Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1987, Blaðsíða 32
44
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Madonna
er fyrirmynd bandarískra
ungmenna en ekki Ronald
Reagan eins og landsmenn
höfðu álitið fram að þessu.
Þetta kom fram í könnun
sem gerð var meðal skóla-
barna á aldrinum átta til tíu
ára og aðspurð fullyrtu meira
en fimmtíu og fimm prósent
þeirra að forsetaembætti
vildu þau alls ekki gegna í
framtíðinni. Draumastarfið
er að verða skemmtikraftur
og var Ijóskan Madonna
langefst á blaði þegar goðin
voru skrásett. Nokkrar stelp-
ur voru þó til í að gerast
hjúkkur og strákarnir löggur
en þessi draumastörf voru
þó í litlum metum hjá hinum
smávöxnu þjóðfélagsþegn-
um.
Dolly Parton
pillaði af sér fjórtán kíló um
daginn og segist aldrei hafa
soltið betur á ævinni. Þetta
var bráðnauðsynlegt í stöð-
unni því Dolly er að mark-
aðssetja nýja megrunarlínu í
eigin nafni og ekki þótti við
hæfi að hafa höfundinn
sjálfan stríðalinn meðan
auglýsingaherferðin stæði
sem hæst. Sem betur fer
heldur Dolly bestu bogalín-
unum ennþá og er þess
vandlega gætt að vörumerk-
in tvö á frontinum hljóti
engan skaða af næringar-
leysinu.
Liberace
hefur ekki bara áhuga á
skartgripum og fallegum föt-
um. Þessi tíu ára gamli
strákhnokki á nú hug hans
allan og þeysa þeir saman
um alla jarðkringluna.
Drengurinn heitir Eric Ha-
melin og spilar á hljómleik-
um skrautfuglsins hvenær
sem því verður við komið.
Aðspurður segir Liberace
snáóann Eric undrabarn í
píanóleik og spáir honum
gífurlegum vinsældum,
frægð og frama í framtíðinni.
Mikill mannfjöldi safnaðist saman á hinum gamla sparkvelli KR-inga sem innan tíðar verður aðsetursstaður ungra vesturbæinga á fyrstu þrepum
Þrettándinn:
Vestast í vesturbænum
Það var mikið um dýrðir á hinum
gamla sparkvelli KR-inga þegar tek-
in var skóflustunga að nýju skóla-
húsi Vesturbæjarskólans í Reykja-
vík. Ibúasamtök vesturbæjar stóðu
að hátíðardagskrá þar sem menn
helguðu sér land að fornum sið,
tendraður var þrettándaeldur og
sungið hressilega undir stjórn Ragn-
hildar Gísladóttur. Núverandi
nemendur Vesturbæjarskólans
mættu hátíðabúmr til athafnarinnar
og fjöldi annarra hverfisbúa kom til
þess að samfagna núverandi og
væntanlegum skólabörnum.
Þrettándabrennan logaði þrátt fyr-
ir skemmdarverk fyrr um daginn þar
sem kveikt hafði verið í bálkestinum
allmörgum klukkustundum fyrir til-
settan tíma. Hreinsunardeild borgar-
innar brá við skjótt og bjargaði
málum þannig að unnt yrði að dansa
í kringum eldinn um kvöldið. Borg-
arstjórinn í Reykjavík - Davíð
Oddsson - tók fyrstu skóflustung-
una, KR-ingar afhentu sinn gamla
sparkvöll formlega í hendur skóla-
yfirvalda og athöfninni lauk með
flugeldasýningu sem var gjöf frá
JL-húsinu til sinna væntanlegu ná-
granna þarna vestast í vesturbænum.
Davið er dugmikill borgarstjóri og þarna er engu líkara en hann ætli einn og sjálfur að taka grunninn að
nýja skólanum. Hann vantaði þó allar teikningar og lét sér nægja eina skóflustungu.
Menn helguðu sér land þetta þrettándakvöld að fornum íslenskum sið
- karlmenn með kyndlum en konurnar teymdu kvigu. Sú skjöldótta hafði
því veigamiklu hlutverki að gegna og átti hug og hjörtu stelpnanna á
staðnum.
Nemendur Vesturbæjarskólans mættu prúðbúnir til athafnarinnar en
hætt er við að einhverjir verði komnir of vel á legg áður en nýja skóla-
húsið rís til þess að njóta góðs af framkvæmdunum.