Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Blaðsíða 29
MÁNUDAGUR 16. FEBRUAR 1987.
45
Sandkom
Þaö var ekki mannmargt á tónleikunum á Húsavik
Met slegið
Met var slegið í lélegri að-
sókn á tónleika á Húsavík
þegar tveir pólskir tónlistar-
menn léku þar síðastliðinn
sunnudag. Alls mættu fimm-
tán gestir, tólf fullorðnir og
þrjú böm.
Menn eru á því að þama
hafi Húsvíkingar slegið feil-
nótu þvi tónleikamir þóttu
mjöggóðir.
Júdó er æft stíft á Akureyri.
Lena lagði
strákana
Mikill júdóáhugi er á Akur-
eyri. Yfir 100 böm og ungling-
ar æfa af krafti flesta daga
vikunnar. Umsíðustuhelgi
var sjálft Akureyrarmótið
haldið. f einum fiokknum sigr-
aði sjö ára stúlka, Magga
Lena Kristinsdóttir. Hún
keppti með strákunum og
lagði þá alla. Greinilega
breyttir tímar hér fyrir norð-
an.
Græna
byltingin
„Grænt ljós frá Moskvu"
var fyrirsögn í Degi nýlega þar
sem þess var getið að Sovét-
menn væm tilbúnir að setjast
að samningaborðinu um kaup
á ullarvömm frá iðnaðardeild
Sambandsins á Akureyri.
Samkvæmt þessu er rauða
byltingin í Sovét búin og sú
græna tekin við.
Fór mjög
leynt
Hákon Aðalsteinsson,
kunnur húmoristi á Egilsstöð-
um og fyrrum Húsvíkingur,
átti að vera leynigestur á 50
ára afmælishátíð slysavama-
kvenna á Húsavík á dögunum.
Hann gerði ítrekaðar tilraunir
til að komast í veisluna á
Húsavík en allt kom fyrir
ekki. Hann fór því mjög leynt
og lét alls ekki sjá sig. Efast
menn um að leynigestir geti
verið öllu leynilegri en þetta.
Pétur og
vínarbrauðið
Listi Stefáns Valgeirssonar
hefur verið kallaður vínlistinn
eftir að hann var birtur í
blómaskálanum Vín í Eyja-
firði. Margir orðaleikir hafa
gengið um vínlistann. Sá nýj-
asti er um séra Pétur Þórar-
insson, prest á Möðruvöllum,
sem skipar annað sæti listans.
Hann er sagður á listanum til
að fá nýtt brauð, nefnilega
vínarbrauð.
Eftirsókn
eftir vindi
Svo virðist sem landsbyggð-
arfólk vilji nú flestallt flytja
suður á bóginn, á suð-vestur-
homið. Jóhannes Siguijóns-
son, eigandi og ritstjóri
Víkurblaðsins á Húsavík, rit-
aði um þetta í leiðara í síðustu
viku og segir þjóðflutningana
suður eftirsókn eftir vindi.
í lokin segir hann að kvart-
að sé yfir því að fréttir ríkis-
fjölmiðla og dagblaða snúist
mest um atburði á suð-vestur-
hominu. það sé í sjálfu sér
ekkert skrýtið. „En eins og
flestir vita eru flestar fréttir í
eðli sínu neikvæðar," segir
Jóhannes.
Skemmtileg vöm.
Þjóðhags-
stofnun
Þingmenn úr röðum Sjálf-
stæðisflokksins leggja nú til
að Þjóðhagsstofnun verði lögð
niður vegna lélegs árangurs á
síðustu tíu árum.
Hvernig væri nú að byrja á
Alþingi sjálfu?
Gatekki hætt
að hlæja
Metkýrin Skvetta í Hörg-
árdal varð til þessað Arnar
Bjömsson, fréttamaður út-
varpsins á Akureyri, skellti
upp úr í miðjum fréttatíma á
dögunum. Það var sama hvað
Amar reyndi, hann gat ekki
hætt að hlæja.
Þórir Jökull, hinn frétta-
maður útvarpsins, skrifaði
fréttina um Skvettu. Var frétt-
in skrifuð eins og Skvetta
væri mennsk, sagt að hún ætti
tvær dætur o.s.frv.
Arnar hafði víst ekki lesið
fréttina yfir áður og því fór
sem fór. Hann fékk hlátur-
krampa er hann las fréttina í
beinni útsendingu.
Hetja, glaður-
heimskur
Forvitnilegt viðtal var í
Degi á föstudaginn þar sem
rætt var við unga, einstæða
móður með tvö böm. Bæði
bömin komu undir eftir að-
eins einnar nætur ævintýri.
Birt var ljóð eftir móðurina í
viðtalinu. Það varsvona:
Kona:
Samviskubit eftir eina nótt
forsmáð, ein-ólétt
kvíðandi um framtíð:
„H vemig mun okkur reiða
af.“
Maður:
Ánægður eftir eina nótt
hetja, glaður-heimskur
hugsandi með sér:
„Mig stenst engin kona.“
Barn:
Varð til eftir eina nótt
hikandi, grátandi-nýtt
spyrjandi sjálft sig:
„Átti mamma mig ein?“
Umsjón:
Jón G. Hauksson.
Hafffjarðará:
Skemmdarverk á
eigum Thorsættar
Lögreglan í Stykkishólmi hefur nú
til rannsóknar skemmdarverk sem
unnin hafa verið á eigum Thorsættar-
innar við Haffjarðará. Er hér annars
vegar um að ræða innbrot í veiðihúsið
á staðnum fyrir nokkrum dögum
og hins vegar rúðubrot á bænum
Skjálg.
Engu mun hafa verið stolið úr veiði-
húsinu en sá sem braust þangað inn
hellti olíu yfir bólstruð húsgögn og í
teppi þannig að aðkoman að staðnum
var ekki fögur. Hann fór í gegnum
einn gluggan en yfirleitt eru hlerar
fyrir þessum gluggum á vetuma. Hler-
amir höfði ekki verið settir upp
síðastliðið haust þar sem menn vom
að vinna í húsinu langt fram á haust-
ið.
Hvað Skjálg varðar vom nokkrar
rúður brotnar í húsinu en ekki var
brotist inn í það. Ekki er vitað hvort
þessi skemmdarverk tengjast deilum
þeim sem verið hafa um eignir Thors-
ættarinnar á þessum slóðum. Bæði
húsin em nálægt veginum sem liggur
um héraðið og þess vegna gætu þar
hafa verið að verki einhverjir sem átt
hafa leið þar um.
Þetta er ekki í fyrsta skipti á undanf-
ömum mánuðum sem skemmdarverk
em unnin á eigum Thorsættarinnar á
þessum stað. I haust vom brotnar rúð-
ur basði i Akurholti og Skjálg og tveir
bílar, sem vom við bæina, skemmdir.
-FRI
LAUST EMBÆTTI
er forseti Íslands veitir
Embætti héraðsdýralæknis í Norð-Austurlandsum-
dæmi er laust til umsóknar.
Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir 31.
mars 1987.
12. febrúar 1987
Landbúnaðarráðuneytið
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur námskeið
í skyndihjálp. Það hefst miðvikudaginn
18. febr. kl. 20 í Ármúla 34 (Múlabæ)
og stendur yflr 5 kvöld.
Skráning í síma 28222.
Námskeiðsgjald er kr. 1000,-
Leiðbeinandi verður Guðlaugur Leósson.
Öllum heimil þátttaka.
íhefurdua
EFNIÁ AÐ SLEPPA
ÞESSU?
Gallabuxur og kakíbuxur
í öllum stæröum
á ótrúlega lágu veröi