Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 28
44 MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987. r i____________ E S3 Rakarastofan Klapparstíg Hárgreiðslustofan Klapparstíg Sími 12725 rímapantanir 13010 ..— --------1 LAUSAR STÖEHJR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Fóstrur, þroskaþjálfar eða aðrir með uppeldisfræði- lega menntun og reynslu óskast til stuðnings börnum með sérþarfir á dagvistarheimilum í vestur- og mið- bæ, heilt eða hlutastarf eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá Gunnari Gunnarssyni, sálfræðingi á skrifstofu Dagvistar barna, í síma 27277 eða 22360. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Auglýsing um rannsóknastyrki frá J.E. Fogarthy International Research Foundation J.E. Fogarthy-stofnunin í Bandaríkjunum býður fram styrki handa erlendum vísindamönnum till rannsókna- starfa við vísindastofnanir í Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnirfram á alþjóðavettvangi til rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomedical science). Hver styrkur er veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1988-'89 og á að standa straum af dvalarkostnaði styrkþega auk ferðakostnaðar til og frá Bandaríkjunum. Einnig er greiddur ferðakostnaður innan Bandaríkjanna. Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa um- sækjendur að leggja fram rannsóknaáætlun í samráði við stofnun þá í Bandaríkjunum sem þeir hyggjast starfa við. Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dag- þjartsson læknir, barnadeild Landspítalans (s. 91 -29000). - Umsóknir þurfa að hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí nk. 12. febrúar 1987 Menntamálaráðuneytið Merming Tvisvar sinnum Manuela Sven-Erik Back - Över tidens ström Caprice CAP 1318 Hans-Ola Ericsson - Melody to the me- mory of a lost friend X Caprice CAP 1330 Umboð á islandi: ístónn Hér er ég með tvær nýlegar hljóm- plötur frá Caprice-útgáfunni, sem í fljótu bragði virðast ekki eiga brýnt erindi við íslenska tónlistaráhuga- menn. Nánari kynni leiða annað í ljós. Bæði er sjálf tónlistin áhuga- verð og flutningur hennar ekki síður, og ekki sakar að hún Manu- ela „okkar" Wiesler tekur þátt í flutningnum á báðum plötunum. Á fyrri hljómplötunni er að finna tvö verk fyrir strengi, kvintettinn „Exerciter" og kvartett sem Ber- waldkvartettinn leikur, auk sónötu fyrir einleiksflautu, hvort tveggja eftir Sven-Erik Báck. Báck, sem fæddur er 1919, lærði tónsmíðar hjá Hilding Rosenberg og var meðal þeirra ungu sænsku tón- skálda í mánudags-hópnum svo- nefhda sem á fimmta áratugnum umbylti tónlistarlífi í Svíþjóð. Það var einmitt strengjakvintett Bácks, „Exerciter" ( æfingar), sem fyrst kom af stað harðvítugum deil- um milli framsækinna sænskra tónskálda og tónlistargagnrýnenda þar í landi. Meðal annars var Báck borið á brýn að vera húmorlaus áhangandi Hindemiths sem þá var mikill áhrifavaldur í Svíþjóð. I dag kemur berlega i ljós að þessi kvintett Bácks á næsta lítið skylt við tónsmíðar Hindemiths. Hlýleg meðhöndlun hans á blæbrigðum og harmónískt samræmi er órafjarri hinum ffernur harðhnjóskulega stíl Hindemiths. Innilegt yfirbragö Leikur Berwaldkvartettsins, ásamt með Báck sjálfum á fiðlu, ít- Tónlist Aðalsteinn Ingólfsson rekar einmitt innilegt yfirbragð verksins. Það er síðan ffóðlegt að hlusta á nýlegt verk fyrir strengi, Strengja- kvartett nr. 4, (1984) og bera það saman við umræddan kvintett. Þótt greina megi að verkin séu eftir sama tónskáld er ljóst að nýrra verkið er mun opnara í byggingu, fiölþættara, bæði hvað stef og tækni- lega úrvinnslu snertir, og jafhframt expressífara. Flautusónatan fylgir svo í kjölfar- ið. Hún er samin árið 1949, ári eftir „Exerciter", og byggir á flæði með allegró kjölfestu, og Manuela blæs þetta verk af þeirri ástríðu sem henni er eiginleg. Hans-Ola Ericsson (fæddur 1958) er hins vegar af yngstu kynslóð sænskra tónskálda, nemandi Tor- stens Nilssons, Brians Femeyhough og Luigis Nono. Frá 1974 hefúr hann samið 10 stærri tónverk, þar á meðal Minn- ingarsvítu um vin sinn sem fyrirfór sér árið 1981. Ericsson segist þá hafa farið að velta fyrir sér stórum spumingum um líf og dauða, sem urðu til þess að tónsmíðar hans tóku á sig nýja mynd. Sjálft tónbiliö Hann lagði stærri tónverk á hill- una og hóf að semja kammerverk þar sem hann gat prófað sig ná- kvæmlega áffam með öll möguleg blæbrigði einstakra hljóðfæra. Best er að gefa Ericsson sjálfum orðið: „Ég fór að fikra mig áffam með eina af forsendum tónlistar, tengslin milli stakra tóna, það er sjálft tónbilið. Hvers vegna er bilið milli tóna í senn svo kunnuglegt, undarlegt og sérstætt? Á sex mánuðum setti ég saman röð 192 tóna úr 24 átta-tóna klösum... og næstum stærðfræðilegt samspil þeirra ráða hraða, hiynjandi, blæ og tónhæð...“ Verkið er samið fyrir segulband, gítar, selló, óbó, píanó, fiðlu, flautu og ásláttarhljóðfæri og tekur 40 mín- útur. Það er auðvitað Manuela sem leik- ur á flautuna. Sjálfur er ég ekki dómbær á gæði þessarar tónlistar en hins vegar voru mín eyru alveg tilbúin að gútera það hvemig einleikaramir sjö henda á lofti þá tónfrasa sem segulbandið spýtir frá sér og mala úr þeim tónlist- arlegan góðmálm. -ai Manuela Wiesler.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.