Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Blaðsíða 34
50
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Greta Garbo
kom mörgum í opna skjöldu
með hlédrægni sem síðar
leiddi til þess að hún lét sig
hverfa endanlega úr sviðs-
Ijósinu. Nú segja stjörnu-
spekingar það rökrétt miðað
við fæðingartíma gyðjunnar
- því Greta er meyja og
dæmigerð fyrir þá afstöðu
sólarinnar. En meyjan erekki
aðeins hlédræg heldur líka
mjög hagsýn - sem svo
sannarlega á við í þessu til-
viki líka. Aðeins tuttugu og
sex ára gömul var Greta orð-
in vellauðug og hafði fjárfest
ótrúlega skynsamlega í hin-
um ýmsu fyrirtækjum. Hún
rekur til að mynda stóran
súpermarkað í Kaliforníu.
Robert
Redford
talar nú við hvert tímaritið á
fætur öðru og eru samræð-
urnar liður í þeirri viðleitni
að halda ímyndinni sem
góði drengurinn í filmu-
bransanum. Hann var lengi
vel einn örfárra sem höfðu
verið giftir einni og sömu
konunni árum saman en
eitthvað fóru þau hlutföll að
skolast til á síðasta ári - og
var stjarnan Debra Winger
sögð þúfan sem velti hlass-
inu. En Robert segist alltaf
sama englabarnið og slétt-
greiðslumyndir með spari-
brosi þenja sig nú yfir ótalda
dálksentímetra vestanhafs
og austan.
Freud
er ekkert óskiljanlegur að
dómi stjörnufræðinganna.
Karlinn var naut í sól og því
allmikill nautnamaður -
áhugi á kynlífi ekki undan-
skilinn. Sálfræðiáhuginn
kemur til af rísandanum sem
var í sporðdreka. Samkvæmt
þessu eru kenningarnar mar-
grómuðu svo sprottnar frá
sálarhnútum kennimannsins
sjálfs og því ekki að undra
að einstaka regla verði und-
an að láta í upplýsingaflóði
nútímans.
, ,Kisa
veit
ekki
hvar ég
er!“
Kötturinn veit sínu viti
og er fundvís á sína.
Feluleikur getur því
fengið óvæntan endi hjá
bestu vinum og því betra
að fara varlega í allar
aðgerðir. Því bíður kisa
þess af hinni mestu hátt-
vísi að leikfélaginn í
felunum verði hans var
svo leikurinn geti hafist
að nýju.
Madonna í myndinni Shanghai Surprise.
Gleraugu
gegn ofnæmi
Maður skyldi ekki láta sér bregða þó maður mætti mann-
eskju með stælleg skíðagleraugu í göngutúr úti í náttúrunni
að sumarlagi. Astæðan er sú að ein nýjasta uppfinningin
er nokkurs konar skíðagleraugu sem ætlað er að verja við-
komandi gegn fijókornum sem svífa í loftinu, aðallega á
vorin og haustin, og valda fjölda fólks ofnæmi, sem lýsir sér
í viðstöðulausum tárastraumi og nefrennsli.
Gleraugun ná niður fyrir nef en eru með sérstakri loftsíu
sem skilur fijókornin frá og þau hafa að sjálfsögðu engar
aukaverkanir eins og mörg þeirra ofnæmislyfja sem notuð
eru við kvillum sem þessum.
Þá er bara að bíða og sjá hvort þessi nýja lausn á málinu
fær góðan hljómgrunn eður ei.
Madonna
heldur sig
á hvíta tjaldinu
Fyrir utan það að slá í gegn með söng hefur Madonna einn-
ig sýnt að hún er liðtæk á hvíta tjalclinu sem sannaðist í
myndinni Örvæntingarfull leit að Susan. Þar lék hún hina
þokkafullu og villtu Susan við góðan orðstír. í sinni næstu
mynd, Shanghai Surprise, söðlaði hún alveg um og lék fórn-
fúsan trúboða við miður góðan orðstír.
Hún er þó ekki af baki dottin og leikur nú aðalhlutverk
skækju í sinni þriðju mynd sem verið er að taka upp og
nefnist Slammer.
Ekki ný tegund af skíðagleraugum - heldur gleraugu gegn ofnæmi.