Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
■ Húsaviðgerðir
Iðnlr. - húsasmiður. Tek að mér alla
smærri trésmíði, t.d. gler- og hurðaí-
setningar, milliveggi, húsaviðgerðir
o.fl. Sími 14884 eftir kl. 17.
Kreditkortaþjónusta. Sparaðu þér spor-
in! Þú hringir inn smáauglýsingu, við
birtum hana og greiðslan verður færð
inn á kortið þitt! Síminn er 27022.
■ Til sölu
BILUARDBÚÐIN
Smiðjuvegi 8 Sími 77960
Píluspil, pílur, snokerkjuðar o.fl. í miklu
úrvali. Billiardbúðin,
Smiðjuvegi 8, sími 77960.
Full búð af hjálpartækjum ástarlífsins
og æðislega sexí nær- og náttfatnaður
í miklu úrvali fyrir dömur og herra.
Komdu á staðinn, hringdu, eða skrif-
aðu. Ómerkt póstkröfu- og kredit-
kortaþjónusta. Opið alla daga nema
sunnud. frá kl. 10-18. Rómeó og Júl-
ía, Brautarholti 4, 2. hæð, sími 14448,
29559. Box 1779, 101 Rvík.
■ BOar til sölu
Þessi bíll, sem er sérhannaður veit-
ingabíll, er til sölu. Uppl. í símum
53739 og 52717 á kvöldin.
Þurfum fleiri
svona mót
- sagði Helgi Ólafsson stónneistari
„Jón L. hélt uppi merki íslenskra
skákmanna í þessu móti og stóð sig
vel. Við hinir vorum langt frá okkar
besta. Ég er ekki sammála því sem
sumir halda fram að þetta mót hafi
verið of sterkt íyrir okkur. Ég er á
því að við þurfum einmitt fleiri svona
mót. Það er ómetanleg reynsla að fá
að tefla gegn þessum mönnum. Helst
þyrftum við að fá annað sterkt mót
strax næsta haust. Ef við fáum ekki
tækifæri til að tefla við okkur sterk-
ari menn, fer okkur ekkert fram,“
sagði Helgi Ólafeson í samtali við
DV.
Helgi sagði að þótt íslensku skák-
mennimir hefóu ekki staðið sig nógu
vel á þessu móti, þýddi það ekki að
þeir gætu ekki staðið sig vel á því
næsta. Þetta gengi bara svona til í
skákinni. Hann var spurður hvort
hann teldi að heimavöllurinn væri
verri fyrir íslensku skákmennina?
„Ég skal ekki um það segja, þó
finnst mér það eins og að fara í gegn-
um svipugöng að ganga í gegnum
áhorfendaskarann á leið út úr hús-
inu eftir að hafa staðið mig illa. Það
segir enginn neitt, en ég veit að ís-
lenskir áhorfendur á skákmótum
hafa svo mikla þekkingu á skák að
þeir eru engum öðrum áhorfendum
líkir og ég veit að þeir hugsa sitt.
Það er einnig ánægjulegt að hafa
þessa fastagesti í salnum. Maður er
farinn að þekkja hver á þennan eða
hinn hóstann og ég tek orðið eftir
því ef einhvem fastagest vantar.
Þetta er ánægjulegt en samt liggur
það þungt á manni að tefla hér
heima ef manni gengur illa,“ sagði
Helgi Ólafeson. -S.dór
Á þessu höfum við
lært okkar lexíu
- sagði Jóhann Hjartarson stórmeistari
„Við höfum sannarlega ekki stað-
ið okkur nógu vel, íslensku skák-
mennimir, nema Jón L. Hans
frammistaða er góð. En við höfum
lært okkar lexíu á þessu móti. Það
er alveg nauðsynlegt fyrir okkur að
fá að taka þátt í svona sterkum
mótum, annars fer manni ekkert
fram,“ sagði Jóhann Hjartarson í
samtali við DV.
Hann sagðist telja að svona mót
heföi vantað frá því að þeir strákam-
ir urðu stórmeistarar fyrir 2 árum
og hann sagðist vona að fleiri fyrir-
tæki sýndu jafnfrábært framtak og
IBM að styrkja Skáksambandið til
mótahalds á borð við þetta. Jóhann
sagði Short vel að sigrinum kominn.
Hann heföi sýnt mikinn styrk. Hér
hefði verið á ferðinni einvalalið
skákmanna og það hefði verið mjög
gaman að taka þátt í mótinu, þótt
velgengnin hefði mátt vera meiri.
„Nei, ég held að það sé ekkert
verra fyrir okkur að tefla hér heima.
Helst er það áður en mótið hefst að
manni þykir vera nokkuð ónæðis-
samt. Fjölmiðlar sinna svona mótum
frábærilega vel og eiga þakkir skild-
ar. En ég held að áður en mótið
hófet hafi það truflað mann nokkuð
að vera í fjölmiðlum og fylgjast með
umfjöllun þeirra. En eftir að út i
mótið er komið skiptir það ekki
máli,“ sagði Jóhann Hjartarson.
-S.dór
Góður bíll. Escort 1600 L ’83 til sölu,
sjálfekiptur. Verð 320 þús. Til sýnis
og sölu á Bílasölu Guðfinns. S. 621055.
■ VersLun
B
20% afsláttur á óléttubuxum. Verslunin
M. Manda, Kjörgarði, 2. hæð, Lauga-
vegi 59, sími 622335.
„í sjálfu sér liggur mér ekkert á
að gerast lögmaður en mér iiggur
á ef ég ætla mér einhvem hlut í
skákinni og það er komið að þeira
tímamótum að ég verð að velja á
millisagði Margeir Pétursson í
samtali við DV í gær.
Margeir vermdi neðsta sætið á
raótinu og er það ekki vani hans
að sitja þar. Þetta mun raunar í
fyrsta sinn sem Margeir verður
neðstur í skákmóti. Hann starfar
sem lögfræðingur hjá Búnaðar-
bankanum og sinnir því skák
minna en ella. Hann stóð sig illa
á Hastingsmótinu um áramótin og
aftur núna. Hann var spurður
hvort það gæti fkrið saman að
ætla að tefla við atvinnumenn og
vera í öðm starfi en skák?
„Ég sé það nú að slíkt fer alls
ekki saman. Ég undirbjó mig of
lítið fyrir þetta mót og þaö hefhdi
sín. Ég verð alla vega að leggjast
undir feld nú og hugsa mitt mál.
Þrátt fyrir slakt gengi haföi óg
gaman af mótinu. Eg var stundum
óheppinn og nokkrum sinnum var
ég með betri stöður en lék af mér.
Það er athyglisvert að afleikimir
komu alltaf á milli 40. og 45. leiks,
sem segir mér það að ég var ekki
nógu vel undirbúinn, ekki í nógu
góðri þjálfun. Ég tók að þreytast
óeðlilega mikið þegar á skákimar
leið. Slíkt er merki um ónógan
undirbúning og lítið úthald. Það
má segja að ég sé með 50% vinn-
inga í mótinu fram að 40. leik, þá
komu töpin,“ sagði Margeir.
Hann tók mótlætinu með að-
dáunarverðu jafnaðargeði. Það er
vonandi að Margeir taki skákina
fram yfir lögfræðistörfin næstu
órin, hann getur svo miklu meira
en hann sýndi ó þeesu móti.
-S.dór
2§
DV
Sérverslun með glæsilegan nátt- og
undirfatnað og hjálpartækjum ástar-
lífsins. Sendum allt í ómerktri póst-
kröfu. Nýjung: Hringdu og fáðu uppl.
um Klúbb aldarinnar. Opið 14-22.30
um helgar 18.30-22.30. Ný alda, Box
202, 270 Varmá, s: 667433.
Framleiðum alla teg. trestiga og hand-
riða, teiknum og gerum föst verðtil-
boð. E.P. stigar hf„ Súðarvogi 26, sími
35611. Veljum íslenskt.
Bæjarins bestu baðinnréttingar: Sýn-
ishorn í Byko og Húsasmiðjunni,
hreinlætistækjadeild. Sölustaður
HK-innréttingar, Dugguvogi 23, sími
35609.
■ Bátar
Skipasalan Bátar og búnaður.
Sómi 800 ’85, vél Volvo Penta 165
hö„ tveggja skrúfu drif, vel búinn
tækjum. 3-7 tonna tré- og plastbátar
í úrvali. Sölum. heima 91-34529. Skipa-
salan Bátar og búnaður, Tryggvagötu
4, sími 622554.
Svakaleg skák!
- sagði Jón L. Ámason eftir sigurinn í gæikveldi
„Ég segi það satt að þetta er ein-
hver sú svakalegasta skák sem ég hef
teflt. Ég man ekki til þess að hafa
verið leikinn jafngrátt og í kvöld.
Kortsnoj var með gjörunna stöðu. Það
var svo komið að ég gat engan mann
hreyft og fómaði þá þessum riddara í
örvæntingu til að flækja stöðuna.
Hann gleypti við honum eins og öllum
fómum og þá tóku hjólin að snúast
mér í vil. Að vísu þurfti hann að leika
af sér oftar til þess að ég ynni skákina
og hann gerði það og allt í einu gat
ég valið um leiðir til að máta hann,“
sagði Jón L. Ámason eftir að hafa
lagt Kortsnoj að velli í gærkveldi.
Jón sagði að þeir Kortsnoj hefðu
farið yfir skákina á eftir og eytt í það
klukkustund. Kortsnoj heföi ekkert
verið sár út í sig fyrir að hafa af sér
250 þúsund krónur. Hann heföi fyrst
og fremst verið sár út í sjálfan sig.
„Ég er sæmilega ánægður með minn
hlut í mótinu, þótt ég sé ekki ánægður
með hlut okkar íslensku skákmanna
ef á heildina er litið. Mótið var kær-
komið tækifæri fyrir okkur og því leitt
að við skyldum ekki standa okkur
betur en raun varð á. En þetta var
dýrmæt reynsla sem við munum allir
búa að í framtíðinni. Það gerist ekki
á hveijum degi að við fáum tækifærj^.
til að tefla á svona sterku móti og IBM
á þakkir skildar fyrir framtak sitt,“
sagði Jón L. Ámason hálfdasaður eft-
ir risaátökin við Kortsnoj í gær.
-S.dór
Peningar skipta mig
minna máli en
skáklistin sjálf
- sagði Viktor Kortsnoj sem missti af 250 þúsund
krónum í gærkveldi
„Peningar skipta mig ekki miklu
máli. Ég er nógu efnaður til að geta
lifað áhyggjulausu lífi og peningar
skipta mig miklu minna máli en skák-
in sjálf. Mér urðu á hrapalleg mistök
í kvöld. Þau mistök ergja mig meira
en þeir peningar sem ég missti af,“
sagði Viktor Kortsnoj í samtali við
DV í gærkveldi.
Hann var spurður um þá gagnrýni
sem hann hefði haft uppi við móts-
haldið.
„Þetta er mót í 14. styrkleikaflokki,
sem þýðir að þar keppa sterkustu
skákmenn. Mér þótti ýmsu ábótavant
við mótshaldið en verst af öllu var að
umferðimar skyldu ekki allar byija á
sama tíma. Maður stillir sig inn á
ákveðinn tíma í svona mótum og þeg-
ar tímasetningunni er breytt mglar
það mann í ríminu. Það fór afar illa
í mig.“
- Þú ert farinn að nálgast sextugsald-
urinn, finnst þér þú vera farinn að
dala eða hver er skýringin á heldur
slæmu gengi þínu á skákmótum síð-
ustu misserin?
„Ég held að ég sé ekki farinn að
dala aldursins vegna. En það er rétt.
ég tefldi illa í marga mánuði en nú
er ég að koma aftur upp úr öldudaln-
um. Ég var óheppinn hér og tefldi ef
til vill of stíft til vinnings í sumum
skákum en ég er ánægður með árang-
ur minn í Sjávarvíkurmótinu í Holl-
andi í janúar. Ég vona það alla vega
að ég sé nú á leið upp úr öldudal,"
sagði þessi heimsfrægi skákmeistari.
-S.dór