Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. 15 Hagsmunir þriðja aðilans „Það sýnir hins vegar takmarkaðan skilning á eðli verkfalla að forusta BSRB harmaði afstöðu lögreglumanna og tollvarða." Verkföll hafa verið réttlætt með því að verkamaðurinn geti neitað að vinna nema fyrir tiltekna upphæð og vinnuveitandinn verði að horfast í augu við tekjutap, þar sem starf- semi hans leggst niður, eða ganga til samninga við verkamenn. Aug- ljóst dæmi um þetta var farmanna- verkfallið um daginn. Útgerðarmenn áttu í hörðum deilum við sjómenn og náðust þó samningar eftir nokkra hríð. En meðan á deilunni stóð kom upp ' uggur um að Islendingar myndu tapa mörkuðum i Bandaríkjunum þar sem þeir selja frystan fisk. Sjómenn og útgerðarmenn komust þá að sam- komulagi um að skip með frystan fisk mættu sigla. Þar sýndu bæði útgerðarmenn og sjómenn þjóðholl- ustu og viðurkenndu að það væri fyrir utan tilgang verkfalla að láta það bitna á þriðja aðila sem ekkert getur gert til þess að leysa deiluna. Hagsmunir þriðja manns hljóta ævinlega að blandast inn í verkföll. Farmanna- og Dagsbrúnarverkföll hljóta að lenda á almenningi ef verk- fallið stendur langan tíma. Það er hins vegar ekki bein afleiðing af verkfallinu - almenningur verður i sjálfu sér ekki var við verkföllin fyrstu dagana. Bitnar á hinum almenna borgara En málið lítur öðruvísi út þegar um er að ræða opinbera starfsmenn. Það eru t.d. fyrst og fremst þjófar og aðrir lögbrjótar sem græða á verkfalli lögreglumanna. Verkfallið bitnar á hinum almenna borgara, sem ekkert getur gert til þess að leysa verkfallið, því að valdið til þess að ákveða lögreglumönnum hærra kaup er í höndum fjármála- ráðherrans. Þetta hafa lögreglu- menn skilið og hafa afsalað sér verkfallsrétti. Með sama hætti skildu tollverðir að það er ekki hluti af kjarabaráttu að banna ferðamönnum för til lands- ins. KjaUaiim Haraldur Blöndal lögfræðingur Það sýnir hins vegar takmarkaðan skilning á eðli verkfalla að forusta BSRB harmaði afstöðu lögreglu- manna og tollvarða - eða var forustan að harma það að geta ekki lengur veifað svipu lögleysunnar jdir höfði fjármálaráðherrans? Vaxandi efasemdir Þriðji hópurinn, sem heíúr engan siðferðislegan rétt til þess að beita verkfalli, eru kennarar. Forustu- menn kennara telja sig betur menntaða en flesta og hafa siðferðis- legan skilning umíram almenning og gera kröfu til þess að mega pre- dika um siðferðisleg efni við nemendur og sjá um innrætingu. Þá skortir hins vegar siðferðislegan skilning á skyldum kennara við sam- félagið og þá einkum við nemendur sína. Undanfarin ár hafa kennarar haldið uppi sérstæðri kjarabaráttu og hafa menn samúð með eðlilegum launakröfum þeirra. Hins vegar hafa verið uppi vaxandi efasemdir um þær aðferðir sem þessir menn beita til þess að koma fram málum sínum. Fengu ofbeldisþrá sinni full- nægt Þess er skemmst að minnast að kennarar stöðvuðu kennslu með of- beldi í Háskóla íslands fyrir nokkr- um árum og fór Háskólinn í mál og krafðist skaðabóta. Úrslit þess máls urðu þau að kennarar voru dæmdir bótaskyldir fyrir ólögleg verk sín og til þess að greiða háskólanum fjár- hagslegt tjón. Mér vitanlega hafa nemendur ekki fengið bætur frá samtökum kennara né heldur hafa kennarar boðist til þess að bæta nemendum tjón. - Og skal jafnframt tekið fram að hér voru ekki á ferð- inni háskólakennarar sem neituðu að kenna heldur kennarar við aðra skóla og fengu ofbeldisþrá sinni full- nægt með því að ráðast á alsaklaust fólk og synja því um lögboðna kennslu. Þessu til viðbótar stal Kári Am- órsson skólastjóri bókum nemenda sinna til þess að þeir gætu ekki lesið heima í verkfallinu. Ekki var Kári kærður fyrir þetta meinta brot. Skömmu síðar ákváðu kennarar að segja upp störíúm. Sú uppsögn var ólögleg og vissu kennarar það vel. Uppsögn þessi átti að koma nemendum mjög illa, en kennarar treystu þvi að fræðsluyfirvöld myndu kiþna undan þrýstingi for- eldra. En þvert á móti varð enginn var við það að nemendur skiluðu minni árangri þótt kennarar felldu niður kennslu. Segir þetta sitt um kennsluna og námsefnið. Sífelldar fráverur kennara En nú ætla kennarar að fara í verkfall um miðjan mars. Þessi tími er vitanlega valinn til þess að koma foreldrum og nemendum í vandræði. Vorpróf nálgast og sífelldar fi"áverur kennara, flestar ólöglegar, hafa valdið því að fleiri böm en áður em illa á vegi stödd. Hljóta foreldrar að verða grípa til sinna ráða. Fyrir nokkm var sýnd í sjónvarp- inu mynd um foreldra sem risu upp gegn ofurvaldi kennslumálayfir- valda í Bretlandi og stofnuðu eigin skóla til þess að bömin fengju nauð- synlega kennslu. íslenskir foreldrar eiga að fara að dæmi hinna bresku foreldra. Hér á landi em það hins vegar ekki fræðsluyfirvöld sem ráð- ast gegn hagsmunum bamanna heldur kennaramir. Það er til fjöldi ágætlega mennt- aðra manna i landinu sem er fær til þess að halda uppi lágmarkskennslu í skólum landsins - fara yfir verkefni í sögu, náttúrufræði, landafræði, kristnum fræðum og samfélagsfræði. Með sama hætti geta foreldrar kennt bömum skrift og hlýtt yfir um lestur og látið reikna. Er hér verðugt verk- efni fyrir foreldrafélög í skólunum og gætu félögin skipulagt þessa neyðarkennslu í samráði við skóla- stjóra. Að vísu ekki í samráði við Kára Amórsson - þar myndi starf foreldrafélagsins beinast að því að halda skólastjóranum frá bókum nemendanna svo að þær hyrfu ekki á dularfúllan hátt. Haraldur Blöndal. „Hér á landi eru það hins vegar ekki fræðsluyfirvöld sem ráðast gegn hags- munum barnanna heldur kennarar.“ Sitt lítið af hverju að vestan „Allt bendir til þess að snjólaust veröi annað árið í röð. Hvað ætli spar- ist margar milljónir sem ætlaðar voru i snjómokstur? Ég spyr: því í ósköpunum eru þessir peningar ekki notaðir i að gera vegina betri...“ Á Islandi býr ein þjóð, íslendingar. A.m.k. er bömum kennt það í skólum og þeir erlendu ferðamenn, sem okk- ur sækja heim, sjá ekki annað, en hver er raunin? Mér finnst eins og þjóðin sé að skiptast ansi mikið, ekki bara í ríka og fátæka, heldur líka höfuðborg- arbúa og landsbyggðarfólk. Þar kemur margt til. Það nýjasta em skólagjöldin sem borg Davíðs er að mkka inn hjá litlu sveitarfélögunum vegna nemenda utan af landi sem dvelja vetrarlangt í skólum höfúð- borgarinnar. Gjaldið er kr. 25-30.000 á nemanda. Hvaða sveitarstyrkur er þetta eig- inlega? Borgar þetta fólk ekki fyrir sig í Reykjavík? Bæði fæði og húsa- leigu, skemmtanir o.fl. o.fl. Hvemig væri að gera könnun á þessu eins og öllu öðm, hvað margir í Rvík hafa atvinnu að einhverju eða öllu leyti af nemendum utan af landi, hve mikla peninga þessir krakkar fara með o.s.frv. Ég held að 20.000 kr. á mánuði í fæði og húsnæði sé varlega áætlað svo þetta er heilmikil at- vinnubót fyrir borgarbúa yfir vetrar- tímann þegar lítið er um ferðamenn. Við sem erum með ferðaþjónustu í dreifbýlinu værum ánægð með að fá svona vetramýtingu. Kerfið 15 ára unglingur hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna innbrota og skemmdarverka sem hann hefur framið. Hann á 10-12 ára fangelsis- dóm yfir höfði sér þegar hann nær 16 ára aldri. „Við höfum gert allt fyrir hann sem hægt er í kerfinu,“ var sagt í sjónvarpsfréttum um dag- inn... En hvað hefur „kerfið" í Kjallaiinn Svava S. Guðmundsdóttir húsfreyja Görðum Snæfellsnesi rauninni gert honum. 10 ára gömlum var honum komið í fóstur uppi í sveit, hann hafði átt erfiða bemsku og þvælst víða en þama náði hann áttum. Fósturforeldrar hans gátu með natni og kærleika náð undra- verðum árangri og eftir 1-2 ár var hann búinn að jafna sig og allt gekk eins og í sögu en þá kom „kerfið“ til skjalanna. Af vissum ástæðum þótti hagstæðara að flytja hann um set og nú áttu fósturforeldramir eng- an rétt, hvað þá að hugsað væri um velferð bamsins. Það var indæll, kátur og eðlilegur drengur sem tek- inn var af góðu heimili, þá var hann á 13. ári. Eftir örfáa mánuði hófst afbrotaferill hans og er skammt stórra högga á milli... Hver ber ábyrgðina? Enginn. „Kerfið" hefúr get allt. sem hægt er... og nú bíður tukthúsið. Vegamál í dreifbýli Fyrir ekki löngu siðan vakti það þó nokkra athygli að hreppsnefndir af Hvalfjarðarströnd og úr Kjós steðjuðu á fund þingmanna sinna og færðu þeim undirskriftalista u.þ. b. 5000 vegfarenda sem mótmæltu þeim 20 km hringvegarins á þessu svæði sem enn er ekki búið að mal- bika. Ekki sýndu þingmennimir bless- aðir þessu máli mikinn áhuga (jafn- vel ekki á kosningaári) svo órafjarri em þeim vegamálin i dreifbýlinu nú sem endranær, en ansi hreint erum við orðin langþreytt á afskiptaleys- inu. Já, það er dapurlegt hlutskiptið okkar héma á Vesturlandi, við eig- um eins og er 4 þingmenn i stjóm, þar af 1 ráðherra, og forsætis- og samgönguráðherrar em báðir af Vestfjörðum en hver er svo árangur- inn í þessum byggðarlögum? Vegim- ir em enn þeir verstu á landinu í þessum kjördæmum. Allt bendir til að snjólaust verði annað árið í röð. Hvað ætli sparist margar milljónir sem ætlaðar vom í snjómokstur? Ég spyr: Því í ósköp- unum em þessir peningar ekki notaðir í að gera vegina betri og byggja nýjar brýr þar sem þær gömlu em að hruni komnar áður en þær valda stórslysum. Hvers konar ráð- slag er þetta eiginlega? Mikið skelf- ing vom Sunnlendingar heppnir í gamla daga að eiga hann Ingólf á Hellu í sínu kjördæmi. Þeir ráð- herrar og stjómarþingmenn, sem hafa aðstöðu til úrbóta, mættu gjama muna betur eftir kjósendum sínum og hugsa aðeins út fyrir mal- bikið. Loksins höfum við fengið nýjan valkost á Vesturlandi. Kvennalist- ann. Svo von er um bata í þessum efnum því ömgglega munu þær, svo „landsbyggðarlegar" og jafnréttis- sinnaðar sem þær em, bæta kjör okkar til muna eigi þær þess nokk- um kost. Okkar er valið. Svava S. Guðmundsdóttir ,,..það er dapurlegt hlutskiptið okkar hérna á Vesturlandi, við eigum eins og er 4 þingmenn í stjórn, þar af 1 ráðherra og forsætis- og samgönguráðherrar eru báðir af Vestfjörðum, en hver er svo ár- angurinn í þessum byggðarlögum?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.