Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
13
Ef ykkur heppnast baksturinn lítur kakan svona út.
Neytendur
Ekki missa
æfinguna eftir jólin
Brúnkökur eru alltaf vinsælar. I
dag birtum við uppskrift að einni
slíkri. Geta þá lesendur spreytt sig á
henni nú um helgina.
2 desílítrar hveiti
1 1/2 desílítri fínt hakkaðar val-
hnetur
jafnt og gott deig. Hellið deiginu í
smurt 2 lítra form. Bakið við 175 gráð-
ur í 30-40 mínútur. Athugið með
kökunál hvort kakan er nægilega bök-
220 grömm smjör eða smjörlíki
100 grömm suðusúkkulaði
3 desílítrar sykur
4 egg
2 teskeiðar vanillusykur
1 teskeið bökunarduft
Bræðið smjörið við lágan hita og
látið súkkulaðið bráðna í. Bætið sykri
og hálfþeyttum eggjum við. Hrærið
þessu saman við blöndu hveitis, van-
illusykurs, bökunardufts og val-
hnetna.
Hrærið í þessu þar til náðst hefur
uð.
Leyfið kökunni að kólna áður en þið
takið hana úr mótinu. Gott er að strá
dálitlum sykri yfir kökuna áður en
hún er borin fram.
-PLP
Óvönduð
raftæki
Á miðvikudaginn var birtist í
dagblöðum auglýsing frá Raf-
magnseftirliti ríkisins um innköll-
un á jólaljósakeðjum. Var þar um
íslenska framleiðslu að ræða sem
ekki hafði staðist gæðaprófun raf-
magnseftirlitsins.
I fyrra barst rafmagnseftirlitinu
ný tegund jólaljósakeðju sem fyrir-
tækið Jón og Einar s/f var að hefja
framleiðslu á. Er gerðar voru próf-
anir á vörunni reyndist hún ekki
uppfylla þær kröfur sem rafmagns-
efitirlitið gerir og var því hafnað.
Fyrirtækið endurbætti vöruna en
allt kom fyrir ekki, enn stóðst hún
ekki próf rafmagnseftirlits og var
því hafiiað á nýjan leik.
Nú fyrir jólin fréttist svo af keðj-
um þessum í verslunum víða um
land. Höfðu þær þá verið settar á
markað og hafði viðurkenningar-
merki Rafmagnseftirlits ríkisins
verið sett á þær í algjöru heimild-
arleysi. Voru eftirlitsmenn raf-
veitna og lögregla virkjuð til að
stöðva söluna en vörunni hafði
verið dreift víða um land og seldist
víða upp.
Rafmagnseftirlit ríkisins hefúr
að undanfomu verið að reyna að
vinna merki sínu tiltrú almennings
og festá það í sessi sem öryggis-
og gæðastimpil. Það er því alvar-
legt tilræði við þetta starf ef menn
nota það í heimildarleysi og það á
vöru sem uppfyllir ekki lágmarks-
kröfur um öryggi.
-PLP
Skákað i skjóli jólaöngþveitis