Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1987, Síða 15
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1987. 15 Ólafur, Steingrímur og griðastaðurinn Það er ánægjulegt til þess að vita hve viðhorf íslenskra ráðamanna til hlutverks íslands á alþjóðavettvangi hafa verið að breytast á síðustu miss- erum. Við höfum vanist því að ísland sé taglhnýtingur bandarískra hags- muna á þingum Sameinuðu þjóð- anna og að ráðherrar okkar kiki í hnjaliðunum frammi fyrir ofurvaldi herraþjóðarinnar. Okkar menn hafa látið sér nægja að taka undir kalda- stríðssönginn og kallað það sjálf- stæða utanríkisstefnu. Skemmst er að minnast kjarkleysis Matthíasar Á. Mathiesen utanríkis- ráðherra er hann þorði ekki að taka undir mótmæli bandarískra þing- manna gegn stjömustríðsáætlun Reagans forseta og heyktist meira að segja á því að taka undir tillögur þeirra um hann við tilraunum með kjamorkuvopn. Það er reisn að slík- um fulltrúa Islands á erlendri gmndu eða hitt þó heldur. Leiðtogafundurinn Leiðtogafundur Gorhatsjovs og Reagans í Höfða sl. haust hefur opn- að augu íslensku þjóðarinnar fyrir þeim möguleikum sem ísland á á alþjóðavettvangi. Ólafur Ragnar Grímsson orðaði það svo hér í DV á sínum tíma að ísland hefði góða möguleika á að verða griðastaður í vígbúnaðarfárinu sem nú geisar. Og það ánægjulega hefur gerst að Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra tók undir þessi orð í Moskvu fyrr í vikunni og sagði í Kreml að stórveldin gerðu vel ef þau kæmu á fót stofnun á íslandi sem hefði að Kjallariim Valþór Hlöðversson blaðamaður markmiði að stuðla að friði meðal þjóða. Hér er með myndarlegum hætti tekið undir með þeim sem vilja leita nýrra leiða til að binda enda á hið kalda þrjátíu ára stríð sem skek- ur heimsbyggð alla. Starf Ólafs Ragnars Það er ekki bara leiðtogafundur- inn sem tengir nafn íslands vonum manna um frið í heiminum. Þing- mannasamtök þau, sem Ólafur Ragnar Grímsson veitir forystu, hafa á síðustu mánuðum hlotið fjölda við- urkenninga fyrir að stuðla að friði og afvopnun. Síðast urðu samtökin þess heiðurs aðnjótandi að verða fyrst til að taka við Indiru Gandhi „Þátttaka Ólafs Ragnars í þessu mikil- væga friðarstarfí, sem stríðshrjáðar þjóðir víða um heim treysta á að skili árangri, hefur gífurlega þýðingu fyrir ísland ef rétt er á haldið.“ verðlaununum, en þau eru hin stærstu sinnar tegundar að frátöld- um friðaverðlaunum Nóbels. Mun Ólafur Ragnar taka við þessari við- urkenningu í Nýju-Delhi í sumar. Þátttaka Ólafs Ragnars í þessu mik- ilvæga fríðarstarfi, sem stríðshijáðar þjóðir víða um heim treysta á að skili árangri, hefur gífurlega þýð- ingu fyrir ísland ef rétt er á haldið. Hún beinir sjónum manna að landinu og sýnir okkur sjálfum fram á að þrátt fyrir smæð þjóðarinnar geta hæfir einstaklingar hennar tek- ið forystu á alþjóðavettvangi. ísland sem griðastaður Þessa gjörbreyttu stöðu þurfúm við Islendingar að nýta okkur og orð Steingríms í Moskvu gefa vissulega vonir um slíkt. En um leið og við hvetjum til nýrra leiða í umræðunni um stöðvun vígbúnaðarbrjálæðisins verða íslenskir ráðamenn að sýna meirí kjark og móta sjálfstæðari ut- anríkisstefnu en hingað til hefur verið fylgt. Þar verðum við að skipa okkur í raðir þeirra ríkja sem hafna blindri forsjá vígtröllanna í austri og vestri og skapa í verki griðastað fyrir umræður um aukna lífsvon í firrtum heimi. Um leið reistum við nýjar stoðir undir atvinnulíf okkar því gjaldeyristekjur ^af ráðstefhum og ferðamönnum, í tengslum við hlutverk landsins sem griðastaðar, yrðu margfalt meiri en hermangs- gróðinn sem í dag rennur í sjóði stórfyrirtækja stjómarflokkanna. Hækkandi sól eykur mönnum bjartsýni eins og vera ber. Við skul- um þó vona að ummæli Steingríms Hermannssonar í Moskvu hafi ekki verið skálaglamur eitt heldur vitnis- burður um hug ráðamanns sem vill hlut Islands meiri á alþjóðavett- vangi. Þá er vel. Valþór Hlöðversson 4 i 4 ....um leið og við hvetjum til nýrra leiða í umræðunni um stöðvun víg- búnaðarbrjálæðisins verða íslenskir ráðamenn að sýna meiri kjark og móta sjálfstæðari utanríkisstefnu en hingað til hefur verið fylgt." Landslög eiga að gilda ... líka fyrir húsbyggjendur „í réttarrikjum er það nú til siðs að sá sem verður valdur að því að réttur annars er brotinn er skaðabótaskyldur. Þeir sem hafa lagt í að kaupa íbúð- arhúsnæði á síðustu árum hafa, eins og öllum er kunnugt, lent í ófyrirsjá- anlegum fjárhagsörðugleikum. Ekki er nóg með að yfirvöld hafi gengið fram fyrir skjöldu og afnumið verð- tryggingu á launum heldur hafa ýmsir þættir komið til og hefur þar verið um að ræða þvert brot á lands- ins lögum. Eitt af þessum atriðum er á hvem hátt verðtryggðir verk- samningar eru gerðir upp. I lögum nr. 13/1979 um stjóm efha- hagsmála má lesa eftirfarandi klausu: „. . . .Verðtryggð viðskipti utan banka og innlánsstofhana fara eftir þeim reglum sem Seðlabankinn setur. . . . “. Seðlabankinn útfærði reglur um inn- og útlánaviðskipti banka en sinnti í engu boði ofan- greindrar lagasetningar. Þess vegna ríkja lög frumskógarins við gerð verðtryggðra verksamninga. Og til þess að breiða )dir handvömm Seðla- banka fundu ráðamenn það út að hér giltu „fijálsir samningar". Til þess að þessir frjálsu samningar gætu útfærst sem verðtryggðir þurfti að miða við einhverja vísitölu og í flestum tilfellum var notuð vísitala byggingarkostnaðar. Sú blessaða vísitala á, samkvæmt landslögum, að reiknast út af Hagstofu íslands á þriggja mánaða fresti. Samt sem áður fara fram mánaðarlegir út- reikningar á byggingarvísitölu en hafa ekki lagagildi. Línuleg vísitala I plaggi, útgefnu af Hagstofunni, má líta eftirfarandi klausu: „. . . . við uppgjör verðbóta á fjárskuld- bindingar samkvæmt samningum, þar sem kveðið er á um að þær skuli fylgja vísitölu byggingarkostnaðar, Kjallaririn Anna Kristjánsdóttir i framboði fyrir Bandalag jafnaðarmanna gilda hinar lögformlegu vísitölur sem reiknaðar eru fjórum sinnum á ári eftir verðlagi í mars, júní, sept- ember og desember og taka gildi fyrsta dag næsta mánaðar. Vísitölur fyrir aðra mánuði en hina lögboðnu útreikningsmánuði gilda hins vegar ekki nema sérstaklega sé kveðið á um það í samningnum. Strax á árinu 1981 fundu sumir byggingaverktakar það út að þeir gætu grætt ennþá meira ef þeir svindluðu dálítið á verðbótaútreikn- ingnum. Og þeir bjuggu sér til reikningsform sem þeir kölluðu línu- lega vísitölu. Það byggist á þvi að reiknuð er prósentuhækkun milli lögboðinna vísitalna og deilt með dagafjölda og greitt samkvæmt því. Á verðbólgutímum getur verið um stórar upphæðir að ræða sem vega þungt í vasa launamannsins, gera sjálfa bygginguna dýrari, hækka þar með fasteignaverð og lvfta verðlagi í landinu; mynda með öðrum orðum gerviverðlag. Brot á landslögum Nokkrir húsbyggjendur gerðust svo djarfir að gera athugasemdir en byggingarverktakar fóru þá margir að hafa ákvæði í samningum sem kváðu á um að hann væri gerður samkvæmt línulegri vísitölu. Þetta er auðvitað allt saman brot á lands- lögum, fjárdráttur, og ber að fara með slíkt samkvæmt almennum hegningarlögum. En hver eru svo svör dómstóla við þessum þjófnaði? Jú, bæði mörg, órökstudd og þvert á allt sem kalla má lýðræði og réttlæti. Þeir segja nefnilega: Að hér giltu ffjálsir samn- ingar. Að um leið og samningur væri undirritaður hefði greiðandi hans samþykkt með undirskrift sinni hvaða vitleysu sem var. Að ef greið- andi væri byijaður að greiða af samningnum gæti hann ekki allt í einu staðið upp og sagt að verið væri að stela af sér. Með öðrum orð- um: í lagi að ginna fólk í lögformlega samninga. Þessu verður hver heil- vita maður að mótmæla. I fyrsta lagi er ffjáls samningagerð bara rugl og bull og þó svo væri má að sjálfsögðu ekki brjóta landslög. I öðru lagi veit fólk ekki í bvijun um að það sé vís- vitandi verið að hafa af því fé á ólöglegan hátt. Ef svo væri væru þjófnaðir ekki til. Kjaraskerðing kjánaskapur Niðurstaðan er því sú að dómstólar hafa reynt að lögvernda þá aðila sem með ólögmætum hætti hafa dregið sér fé í stórum stíl. Og stjómvöld, sem berjast við verðbólguna ár eftir ár, sjá ekki að þarna er á ferðinni ansi stór þáttur sem vegur þungt til viðhalds verðbólgudraugnum. Þau halda í kjánaskap sínum að kjara- skerðing sé það sem dugar best. Bandalag jafhaðarmanna sættir sig ekki við að þær þúsundir manna, sem hafa tapað fé sínu með þessum hætti, fái það ekki aftur. I réttarríkj- um er það nú til siðs að sá sem verður valdur að því að réttur ann- ars er brotinn er skaðabótaskvldur. Þetta mál er eins og sagan af litlu gulu hænunni, nefhilega: Af því að Seðlabankinn sinnti ekki embættis- skyldu sinni og gaf út haldbærar reglur gátu verktakar farið að draga sér fé og af því að margir í þeirra hópi flokkast undir þá hagsmunak- líku, sem flórflokkurinn ber á örmum sínum, gátu dómstólar ekki farið að dæma þá og láta þá svara til saka þvi þá hefði kunningjaþjóð- félagið riðlast. En það breytir því ekki að lög hafa verið brotin, gjaldtaka verið ólögleg og þolendur verða að fá fé sitt til baka. Allt annað er brot á almennum mannréttindum og stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Bandalagið var stofhað til að vinna gegn hagsmunaöflunum í þjóðfélag- inu. Það var stofnað m.a. til að standa vörð um rétt einstaklingsins og það mun verða gert jafhvel þó að við þurfum að leita til dómstóla annarra þjóða. Anna Kristjánsdóttir „í fyrsta lagi er frjáls samningagerð bara rugl og bull og þó svo væri má að sjálf- sögðu ekki brjóta landslög.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.