Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987.
Fréttir
Heilbrigðisráðherra um lyfjaeinokun:
Athugum lækkun lyfjaverðs
- kostir frjálsrar samkeppni kannaðir
„Ég lít svo á að þetta verði liður
í því að láta athuga betur með hvaða
hætti hægt sé að lækka lyfjaverð og
hvernig hægt sé að láta kosti frjálsr-
ar samkeppni njóta sín í lyfjasölu,“
sagði Ragnhildur Helgadóttir heil-
brigðisráðherra, þegar leitað var
eftir skoðun hennar á þingsályktun-
artillögu Áma Johnsen og fleiri um
að lyfjasala verði gefin frjáls.
Sagði Ragnhildur að það væri
áhyggjuefni hve lyfiaverð væri hátt
og heildarkostnaður mikill. Verð-
myndunin væri eitt áhyggjuatriðið.
Sagðist ráðherra hafa sett á stofn
nefnd til að athuga þessa hluti og
væri enginn í nefndinni úr lvfjaverð-
lagsnefnd. Verkefni nefridarinnar
væri að athuga samsetningu lyfja-
verðsins og hvemig kostir frjálsrar
samkeppni gætu sem best notið sín
í lyfjasölu. Sagði Ragnhildur ástæðu
til að draga úr lyfjakostnaði.
Ólafur Olafsson landlæknir kvaðst
ekki hafa séð þingsályktunartillög-
una í endanlegri mynd en nefndi að
ein ástæða þess að mikill munur
væri á fjölda lyfjaávísana frá lækn-
um væri sú að fjöldi samskipta
lækna við sjúklinga væri mismun-
andi en auðvitað kynnu menn ekki
allar skýringar á þessum mun.
Varðandi álagningu á lyf sagði
landlæknir að hér væm aðrir siðir
en í nágrannalöndunum, smásöluá-
lagning væri mjög há og upphæð
álagningarinnar hækkaði með verð-
inu og sagðist hann lengi hafa viljað
ná fram breytingum á því. Sagði
hann að í nágrannalöndunum væri
jöfnunargjald lagt á lyf en álagning
væri ekki eins og hér þar sem miðað
er við að minnstu apótekin beri sig.
-ój
Eyðnipróf:
Nokkrir
á dag
„Það koma nokkrir á dag,“ sögðu
starfsmenn Heilsuvemdarstöðvarinn-
ar aðspurðir um aðsókn í eyðnipróf.
Þó prófið kosti í raun 1300 krónur er
það ókeypis íyrir þá sem notfæra sér
þjónustuna. Reikningarnir eru sendir
til Kynsjúkdómavama ríkisins.
Nær allir sem gangast sjálfviljugir
undir eyðnipróf reynast ekki smitaðir
af eyðniveimnni. Styður það þá skoð-
un landlæknis að þeir sem ná þarf til
komi ekki af sjálfsdáðum í mótefna-
mælingu. Af þeim sökum hefur hann
lýst sig andsnúinn almennum mót-
efhamælingum á landsmönnum. I
skoðanakönnun DV fyrir nokkm lýstu
um 85 prósent aðspurðra sig fylgjandi
slíkum aðgerðum.
-EIR
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%> hæst
Innlán óucrötryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8.5-11 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 12-20 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 18 Bb
Ávisanareikningar 3-10 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, Lb.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2,5-4 Ab.Ub
Innlán með sérkjörum 10-21,5
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 5-6 Ab
Sterlingspund 9.5-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskar krónur 9-9.75 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 17,75-20 lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21. 75-22
Almenn skuldabréf(2) 18-21,25 Úb
Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 18.5-21 Lb
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 5.75-6.75 Lb
Til lengritima 6.25-6.75 Lb
Utlán til framleiðslu
ísl. krónur 15-20 Sp
SDR 7.75-6.25 Lb.Úb
Bandarikjadalir 7.5-6 Sb.Sp
Sterlingspund 12.25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk inörk 5.75-6.5 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5-6.5
Ðráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 1594 stig
Byggingavisitala 293 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 7,5% 1jan.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 310 kr.
Hampiðjan 140 kr.
Iðnaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Spari-
sjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtudög-
um.
Það verður fjör i flugstöðinni 14. april.
Hundruð útlendinga við vígslu nýju flugstöðvarinnar:
Óvenjulegur tíkall:
Bakhliðin er
spegilmynd
framhliðar
Gestimir látnir
borga
Þúsundum gesta verður boðið í
hanastél þegar nýja flugstöðin á
Keflavíkurflugvelli verður vígð 14.
apríl næstkomandi. Þar af verða
hundmð útlendinga og hafa boðskort
þegar verið send utan.
„Við bjóðum útlendingunum hvorki
ókeypis ferðir né uppihald. Þeir verða
að greiða fyrir sig sjálfir. Hér er um
að ræða flugmálastjóra i Evrópu og
sjálfir
Norður-Ameríku, flugvallarstjóra á
flugvöllum sem íslensk flugfélög hafa
viðskipti við og forstjóra flugfélaga
sem fljúga yfir Norður-Atlantshafið.
Þá verða þama ýmsir erlendir verk-
takar og aðrir sem tengjast flugstöðv-
arbyggingunni,“ sagði Sverrir Haukur
Gunnlaugsson hjá varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins.
-EIR
Skyttumar seldar
til Norðurianda
„Þetta er í fyrsta sinn sem alíslensk
kvikmynd er seld til dreifingar í kvik-
myndahús á öllum Norðurlöndum,"
sagði Friðrik Þór Friðriksson um
kvikmynd sína, Skyttumar. „Það var
norskur aðili sem keypti kvikmyndina
um leið og hann sá hana.“
Þrátt fyrir söluna til Norðurlanda
verða 30 þúsund innlendir áhorfendur
að sjá Skytturnar til þess að endar nái
saman í fýrirtæki Friðriks Þórs. Skyt-
tumar kostuðu 14 milljónir í ffam-
leiðslu, norski aðilinn greiddi 2 'A
milljón fyrir sýningarréttinn á Norð-
urlöndum. Kvikmyndin verður ekki
sýnd í íslenska sjónvarpinu né gefin
út á myndbandi.
Um framhaldið sagði Friðrik Þór:
„Svo fer ég með myndina á kvik-
myndahátíðina í Cannes þar sem
gengið verður ffá afganginum."
-EIR
Eins og sjá má er bakhlið tíkallsins spegilmynd framhliðarinnar. DV-mynd
BG
DV hefur borist í hendur nokkuð
óvenjulegur tíu króna peningur þar
sem bakhlið hans er spegilmynd af
framhliðinni.
Stefán Stefánsson, aðalgjaldkeri
Seðlabankans, sagði í samtali við
DV að þótt hann hefði séð ýmis mis-
tök í sláttu íslensku myntarinnar
væri þetta í fyrsta sinn sem hann
frétti af þessari útgáfú.
„Mistök í sláttu myntarinnar em
alltaf töluvert á ferðinni hjá okkur
eða-þá að gallar finnast í mynt-
inni,“ sagði Stefán. Hann nefndi sem
dæmi um mistök að króna hefði ve-
rið slegin sem 50 aurar og fimm
króna peningur sleginn sem króna
og þar að auki gylltur. Hjá honum
kom einnig ffam að safnarar sækt-
ust töluvert eftir þessum peningum
og spyrðust fyrir um þá í Seðlabank-
anum. -FRI
Vinnudeilur í Slippnum á Akureyri:
Hagkaup í dag:
Hægt að láta mæla
blóðþiýstinginn
Fólki gefst kostur á að láta mæla í
sér blóðþrýstinginn í Hagkaup síðdeg-
is í dag í tengslum við kynningu á
bókinni „Listin að lifa með kransæða-
sjúkdóm - það sem þú og fjölskylda
þín þarf að vita um hjartakveisu“.
Bókin verður kynnt í stórmarkaði
Hagkaups í Skeifúnni eftir kl. 4 af
stjómarmönnum úr Félagi velunnara
Borgarspítalans. Þar verða einnig
hjúkrunarfræðingar, sem munu mæla
blóðþrýsting þeirra sem áhuga hafa
á, en hækkandi blóðþrýstingur er einn
þeirra áhættuþátta sem valda krans-
æðasjúkdómum.
Hugmyndina að þýðingu bókarinnar
fengu hjúkrunarffæðingar á hjarta-
deild Borgarspítalans en á þeim
brenna heitast ýmsar spumingar sem
svarað er í bókinni. Félag velunnara
Borgarspítalans fékk þýðanda og gaf
bókina út.
Um tvö þúsund íslendingar leggjast
árlega í sjúkrahús vegna kransæða-
sjúkdóma eða um það bil fimm á dag
til jafnaðar. Tveir af þessum fimm
hafa ekki komið áður á sjúkrahús
vegna sjúkdómsins. Áhættuþættimir
háþrýstingur, reykingar, kólesteról og
önnur fitueffii, matarvenjur og streita
eru allir skýrðir í bókinni og þar em
á mjög alþýðlegan hátt settar fram
upplýsingar og ffóðleikur um það
hvemig má bregðast við einkennum
sjúkdómsins, varast hann og lifa eðli-
legu lífi þótt hann hafi gert vart við
sig.
-A.BJ.
Rafvirkjar
]ón G. Hauksscn, DV, Akureyri:
Nær allir rafvirkjar hjá Slippstöð
Akureyrar, tíu talsins, mættu ekki
til vinnu í gærmorgun. Þeir standa
í vinnudeilu við Slippstöðina vegna
þess að þeir hafa farið ffam á bætt
kjör. Enginn þeirra vildi tjá sig um
það í gær um hvað kröfumar snú-
ast. Hefur verkstjóra þeirra verið
falið að ráða aðra menn í þeirra stað.
„Mennimir sögðu upp með lögleg-
um fyrirvara fyrir þrem mánuðum
vegna óánægju," sagði Sævar Sæ-
mundsson, verkstjóri rafvirkjanna, í
gær. Hann er ennþá við vinnu.
Sævar bætti við að þetta væri við-
kvæmt mál sem væri í biðstöðu, en
„þeir em hættir, þó það sé verið að
reyna að leysa málið,“ sagði hann.
„ Við erum tíu rafvirkjar sem mætt-
um ekki í morgun. Það er aðeins
einn sem sagði ekki upp,“ sagði Ei-
ríkur Kristvinsson, trúnaðarmaður
rafvirkjanna hjá Slippstöðinni, við
DV í gær. Hann sagði að þetta mál
gengu út
snerist um kröfur rafvirkjanna í
kjaramálum en vildi að öðm leyti
ekki tjá sig ffekar um málið. Hann
sagði að Rafvirkjafélagið og forráða-
menn Slippstöðvarinnar ættu nú í
samningaviðræðum.
„Kröfur rafvirkjanna eru ekki á
borðinu hjá mér núna. Ég veit í
rauninni ekki um hvað þær snú-
ast,“ sagði Gunnar Skarphéðinsson,
starfsmannastjóri Slippstöðvarinn-
ar, í gær. Hann sagði ennfremur að
Slippstöðin hefði staðið í viðræðum
um einn kjarasamning við alla innan
fyrirtækisins og hefðu rafvirkjamir
verið inni í því dæmi.
- Verða miklar tafir á þeiin verkum
sem Siippstöðin er með af þessum
sökum?
„Tíminn verður að leiða það í ljós,“
sagði Gunnar. „Ég get engu um það
spáð í augnablikinu “
Gunnar bætti því við að þegar raf-
virkjamir hefðu sagt upp á sínum
tíma hefði það verið vegna óánægju
með svokallaða premíusamninga.