Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Spumingin Ætlarðu að hengja öskupoka á fólk í dag? Vala R. Flosadóttir: Já, hvort ég ætla. Mamma mín saumar svo fína ösku- poka og ég hlakka mikið til. Svcinn Theódórsson: Nei, alveg ör- ugglega ekki. Ég hef nánast aidrei gert það og ætla ekki að fara að bvrja á því nú. Sigrún Bragadóttir: Nei, ég held ekki það er hægt að gera svo margt annað skemmtiiegra. Hrefna Lind Ásgeirsdóttir: Já, mamma er búinn að sauma fullt af öskupokum handa mér svo ég verð að vera dugleg að hengja á fólk. Unnur María Bergsteinsdóttir: Ég veit ekki, ég hef nú eiginlega aldrei gert það því ég gleymi því alltaf að það er öskudagur. Hlynur Guðmundsson: Það er aldrei að vita, það verður eflaust mjög gam- an að hengja nokkra. Lesendur Fórnarlamb nauðgara Guðmundur Jónsson skrifar: Forsaga þessa máls er óhugnanlegur atburður er gerðist í kaupstað nokkr- um úti á landi núna sl. vor. Unglings- stúlka, er dvaldi þar í heimavist vegna skólagöngu sinnar, varð fyrir hrotta- legri líkamsárás og ofbeldi á sjálfri lóð skólans sem hún var nemandi í. Svo langt var gengið að þegar bardaginn hafði staðið í klukkutíma án þess að árásarmaðurinn fengi vilja sínum framgengt þá ioksins barst hjálp sem varð til þess að ofbeldisseggurinn lagði á flótta. Óþarft er að Iýsa sálarástandi stúlk- unnar en líkamlega var hún öll marin, blá og blóðrispuð. Fötin voru rifin i tætlur utan af henni. Stúlkan var síð- an undir Iæknishendi í nokkum tíma á eftir en tókst þó með dugnaði og aðstoð velviljaðra yfirmanna skólans að ljúka tilskildu námi í vor. Þessi atburður var að sjálfsögðu kærður, sakborningur handtekinn og eftir að hafa viðurkennt verknaðinn var honum sleppt lausum. Það var DV sem sagði frá þessum atburði nokkm eftir að hann gerðist en að- standendur bæjarblaðs staðarins sáu ekki ástæðu til að segja frá þessu. Aðstandendur stúlkunnar spyija yfirvöld staðarins hvaða vemd eða öryggi þau geti veitt stúlkunni sem verður að dvelja þama vegna skóla- göngu. Svarað var á þessa leið: „Til þess að slíkur atburður sem þessi end- urtaki sig ekki er ráðlegast fyrir viðkomandi einstakling að halda sig innandyra og ef hún þarf endilega að fara út að gæta þess að vera ávallt í fylgd annarra." Spurt var hvort ekki væm til einhver ráð til að hefta lausa- göngu svona ofbeldismanna, svarað var á þessa leið: „Þessi aðili hlýtur bara að hafa svona óviðráðanlega sami aðili gerist brotlegur á ný, enn er það utanbæjarstúlka, sem dvelur þama við nám, sem verður fyrir alvar- legri áreitni hans. Sökudólgurinn er ákærður og tekinn úr umferð í smá- tíma, sem fyrr, og síðan sleppt lausum. Það skal tekið fram að dómurinn af fyrri atburðinum var ekki kominn er ■ síðari atburðurinn gerðist. Nú gerist það að bæjarbúar sjá ástæðu til að segja lítillega frá þessu ofbeldi í blaði sínu. En eftir standa nokkrar spumingar er brenna á vömm aðstandenda (og reyndar fleiri, þetta varðar okkur öll) þeirra ungmenna er fyiir slíku ofbeldi verða. I fyrsta lagi, hvers vegna er það ekki sjálfsagt að birta nöfh og myndir slíkra síbrotamanna er fremja jafiia- lvarlega glæpi og ofbeldi og líkamsár- ás er. Slík myndbirting yrði almenningi til upplýsingar og afbrota- manni til aðvömnar, ætla má að hann endurtaki ekki afbrot ætti hann von á slíku. Mér finnst svona ofbeldi allavega mun alvarlegra heldur en þeirra ólán- sömu aðila er verður það á að fara fijálslega með fjánnuni eða ætla má að misnoti aðstöðu sína í hagsmuna- skyni. Þeir fá mynd af sér í fjölmiðlum og öll þjóðin sér mynd af þeim inni í stofú hjá sér löngu áður en dómstólar hafa fjallað um mál þeirra. Hvaða rétt- læti er þetta? Eigum við virkilega að þurfa að trúa þvi að yfirvöld löggæslu og dómsmála telji sig ekki skyldug til að veita sam- borgurum sínum vemd gegn slíkum ódæðisverkum. Ég bara spyr: Er það ekki skylda þeirra að sjá til þess að allur almenningur geti varist svona lausgangandi ofbeldismönnum á lægsta plani með einhveijum ráðum, eða eigum við bara að bíða og sjá hvert verður næsta fórnarlamb? sterka kynhvöt og við getum ekki af Svo gerist það nú í vetur, að nýlok- þeirri ástæðu lokað hann inni.“ inni jóla- og áramótahátíð, að þessi Hvers vegna er það ekki sjálfsagt að birta nöfn og myndir slikra sibrota kyn- ferðisglæpamanna er fremja jafnalvarlega glæpi og ofbeldi og líkamsárás er? „Ég skora á aðstandendur keppninnar að láta Björgvin um sönginn þá eru líkur á að við vinnum keppnina." Björgvin yrði sigursæll María Albertsdóttir hringdi: inni því að þá em miklar líkur á að Mér finnst að Björgvin Halldórsson við vinnum.'Björgvin er alveg frábær söngvari eigi að syngja fyrir hönd Is- söngvari með mjög góða rödd. lendinga í Eurovision söngvakeppn- Armband tapaðist Hlíf Steingrimsdóttir hringdi: Armband tapaðist á dansleik félags læknanema í Broadway. Þetta var fimmtudaginn 12. febr. Þetta er hand- smíðað silfurarmband, mjög nýtísku- legt þótt það sé gamalt. Útlit þess er mjög abstrakt. Þetta er sár missir og því væri mjög vel þegið ef einhveijir gætu veitt mér upplýsingar hvar það gæti verið niðurkomið. Vinsamlegast hringið þá í síma 41809. Einn lífeyrissjóð Ragnheiður Harðardóttir hringdi: Eg er fylgjandi tillögu Alþýðuflokks- ins um einn lífeyrissjóð. Það misrétti sem er nú milli aragrúa af mismun- andi lífeyrirssjóðum verður að stöðva. Það á eitt að ganga yfir alla lands- menn og því að hafa einn lífeyrirsjóð með samræmdum lífeyrirsréttindum. Góð þjónusta Margrét Haraldsdóttir hringdi: Mig langar að koma góðum þökkum til hljómplötufyrirtækisins Steinars fyrir sérlega góða þjónustu. Ég hafði keypt safnplötu á útsölu hjá þeim, alb- úm sem heitir Með lögum skal land byggja. Er ég ætlaði að fara að spila hana voru báðar plötumar eins. Þar sem ég bý í Keflavík lá beinast við að hringja í þá í staðinn fyrir að fara til þeirra. Þeir leiðréttu þennan misskiln- ing strax og sendu mér plötuna daginn eftir mér að kostnaðarlausu. Fækkið hraða- hindrunum Páll Stefánsson hringdi: Mikið skelfing er ég orðinn leiður á þessum hraðahindrunum sem búið er að troða alls staðar þar sem hægt er. Ég tel frekar að þær valdi slysum en hið gagnstæða, einfaldlega vegna þess að það er allt of mikið um þær. Það er mjög eðlilegt að gera ein- hveijar varúðarráðstafanir en öllu má ofgera og þegar við Islendingar viljum taka til hendinni þá verðum við vana- lega svo miklir dellukarlar að öllu er ofaukið. Vonast ég til að þessir vegatálmar verði teknir til rækilegrar endurskoð- unar, þetta er óþolandi ástand.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.