Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Síða 25
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
37
Þvottabjörn - nýtt. Veitum þessa þjón-
ustu: hreingerningar, teppahreinsun,
húsgagnahreinsun, gluggaþvott, há-
þrýstiþvott, gólíbónun. Sjúgum upp
vatn. S. 40402 og 40577.
Gólfteppahreinsun, húsgagnahreins-
un. Notum aðeins það besta. Amerísk-
ar háþrýstivélar, sértæki á viðkvæm
teppi. Erna og Þorsteinn, s. 20888.
Þrii, hreingerningar, teppahreinsun.
Vanir og vandvirkir menn. Uppl. í
símum 33049 og 667086, Haukur og
Guðmundur Vignir.
■ Þjónusta
Málun, flisalögn og allar alhliða húsa-
viðgerðir, t.d. glerisetning, múrverk,
rennuuppsetningar og jámklæðning-
ar á þök. Geri verðtilboð ef óskað er
Fagmannaþj/, s. 42151 og 19123.
Borðbúnaóur til leigu. Leigjum út alls
konar borðbúnað, svo sem diska, glös,
hnífapör, bolla, veislubakka o.fl.
Borðbúnaðarleigan, sími 43477.
Húseigendur, húsbyggjendur: Bygg-
ingameistari getur bætt við sig
verkefnum úti sem inni. Uppl. í síma
688865 og 41204.
Sandblásum allt frá smáhlutum uppí
stór mannvirki. Komum og/eða sækj-
um hvert sem er. Sanngjarnt verð.
Stáltak, Borgartúni 25, sími 28933.
Slipum og lökkum parket og gömul við-
argólf, snyrtileg og fljótvirk aðferð
sem gerir gamla gólfið sem nýtt. Uppl.
í síma 51243 og 92-3558.
Dyrasimaviðgerðir og raflagnir. Lög-
giltur rafvirki. Uppl. í símum 656778
og 10582.
Múrverk - flisalagnir. Múrviðgerðir,
steypun, skrifum á teikningar.
Múrarameistarinn, sími 611672.
Svalahurðir, þvottahúshurðir, gluggar
og opnanleg fög. Tek mál. Einar, sími
51002.
Tveir húsasmiðir með öll réttindi geta
bætt við sig verkefnum. Tilboð ef ósk-
að er. Uppl. í síma 666838 og 79013.
■ Líkamsrækt
Sólbaösstofan Hléskógum 1. Erum með
breiða bekki m/andlitsperum, mjög
góður árangur, bjóðum upp á krem,
sjampó og sápur. Opið alla daga.
Avallt kaffi á könnunni. Verið vel-
komin. Sími 79230.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Ökukennsla
ökukennarafélag íslands auglýsir.
Sverrir Björnsson, s. 72940,
Toyota Corolla ’85.
Grímur Bjamdal Jónsson, s. 79024,
Galant GLX turbo ’85.
Haukur Helgason, s. 28304,
BMW 320i ’85.
Jóhanna Guðmundsdóttir, s. 30512,
Subaru Justy ’86.
Jóhann G. Guðjónsson, s. 21924-
Lancer 1800 GL ’86. 17384.
Skarphéðinn Sigurbergsson, s. 40594,
Mazda 626 GLX ’86.
Kristján Sigurðsson, s. 24158-672239,
Mazda 626 GLX ’87.
Guðbrandur Bogason, s. 76722,
Ford Sierra ’84, bifhjólakennsla.
Bílas. 985-21422.
Snorri Bjarnason, s. 74975,
Volvo 360 GLS ’86. Bílas. 985-21451.
Hallfríður Stefánsdóttir, s. 681349,
Mazda 626 GLX ’86. Bílas. 985-20366.
Ævar Friðriksson kennir allan daginn
á Mazda 626, engin bið. Útvega próf-
gögn, hjálpa til við endurtökupróf.
Sími 72493.
Gylfi K. Sigurðsson kennir á Mazda 626
’86, ökuskóli, öll prófgögn. Kennir
allan daginn, engin bið. Visa/Euro.
Heimas. 73232, bílas. 985-20002.
Ökukennsla - endurhæfing. Kenni á
Opel Ascona. Hagkvæmt og árangurs-
ríkt. Greiðslukortaþjónusta.
Gunnar Helgi, sími 78801.
M Garðyrkja
Trjáklippingar og húsdýraáburður á
sama verði og í fyrra. Vönduð vinna.
Uppl. í síma 30348 frá 18-22.
■ Sveit
Bændur! Ég er 19 ára dönsk stelpa sem
vil gjarna vinna við hesta. Uppl. í síma
641113 eftir kl. 19. Bjössi.
Stúlka óskast i sveit, þarf helst að vera
vön, má hafa með sér barn. Uppl. í
síma 97-81017.
■ Verslun
Full búð af fallegum og vönduðum nær-
og náttfatnaði, hjálpartækjum ástar-
lífsins í miklu úrvali, fyrir dömur og
herra. Komdu á staðinn, hringdu eða
skrifaðu. Ómerkt póstkröfu- og kredit-
kortaþjónusta. Opið alla daga nema
sunnud. frá kl. 10-18. Rómeó & Júlía,
Brautarholti 4, 2. hæð, sími 14448 -
29559. Box 1779, 101 Rvík.
Klúbbut
Aldarinna r
Sérverslun meö glæsilegan nátt- og
undirfatnað og hjálpartækjum ástar-
lífsins. Sendum allt í ómerktri póst-
kröfu. Nýjung: Hringdu og fáðu uppl.
um Klúbb aldarinnar. Opið 14—22.30
um helgar 18.30-22.30. Ný alda, Box
202, 270 Varmá, s: 667433.
f 1 STEINSSON hf.
Bátaeigendur! Getum afgreitt með
stuttum fyrirvara hinar gangvísu
Nanni dísilbátavélar í stærðum 10 til
650 hö. Steinsson hf., Hólmaslóð 8,
símar 6222690 og 20790.
Einangraðar bilskúrshurðir úr áli, verð
með öllum jámum frá krónum
23.470, gönguhurðir í stíl. Einnig mik-
ið úrval af fataskápum á mjög góðu
verði. Nýborg hf., Skútuvogi 4, sími
82470.
■ Ýmislegt
Pearlie tannfaröinn gefur aflituðum
tönnum, fyllingum og gervitönnum
náttúrulega hvíta áferð. Notað af sýn-
ingarfólki og fyrirsætum. Pearlie-
umboðið, póstkröfusími 611659,
sjálfvirkur símsvari tekur við pöntun-
um allan sólarhringinn. Box 290, 171
Seltjarnames.
■ Bílar til sölu
Subaru station 4x4 árg. '84 til sölu,
rafmagnsrúður, splittað drif, digital
mælaborð með tölvu o.fl., ekinn 40.
000, verð 470.000, bein sala. Uppl. í
síma 76523.
Mazda E2200 dísil árg. '85 til sölu, ek-
inn 43.000 km. Uppl. í síma 42328 og
985-21085.
Man Ikarus ’80 til sölu, 32 manna, ek-
inn 44 þús. km. Frekari uppl. í síma
93-6664 milli kl. 19 og 22 á kvöldin.
Ford Jeep til sölu, allur mjög vel end-
ursmíðaður, 8 cyl. 283, 4 gíra, driflok-
ur, vökvastýri. Góð kjör, verð 250
þús. Sími 79732 eftir kl. 20.
Meiming
Nútíma siðfræði í Ijósi boðorðanna
Aksel Valen-Sendstad.
Innforing I kristen etikk.
Luther forlag.
Osló, 1984.
Það sem einkennir þessa bók
öðru fremur er að hin fjölbreytilegu
vandamál sem kristin siðfræði
hlýtur ætíð og óhjákvæmilega að
glíma við eru öll flokkuð niður og
um”þau fjallað út frá boðorðunum
tíu í Gamla testamentinu. Mörgum
kemur þetta vafalaust spánskt fyrir
sjónir svo augljós sem munurinn á
siðfræði Gamla og Nýja testament-
isins kann að virðist. Á það má þó
benda að slík framsetning var alls
ekki óalgeng í eldri siðfræði en er
hins vegar mjög sjaldséð á síðari
árum og áratugum.
Lútersk - biblíuleg siðfræði
Valen-Sendstad vill umfram allt
leggja áherslu á að siðfræði hans
hvíli á biblíulegum grunni. Hið
opinberaða orð Guðs er að mati
Valen-Sendstads eina heimild okk-
ar um vilja Guðs. Jafnframt er ljóst
að höfundurinn hafnar öllu sem
kenna má við náttúrulega guðfræði
eða sköpunarguðfræði og á þá við
hugmyndir um að maðurinn al-
mennt talað búi yfir einhverri
innbyggðri þekkingu á vilja Guðs.
Það er þó ljóst að Valen-Sendstad
kemst ekki frekar en aðrir hjá því
að lesa Biblíuna út frá einhverjum
þeim forsendum sem hljóta óhjá-
kvæmilega að móta framsetning-
una. Ekki þarf lengi að lesa í bók
hans og raunar nægir að kíkja í
nafnaskrána til að komast að því
hverjar eru meginforsendur höf-
undar. Þar gnæfir nefnilega meist-
ari Marteinn Lúther hátt yfir alla
aðra og það svo mjög að á köflum
virðist lesandanum óneitanlega
sem jafnaðarmerki sé sett á milli
biblíulegrar siðfræði og lúterskrar
siðfræði. Það er því miklu nær að
tala um lútersk-biblíulega siðfræði
í þessu tilfelli. Hins vegar fer það
ekki á milli mála að höfundurinn
styður framsetningu sína stöðugt
Bókmenntir
Gunnlaugur A. Jónsson
Biblíutilvitnunum sem sést ekki
síst af hinum langa lista yfir þessar
tilvitnanir i lok bókarinnar. Þar
sést líka hversu stóran sess Gamla
testamentið skipar í framsetningu
V alen-Sendstads.
Bókin er mikil að vöxtum eða 500
blaðsíður. Á eftir inngangi, þar sem
fjallað er um spurninguna hvað
siðfræði er og hver sérkenni kris-
tinnar siðfræði er(það er hin
kristna opinberun, Biblían, sem
ákvarðar einkennið), fylgir all-
langur kafli (bls. 29—86) um sögu
siðfræðinnar í okkar menningar-
heimi. Þvi næst kemur annar
meginkafli bókarinnar um grund-
vallarvandamál kristinnar siðfræði
(bls. 87-226). Loks kemur svo meg-
inkafli bókarinnar um einstök
siðfræðileg vandamál flokkuð og
rædd undir boðorðunum tíu.
Marteinn Lúther.
Gervifrjóvgun og sjötta boð-
orðið
ítarlega atriða- og nafnaskrá í lok
bókarinnar auðveldar þeim lífið er
fyrst og fremst vill skoða eitthvert
eitt ákveðið siðferðilegt vandamál
og gerir sér ekki grein fyrir undir
hvaða boðorði það ætti helst
heima. Hvar skyldi til dæmis vera
að finna umfjöllun um nútíma-
vandamál eins og gervifrjóvgun?
Með aðstoð atriðaskrárinnar
kemst lesandinn fljótlega að því að
þetta vandamál er tekið til umræðu
undir sjötta boðorðinu þar sem
rætt er um samband karls og konu
innan og utan hjónabandsins. Höf-
undurinn kemst að þeirri niður-
stöðu (bls. 386-7) að gervifróvgun
sé rétt þegar hún er ekki fram-
kvæmd í tilraunaskyni heldur til
að „hjálpa“ foreldrum að eignast
eigið bam. Skilyrði sé að eigin-
maðurinn leggi til sæði og að þriðji
aðili komi þar ekki við sögu því
slíkt hlyti að vera brot gegn helgi
hjónabandsins. Sé karlmaðurinn
ófrjór beri honum einfaldlega sem
kristnum manni að sætta sig við
þá staðreynd. Allt annað væri í
andstöðun við sköpunarvilja Guðs.
Tæpast verður hjá því komist að
telja náungakærleikann grund-
vallaratriði kristinnar síðfræði.
Veikleikinn við íramsetningu Va-
len-Sendstads kemur ekki síst í ljós
þegar þetta er haft í huga. Þegar
náungakærleikurinn er tekinn til
meðferðar sem undirliður í um-
ræðu um 5.. 9. og 10. boðorðin
finnst manni óneitanlega sem hon-
um hafi ekki verið gert nægilega
hátt undir höfði í framsetningunni.
„Innihald kærleikans eru boðorðin
tíu eins og Jesú hefur opinberað
okkur merkingu þeirra. Að tala um
kærleikann án þessa grunns og
mælikvarða er að kristnum skiln-
ingi merkingarlaust," segir Valen-
Sendstad (bls. 466).
íhaldssöm túlkun
Bók Valen-Sendstads er ætlað að
vera kennslubók í siðfræði fyrir
guðfræði- og kennaranema. Verður
það að teljast galli á kennslubók-
inni hversu einhliða hún fylgir
íhaldsamri lúterskri túlkunarhefð
og gerir lítið úr öðrum túlkunar-
möguleikum. Hins vegar er bókin
auðlesin og flest það sem maður
ætlast til að finna umræðu um í
nútíma siðfræði er tekið til með-
ferðar þrátt fyrir að það sé allt
þvingað inn fyrir ramma boðorð-
anna tíu.
Gunnlaugur A. Jónsson.