Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Side 8
8 Ötlönd Abu Nidal saksóttur fyrir hiyðjuveikin Rannsóknardómari í Róm hefur úrskurðað að þrír arabar, þar á með- al hryðjuverkaforinginn Abu Nidal, skuli dregnir fyrir dóm fyrir árásina á Rómar-flugvöll um jólin 1985 þar sem sextán manns létu lífið. Að vísu er ekki nema einn þessara þriggja undir manria höndum. Það er Ibrahim Mahmood Khaled (19 ára), sá eini eftirlifandi af fjögurra manna hryðjuverkaflokki sem réðst á afgreiðslur ísraelskra og banda- rískra flugfélaga á Rómarflugvelli 27. des. 1985. Khaled særðist alvar- lega og var handsamaður en hinir þrír voru felldir. Rannsóknin þykir hafa leitt í ljós að hryðjuverkaflokkur Abu Nidals hafi staðið að árásinni og dómarinn telur að Abu Nidal og enn einn for- ingi úr samtökunum, arabi að nafhi Rashid al-Hamieda, eigi að svara til saka fyrir þessa árás og jafhframt aðra, sem gerð var nær samtímis á Vínarflugvöll, þar sem þrír voru drepnir. Hefur rannsóknin leitt líkur að því að hryðjuverkaflokkur Abu Nidals hafi aðalstöðvar sínar í Sýrlandi og sé í tengslum við leyniþjónustu flug- hers Sýrlands. Aðallega hefur verið stuðst við játningar Khaleds við rannsóknina. Al-Hamieda er sagður háttsettur for- ingi meðal hryðjuverkaflokks Abu Nidals og er talinn hafa skipulagt árásimar á flugvellina. Hann er ger- kunnugur í Róm og hafði sjálfur tekið þátt í hryðjuverkaárás á bæna- hús gyðinga þar 1982 en þá var tveggja ára drengur drepinn. Þrir þeirra fjörutíu eiturlyfjasmyglara sem alríkislögreglan í Bandarikjunum handtók yfirgefa hér Kennedyflugvöll i handjárnum. Meðal þeirra handteknu voru núverandi og fyrrverandi starfsmenn Pan Am flugfélagsins sem not- uðu Kennedyflugvöll sem dreifingarmiðstöð fyrir eiturlyfjasmyglið. Simamynd Reuter Pan Am starfsmenn teknir fyrir kókaínsmygl Ólafur Amaraan, DV, New Yorlc Alríkislögreglunni í Bandaríkjun- um og lögregluyfirvöldum í New York tókst í gær að hafa hendur í hári smyglara sem hafa smyglað kókaíni að verðmæti eins og hálfs milljarðs Bandaríkjadollara frá Brasilíu inn í Bandaríkin gegnum Kennedyflugvöll. Flestir meðlimir hringsins voru starfsmenn þriggja flugfélaga og smyglið fór fram um borð í Pan Am þotum. Venjulega var skammturinn, sem kom í hvert skipti, milli 20 og 40 kíló. Yfirvöld segja að þetta hafi verið mögulegt vegna þess að meðlimir hringsins þekktu vel til staðhátta á Kennedyflugvelli og höfðu góð sam- bönd meðal tollvarða og annarra sem hefðu átt að stöðva þá. Fjörutíu manns hafa verið handteknir vegna þessa máls, þar á meðal sextán núverandi og fyirverandi starfsmenn Pan Am flugfélagsins. Tveir starfsmenn Delta flugfélagsins og átta starfsmenn frá Eastem Airlines hafa einnig verið handteknir. Það var í síðustu viku sem hand- tökumar hófust á Kennedyflugvelli og í New York borg en stóra áhlaupið var gert í gær. Meðal starismanna Pan Am flugfélagsins, sem viðriðnir eru þetta mál, eru meðal annars háttsettir menn í stjómunarstöðum hjá flugfé- laginu á Kennedyflugvelli og Rio de Janeiro. Einn lögreglumannanna, sem átti þátt í að upplýsa þetta mál, sagði. „Venjulega erum við að reyna að ná fólki sem er að leika á kerfið. Þama náðum við hins vegar í fólk sem í raun var kerfið." Frá Kennedyflugvelli dreifði eitur- lyfjahringunnn eiturlyfjum til ann- arra flugvalla í Bandaríkjunum og Kanada. Nokkrum sinnum vom sendar flugvélar til Brasilíu og aftur til baka á áætlun Pan Am flugfélags- ins og síðan vom allar sannanir um það flug þurrkaðar úr úr tölvum flug- félagsins. MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987. _ . veifar til stuðningsmanna sinna eftir að hann var kjörinn forsætisráðherra írlands í gær. Símamynd Reuter Charles Haughey tilvalda á írlandi Andrés Eiriksson, DV, Dublin; Charles Haughey var í gær útnefnd- ur forsætisráðherra írlands og flokkur hans, Fianna Fail, myndar næstu rík- isstjóm írska lýðveldisins. Strax að afloknum þingkosningum í febrúár síðastliðnum var ljóst að annar val- kostur kom vart til greina. Spurningin var hins vegar hvemig slíkt mætti verða þar eð Fianna Fail vantaði þrjú þingsæti upp á hreinan meirihluta á þinginu. Er leið að því að þingstörf hæfust kom það á daginn sem fyrirfram var búist við að enginn annar flokkur var reiðubúinn til stjómarmyndunar með Fianna Fail og allt ffarn á síðustu stundu ríkti óvissa um það hvort Charles Haughey tækist að ná útnefn- ingu sem forsætisráðherra með aðstoð óháðra þingmanna eða hvort boða yrði til nýrra kosninga. Það ríkti þess vegna mikil spenna í þingsölum í gær er þing kom saman og athyglin beindist að Tony Gregory, óháðum sósíalista, sem gat komið í veg fyrir stjórnarmyndun Fianna Fail en forðaðist fram á elleftu stundu að láta uppi hug sinn. Þegar til kastanna kom sat hann hjá við atkvæðagreiðslu við útnefriingu forsætisráðherra. Þar með náði Charles Haughey kjöri á jöfnum atkvæðum þar sem þingforseti tók af skarið og greiddi honum atkvæði. Stjómarkreppu var þar með afstýrt og komið í veg fyrir að boðað yrði til v nýrra kosninga. í gærkvöldi var svo ljóst hveijir sætu í ráðherrastólum þegar Haughey birti lista yfir tilvonandi ráðherra. A þeim lista kom ekkert á óvart, þar em nær eingöngu gamalgrónir flokks- menn sem staðið hafa við hlið Haughey í fjölmörg ár eða áratugi. Þótt Charles Haughey geti nú andað léttar að sinni þá em margir erfiðir kaflar eftir. Stjórn hans hvílir á svo veikum grunni að til dæmis aukakosn- ingar í einu kjördæmi gætu orðið henni að falli. Fyrsta verkefni stjómarinnar verður að leggja ffarn fjárlagaffumvarp og er þá búist við að hún muni glata stuðn- ingi Tony Gregory. Einhver niður- skurður á félagslegri þjónustu, heilbrigðis- og menntamálum er fyrir- hugaður. Að líkindum meiri en Gregory og aðrir vinstri sinnaðir þing- menn, óháðir og flokksbundnir, geta sætt sig við. Þar sem sósíalistanum Tony Greg- ory sleppir taka hægri öflin við. í sjónvarpsviðræðum í gærkvöldi mátti skilja að fráfarandi stjórnarflokkur, Fianna Gail, hygðist styðja fjárlaga- ffumvarp Fianna Fail og veita hinni nýju stjóm þar með starfsffið að minnsta kosti næstu mánuðina. Sonur flokks- formannsins réðst á lög- regluþjón Sonur David Steel, formanns Frjáls- lynda flokksins í Bretlandi, var í gær sektaður um 50 sterlingspund fyrir að ráðast á lögregluþjón. Graeme Steel (tvítugur) var samtím- is sýknaður af líkamsárás á útkastara diskóteks í skoska bænum Galashiels, en honum hafði verið meinaður að- gangur þar, þegar hann mætti í rifnum gallabuxum. Kúrdar mótmæla íAþenu 23 vopnaðir Kúrdar hertóku um stund skrifstofú Sameinuðu þjóðanna í Aþenu í gær og kröfðust þess að S.þ. mótmæltu sprengjuárásum Tyrkja á búðir Kúrda við landamæri íraks og Tyrklands. „Við mótmælum þjóðarmorðinu á Kúrdum og krefjumst þess að öll ríki hætti hemaðar- og efnahagsaðstoð við Tyrkland jafnframt því sem Þjóðfrels- ishreyfing Kúrdistans verði viður- kennd," sagði talsmaður þeirra við fréttamenn. Þeir kröfðust einnig aðstoðar við fómardýr loftárásanna. Ofsækja Indverja á Madagaskar Skríll réðst á tylft verslana í eigu Indveija í bænum Fianarantsoa á Madagaskar og tók það fjölmennt lög- reglulið tvær klukkustundir að koma á friði aftur. Kom til skotbardaga og særóust tveir. Á Madagaskar er mörgum lands- manna í nöp við Indlands- og Pakist- anættaða íbúa, sem flestir búa við betri hag vegna iðnmenntunar eða eigin verslunarreksturs. í síðastá mán- uði var gerður aðsúgur að karönum (eins og þetta fólk er oftast kallað) í þrem bæjum og er svo komið að hundmð þeirra hafa flúið úr dreif- býlinu og minni bæjum til höfúðborg- arinnar, Antananarivo. Karanar em um 10 þúsund á Ma- dagaskar og hyggja margir þeirra nú - á brottflutning. Hafa myndast langar biðraðir undanfama daga, einkanlega við franska sendiráðið, þar sem fólkið óskar vegabréfsáritunar til ffönsku eyjanna Mayotte eða Reunion, í ná- grenninu, eða til Evrópu. Aukinn ís á Eyrarsundi Gunnlaugur A. Jotsbcíi, DV, Lundi Kuldinn í Svíþjóð undanfamar vik- ur og mánuði hefur gert það að verkum að enn er mikill ís í Eyrar- sundi og ástandið raunar verra en áður í vetur. Óhagstæð vindátt að undanförnu hefur gert það að verkum að ísinn hefur aukist og ísbijótar hafa í nógu að snúast. Ferðir flugbátanna milli Málmeyjar og Kaupmannahafnar liggja alveg niðri en ferjurnar á milli Limhamn og Dragör fara nokkrar ferðir á dag með aðstoð ísbrjóta. Að sögn veðurffæð- inga er ekki búist við að ástandið batni næstu daga. 9 milljónir til flóttamanna Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hefur samþykkt að veita 9,6 milljónir dollara til flóttamanna í Mexíkó, Djibouti, Súdan og Uganda. Mun Mexíkó fá tæplega milljón doll- ara til að aðstoða flóttamenn ffá Guatemala og Djibouti fær matvæli fyrir rúmlega hálfa milljón handa flóttamönnum ffá Eþíópíu. Fjárveit- ingunni til Súdan á að verja til aðstoðar íbúum í suðurhluta landsins og Uganda fær rúmlega eina og hálfa milljón dollara til aðstoðar heimilis- lausum og Ugandabúum sem snúa heim ffá Súdan. Vestur-Þjóðverjar kaupa norskt gas PáB Vffljáhnsson, DV, Osló: Eftir fimmtán ár mun fjórðungur a öllu þvi gasi sem notað er í Vestur Þýskalandi koma frá Noregi. Þettí segir stjómarformaður Ruhrgas sen er næststærsta orkufyrirtækið í Vest ur-Þýskalandi. Á norska landgrunninu finnst mein gas en olía og Norðmenn hafa undan farið unnið markvisst að þvi að auki söluna á gasi til Evrópu. Sem stendu liggur aðeins ein gasleiðsla frá norski

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.