Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
7
Atvinnumál
Hráefnisskortur dýr fyrir Atvinnuleysistryggingasjóð:
Greiðir meirihluta
launa fastráðins
fískvinnslufólks
hofuðstóll sjóðsins nokkuð á annan milljarð kióna
í samningum um fastráðningu
starfsfólks í fiskvinnslu er ákvæði sem
segir að ekki sé hægt að segja starfs-
fólki upp nema með eins mánaðar
fyrirvara þótt hráefnisskortur verði.
Undantekning er þó ef hráefhisskort-
urinn er vegna verkfalls sjómanna.
En í samningunum er líka gert ráð
fyrir því ef hráefni skortir þá greiði
Atvinnuleysistryggingasjóður fyrir-
tækjunum sömu upphæð og fólkinu
hefði verið greitt ef það hefði látið
skrá sig atvinnulaust. Sú upphæð
nemur milli 60% og 70% af dagvinnu-
launum.
Eyjólfur Jónsson, yfirmaður At-
vinnuleysistryggingasjóðs, sagði að
þetta hefði fyrst komið til fram-
kvæmda í-desember og janúar síðast-
liðnum og enn lægi ekki fyrir hve háa
upphæð sjóðurinn hefði orðið að
greiða. Ljóst væri þó að um verulegar
upphæðir gæti orðið að ræða' enda
árlegur viðburður að hráefni skorti til
vinnslunnar frá því seint í nóvember
og fram yfir miðjan janúar.
Að sögn Eyjólfs var höfuðstóll At-
vinnuleysistryggingasjóðs 1,1 millj-
arður króna í ársbyrjun 1986 og hefur
vaxið nokkuð síðan en höfuðstólstölur
í lok síðasta árs liggja ekki fyrir enn.
Mjög stór hluti þessa höfuðstóls er
bundinn í skuldabréfum. Sjóðurinn
hefur verið látinn kaupa mikið af bréf-
um af Húsnæðisstofnun ríkisins í
gegnum árin. Öll eru þau bréf verð-
tryggð að sögn Eyjólfs.
-S.dór
Á þessari loftmynd sjást kerin sem veriö er að smiða og fara eiga i
Helguvik. DV-mynd GVA
Ker fyrir Helguvík
VerktakafyTÍrtækið Núpur er nú
að smíða sex ker fyrir hafnargarðinn
í Helguvík og vinnur fyrirtækið verk
þetta í höfninni i Straumsvík á sama
stað og kerin í hafnargarðinn þar
voru steypt fyrir um það bil 20 árum,
samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Braga Erlendssyni hjá
ÍSAL.
Ker þessi eru mikil mannvirki, á
hæð við 4 til 5 hæða hús, en þegar
þau hafa verið steypt verður þeim
fleytt til Helguvíkur þar sem þeim
verður komið fyrir í hafnargarðin-
um.
Fiskmarkaðurinn á
undan áætlun
Undirbúningiu að fiskmarkaði í
Hafharfirði gengur vel og meira að
segja er bygging fiskmarkaðshúss á
undan áætlun að sögn Haraldar Jóns-
sonar, stjómarformanns fiskmarkað-
arins. Hann sagði að ekki væri búið
að ákveða opnunardaginn og yrði það
vart gert fyrr en búið er að afgreiða
lagafrumvarpið um fiskmarkaði sem
nú liggur fyrir Alþingi.
Fiskmarkaðshúsið, sem verið er að
byggja við höfnina í Hafnarfirði, er
fjögur þúsund fermetrar að grunnfleti.
-S.dór
firði og sú ágæta hafnaraðstaða sem þama er. DV-mynd GVA
Hjúkrunarfræðingar:
Vinnustöðvun
boðuð 19. mars
Háskólamenntaðir hjúkrunar-
fræðingai', sem eru 90 talsins, hafa
boðað til verkfalls 19. mars hafi
kjarasamningar ekki tekist fyrir
þann tíma. Einn viðræðufúndurhef-
ur verið haldinn og buðu fulltrúar
fjármálaráðuneytiaius þá 3,5%
launahækkun, eins og öðrum félög-
um innan BHMR hefúr verið boðið.
Krafa hjúkrunarfræðinga er 45 þús-
und króna lágmarkslaun á mánuði.
Hjúkrunarfræðingastéttin er tví-
skipt, háskólamenntaðir og hjúkr-
unarskólamenntaðir. Hinir siðar-
nefhdu eru mun fjölmennari og hafa
þeir ekki boðað verkfall. Ef til
innustöðvunar háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga kemur myndi
starfsemi ríkiaspítalanna raskast
verulega, einkum ákveðinna deilda
innan þeirra.
-S.dór
Byggingariðnaðurinn:
Harka að færast
í kjaradeiluna
Aukin harka er nú að færast í kjara-
deilu byggingariðnaðarmanna og
viðsemjenda þeirra. Hafa fjögur stór
svæðafélög þegar boðað verkfall 11.
mars hafi samningar ekki tekist fyrir
þann tíma. Hér er um að ræða Tré-
smiðafélag Reykjavíkur, Iðnsveinafé-
lag Suðumesja, Félag byggingamanna
í Hafharfirði og Félag byggingamanna
á Suðurlandi en innan þessara þriggja
síðasttöldu félaga eru allar greinar
byggingariðnaðarins. Ætla þessi félög
að semja hvert fyrir sig.
Múrarafélögin í landinu, sem og
málarar og pípulagningamenn, eru
ekki innan Sambands byggingamanna
og eru þau öll í sérviðræðum. Þá fer
Samband byggingamanna með samn-
ingsumboð fyrir mörg hinna smærri
félaga í landinu.
Viðsemjendur eru svo Meistarasam-
band byggingamanna en það er ekki
innan Vinnuveitendasambandsins og
Vinnuveitendasambandið sem fer með
umboð fyrir Verktakasamband Islands
sem er aðildarfélag innan þess.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari hefur haldið nokkra fundi með
þessum aðilum og sagði hann að nýir
fúndir yrðu boðaðir annað hvort í dag
eða fimmtudag.
-S.dór
Hótel Höfn:
Fleiri pantanir en í fyvra
Júlia Imsland, DV, Hcfa
Á Hótel Höfn hefur mun meira ver-
ið pantað af gistingu nú heldur en á
sama tíma í fyrra að sögn Áma Stef-
ánssonar hótelstjóra. Útlit er fyrir að
ferðamenn verði talsvert fyrr á ferð-
inni i ár heldur en í fyrra og em fyrstu
hópamir bókaðir í maí.
Landssamband rafveitna verður með
þriggja daga ráðstefnu á hótelinu í vor
og em það yfir 200 manns. Hótelið
leigir fimmtán herbergi í verbúðinni
Ásgarði í sumar, auk herbergja sem
leigð em úti í bæ. Segja má að Hótel
Höfn hafi verið aðal- samkvæmisstað-
urinn á Höfh í vetur og þar em
árshátíðir og margs konar uppákomur
um flestar helgar.
(
ecco-let gerir valið auðvelt
■ Handsaumaðir
■ Mjúkir leðurfóðraðir kantar
■ Léttir og sterkir
■ Leöurfóöraðir, fré hœl I tá
Teg. 11 (Óreimaðirl
Teg. 10 (Reimaðir)
Skóverzlun
ÞORÐAR PETURSSONAR
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181. Laugavegi 95. Simi 13570.