Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987.
31
smekk.“ Varð niðurstaðan sú
að starfsmenn Ríkisútvarps og
sjónvarps skyldu ekki leigja
raddir sínar í auglýsinga-
skyni. Sendi útvarpsstjóri frá
sér tilmæli sem kváðu á um
þetta.
Ekki þótti starfsmönnum
kosturinn góður, að mega ekki
næla sér í aukagetu með því
að tala inn á auglýsingar. Og
það var einmitt Jón Múli sem
sagði að Ríkisútvarpið skyldi
þá borga sér fyrir þau störf
sem hann gæti unnið en fengi
ekki að vinna.
Nú er þetta deilumál sumsé
útkljáð þannig að starfsfólk
ríkisfjölmiðlanna getur tekið
til við að auglýsa fot, sjampó,
tannkrem, hártoppa, svita-
meðul og allt sem nöfnum tjáir
að nefna.
Semurvið
sjálfan sig
Einn er sá maður á Nes-
kaupstað sem er allt í öllu eins
og það cr kallað. Hann heitir
Kristinn V. Jóhannsson.
Kristinn er forseti bæjar-
stjórnar, formaður stjórnar
Síldarvinnslunnar á Nes-
kaupstað, framkvæmdastjóri
Samvinnuféfags útgerðar-
manna á staðnum og einnig í
forsvari fyrir Olíusamlag út-
vegsmanna. Að auki er hann
umboðsmaður Trygginga-
stofnunar.
Það má ímynda sér að Krist-
inn hafi í nógu að snúast þegar
samningaviðræður á sjávar-
útvegsvængnum standa yfir
því þar lendir hann í þeirri
sérkennilegu aðstöðu að þurfa
að komast að samkomulagi
við sjálfan sig. Enda segja þeir
gamansömu á Neskaupstað að
hann eigi að sitja við kring-
lótt borð á snúningsfæti svo
að hann þurfi ekki að standa
upp til að semja við sjálfan sig.
Já, það er margt skrýtið í
kýrhausnum.
Páll Magnússon.
Mega selja
raddir sínar
Nú loksins hafa starfsmenn
Ríkisútvarpsins fengið leyfi til
aðtala inn á auglýsingar.
Sem menn muna varð mikið
fjaðrafok út af þessu máli þeg-
ar þeir Páll Magnússon og Jón
Múli tjáðu þjóðinni trekk í
trekk að þeir hefðu „einfaldan
JónMúli.
um hross eftir hvarfið á Þverá.
Truflun á
línunni
Enn eru hrossin á Þverá
ófundin þrátt fyrir ítarlega
leit. Þykir nú fullvíst að ein-
hver truflun hafi verið á
línunni þegar sálarrannsókn-
armaðurinn fékk vitrunina
um að huldufólk væri að fiytja
eigur sínar á hrossunum og
myndi skila þeim að því loknu.
Hitt er vitað að fólk tók
þessa skýringu mjög alvarlega
eins og vera ber. Urðu margir
til að hafa samband við félags-
menn í Sálarrannsóknarfélag-
inu þegar huldufólksfréttin
hafði birst í D V. Erindið var,
oftar en ekki, að biðja þá að
skyggnast um eftir ýmsum
hlutum sem menn höfðu týnt
en voru þeim kærir. Ekki er
vitað til þess áð þau tilmæli
hafi borið árangur enn sem
komið er.
Hvíslingar
En það eru fleiri en sálar-
rannsóknarmaðurinn sem
fengið hafa „vitranir" vegna
hrossahvarfsins á Þverá. Þær
„vitranir" fara ekki hátt enda
hollast fyrir þá sem að þeim
standa.
Það er nefnilega svo að
Sandkom
ýmsir, sem kenna sig við
hestamennsku sunnanlands,
þykjast hafa séð hina og þessa
nafngreinda menn á ferð um
Öxarfjörðinn um það leyti sem
hrossin hurfu. Að sjálfsögðu
eru þessar sögur sagðar til að
koma orðrómi á stað um um-
rædda menn. Þessar skýringar
á hestahvarfinu eru helst ekki
látnar fiakka nema í lágum
hljóðum í skúmaskotum enda
þannigti! komnar að þær þola
illa dagsins ljós. En það er
eins og ævinlega að sögusagn-
ir af þessum toga dæma þá sem
að þeim standa en ekki hina
sem verða fyrir þeim. Því mið-
ur fyrir þá kjaftaglöðu...
Enginn
morgunmatur
Fanginn sat í klefa sínum
og beið aftökunnar þegar
prestur smeygði sér inn til
hans.
- Heyrðu, ég hef ekki fengið
neinn morgunmat, sagði fang-
inn.
- Það er ekki mitt mál, synd-
uga sál, sagði presturinn. Ég
er hér til að sjá um að þú fáir
þína andlegu fæðu.
Næst kom fangavörðurinn
inn í klefann.
- Heyrðu mig, ég hef ekki
fengið neinn morgunmat,
sagði fanginn við hann.
Kemur mér ekki við, svar-
aði fangavörðurinn. Ég er
bara að líta eftir að allt sé í
lagi í klefanum.
Loks kom böðullinn.
- Nei, heyrðu nú, ég er ekki
farinn að fá neinn morgun-
mat, sagði fanginn.
Það er ekki mitt mál. svar-
aði böðullinn. Ég er hér til
þess að sjá um að þú fáir ekki
kvöldmat.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
KLIPPINGAR FYRIR ALLA.
VERIÐ VELKOMIN.
VALHÖLL- mKmE6wsm
ÓÐinSQÖTU 2, REYKJAm ■ SlMl-22138 ■
Stórbílaþvottastöðin
Höfðabakka 1, sími 688060.
VIÐ ÞVOUM:
JEPPA, SENDIBÍLA, VÖRUBÍLA,
RÚTUBÍLA, STRÆTISVAGNA, OLÍUBÍLA,
VÖRUFLUTNINGABÍLA, GÁMA o.fl.
EINNIG VENJULEGA FÓLKSBÍLA.
Verðið er ótrúlega hagstætt.
V E R SI jAN IR!
Hin sívinsœla og myndarlega
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
er á leióinni og kemur út 26. mars nk.
Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á aö aug-
lýsa í
FERMINGA RGJA FA HA NDBÓKINNI
vinsamlegast hafi samband við auglýsingadeild
DV, Þverholti 11, eóa í síma 27022,
kl. 9-17 virka daga sem fyrst
- í síöasta lagi föstudaginn 20. mars.
N A M S K E I O
SAlMlSKI PTI
Nú er að hefjast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér
ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum
foreldra og barna. Þar verður m.a. fjallað um
hvað foreldrar geta gert til að:
• aðstoða börn sín við þeirra vandmái
• leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi
• byggja upp jákvæð samskipti innan fjöl-
skyldunnar
Námskeiðin byggja á hugmyndum Dr. Thomas
Gordons sálfræðings og hafa nær 1.000.000
foreldra sóttslík námskeið bæði í Bandaríkjun-
um sem í Vestur-Evrópu („Parents Effectiveness
Training").
Leiðbeinendur hafa hlotið tilskilda þjálfun og
leyfi til að halda þessi námskeið á íslandi.
Námskeiðin verða 3 klst. í einu, í 8 skipti.
Næstu námskeið eru að byrja
Skráning og upplýsingar í síma 82804 og 621132.
saNskipti
FR/EÐSLA OG RÁÐGJOF S.F.