Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Page 30
46
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
Tíöarandi
Texti: Borghildur Anna
„Þetta námskeið nýtist öllum
sem vilja góð samskipti við börnin
sín.“ Þetta er greinilega samdóma .
álit allra á námskeiði sem sálfræð-
ingarnir Hugo Þórisson og Wil-
helm Norðfjörð halda um þessar
mundir. Meginþema námskeiðsins
er samskipti foreldra og barna. Þau
taka það skýrt fram að allir foreldr-
ar eigi þá óska heitasta að koma
börnunum sínum vel til manns og
því ætti ekkert að spara til þess að
Námskeiöshópurinn ásamt kennaranum, Hugo Þórissyni. Landakortiö sem allt byggist a er i baksyn.
DV-myndir Kristján Ari
á því að minna hvort annað á eftir
að heim er komið. Þegar koma fram
röng viðbrögð þá er bara hægt að
segja - manstu?! - og það nægir til
að viðkomandi hugsar sig vandlega
um.“ Reyndar er það mjög algengt
að hjón komi bæði á námskeiðin -
annaðhvort sitt í hvoru lagi eða
saman. Fjölskyldurnar styðja mjög
við bakið á þeim sem á námskeið-
inu eru hverju sinni eða eins og
Vigdís Finnbogadóttir orðaði það:
Á foreldranámskeiði:
f. |
Notarðu þúboð og lokunarsvör?
leita þekkingará því sviði. Eflaust
geta líka margir tekið undir orð
eins þátttakenda - Jóhanns Hólm
- sem segist ekki óttast neitt meira
en að „.. .sitja einn góðan veður-
dag uppi með þjóðfélagsþegna sem
eru bara alveg tútal...!“
Á þessu foreldranámskeiði eru
þrettán manns að jafnaði og þang-
að hafa komið einstaklingarsem
eiga allt frá engu barni upp í barna-
skara. Fósturforeldrarog ömmur
hafa líka átt sína fulltrúa á staðn-
um. Byggt er á fyrirlestrum og
verklegum æfingum en það síðar-
nefnda fer þá meðal annars fram í
formi hlutverkaleiks. Menn fara
heim með verkefni - bæði skrifleg
og verkleg - þannig að góður kost-
ur gefst á því að tileinka sér nýtt
samskiptaform.
Forseti eða foreldri
„Hingað er fólk komið af áhuga
á barnauppeldi og óhætt að segja
að menn hljóti að fara út með rík-
ari skilning á því efni,“ segir Vigdís
Finnbogadóttir. Þar sem viðmæl-
andinn er forseti landsins eru
samnemendurnir spurðir hvernig
þeim hafi orðið við þegar þeir voru
komnir á foreldranámskeið með
forsetanum. Nokkuð sem varla
gæti komið fyrir annars staðar en
á íslandi og því glöggt dæmi um
frelsi einstaklingsins burtséð frá
þjóðfélagsstöðu og öðrum verald-
legum staðreyndum.
„Fyrstu viðbrögðin voru feimni
en núna hugsa ég ekkert um hana
sem forseta," segir einn og annar
segist hafa hugsað um ótvíræða
kosti við það að búa á íslandi þeg-
ar Vigdís ók burtu í bíl sínum eftir
fyrsta kvöldið. í augum hópsins er
hún núna „ .. .bara Vigdís Finn-
bogadóttir".
Aðspurð segist Vigdís sjálf gera
ráð fyrir að það gæti verið erfitt
fyrir aðra í slíkri stöðu í öðrum
löndum. „Það er dásamlegt að geta
leitað sér þekkingar á námskeiði
og hafa ekki herramenn hér í röð-
um með byssur og dót. Þetta er
reyndar ekki eina námskeiðið sem
ég hef tekið þátt í því mér finnst
fjarska gaman að læra og hef því
setið ráðstefnur og námskeið af
ýmsu tagi árum saman.“
Reglurnar þverbrotnar
Talið berst að máli málanna -
barnauppeldi - og Skúli Agnarsson
segist hafa farið til þess að kynna
sér hvað það væri sem þeim hjónum
bæri á milli.
„Konan mín er í kennaranámi
og hefur talsverða þekkingu á upp-
eldismálum. Hún notar þar aðferð-
ir sem ég kannast kannski ekkert
við - og svo kem ég heim úr vinn-
unni og þverbrýt allar reglur."
Þátttakendur eru sammála um
að þeir séu á staðnum vegna áhuga
á þessum málum - vilji því kynna
sér réttar aðferðir áður en vanda-
mál fara að láta á sér kræla.
Ý mislegt kemur ókunnum
spánskt fyrir sjónir. Þarna er hent
á milli hugtökum eins og þúboðum
og lokunarsvörum - og merkingin
er á hreinu innan hópsins. Á staðn-
um eru hjón og eiginkonan Helga
telur það kost en ekki galla.
Virðulegt námskeið
„V egna þess að við erum bæði á
námskeiðinu gefur það möguleika
„Það er ekkert litið hýru auga
ef ég þarf að fara út á kvöldin en
þetta er alveg sérstakt- þykir
virðulegt námskeið í augum ung-
viðisins míns.“
Þrátt fyrir að námskeið sem
stendur í átta kvöld geti ef til vill
ekki öllu breytt er þó ljóst að menn
eru á einu máli um gagnsemina.
Einkum er þeim ofarlega í huga sú
staðreynd að þarna koma fyrir
hlutir sem höfðu áður verið lokuð
bók en virðast einstaklega einfaldir
og augljósir eftir að minnst hefur
verið á þá og hlutirnir settir fram
á einföldu máli.
„Þú skammar ekki vini þína fyrir
að borða ekki grænar baunir,“ seg-
ir einn og annarbætir við: „ .. .og
þú skammar þá ekki heldur fyrir
að sóða allt út.“ Orðanotkun er
líka til umræðu eins og til dæmis
Asta Halldórsdóttir er þriggja barna móðir og eru afkomend
urnir á ýmsum aldursskeiðum.
„Svo þegar ég kom heim úr vinnunni ruglaði ég öllu sem
konan hafði verið að gera,“ sagði Skúli Agnarsson og brosti
góðlátlega.
„Maður óttast ekkert meira en að standa uppi einn góðan
veðurdag með tútal þjóðfélagsþegna." Hjónin Jóhann Hólm
og Helga Jónsdóttir.