Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 500 kr. Verð i lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Kerfisbreytingar? Landsfundur Sjálfstæðisflokksins mun leiða í ljós, hvort flokkurinn leggur áherzlu á hagkvæmar kerfis- breytingar. Tillögur um aukið frjálsræði, landsmönnum til hagsbóta, koma fram í fyrstu drögum að ályktunum landsfundar, sem fulltrúar hafa fengið. Þarna eru tillög- ur um uppskurð í ýmsum efnum. Slíkt hefur áður verið samþykkt í starfshópum landsfunda flokksins, en alltof skammt gengið í framkvæmd. I drögunum segir meðal annars: „Enn eru eftir nokk- ur svið, þar sem hagkvæmni frjálsrar verðmyndunar hefur ekki fengið notið sín.“ Lagt er til, að landsfundur- inn hvetji til þess, að verðlag verði gefið frjálst á búvöru, fiski og olíu. Einnig verði dregið úr opinberum verðá- kvörðunum á öðrum sviðum, til dæmis í tryggingastarf- semi. Tillögumenn vilja, að frelsi í ákvörðunum vaxta verði meginregla. í vaxtalögum eigi einungis að vera almennt ákvæði, sem taki til misneytingar og saknæms atferlis í fjármálaviðskiptum. Þar eigi ekki að vera ákvæði, sem feli Seðlabanka eða öðrum opinberum aðilum að ákveða, hverjir skuli vera hámarksvextir utan innláns- stofnana. Þá er minnzt á þann möguleika, að enn verði dregið úr miðstýringu Seðlabankans á sviði gengis- mála, til dæmis með því að binda gengi íslenzkrar krónu fast við valinn gjaldmiðil eða gjaldmiðla. Erlendum bönkum verði heimilt að setja upp afgreiðslustaði hér á landi. Olíuverzlunin verði gefin frjáls, og þar verði tekin upp frjáls verðlagning. Gerð verði áætlun um, að inn- flutningur búvöru verði smám saman gefinn frjáls. Lagt er til, að einkaréttur stóru fisksölufyrirtækjanna verði afnuminn á útflutningi og opinber afskipti af útflutn- ingi miðist í auknum mæli við kynningar- og markaðs- starfsemi. Þá verði opinberum afskiptum af opnunar- tíma sölubúða hætt. Sjálfstæðisflokkurinn ætti öðrum flokkum fremur að geta beitt sér fyrir slíkum kerfisbreytingum. En margir háttsettir og valdamiklir menn í flokknum eru gersam- lega andvígir mörgu af því, sem hér hefur verið rakið. Slíkir menn viðurkenna í orði kosti frjálsræðis í þessum efnum, en á borði eru þeir kerfismenn. Sú þjónkun við kerfið og úreltan hálf-sósíalisma er auðvitað í andstöðu við grundvallarhugsjónir, sem Sjálfstæðisflokkurinn boðar. Frjálsræðið, sem hér er lagt til, mundi færa flest- um landsmönnum bætt lífskjör mjög fljótlega, þótt það skaði tímabundið fámenna hagsmunahópa. Menn munu í fljótu bragði búast við, að á lands- fundinum verði hart tekizt á um þessi efni. Þar standi annars vegar stuðningsmenn frjálsræðis og framfara, hins vegar framsóknarmennirnir í Sjálfstæðisflokknum. En svo þarf ekki að verða. Landsfundir Sjálfstæðisflokksins hafa oftast sam- þykkt stefnu, sem gengur miklu lengra í frjálsræðisátt en af verður í framkvæmd. Framsóknarmennirnir í flokknum hafa að miklu leyti ráðið ferðinni, þegar til framkvæmda kemur. Þar hafa margir staðið dyggan vörð um hagsmuni þrýstihópanna. Foringjar flokksins munu nú reyna að kveða niður þær raddir, sem kalla eftir kerfisbreytingum. Þær verða þá ýmist svæfðar, eða einhver loðmulla samþykkt og loks verður ekki farið eftir samþykktun- um, ef einhverju skipta. Haukur Helgason. Tími smá- fyrirtækjanna er runninn upp Við íslendingar eigum mikla möguleika til sóknar í atvinnulífinu ef ráðamenn átta sig á því að það er efling smáfyrirtækjanna sem er forsenda eíhahagslegra íramfara. Hagsæld framtíðarinnar felst í að nýta fjölbreytnina og þróunarkraft- inn sem smáfyrirtækin búa yfir. Stóriðjan er ekki lengur það töfra- meðal sem menn héldu fyrrum. Tími smáfyrirtækjanna er runninn upp. í rúman áratug hafa forystumenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks boðað trúna á stóriðjuna sem hinn eina örugga aðgöngumiða að hagsældarríki framtiðarinnar. Jafnvel einstaka áhrifamaður í Alþýðubandalaginu hefur einnig villst inn í þessa trú- boðsstöð þótt viðlagið hafi þá að vísu verið að stóriðjan yrði bara að vera „íslensk". Þetta heimatrúboð um gósentíma stóriðjunnar hefúr reynst vera byggt á sandi. f rúm tiu ár hefur það engu skilað. Eini gróðinn felst í dagpen- ingum sendimanna ríkisstjómarinn- ar sem hafa verið á þeysireið um heiminn til að leita að nýjum samn- ingum um álverksmiðju hér og kísilmálmverksmiðju þar. A sama tíma hafa stjómvöld ger- samlega vanrækt að hlúa að þeim vaxtarbroddi hagsældar sem í öðrum iöndum hefur skilað mestum ár- angri. Þessi uppspretta framfaranna eru smáfyrirtækin. Það em þau sem reynst hafa vænlegasti farvegurinn fyrir nýsköpun í atvinnulífinu, nýjar framleiðsluvömr, uppgötvanir, tækninýjungar og sókn inn á út- flutningsmarkaði sem áður vom og em enn vanræktir. Smáfyrirtækin hafa orðið útundan hjá íslenskum stjómvöldum. Hér skortir fjármagn til rannsókna og markaðsleitar. Hér em bankar og lánasjóðir áhugalitlir um möguleika hinna smáu fyrirtækja. Hér starir bara hver ráðherrann á fætur öðmm á mýrarljós stóriðjunnar. Þeir hafa ekki skilið að það em smáfyrirtækin sem em besta tryggingin fyrir aukn- um framfömm og fjölþættara at- vinnulífi í framtíðinni. Stóriðjan strandar Á árunum 1980-1983 ráku sjálf- stæðismenn, framsóknarmenn og kratar þann áróður að Hjörleifúr Guttormsson væri eina hindrunin í gróðagötu stóriðjunnar. Hann kæmi í veg fyrir að gerðir væm samningar um ný álver á fslandi. Ekki bara stækkun í Straumsvík heldur líka álver við Eyjafjörð - og gott ef ekki einnig í fleiri landshlutum. Þessar áróðursmessur vom hins vegar byggðar á miklum misskiln- ingi. Hjörleifúr var með menn í förum viða um heim til að ræða við fyrirtæki um stóriðjurekstur á fs- landi. Forstjórar frá Japan, Amer- íku, Noregi og ítalíu tóku þátt í þeim viðræðudansi. Síðan tóku Sverrir Hermannsson, Steingrímur forsætisráðherra, Matt- hías A. Mathiesen sem þá réði viðskiptaráðuneytinu, Gunnar G. Schram, Guðmundur Þórarinsson, Jóhannes Nordal og Albert Guð- mundsson við þessu verkefni. Þeir höfðu í fyrstu stór orð um að hendur yrðu látnar standa fram úr ermum. Það myndi ekki taka nema nokkra mánuði að koma með nýjan stóriðju- samning. Enda hafði ríkisstjómin m.a. verið mynduð á grundvelli sam- eiginlegs áhuga Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á auknum Kjallarinn —----a____ ísland sem fyrirmynd Ólafur Ragnar Grímsson prófessor viðskiptum við Alusuisse en sá áhugi birtist skýrt í aðdraganda kosning- anna 1983. Þessir snillingar hafa nú í fjögur ár glímt við að gera stóriðjudraum- inn að veruleika. Gunnar Schram hefur á kjörtímabilinu verið oftar og lengur í stóriðjuviðræðum í út- löndum en í heimsóknum í atvinnu- fyrirtækin á Suðumesjum. Iðnaðarráðherramir Sverrir og Al- bert hafa ásamt Steingrími foreætis- ráðherra af og til tilkynnt þjóðinni að nú væm samningar á næstu grös- um. Eitt sinn gekk svo langt að þeir sáu helst von í að fá kínverska ríkis- kommúnismann til að reisa nýja álverksmiðju í Straumsvík. Sverrir kom í útvarpið og tilkynnti gleðitíð- indin og Steingrímur fór til Kína. Síðan hefur ekki heyrst meira um það. Nýjasta sjónarspilið er svo að Al- bert var um síðustu helgi í London til að gylla áldrauminn fyrir Rio Tinto Zink en sú samsteypa átti í .fyrra að redda kísilmálverksmiðj- unni hjá Sverri. En bobb kom í þann bát og þá fór Albert að róa lífróður í álvíkina enda stutt til kosninga og illt að koma tómhentur að kjörborð- inu eftir fjögurra ára stóriðjuleið- angra út um allar heimsins trissur. Það er hins vegar tími til kominn að þessir ráðamenn átti sig á því að stóriðjustefhan hefur siglt í strand. Hún er afsprengi liðins tíma. Hún er ekki í stíl við drifkraftinn í hag- þróun framtíðarinnar. Það eru aðrir og vænlegri möguleikar komnir til sögunnar. Nýjar hugmyndir Á sama tíma og íslenskir ráða- menn hafa verið á kafi í stóriðju- draumnum hafa nýjar áherslur og hugmyndir sett svip sinn á hag- þróunina í þeim ríkjum sem mestum árangri hafa náð. Þar hafa menn , áttað sig á því að hagvöxtur framtíð- arinnar hvílir einkum á hugviti, dugnaði og nýsköpun sem best þrífst , í smáum fyrirtækjum. Þessi niðurstaða ætti að vera ís- lendingum fagnaðarefni. Hér eru öll skilyrði til að búa smærri fyrirtækj- um hagstæð vaxtarskilyrði. En þá verður lika að opna augu ráða- manna fyrir þeirri staðreynd að framtiðin felst í þvi að gera smáfyrir- tækin að forsendu aukinna fram- fara. Reyndar er það athyglisvert að þrátt fyrir skilningsleysi ráðamanna hefur mörgum smáfyrirtækjum á ís- landi tekist að ryðja nýjungum braut. Hugvit og tölvutækni eru orð- in útflutningsvara. Smærri fyrirtæki hafa fundið nýja markaði fyrir fjöl- þættari útflutning á sjávarafurðum. Útflutningur á skötu og keilu, ígul- kerum til Frakklands og skreið til Bandaríkjanna - svo nokkur dæmi séu nefnd - eru allt nýjungar sem komu frá smærri fyrirtækjunum. Fiskeldið er orðið að veruleika en það bjó lengi við algert áhugaleysi stjómvalda og þeir voru taldnir skrítnir sem sögðu það gullnámu framtíðarinnar. Smærri iðnfyrirtæki hafa fundið nýja markaði fyrir marg- víslegan útflutning. Nýjungar í ferðamannaþjónustu em flestar komnar frá mörgum smáum aðilum. Dæmin em mörg. Þau sýna að þrátt fyrir vanrækslu stjómvalda hefúr tekist að sýna í verki sóknar- kraftinn í smáfyrirtækjunum. Hornsteinn nýrrar atvinnu- stefnu Ef Islendingar eiga að búa við lífs- kjör sem verði í samræmi við það besta í veröldinni, þá er nauðsynlegt að bijóta í blað í atvinnumálum landsins. Það verður að gera smáfyr- irtækjunum kleift að nýta þá miklu möguleika sem þau búa yfir á sviðum iðnaðar, tækni, þjónustu og sjávar- útvegs. Nýjar áherslur í skipulagi rannsókna og markaðsleitar þurfa fyrst og fremst að taka mið af þróun- armætti smáfyrirtækjanna. Starf- semi banka og lánasjóða þarf að breyta í samræmi við þarfir hinna ýmsu ólíku rekstrarforma smáfyrir- tækjanna. Þær breytingar þurfa að vera í þágu fjölskyldufyrirtækja, ein- staklingsfyrirtækja, hópfyrirtækja og nýrra og ólíkra forma samvinnu- fyrirtækja. Það eru hin smáu rekstrarform þar sem samvinna einstaklinganna nýt- ur sín best sem eru vænlegasti kosturinn í atvinnuþróun íslend- inga. Ef við skiljum þann einfalda sannleika þá getur ísland orðið öðr- um fyrirmynd um hagþróun og framfarir. Ólafur Ragnar Grímsson „Það eru hin smáu rekstrarform þar sem samvinna einstaklinganna nýtur sín best sem eru vænlegasti kosturinn í atvinnu- þróun íslendinga. Ef við skiljum þann einfalda sannleika þá getur Island orðið öðrum fyrirmynd um hagþróun og fram- farir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.