Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Side 18
18
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
MATVÆLAIÐNAÐUR
Óskum eftir fólki í hálfs- og heildagsstörf viö pökkun
á fiski í neytendaumbúðir til útflutnings. Um er aö
ræða starf í pökkunarverksmiðju miðsvæðis í Reykja-
vík í nýju og þrifalegu húsnæði. Góð vinnuaðstaða.
Unnið eftir launahvetjandi kerfi. Umsækjandi leggur
inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild DV merkt
„Pökkun 800“ fyrir 19. febrúar næstkomandi.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstra eða þroskaþjálfi óskast til stuðnings börnum
með sérþarfir á dagheimilinu Laugaborg v/Leirulæk.
Upplýsingar gefur Ragnheiður Indriðadóttir sálfr. á
skrifstofu Dagvistar barna í símum 27277 og 22360.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
PSORIASISSJÚ KLINGAR
Ákveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 9. apríl næst-
komandi til eyjarinnar Lanzarote á heilsugæslustöðina
Panorama.
Þeir sem hafa þörf fyrir slíka ferð snúi sér til húðsjúk-
dómalækna og fái vottorð hjá þeim.
Sendið það merkt nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri og
síma til Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114,
3. hæð.
Umsóknir verða að berast fyrir 1. mars.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
RÍKISSPÍTALAR
LAUSAR STÖÐUR
Aðstoðarlæknar (3) óskastvið Barnaspítala Hringsins
í 1 árs námsstöður frá 1. júní nk.
Aðstoðarlæknar (2) óskast við Barnaspítala Hringsins
í 6 mánaða stöður sem eru lausar frá 1. maí og 1.
júlí nk.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna ásamt til-
heyrandi vottorðum og meðmælum sendist skrifstofu
Ríkisspítalanna fyrir 15. mars nk.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir forstöðu-
maður Barnaspítala Hringsins í síma 29000.
Meinatæknir óskast í hálft starf á rannsóknastofu Víf-
ilsstaðaspítala. Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir
í síma 42800.
Fóstra eða starfsmaður óskast nú þegar á dagheimili
ríkisspítala, Stubbasel við Kópavogsbraut. Upplýsing-
ar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 44024.
Aðstoðarmaður óskast í þvottahús ríkisspítalanna,
Tunguhálsi 2. Upplýsingar veitir forstöðumaður
þvottahússins í síma 671677.
Deildarþroskaþjálfi og þroskaþjálfar óskast við Kópa-
vogshæli.
Skrifstofumaður óskast á Kópavogshæli á hálft starf
fyrir eða eftir hádegi.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir fram-
kvæmdastjóri Kópavogshælis í síma 41500.
Skrifstofumaður óskast við rannsóknadeild Landspít-
alans í blóðmeinafræði. Um fullt starf er að ræða.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir Blóðmeina-
fræðideildar í síma 29000.
Skrifstofumaður óskast til tímabundinna sérhæfðra
starfa á Geðdeild Landspítalans.
Upplýsingarveitirskrifstofustjóri Geðdeildar Landspít-
alans í síma 29000-637.
Reykjavik 16. (ebrúar 1987.
Menning___________________________________dv
Snjólaug Bragadóttir
Magnea fellur flet
Setið á svikráðum
Höfundur: Snjólaug Bragadóttir
Utgefandi: öm og örtygur 1986.
Það gerist æ algengara að íslenskir
afþreyingarhöfundar velji sögum sín-
um erlendan vettvarjg. Átta af fyrstu
bókum Snjólaugar Bragadóttur gerð-
ust hér á landi en í síðustu bók-
Bókmenntir
Hildur Hermóðsdóttir
um hefur íslenskur vettvangur ekki
dugað gífurlegu hugmyndaflugi höf-
undar og ævintýraþrá persóna hans.
Því flakka þær um heiminn og takast
á við vandamál og leysa gátur sem
ekki er á færi útlendra. - En eins og
alkunna er þá erum vér íslendingar
í álinn um stund þegar sonurinn kem-
ur heim en birtir fljótt á ný vegna
þess að hann er hinn ánægðasti með
skiptin og leikur sitt hlutverk (þó hann
fái ekkert fyrir snúð sinn). Hann hrek-
ur unnustu sína á braut þegar hún
birtist í réttu líki, enda er hún hið
versta flagð, rauðhærð og rík.
Dýrslegt aðdráttarafl
Heilt sumar gengur hin vinnufúsa
Magnea vaktir á hótelinu, bæði í af-
greiðslu og eldhúsi og bjargar þar
ófáum málum. (Það vill Kka svo heppi-
lega til að hún er alvön hótelvinnu ú
íslandi.) Hún virðist því hafa lítinn
tíma til að leita bróður síns og finnst
mér fara mikill tími í litlar fram-
kvæmdir, - en allt bíður síns tíma.
Fyrir utan einstaklega elskulega og
skilningsríka húsráðendur á hótelinu
koma gestir nokkuð við sögu. Þar má
nefha systkini sem eru Norður-írar en
ljós að hann er bróðir mágkonu henn-
ar og leitar þeirra hjóna í sama til-
gangi og Magnea. Allt fer því á besta
veg svo sem lögmál þessa vitundariðn-
aðar gera ráð fyrir. Það hefst upp á
Eiríki bróður og frú í Ástralíu þar sem
þau lifa í vellystingum við búskap og
bameignir. En Magnea fór ekki ferð
sína til einskis því með snarræði og
dirfsku tekst henni að bægja frá hon-
um yfirvofandi hættu með því að koma
upp um hryðjuverkamennina sem
höfðu konu Eiríks í sigti.
Hamingjan er innsigluð að lokum
með löngum kossi og framtíðaráform-
um (um brúðkaup og búskap) í hópi
góðra vina.
Ástir og vín
Eru þá ekki allir ánægðir? Líklega
flestir sem nenna að lesa, eða hvað?
Því enginn gerir kröfur til Snjólaugar
Bragadóttur um annað en sæmilega
bestir, sterkastir, bókhneigðastir, gáf-
aðastir og fegurstir á jörðu hér.
Magnea gætir bróður síns
Magneu litlu, söguhetju í Setið á
svikráðum, er ekki fisjað saman frekar
en okkur hinum. Hún er 24 ára, ólof-
uð, sjálfstæð, úrræðagóð og starfesöm
og ekki spillir útlitið og vöxtur fyrir
í samskiptum við hitt kynið. Magnea
er enda send til Englands að leita
bróður síns, Eiríks, sem er kvæntur
írskri konu og þess vegna hundeltur
af írskum hryðjuverkamönnum. Hún
kemur sér fyrir á hóteli og siglir þar
undir fölsku flaggi vegna misskilnings
í upphafi. Hún er tekin í misgripum
fyrir tilvonandi tengdadóttur húsráð-
enda og leiðréttir það ekki. Það syrtir
sigla undir fölsku flaggi eins og
Magnea. Gene flugmaður frá London
er einnig íri sem leitar Eiríks og konu
hans. Enginn veit hið sanna í málum
hins aðilans en Gene og Magnea falla
kylliflöt hvort fyrir öðru þó að þau
gruni hvort annað um græsku.
„Magnea hló. - Víst ertu drukkinn.
Hjarta hennar hamaðist svo, að hún
flýtti sér að fá sér vænan sopa líka.
Hún gat ekki haft af honum augun,
hann hafði dýrslegt aðdráttarafl á
hana.“ (bls. 134)
Allt er gott sem endar vel
Hin æsandi ævintýraferð til Eng-
lands færir Magneu sem sagt drauma-
prinsinn í fang og auðvitað hreppa þau
hamingjuna að lokum þegar kemur í
afþreyingu. Söguþráðurinn er að vísu
nokkuð flókinn og grundvallarhug-
myndir margar langsóttar. Persónur
eru mjög staðlaðar að hætti höfundar,
þ.e.a.s. annaðhvort góðar eða vondar,
heimskar eða slyngar og búnar annað-
hvort kvenlegum eða karllegum
eiginleikum samkvæmt íhaldssömustu
skilgreiningu.
Matur og vín gleður maga og munn
og losar um hömlur þegar þarf að hífa
eða slaka. Dyggðir andans og lysti-
semdir holdsins takast á og glæpur og
refeing koma við sögu.
íslenskur veruleiki, metnaður og
skáldskapur eru að vísu víðs fjari
þessu verki, - en hver hirðir um slíkt
þegar ástir og vín er annars vegar?
HH