Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
Utlönd
Verslanir af
lista Ameri-
can Express
Haukur L. Haukssan, DV, Khafn:
Fjöldi verslana í miðbæ Kaup-
mannahafnar munu sjá af nokkr-
um hluta veltunnar í framtíðinni
þar sem þær eru ekki lengur á lista
yfir verslanir er taka við American
Express greiðslukortum.
Alls hafa 7.500 verslanir, er ár-
lega selja útlendingum vörur er
nema áttatíu til hundrað milljón-
um danskra um króna, verið
teknar af lista American Express.
Á listanum eru nú einungis 500
verslanir.
Niðurskurður American Express
er bein afleiðing þess að fyrirtækið
má ekki lengur taka gjald af notk-
un þeirra greiðslukorta sem eru í
danskri eigu. Verslunareigendur
eru mjög óánægðir með að vera
ekki lengur á lista American Ex-
press en stefna bandarískra ferða-
manna er gjarnan sú að án
greiðslukorts verða engin kaup
gerð.
Einn verslunareigenda í miðborg
Kaupmannahafnar segir að veltan
muni minnka um 180 þúsund
danskar krónur.
Rán á Brandt
fyrirhugað?
Ásgeir Eggertsson, DV, Muncheu-
Samkvæmt frétt, sem birtist í
þýska vikuritinu Quick i gær, ráð-
gerðu frönsku hryðjuverkasam-
tökin Action Directe að ræna
Brandt, fyrrum kanslara Vestur-
Þýskalands.
Þessi frétt hefur ekki verið stað-
fest af opinbeium aðilum. Quick
segir að á korti, sem fundist hafi,
sé sérstaklega merkt við sumarbú-
stað Brandts í franska bænum
Gagnieres þar sem Brandt ætlaði
að dveljast á páskunum. Á kortinu
á að hafa verið merkt við allar
aðkomuleiðir að húsinu.
Nákvæmar upplýsingar um fóm-
arlambið fundust einnig sam-
kvæmt fregn blaðsins. Ekki hafa
frönsk yfirvöld staðfest þessa frétt.
Umsjón:
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir og
Guðmundur G.
Pétursson
Forstjóri FBI settur
yfir leyniþjónustuna
Ólafur Amarsan, DV, New Yorlc
Reagan Bandaríkjaforseti til-
nefndi síðla dags í gær William H.
Webster, núverandi forstjóra alríkis-
lögreglunnar FBl, í embætti for-
stjóra leyniþjónustunnar.
Tilkynningin kom nokkuð á óvart
því nafn Websters hafði ekki borið
á góma í þessu sambandi áður. Það
var eftir að John Tower, sem flestir
töldu að hefði. hug á embættinu,
hafði hafhað starfinu að Webster var
boðin staðan. Webster er 63 ára gam-
all og lögfræðimenntaður. Hann
stundaði dómarastörf en árið 1978
skipaði Carter, þáverandi forseti,
hann yfirmann FBI. Alríkislögregl-
an var þá í sárum eftir stjórn Edgars
Hoovers og þóttu starfsaðferðir FBI
ekki til fyrirmyndar. Þykir Webster
mjög hafa bætt starfshætti FBI þó
ekki sé verkið fullunnið.
William Webster er talinn íhalds-
samur og ábyggilegur og líklegur til
að hljóta staðfestingu þingsins innan
tíðar. Það mun meðal annars hafa
haft mikið að segja um það að hann
varð fyrir valinu því ráðamenn í
Hvíta húsinu vilja nú ólmir segja
skilið við íransmálið og snúa sér að
merkilegri verkefnum. Binda menn
miklar vonir við að Webster takist
að lappa eitthvað upp á siðferðið eða
kannski öllu heldur siðleysið sem
ráðið hefur ríkjum innan leyniþjón-
ustunnar undir stjóm Caseys sem
sagði af sér í síðasta mánuði. Þá
telja menn líklegt að samstarf leyni-
þjónustunnar og alríkislögreglunnar
Yfirmaður bandarísku alríkislög-
reglunnar, William Webster, hefur
verið tilnefndur sem forstjóri leyni-
þjónustunnar í Bandaríkjunum.
Simamynd Reuter
muni batna undir stjóm Websters
og mun víst varla vanþörf á.
Einn þeirra sem taldir eru líklegir
arflakar Websters hjá FBI er Ru-
dolph Giuliani, saksóknari á
Manhattan, sem stjómað hefui’
rannsókninni á svindli í Wall Street.
William Webster gaf út þá yfirlýs-
ingu í gær að Bandaríkin ættu að
athuga möguleikana á að ræna
meintum hryðjuverkamönnum er-
lendis til að geta haldið réttarhöld
yfir þeim í Bandaríkjunum. Sagði
Webster að það skipti ekki öllu máli
fyrir bandaríska dómstóla hvort
hryðjuverkamennimir yrðu afhentir
samkvæmt samningi eða hvort þeim
yrði rænt svo framarlega sem hand-
tökuskipun hefði verið gefin út.
Niels Bach Kristensen skipstjóri þakkar sjóliðsforinga fyrir björgunina.
Símamynd Reuter
Skip fullt af
sprengiefni á reki
Danskt skip, með fullfermi af
sprengiefni, tók niðri á miðju Ermar-
sundi í gær. Frönsk og bresk herskip
voru í viðbragðsstöðu á meðan sér-
fræðingar veltu því fyrir sér hvort
sprengja ætti skipið í loft upp.
Fimm manna áhöfn yfirgaf skipið
eftir að eldur kom upp um borð. Að
sögn strandvarða dó eldurinn út af
sjálfu sér þannig að ekki var mikil
hætta á ferðum. Skip vom aftur á
móti vömð við að fara nálægt skipinu
en þama er mjög straumhart og fjöl-
farin leið.
Breskir og franskir sérfræðingar
íhuga nú hvort þeir eigi að sökkva
skipinu með skothríð.
Ahafnarmeðlimir danska skipsins sem eldur kom upp í á Ermarsundi. i skipinu eru fjögur hundruð tonn af sprengi-
e*n'' Simamynd Reuter
Sovésk kvikmynd
hlaut gullbjöminn
Ásgar Eggextesan, DV, Mimchen:
Á kvikmyndahátíðinni í Berlín var
gullbjöminn fyrir bestu kvikmynd-
ina veittur sovésku myndinni The
theme eftir leikstjórann Gleb Panf-
ilov. Besta leikstjómin var verð-
launuð með silfúrbiminum og fékk
hann Oliver Stone fyrir kvikmynd-
ina Platoon. Fjallar hún um Víet-
namstríðið og þykir hún taka á því
máli á nokkuð annan hátt en slíkar
kvikmyndir.
Ana Beatriz Nogueira fékk verð-
laun fyrir bestu frammistöðu í
kvenhlutverki. Sérstakt lof dóm-
nefndarinnar hlaut japanska
myndin Hafið og eitrið.
Kvikmyndahátíðin þótti í ár hafa
tekist vel. Aðsókn var góð og þótti
fólki að dómnefndin hefði staðið sig
vel.
Sérstaka athygli vöktu sovésku
myndirnar því margar þeirra hafði
verið bannað að sýna í mörg ár.
Þykir það bera vitni um nýja menn-
ingarstefnu yfirvalda í Sovétríkjun-
um.
Sovéski leikstjórinn Gleb Panfilov heldur stoltur á gullbirninum sem hann
fékk fyrir mynd sína The theme en bannað hafði verið að sýna hana í
Sovétrikjunum í sjö ár.
Símamynd Reuter