Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
41
Bridge
Furðulegt hvað jafnvel hinuir
albestu getur orðið á í messunni við
bridgeborðið. Vestur spilar út spaða-
drottningu í þremur gröndum suðurs.
Spilið vannst og þó voru þeir
Rodrigues og Priday, eitt besta par
Breta um langt árabil, í vörninni.
Spilið kom fyrir á úrtökumóti Breta
fyrir EM í Wiesbaden í sumar.
Vfítur Norður *K3 ?7 98 0 K52 * G98765 Au.-tur
* DG8 + A109754
C>10754 VD62
0 D9864 0107
+ 3 + A4
SUÐUR
+ 62 AKG3 0 AG3 + KD102
Priday í austur drap spaðakóng
blinds með ás og spilaði spaðaníunni.
Reiknaði fastlega með að suður ætti
gosann þriðja i spaða og spaðanian átti
einnig, samkvæmt reglum hans og
Rodriques, að gefa í skyn innkomu á
'laufið. Priday átti slaginn á
spaðaníuna, því norður vildi ekki
drepa á gosann. I sjálfu sér skipti það
ekki máli ef suður heldur áfram í
spaðanum. En Priday spilaði hjarta-
tvisti í þriðja slag. Suður drap á kóng
og spilaði laufkóng. Priday drap strax
á laufás og spilið vannst þar sem
spaðaliturinnvar festur.
Furðulegt að slíkt skuli geta átt
sér stað. Þú og ég og allir hinir hefðu
tekið sjö fyrstu slagina, sex á spaða og
laufás. Meira að segja var hægt að
hnekkja spilinu ef austur drepur ekki
strax á laufás, heldur næsta lauf.
Rodrigues hefði þá ef til vill fundið að
eitthvað var að og losaö sig við spaða-
gosann.
Skák
Jón L. Arnason
Viktor Kortsnoj náði 2. sæti á stór-
meistaramótinu í Brussel um jólin
en Portisch varð neðstur. Þessi staða
kom upp í annarri skák þeirra.
Kortsnoj, með svart, átti leik:
abcdefgh
43. -He4 44. Rd2 He5 45. Rf3 (hvítur
virðist vera að bjarga sér því að ef
45. -He3 þá 46. Kf2 og nær e-peðinu)
45. —Rf4! 46. Hhl Rd3 og Portisch
gafst upp. Ef 46. Rxe5 Kxe5 og síðan
fer kóngurinn niður til d2 og svartur
vinnur létt. Kortsnoj og Portisch
verða báðir meðal þátttakenda á
IBM-stórmótinu í Reykjavík í febrú-
ar.
! 1 “M
__ /'V'rJ n p r 1
^ ---* '/^X
n
v y F4+H
Það er rautt ljós framundan, Emma. Ég vek athygli þína á því svo
þú getir sagt mér að stoppa í tíma.
Vesalings Emma
Slökkvilið Lögregla
Reykjavík: Lögreglan sími 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan sími 18455,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavík: Lögreglan sími 3333, slökkvi-
lið sími 2222 og sjúkrabifreið sími 3333
og í símum sjúkrahússins 1400, 1401 og
1138.
Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 1666,
slökkvilið 2222, sjúkrahúsið 1955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223
og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið sími
22222.
ísafjörður: Slökkvilið sími 3300, bruna-
sími og sjúkra-bifreið 3333, lögreglan
4222.
Apótek
Kvöld- og helgarþjónusta apótekanna i
Reykjavík 2.-8.jan. er í Ingólfsapóteki
og Laugarnesapóteki.
Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt
vörsluna frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að
morgni virka daga en til kl. 22 á sunnu-
dögum. Upplýsingar um læknis- og
lyfjaþjónustu eru gefnar í síma 18888.
Mosfells apótek: Opið virka daga frá
kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12.
Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga-
föstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl.
11-14. Sími 651321.
Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá
kl. 9-19, iaugardaga kl. 9-12.
Hafnarfjörður: Norðurbæjarapótek er
opið mánudaga til fimmtudaga frá kl.
9- 18.30, Hafnarfjarðarapótek frá kl. 9-19.
Bæði apótekin hafa opið föstudaga frá
kl. 9-19 og laugardaga frá kl. 10-14 og
til skiptis annan hvern helgidag frá kl.
10- 14. Uppiýsingar í símsvara apóte-
kanna, 51600 og 53966.
Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19
virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h.
Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka
daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar-
daga og sunnudaga.
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek,
Akureyri: Virka daga er opið í þessum
apótekum á opnunartíma búða. Ápótek-
in skiptast á sína vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opið í því apóteki sem sér um
þessa vörslu til kl. 19. Á helgidögum er
opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum
er lyfjafræðingur á bakvakt. Upplýsing-
ar eru gefnar í síma 22445.
Ég vona að þér sé sama þó að ég segi öllum að þú sért
44 módel, Lalli.
LaUi og Lína
Slysavarðstofan: Sími 696600.
Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur
og Seltjarnarnes, sími 11100, Hafnar-
fjörður, sími 51100, Keflavík, sími 1110,
Vestmannaeyjar, sími 1955, Akureyri,
simi 22222.
Tannlæknafélag íslands Neyðarvakt
alla laugardaga og helgidaga kl. 10-11.
Upplýsingar gefur símsvari 18888.
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 til 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, sím-
aráðleggingar og tímapantanir í sími
21230. Upplýsingar um lækna og lyfja-
þjónustu eru gefnar í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla
virka daga fyrir fólk sem ekki hefur
heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum
allan sólarhringinn (sími 696600).
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er
opin virka daga kl. 8-17 og 20-21. laugar-
daga kl. 10-11. Sími 27011.
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes:
Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta
morgun og um helgar, sími 51100.
Keflavík: Dagvakt. Ef ekki næst í heim-
ilislækni: Upplýsingar hjá heilsugæslu-
stöðinni í síma 3360. Símsvari í sama
húsi með upplýsingum um vaktir kl. 17.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í
síma 1966.
Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Læk-
namiðstöðinni í síma 22311. Nætur- og
helgidagavarsla frá kl. 17-8. Upplýsingar
hjá lögreglunni í síma 23222. slökkvilið-
inu í síma 22222 og Akurevrarapóteki í
síma 22445.
Heimsóknartími
Landakotsspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 19-19.30. Barnadeild kl. 14-18
alla daga. Gjörgæsludeild eftir sam-
komulagi.
Borgarspítalinn: Mánud. föstud. kl.
18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.
30-19.30.
Fæðingardeild Landspítalans: Kl.
15-16 og 19.30-20.00
Sængurkvennadeild: Heimsóknartími
frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30-16.30
Kleppsspitalinn: Alla daga kl. 15-16 og
18.30- 19.30.
Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-16.30.
Landakotsspítali. Alla daga frá kl.
15.30- 16 og 19-19.30. Barnadeild kl. 14-18
alla daga. Gjörgæsludeild eftir sam-
komulagi.
Grensásdeild: Kl. 18.30 19.30 alla daga
og kl. 13-17 laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími.
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl.
15 17 á helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug-
ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og
aðra helgidaga kl. 15-16.30.
Landspitalinn: Alla virka daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16 alla
daga.
Sjúkrahúsið Akureyri: Alla daga kl.
15.30-16 og 19-19.30.
Sjúkrahúsið Vestmannaej’jum: AHa
daga kl. 15-16 og 19-19.30.
Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl.
15.30-16 og 19-19.30.
Hafnarbúðir: Alla daga frá kl. 14-17 og
19-20.
Vífilsstaðaspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 19.30-20.
Vistheimilið Vifilsstöðum: Sunnudaga
kl. 14-17, fimmtudaga kl. 20-23, laugar-
daga kl. 15-17.
Stjömuspá
T,m
Spáin gildir fyrir laugardaginn 10. jan.
Vatnsberinn (21. jan.-19. febr.):
>ú mátt búast við óvenjulegum fundi á næstunni og verð-
ur dálítil spenna í kringum hann. Eitthvað nýtt ætti að
vera mjög skemmtilegt en forðastu að eyða um of því þú
átt að borga mikið fljótlega.
Fiskarnir (20. febr.-20. mars):
Ef þú ferð eitthvað út í kvöld draga perónuleiki og vits-
munir þínir athygli fólks að þér. Hvers vegna ekki að
vera vingjarnlegur og ræða við fólkið?
Hrúturinn (21. mars-20. april):
Slappaðu af og reyndu að njóta hvers þess sem rekur á
fjörur þínar. Það verður ekki mikið að gerast hjá þér í
dag en þú ættir að njóta næðisins.
Nautið (21. apríl-21. maí):
Þetta ætti að verða notalegur dagur heima. Gerðu sem
mest af því sem þú hefur vanrækt upp á síðkastið.
Tvíburarnir (22. maí-21. júní):
Talaðu vingjarnlega við vin þinn sem er auðsærður. Þú
mátt búast við óvæntri gjöf.
Krabbinn (22. júní-23. júlí):
Þú þarft að stokka upp og leiðrétta smámisskilning við
vini þína en þú verður að vera nærgætinn. Eitthvað sem
viðkemur músík er í uppáhaldi í dag.
Ljónið (24. júlí-23. ágúst):
Vertu á varðbergi ef kunningi þinn biðurþig um peninga-
lán. Seinni partur dagsins er góður til að heimsækja
einhvern og þú gætir hitt einhvern nýjan og spennandi.
Meyjan (24. ágúst-23. sept.):
Ástarsamband verður allt í einu meira spennandi því þið
uppgvötið að þið eigið töluvert sameiginlegt. Þú ættir að
fara í leikhús eða eitthvað menningarlegt í kvöld.
Vogin (24. sept.-23. okt.):
Líflegar umræður hrekja burt vafa varðandi fjölskylduna.
Eitthvað sem snertir börn er sérlega í uppáhaldi í dag.
Hafðu ekki of miklar áhvggjur af einhverju vandamáli.
það leysist af sjálfum sér.
Sporðdrekinn (24. okt.-22. nóv.):
Þú átt von á óvenjulegu bréfi. Þú verður mjög upptekinn
af heimilismálum og taka þau mikinn tíma. Þú ættir að
nota kvöldið til að gera eitthvað menningarlegt.
Bogmaðurinn (23. nóv.-20. des.):
Ef þú ert að ráðgera einhverjar breytingar ræddu það þá
við fjölskyldumeðiimi. Þú færð góðan stuðning ef málið
kemur ekki snöggt og á óvart.
Steingeitin (21. des.-20. jan.):
Láttu ekki ókurteisi vinar þíns hafa áhrif á þig. Vertu
staðfastur og þú færð að öilum líkindum afsökunar-
beiðni. Þú færð mikið út úr nýjum félaga þínum.
Bilarir
Rafmagn: Reykjavík. Kópavogur og
Seltjarnarnes. sími 686230. Akureyri.
sími 22445. Keflavík sírni 2039. Hafnar-
fjörður. sími 51336. Vestmannaevjar. sínti
1321.
Hitaveitubilanir: Reykjavík og Kópa-
vogur. sími 27311. Seltjarnarnes simi
615766.
Vatnsveitubilanir: Reykjavík og Selt-
jarnarnes. sími 621180! Kópavogur. sími
41580. eftir kl. 18 og um helgar sími
41575. Akureyri. sími 23206. Keflavík.
sími 1515, eftir lokun 1552. Vestmanna-
eyjar. símar 1088 og 1533. Hafnarfjörður.
simi 53445.
Símabilanir: í Reykjavík. Kópavogi.
Seltjarnarnesi. Akureyri. Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, sími
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síödegis ti! 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er við tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og í öðrum til-
fellum. sem borgabúar telja sig þurfa að
fá aðstoð borgarstofnana.
Söfnin
Borgarbókasafn
Reykjavíkur
Aðalsafn: Þingholtsstræti 29a, sími
27155.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, sími
36814.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju. sími
36270.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi,
Gerðubergi 3-5. símar 79122 og 79138.
Opnunartími ofangreindra safna er:
mán. föst. kl. 9-21, sept. apríl einnig
opið á laugardögum kl. 13-16.
Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, sími
27640.
Opnunartími: mán.-föst. kl. 16-19.
Lestrarsalur aðalsafns, Þingholts-
stræti 27, sími 27029.
Opnunartími: mán-föst. kl. 13-19,
sept.-apríl, einnig opið á laugardögum
kl. 13-19.
Bókabílar, bækistöð í Bústaðasafni,
sími 36270.
Bókin heim, Sólheimasafni, sími 83780.
- Heimsendingaþjónusta fyrir fatlaða og
aldraða. Símatími mánud. og fimmtud.
kl. 10-12.
Sérútlán, aðalsafni, Þingholtsstræti
29a, sími 27155. Bækur lánaðar skipum
■ og stofnunum.
Sögustundir fyrir börn á aldrinum
3-6 ára. Aðalsafni: þriðjud. kl. 14-15.
Bústaðasafni og Sólheimasafni: mið-
vikud. kl. 10-11 og Borgarbókasafninu
í Gerðubergi: fimmtud. kl. 14-15.
Ásmundarsafn við Sigtún. Opnunar-
tími safnsins er á þriðjudögum. fimmtu-
dögum. laugardögum og sunnudögum frá
kl. 14-17.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74:
Safnið er opið þriðjudaga. fimmtudaga
og sunnudaga kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi.
Listasafn Islands við Hringbraut: Opið
daglega frá kl. 13.30-16.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnudaga. þriðjudaga. fimmtu-
daga og laugardaga kl. 14.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir i kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn: mánudaga til laugardaga kl.
13-19. Sunnudaga 14-17.
Þjóðminjasafn Islands er opið sunnu-
daga. þriðjudaga. fimmtudaga og laugar-
daga frá kl. 13.30-16.
Krossgátan
T~ 2 n (o
7 1
9 IO b
// TT 1 13, 7T
/S' Up 1 \
/g* mmmm J /9 20 J
2J J n
Lárétt: 1 áköfu, 5 eyða, 7 rólegur, 8
snæðir, 9 tungumálið, 11 dans, 13
öðlist, 15 hollar, 17 umstang, 18 til,
19 lánar, 21 bein, 22 nýlega.
Lóðrétt: 1 dekkja, 2 slóttug, 3 ólæti,
4 samstæðir, 5 hlut, 6 ertin, 10 kveð,
12 tryllti, 14 forfeður, 16 varg, 20
samþykki.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 rekkja, 8 eira, 9 ólm, 10
gnípa, 11 fá, 12 na, 13 uppi, 16
strauma, 17 utan, 19 nið, 20 mær, 21
Atli.
Lóðrétt: 1 regn, 2 einatt, 3 kríur, 4
kappana, 5 Jóa, 6 al, 7 smá, 11 fími,
14 punt, 15 baði, -16 sum, 18 ar.