í síma 91-27022.
Hverfisgötu 66 - út Mánagötu
Boðagranda Skeggjagötu
Keilugranda
St. Jósefsspítali,
Landakoti.
Arsstaða aðstoðarlæknis við barnadeild St. Jósefs-
spítala, Landakoti, er laus til umsóknar. Staðan veitist
frá 1. júní 1987.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 1987.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri
störf skal senda til yfirlæknis barnadeildar.
Reykjavík 5.1. 1987.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Eyjabakka 16, 3.t.v„ þingl. eigandi Guðmund-
ur Hermannsson, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 12. jan. '87 kl. 16.45.
Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki Islands, Búnaðarbanki Islands, Baldur
Guðlaugsson hrl., Tryggingastofnun ríkisins, Björn Ólafur Hallgrímsson hdl.
og Útvegsbanki íslands.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hólabergi 20, þingl. eigandi Rafn E. Gestsson, fer fram á eign-
inni sjálfri mánudaginn 12. jan. '87 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson hdl. og Iðnaðarbanki íslands. hf.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hábergi 7, 0302, þingl. eigandi Halldór Bergdal Baldursson,
fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 12. jan. '87 kl. 14.15. Uppboðsbeiðend-
ur eru Gunnlaugur Þórðarson hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Ingólfur Friðjónsson hdl., Olafur Thoroddsen hdl., Ásgeir Thor-
oddsen hdl„ Skúli J. Pálmason hrl., Sigurmar Albertsson hdl. og Jón Eiríksson
hdl.
______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hverfisgötu 106 A, 4. hæð, þingl. eigendur Sigurður Egilsson
og Guðbjörg Valdimarsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 12. jan.
'87 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Ævar Guðmundsson hdl., Gjaldheimt-
an í Reykjavík og Guðjón Ármann Jónsson.
_______________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík,
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Vesturbergi 74, 2.t.h„ þingl. eigandi Eiríka Inga Þórðardóttir,
fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 12. jan. '87 kl. 15.00. Uppboðsbeið-
andi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
Neytendur
Hversu mikið
hækkar rafórka?
Ein af þeim verðhækkunum sem
dunið hafa á landsmönnum að und-
anfömu er hækkun á raforku. Hún
er misjöfn eftir veitum en að jafn-
aði er hún frá 5,5 hundraðshlutum,
upp í 10%.
Hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur
er hún yfirleitt 5,5%. Þannig
hækka almennir taxtar úr 3 krón-
um og 30, í 3 krónur og 48 aura
kílóvattstundin. Einnig hækkar
fast árgjald úr 1.280 krónum í 1.350
krónur, á ári.
Hækkunin hjá meðalneytanda
verður því 706 krónur á ári, ef mið-
að er við 3.500 kílóvattstunda
notkun.
Arsreikningur meðal Reykvík-
ings hækkar því úr 12.830 krónum
í 13.536 krónur.
Hækkun á heimtaugagjaldi er þó
enn meiri. Lítil taug kemur til með
að kosta 22 þúsund og 200 krónur,
ef miðað er við einn fasa og 60
amper. Hún kostaði áður 20.600
krónur, þannig að um 7,6% hækk-
un er að ræða.
A Akureyri er hækkun ekki enn
komin til framkvæmda. Lögð hefur
verið beiðni um 10% hækkun fyrir
bæjarstjórn og hefur hún verið
samþykkt í fyrri umræðu, þannig
að allt bendir til þess að hún komi
til framkvæmda snemma í febrúar.
Kílóvattstundin hækkar þá úr
3,19 krónum i 3,51 krónu, og fast
árgjald úr 1.305 krónum í 1.436
krónur. Arsreikningur Akur-
eyrings með 3.500 kílóvattstunda
notkun yrði þá 13.720 krónur eftir
hækkun. Þá hækkar raforka til
húshitunar um 13,6%, sem er til
jafns við hækkun á heitu vatni.
Hjá Rafinagnsveitum ríkisins er
hækkun á smásöluverði 7%. Kíló-
vattstundin fer þá í 4,52 krónur, en
var áður 4,22 krónur. Fast árgjald
fer úr 2.050 krónum í 2.190 krónur.
Ársreikningur úti á landsbyggð-
inni, sé aftur miðað við 3.500
kílóvattstunda notkun, verður þá
118.010 krónur, en var áður 16.820
krónur.
Stór hluti orkusölu Rafmagns-
veitna ríkisins er þó til húshitunar.
Sé raforkan til þeirra nota kostar
kílóvattstundin 1,65 krónur en áð-
ur kostaði hún 1,54 krónur.
Niðurgreiðslur ríkisins á raforku
til húshitunar eru nú 63 aurar á
kílóvattstund.
Hjá Orkubúi Vestfjarða er hækk-
unin einnig 7%. Almennt raforku-
verð á Vestfjörðum er mestmegnis
^1»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»^
ÁSKRIFENDA
ÞJÓNUSTA
KVARTANIR j
ÁSKRIFENDUR ERU !
VINSAMLEGAST BEÐNIR i
AÐ HAFA SAMBAND VIÐ!
AFGREIÐSLUNA,
EF BLAÐIÐ BERST EKKI.;
Við höfum nú opið lengur:
Virka daga kl 9-20.
Laugardaga kl. 9-14.
iSÍMINN ER 27022 i
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022 ]
\ll<<<immillWIIH«IM«IHIKIIH#
það sama og hjá RARIK og kemur
hækkunin því eins út þar.
Haft var samband við Alþýðu-
samband Islands vegna þjónustu-
hækkana að undanförnu og menn
þar inntir álits. Þar fannst þeim
hörmulegt til þess að vita að fyrir-
tæki eins og Hitaveita Reykjavíkur
og Landsvirkjun, skyldu ríða á
vaðið og hundsa tilmæli ríkis-
stjórnarinnar um að hækka ekki
umfram verðlag í landinu og að
ljóst væri að vandi einstakra orku-
veitna yrði ekki leystur með
gjaldskrárhækkunum.
-PLP
Helsta ástæða hás raforkuverðs er hár framleiðslu- og flutningskostnað-
ur.
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í desember 1986:
Matur og hreinlætisvörur
Annað
kr.
kr.
Alls kr.