Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
5
Sinfoníuhljomsveitin ftytur Jubilus eftir Atla Heimi:
Gleðiverk tileinkað
Halldóri Blondal
Halldór Blöndal alþingismaður
verður maður kvöldsins á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar íslands í Há-
skólabíói annað kvöld. Þar verður
flutt verkið Jubilus eftir Atla Heimi
Sveinsson en það er einmitt tileink-
að alþingismanninum.
„Ég hafði alltaf hugsað mér að til-
einkji Halldóri verk og nú hef ég
látið verða af því. Við Halldór erum
gamlir kunningjar og höfum skemmt
okkur mikið saman.“
Jubilus er gleðiverk fyrir einleiks-
básúnu, alla blásara Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, slagverk og elektrón-
ísk hljóð. Það var frumflutt í
kjördæmi Halldórs, norður á Akur-
eyri, fyrir nokkrum árum og likaði
þingmanninum vel að sögn Atla
Heimis. -EIR
Atli Heimir semur gleðiverk.
.tileinkað Halldóri Blöndal
Ragnheiður með litla Sigurð Óla. Ýmsir hafa sagt að hún gangi með þing-
manninn í maganum.
DV-mynd JGH
Fæðing næsta þing-
manns líka létt
- segir Ragnheiður Sigurðardóttir sem skipar 1. sæti á lista
Flokks mannsins á Norðuriandi eystra
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri;
Ragnheiður Sigurðardóttir, 25 ára
tölvufræðingur hjá KEA, verður efsti
maður á lista Flokks mannsins í Norð-
urlandskjördæmi eystra í komandi
kosningum. Ragnheiður ól myndarlegt
sveinbarn 19. janúar sl. Ýmsir vinir
hennar hafa sagt við hana að hún
hafi greinilega gengið með þingmann-
inn í maganum.
„Þettíi var létt fæðing, strákurinn
fæddist með bros á vör og vildi ég segja
að fæðing næsta þingmanns í fjölskyl-
dunni í kosningunum verði líka létt,“
sagði Ragnheiður í gær.
Hún er dóttir Sigurðar Óla Bryn-
jólfssonar, kunns framsóknarmanns á
Akureyri, sem sat í bæjarstjóm fyrir
flokkinn. Hann lést fyrir nokkrum
ánmi. Sá mánaðargamli heitir í höfuð-
ið á afa, Sigurður Óli.
„Nei, ég ætla ekki að mæta með
barnið á kosningafundi," segir Ragn-
heiður sem kveðst eiga góða að. Hún
var í 2. sæti á lista Flokks mannsins
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar sl.
vor.
„Þetta er kosningabarn. Það varö
til i síðustu kosningabaráttu." segir
Ragnheiður. Þess má geta að 19. jan-
úar er fæðingardagur Marteins Luther
King.
„Okkur líst vel á kosningabarátt-
una. Við í Flokki mannsins höfimi
fengið mjög góðar undirtektir, mun
betri en áður. Það er alveg klárt að
Flokkur mannsins er í sókn,” sagði
Ragnheiður.
Fréttir
Nýja útvarpsstöðin verður í kjallara Blikksmiðju Breiðfjörös í Sigtúni. Þar er allt ófrágengið en teikningar liggja fyrir.
DV-myndir BG
Útvarpsstöð
í blikksmiðju
Fréttir um nýja útvarpsstöð Ólafs
Laufdal, Þorgeirs Ástvaldssonar og
félaga höfðu ekki fyrr spurst en iðnað-
armenn voru komnir á fullan skrið við
að rýma kjallara Breiöfjörðs blikk-
smiðjunnar i Sigtúni 7. væntanleg
húsakvnni útvarpsstöðvarinnar.
Teikningar*liggja fyrir og í gær héldu
hluthafarnir, Jón Axel Ólafsson og
Þorgeir Ástvaldsson. af landi brott til
tækjakaupa. Um leið komu til landsins
erlendir sérfræðingar sem verða út-
varpsmönnunum innan handar við
uppbvggingu stöðvarinnar.
„Við ætlum að auglýsa eftir starfs-
fólki á næstu dögum og það gæti
jafnvel farið svo að við auglýstum eft-
ir útvarpsstjóra." sagði Þorgeir
Ástvaldsson í samtali við DV en Þor-
geir gerði sem kunnugt er það að
skilyrði fyrir þátttöku sinni í fyrirtæk-
inu Hljóðvarpi hf. að hann yrði ekki
sjálfur útvarpsstjóri. „Þeim kafla í lífi
mínu er lokið." sagði hann í DV í gær.
Ef áætlanir standast mun nýia út-
varpsstöðin hefja útsendingai- í maí.
jafnvel fyrr. og hlustunarsvæði hennar
verður ekki minna en Bylgjunnar.
Sent verður út allan sólai'hiánginn.
tónlist. fréttir og afþreyingaraefni alls
konar. Ljóst er að starfsmenn verða
ekki margir. rekstui' stöðvarinnar á
að byggjast á því að hluthafarnir rinni
sjálfir \áð útsendingai'. skipulagið á
að vera vinnuhvetiandi.
„Við viljum helst að starfsmenn
stöðvaiinnar eigi siálfir hagsmuna að
gæta varðandi reksturinn og svo verð-
ur þetta allt keyn á andagift og
samtakamætti." sagði Þorgeir Ást-
valdsson.
Nýja útvai'psstöðin hefur enn ekki
hlotið nafh. Rætt hefur verið imi að
efha til almennrar samkeppni um
heppilegt heiti. -EIR
ri AMC Jeepri AMC Jeep f| AMCIJee
3
AMC aut á sama stað| Jeep
& u -N’
ÞJÓIMUSTA
í yfir40árhefurumboð
og öll þjónusta fyrir
AMC Jeep bíla verið á
einum og sama staðn-
um.
Gífurlegt magn varahluta fyrirliggjandi.
Nýjar sendingar vikulega.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
NYJUIMG!!
ALHLIÐA VIÐGERÐAÞJOIMUSTA
ECILL
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200