Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
21
Erlendir fréttaritarar
Fullyrt að Pakistan
sé orðið kjarnorkuveldi
Jón Onnur HaMórsson, DV, Haag:
Breska sunnudagsblaðið The Ob-
server fullyrðir að Pakistan hafi
bæst í hóp kjamorkuvelda heimsins.
Fullyrðingar blaðsins em byggðar á
viðtali við þekktasta kjarnorkuvís-
indamann Pakistan en ríkisstjórn
landsins hefur neitað því að Pakist-
an ráði yfir kjamorkusprengju.
Umfangsmikil hemaðar- og eína-
hagsaðstoð Bandaríkjanna við
Pakistan er háð því að Pakistanar
smíði ekki kjamorkuvopn. Pakist-
anar þiggja meiri hemaðaraðstoð frá
Bandaríkjunum en nokkurt annað
land í heiminum að ísrael undan-
skildu. Reagan Bandaríkjaforseti gaf
þinginu tryggingu fyrir því í október
síðastliðnum að Pakistanar réðu
ekki yfir kjamorkuvopnum en þing-
ið krafðist sh'krar yfirlýsingar frá
forsetanum áður en aðstoð til Pa-
kistan var samþykkt.
Aukinn vígbúnaður
Umfangsmikil vopnasala Banda-
ríkjanna til Pakistan og mikil
hemaðaraðstoð við landið hefur ver-
ið gagnrýnd víða í Asíu því þetta
hefur kallað á aukinn vígbúnað Ind-
verja sem telja að sér stafi ógn frá
Pakistan en ríkin hafa þrívegis lent
í stríði frá því að þau fengu sjálf-
stæði frá Bretlandi fyrir Qömtíu
ámm.
Indverjar sprengdu kjamorku-
sprengju fyrir meir en áratug og
urðu þar með sjötta ríkið i heiminum
til að framleiða þetta vopn en fyrir
vom Bandaríkin, Sovétríkin, Kína,
Bretland og Frakkland. Indverjar
hafa hins vegar ekki hafið fram-
leiðslu á kjamorkusprengju til
notkunar í hemaði og hafa ekki
kjamorkurannsóknum Pakistana,
Abdel Khan, er að sögn breska
blaðsins The Observer heldur dular-
íúllur náungi sem vísað var úr landi
í Hollandi fyrir rúmum áratug vegna
gmns um að hann hefði komist yfir
vísindaleyndarmál. Hann vann í
kjamorkurannsóknarstöð þar i
landi. Hlaut hann menntun sína í
Þýskalandi, Hollandi og Belgíu.
Khan er i miklum metum í Pakistan
og sagt er að hans sé gætt eins vel
og forseta landsins. Zia ul-Haq hers-
höfðingja, sem stjómað hefúr
landinu frá því að hann steypti Ali
Bhutto af stóli fjTÍr meira en áratug.
Allra veðra von
Mikil ólga er i Pakistan þessa dag-
ana og allra veðra von í stjómmálum
landsins en skemmst er að minnast
heimkomu Benazir Bhutto, dóttur
Ali Bhuttos, í fyrra sem leiddi til
blóðugra óeirða víða í landinu.
Stjómarandstaðan. sem er marg-
klofin, hefur valdið Zia vaxandi
vandræðum og sama er að segja um
þjóðarbrot í landinu sem lítt er gefið
um stjómina í Islamabad. I landinu
em einnig þrjár milljónir flótta-
manna frá Afganistan og i síðustu
viku vom gerðar árásir á búðir
þeirra innan landamæra Pakistan.
Fvrir þremur vikum kom svo nálega
til átaka á landamærum Indlands
og Pakistan eftir að báðir aðilar
höfðu. fyrir sakir tortryggni. safnað
saman hundruðum þúsundum her-
manna meðfram landamærunum.
Líkleg tilvist kjamorkuvopna í
landinu. sem sennilega hafa verið
kostuð af Líbýu og flehi arabaþjóð-
v"i. verður varla til þess að draga
úr spennu í einum viðkvæmasta
hluta heimsins.
komið slíkum sprengjum fyrir í eld-
flaugum. Sterkir aðilar í stjórn-
málum Indlands hafa hins vegar
barist fyrir því að landið komi sér
upp eldflaugum með kjamaoddum
eða sprengjum til að varpa úr flug-
vélum.
Vaxandi fylgi
Þessum sjónarmiðum mun að lík-
indum vaxa vemlega fylgi við þessar
nýjustu fréttir frá Pakistan þó ör-
uggt megi telja að stjórnvöld í
Pakistan muni halda áfram að neita
tilvist kjamorkuvopna í landinu.
Sá maður, sem talinn er fara fyrir
** ■■«
■ ,4, V-J
Umfangsmikil hernaðaraðstoð Bandaríkjanna viö Pakistan er háð því að Pakistanir smíði ekki kjarnorkuvopn.
Palme myrtur vegna sáttasemjarahlutverks?
Gunniaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
,,Þegar Olof Palme tók að sér að
miðla málum í stríði Irans og íraks
komst. hann í kast við vopnasmygl-
ara og pólítíska öfgamenn undir-
heimanna,“ segir bandarískur
stjórnarerindreki í viðtali við New
York Times um helgina.
Mjög ítarleg grein blaðamannsins
Richard Reeves í New York Times
hefur vakið gífúrlega athygli bæði í
Svíþjóð og í Bandaríkjunum. Reev-
es, sem er sagður í hópi virtustu
fréttamanna Bandaríkjanna, heldur
því fram í greininni að sáttasemjara-
hlutverkið í Persaflóastríðinu og
tilraunir hans til að stöðva ólöglega
vopnasölu sænskra vopnaframleið-
enda til Irans hafi kostað hann lífið.
Stöðvaði vopnaflutninga
Árið 1980 tók Palme að sér sátta-
semjarahlutverk í deilu Irans og
Iraks og hann hélt því starfi áfram
eftir að hann var kosinn forsætisráð-
herra að nýju árið 1983. Þegar það
tók að spyrjast út að Iranir notuðu
sænsk vopn í stríðinu stöðvaði
Palme vopnaflutningana.
Reeves telur víst að sú ákvörðun
hafi kostað Palme lífið. Reeves seg-
ist byggja grein sína á viðtölum við
hundruð heimildarmanna í Svíþjóð
og fjórum öðrum löndum, þar á með-
al Bandaríkjunum. Meðal heimild-
armanna hans séu menn innan
sænsku ríkisstjómarinnar sem fall-
ist hafi á að ræða við hann gegn
algjörri nafnleynd. Reeves heldur
því og fram að dauði Svíans Carl
Fredriks Algerons, er rannsakaði
vopnasöluna, hafi tengst þessu málí.
Algeron varð fyrir neðanjarðar-
brautarlest í vetur og Reeves heldm-
því fram, eins og raunar margir aðr-
ir, að Algeron hafi verið myrtur.
Lögreglan telur hins vegar að um
sjálfsmorð hafi verið að ræða.
Reeves fúllyrðir að sterk öfl innan
sænsku ríkisstjómarinnar hafi kom-
ið í veg fyrir alvarlega rannsókn
þessa spors þó svo að sænska ríkis-
stjómin hafi fengið upplýsingar frá
útlendum leyniþjónustum sem bendi
í þessa átt. Þessir aðilar innan ríkis-
stjómarinnar óttist afleiðingamar
fyrir sænska utanríkispólitík,
sænska vopnasölu og álit Svíþjóðar
út á við ef hið sanna kæmi i Ijós.
Fréttin borin til baka
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
og fjöldi annarra ráðherra og opin-
berra embættismanna hafa um
helgina keppst við að bera til baka
frétt New York Times. „Hér er um
að ræða blaðamann sem kom hingað
í stuttan tíma og telur sig eftir nokk-
ur viðtöl hafa leyst morðgátuna.
Eftir því sem ég best veit hefur hann
ekki rætt við einn einasta ráð-
herra,“ sagði Ingvar Carlsson,
greinilega önugur yfir sífellt nýjum
vangaveltum um að ríkisstjómin
hafi á einhvem hátt reynt að hindra
rannsókn Palmemorðsins.
Skammt er liðið síðan fréttir um
að morðið mætti rekja til einkalífs
Palme voru á hvers manns vörum.
Einnig í því tilfelli var ríkisstjómin
sökuð um að koma í veg fyrir að hið
sanna kæmi í ljós.
Bandarískur blaðamaður heldur því fram að sáttasemjarahlutverk Palme i Persaflóastriðinu og tilraunir hans til
að stöðva ólöglega vopnasölu sænskra vopnaframleiðenda til irans hafi kostað hann lifið. Á myndinni má sjá
erlenda fréttamenn við fangabúðir i irak. - Simamynd Reuier