Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Side 10
10
MÁNUDAGUR 16. FEBROAR 1987.
haldstímanum og að afnuminn verði
rétturinn til þess að láta lesa mál-
skjölin upp í dómþinginu.
Pólitíkusar veröa aö leggjast
með á árina
Mörgum lögmönnum óar þessi fyr-
irhugaða lagabreyting og telja hana
stangast á við stjómarskrána en
dómarar og lögreglumenn, sem settir
hafa verið sérstaklega til höfuðs
mafíunni, telja það höfuðnauðsyn í
baráttunni gegn kolkrabbanum að
þessu verði breytt.
Giuseppe Ayala, annar sækjend-
anna í Palermo-réttarhöldunum,
segir: „Pólitíkusamir verða að axla
sína ábyrgð í málinu og leggjast á
árina með okkur.“
„Ef ítalskir stjómmálafrömuðir
vilja ekki að þessum mönnum verði
hleypt út úr fangelsunum vita þeir
hvað gera þarf. Það er engra kosta
völ. Þetta er höfuðforsenda," sagði
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
hann í viðtali við fréttamann Reut-
ers.
Ofmátu áfall mafíunnar
Ayala segir að almenn vonbrigði
með réttarhöldin séu að hluta því
að kenna að menn hafi almennt of-
metið hvað þau yrðu mafíunni mikið
áfall. Margir héldu að þau yrðu rot-
höggið en við vorum aldrei þeirrar
trúar. Við sögðum að þau mundu
verða mjög mikilvægur áfangi, en
þó aðeins áfangi herferðar sem þyrfti
fleiri áfanga.
Antonio Nicchi, yfirmaður Pal-
ermo-lögreglunnar, segir: „Þetta eru
mikilvægar krossgötur í baráttunni
gegn mafíunni en tákna ekki enda-
lok hennar. Réttarhöldin eru maf-
íunni mikið áfall og það hallar hér
eftir undan fyrir henni. Hún verður
veikari eftir.“
Yfirvöld telja sig ekki hafa nógu
haldgóðar upplýsingar um hversu
mikið áfall málsóknin hefur verið
mafíuvaldinu.
Mala hægt en mala þó
Líkt og myllur guðs, sem mala
hægt en mala þó, býst kvöm réttvís-
innar við því að kolkrabbinn verði
ekki sigraður í einni atrennu en
vonast til þess að hann sé á undan-
haldi og í hnignun. Menn em ekki
óviðbúnir því að það geti tekið fram
á næstu öld að leggja kolkrabbann
endanlega að velli.
Einkanlega sækja menn sér hugg-
un í því að „omerta“, þagnarlögmál
mafíunnar, hefiir verið rofið. Svo
sem eins og þegar einn af fyrri for-
ingjum mafíunnar á Sikiley,
Tommaso Buscetta, afréð að bera
vitni gegn öðrum félögum í maf-
íunni. Að vísu gerði hann það í
hefhdarskyni eftir að hafa goldið
afhroð fyrir óvinum sínum í inn-
byrðis togstreitu mafíunnar.
Utlönd
Snýr mafían enn á
ítölsku réttvísina?
Fjöldaréttarhöldin á leið út um þúfur
Yfirvöld á Ítalíu hófu fyrir ná-
kvæmlega ári sína stærstu atlögu
gegn mafíunni og drógu fyrir rétt 474
meinta mafíubófa og það í sjálfum
höfuðstað sikileysku mafíunnar,
Palermo.
Það var í fyrsta sinn sem slíkur
málarekstur var reyndur í Palermo.
Var það eins konar árétting þess að
yfirvöld væru staðráðin í því að
klekkja loks á þessu margra alda
gamla leynifélagi sem líkt hefur ver-
ið við kolkrabba er teygir arma sína
út í alla þætti þjóðlífsins. Og það
ekki aðeins á Sikiley heldur og norð-
ur eftir allri ítaliu og alla leið til
Ameríku eða jafhvel enn víðar.
Dregið úr mesta eldmóðnum
Þegar ársafinælið rann upp í síð-
ustu viku var andrúmsloftið gjör-
breytt frá því að mesti eldmóðurinn
var á armi laganna í upphafi mála-
rekstursins. Áhugi almennings; sem
hafði i byrjun staðið í biðröðum fyr-
ir utan dyr rammgirtra réttarsal-
anna, hefur hjaðnað. Áheyrenda-
pallar standa nú auðir og fjölmiðlar
víkja ekki að réttarhöldunum orði
nema endrum og eins.
Ástæða þessa áhugaleysis er sú að
málareksturinn hefur lamast. Horfúr
eru á að réttlætið fái ekki sigur fr em-
ur en í fyrri málum gegn mafíunni.
Veijendur hinna ákærðu hafa reynst
hinir fimustu í krókum og afkimum
laganna. Með því að grípa til áður
lítið notaðs lagakróks hefur þeim
tekist að tefja málið og seinka svo
framgangi réttvísinnar að horfir í
algert óefhi.
Lesa öll málskjöl upphátt í
réttinum
Þeir krefjast þess meðal annars að
öll málskjöl séu lesin upphátt í dóm-
þingi. Fyrir slíku og öðrum laga-
krókum eru til stafir í lögunum en
lítið hefúr verið eftir því farið sein-
ustu árin vegna óhagræðis og tafa.
Samt hafa þeir lagabókstafinn með
þessari kröfu sinni og er því enn eft-
ir að lesa upp 300 þúsund blaðsíðna
málskjöl því að á þeim þrem mánuð-
um, sem liðnir eru síðan veijendum-
ir gripu til þessa herbragðs, hafa
menn ekki komist yfir að lesa upp
nema fimm þúsund. Með sama fram-
haldi gæti málþófið tekið fjölda ára.
En um leið hamla lagaákvæði, sem
takmarka varðhald án undangeng-
inna dóma, því að hinum ákærðu
verði haldið í fangelsi svo lengi sem
það getur tekið að lesa upp málskjöl-
in. Samkvæmt þeim takmörkum
verður að láta lausa yfir eitt hundr-
að þessara sakbominga í maí
næstkomandi nema dómar hafi
gengið áður.
Fangabúrin tæmast
Því horfir til þess að þessi um-
fangsmestu réttarhöld gegn maf-
íunni illræmdu drukkni í pappírs-
flóðinu, á meðan fangelsisbúrin, sem
geyma ýmsa illræmdustu mafíufor-
ingja Sikileyjar, verða tæmd í skjóli
þeirra laga sem þeir hafa sjálfir aldr-
ei virt.
Þykir það auðvitað ekki efhilegt,
eða eins og einn dómendanna orðaði
það, Giusto Sciacchitano í Palermo:
„Nú er í húfi traust almennings til
yfirvaldanna."
Virginio Rognoni dómsmálaráð-
herra hefúr bmgðist við þessu með
því að leggja fyrir þingið í Róm laga-
frumvarp sem felur í sér að hætt
verði að telja dagana, sem þingað er
í málum hinna ákærðu, með varð-
Tommaso Buscetta, fyrrum mafíu-
foringi, sést hér leiddur niður
landganginn úr flugvél frð S-Amer-
íku, en þangað flúði hann undan
innbyröisátökum mafíunnar á Sikil-
ey. Þegar hefndum var þá snúið á
hendur ættmennum og nánustu
aðstandendum sneri hann aftur til
Sikileyjar til þess að bera vitni gegn
óvinum sínum.
Mafían á Sikiley hefur ekki skirrst við aö myrða jafnvel lögreglustjóra og aöra forvígismenn mafíunnar ef henni
hefur fundist þeir ganga of nærri henni. Þannig var Dalla Chiesa hershöfðingi myrtur á hveitibrauösdögum sinum
i Palermo en hann hafði verið settur lögreglustjóri yfir mafíurannsóknum á Sikiley eftir aö hann haföi getið sér
góðan orðstír í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökum Rauðu herdeildanna á meginlandinu.
öflugur öryggisvörður hefur verið um réttarhöldin yfir mafíubófunum 474 í Palermo og hefur ekki þótt duga minna en tvö þúsund manna lið til þess.