Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Blaðsíða 17
MIÐYIKUDAGUR 11. MARS 1987. 17 Lesendur guðanna bænum, Jón Gústafsson, farðu að hætta eða að minnsta kosti að fækka þessum simakveðjum og láttu heldur músikina vera uppistöðuna." Leiðinda símakveðjur Útvarpshlustandi skrifar: Nú get ég bara ekki haldið aftur af mér lengur í sambandi við þátt á Bylgjunni. Ég vil taka það fram að ég hlusta mikið á Bylgjuna og er mjög ánægð með hana að flestu leyti. Þessi umræddi þáttur er næturvakt- in sem Jón Gústafsson er með annað hvert laugardagskvöld. Jón er gjör- samlega búinn að eyðileggja þessa stemmningu sem var á næturvöktun- um þegar Bylgjan byrjaði fyrst. Þá gat fólk setið og hlustað á hress og skemmtileg lög og einnig róleg og góð en núna virðist uppistaðan í þessum þáttum vera kveðjur í gegnum síma. Síðastliðið laugardagskvöld taldi ég til dæmis 10 kveðjur og svo kom eitt lag og síðan aftur kveðjur og í það skiptið 12 kveðjur og svona gengur þetta alla næturvaktina. Mér finnst að með þessum eilífu símakveðjum sé verið að eyðileggja að maður geti se- tið og hlustað á skemmtilega nætur- vakt. I guðanna bænum, Jón Gústafsson, farðu að hætta eða að minnsta kosti að fækka þessum símakveðjum og láttu heldur músíkina vera uppistöð- una. Ég vona að Jón sjái sér fært að koma þessu í viðunandi horf. Öldur Ijósvakans margþættar Gunnar Sverrisson hringdi: Nú á síðari tímum er fræðsla og aðrar gagnlegar upplýsingar í háveg- um hafðar, reyndar tímanna tákn. Finnst mér að það hljóti að vera vandi fyrir heildina að velja og hafna í hverju tilviki og krefjast áttunar hjá hverjum og einum til að vel fari og heimta eðlislæga sjálfsögun til að hver þegn sem í hlut á haldi vöku sinni. Mér kom þetta í hug nú fyrir stuttu er ég heyrði að enn ein útvarpsstöðin hér á höfuðborgarsvæðinu taki til starfa þann 18. þessa mánaðar, er þá bætist við hóp þeirra stöðva er nú hafa starfað um hríð. Fagna ég því að meiri möguleikar eru fyrir hvem ein- stakling heldur en áður að velja og hafna, í því ljósi sem ég gat um hér í upphafi. Að lokum langar mig til að bæta þvi við að reynslan af þeim stöðvum, sem fyrir em, er harla góð og gefur góð fyrirheit um hvað framtíðin ber i skauti sér í þessum efnum. Sullufemur Hörður Hafsteinsson hringdi: Mikið er ég orðinn langþreyttur á þessum mjólkurfemum, þetta em svo ópraktískar femur sem mest get- ur verið. Þegar ég ætla að reyna að hella í bollann eða annað ílát þá helli ég út um allt. Ég er ekki eini klaufinn við að meðhöndla þessar femur því ég veit um mikinn fjölda sem á við sama vandamál að etja. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú að þessar femur em mjög klaufalega hannaðar og er ekki vanþörf á að fá nýjar femur á markaðinn er gætu þjónað þessu hlutverki mun betur. Eins lítra femumar, þessar ferkönt- uðu sem em t.d. undir Tropicana og fleiri ávaxtadrykki, em miklu hand- hægari umbúðir og leysa þennan vanda vel (þær em notaðar undir mjólkina á Akureyri). Það væri mik- il bót í máli ef slíkar umbúðir væm settar á markaðinn og myndi maður þá losna við allt þetta „sullu-mall“ sem mjólkurfemunum er nú sam- fara. Ég get ekki skilið af hverju þessar femur em á markaðnum því þetta em sannkallaðir gallagripir er eng- an veginn þjóna sínu tilætlaða hlutverki. Það væri mikil bót í máli ef þessar ferköntuðu umbúðir væru settar á markaðinn þá myndi maður losna við allt þetta „sullu-mall" sem mjólkurfernunum er nú samfara, en þær eru hinir verstu gallagripir. LEÐURVINNA/SMÍÐI Vegna forfalla getum við bætt nokkrum nemendum við. Kennt er í 8 vikur og kennslugjald er kr. 3.000,- Upplýsingar á skrifstofu Námsflokka Reykjavíkur í símum 12992 og 14106. LITANIR, SKOL OG STRÍPUR FYRIRALLA VERIÐ VELKOMIN VALHÖLLl ÓÐinSGÖTU 2. REYKJAVÍK ■ SIMT22138 ■ Laus staða Við læknadeild Háskóla islands er laus til umsóknar tímabundin lektorsstaða í lífeðlisfræði. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna til þriggja ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms- feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 6. apríl nk. 6. mars 1987. Menntamálaráðuneytið. SÖLUMENN Okkur vantar: Sölumann og afgreiðslumann í verslun okkar sem eru vanir sölu og afgreiðslu á vélum og iðnaðarvörum. Aðeins vanir menn koma til greina. Umsóknum ekki svarað í síma. Góð laun fyrir rétta menn. Skeifan 11 D, Reykjavik. Lausar stöður Við félagsvísindadeild Háskóla Islands eru lausar til umsóknar eftirtaldar stöður: 1. Lektorsstaða í stjórnmálafræði. Umsækjandi skal vera hæfur til að annast kennslu í undirstöðugrein- um í stjórnmálafræði og kennslu og rannsóknir á a.m.k. einu af eftirfarandi sviðum íslenskra stjórn- mála: 1. Ákvarðanaferli og stofnanaþróun innan stjórnkerfisins. 2. Hegðun og viðhorfum kjósenda. 3. Samanburðarstjórnmálum. 2. Dósentsstaða í aðferðafræði. Umsækjandi skal hafa aflað sér víðtækrar menntunar og reynslu í rann- sóknaraðferðum félagsvísinda og tölfræði. Kennsi- an verður á sviði aðferðafræði, tölfræði og tölvunotkunar. 3. Lektorsstaða í bókasafns- og upplýsingafræði. Æskilegar sérgreinar eru einkum skráning og fiokk- un. Staða þessi er tímabundin og er gert ráð fyrir að ráðið verði í hana til þriggja ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um visindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms- feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 6. apríl nk. 6. mars 1987. Menntamálaráðuneytið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.