Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987.
9
Utlönd
Skríðuföll
Aurskriður féllu yfir hluta bæjarins Santa Eulalia í Perú í fyrrakvöld og lagði fjölda húsa í rúst
en tólf manns fórust sem vitað er með vissu um og nokkurra er saknað. Bær þessi er um
45 milur austur af höfuðborginni Lima. - í allan gærdag var unnið að björgunarstörfum í
húsarústunum og jafnframt var hafist handa við að hreinsa brak og aur burt af götunum.
Tugir manna misstu þama heimili sín. Sfmamynd Reuter
Samdráttur í Atlants-
hafsfluginu 1986
Veik staða Bandaríkjadals og
hræðsla við hryðjuverk, sem fældi
Bandaríkjamenn frá Evrópu í fyrra,
olli samdrætti í N-Atlantshafsfluginu
1986 en það er í fyrsta sinn síðan í
olíukreppunni á síðasta áratug.
Samkvæmt skýrslu IATA (alþjóða-
samtökum flugfélaga) fóru 19,7 milljón
farþegar milli Evrópu og N-Ameríku
á síðasta ári en það er 5,9% fækkun.
Eru þær tölur fengnar frá 48 flugfélög-
um sem halda uppi áætlunarferðum
milli álfanna. (Innan IATA er 151 að-
ildarfélag með 75% farþegaflugs milli
landa á sínum vegum.)
Árið 1985 hafði 21 milljón farþega
farið milli N-Ameríku og Evrópu.
Vonir standa til að aukning verði í
fluginu á þessu ári. í nóv. og des. síð-
asta hafði farþegum fjölgað um 4% (en
á sama tíma ’85 hafði þeim að vísu
Qölgað um 6,7%).
Fá engar launahækkanir
PáE VHhjálmsaan, DV, Osló:
Það tók aðila vinnumarkaðarins í
Noregi aðeins fimmtíu mínútur að
komast að samkomulagi um næstu
aðalkjarasamninga. Norska alþýðu-
sambandið fór ekki fram á neinar
launahækkanir og hlýddi þar með
kalli ríkisstjómar Verkamannaflokks-
ins.
Undanfarið hefur verið þensla í
norsku efnahagslífi með þeim afleið-
ingum að verðbólga hefur aukist.
Eftirspum eftir vinnuafli er svo mikil
að atvinnurekendur yfirborga starfs-
menn. Þrátt fyrir þetta segir alþýðu-
sambandið að markmið aðalkjara-
samninga sé að halda uppi fúllri
atvinnu. Sönnu nær er að alþýðusam-
bandið hafi beygt sig fyrir vilja ríkis-
stjómar Verkamannaflokksins.
Talið er að við sérkjarasamningana
í vor muni þeir hópar launþega sem
em í sterkustu aðstöðu ná að knýja
fram launahækkanir. Aðrir sitja uppi
með sömu laun og áður.
Ekill
norska
sendi-
herrans
seldi
eiturlyf
og vopn
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Sendinefhd Norðmanna hjá Samein-
uðu þjóðunum og sendiherrann í New
York, Tom Vraalsen, urðu fyrir stórá-
falli þegar einkabílstjóri sendiherrans
reyndist vera glæpamaður.
Bílstjórinn, sem er filippseyskur,
varð uppvís að þvi að selja eiturlyf og
vopn úr þjónustubifreið sendiherrans.
Hann var handtekinn i fyrradag þegar
hann seldi grímuklæddum manni hálft
kíló af kókaíni og tvær skammbyssur.
Bílstjórinn hafði lengi verið gmnaður
um græsku.
Mál þetta kom afar flatt upp á alla
sendinefhdina og ekki síst Tom Vra-
alsen sem hafði lengi haft manninn i
þjónustu sinni. Hafði bílstjórinn unnið
hjá norsku sendinefhdinni í sex ár og
verið ágætlega liðirrn.
Per Paust. talsmaður utanríkisráðu-
neytisins, var spurður álits á atvikinu
og haft var í flimtingum að opinberir
starfsmenn norska ríkisins væm svo
illa launaðir að þeir þyrftu að grípa
til örþrifaráða. Paust tók vel i það en
sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem
nokkuð líkt þessu hefði komið fyrir.
Engir Norðmenn vom viðriðnir eitur-
lyfjasöluna.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og
Ingibjörg Bára
Sveinsdóttir
landgrunninu til Evrópu en á næs-
tunni verður önnur leiðsla byggð.
Vestur-Þjóðveijar kaupa mest gas
af Norðmönnum en nýlega var einnig
gerður sölusamningiu- við Frakka.
Páfagarður leggst
gegn tæknifrjóvgun
og tilraunaglasa-
fóstrun
Páfagarður hefur látið boð út ganga
gegn tæknifrjóvgunum og tilrauna-
glasafóstmn og kallar það siðleysi.
Er vísindamönnum tekinn vari fyrir
því að fara inn á valdsvið aíðri máttar-
valda yfir lífi og dauða.
Þessi boðskapur var gerður kunnur
í Páfagarði í gær og jafhframt var
hvatt til þess að lög yrðu sett yfir líf-
eðlisfræðilegar tilraunir sem gætu
haft ófyrirsjáanlegar og spillandi af-
leiðingar fyrir mannkynið.
Fordæmt er í þessu samhengi og
krafist viðurlaga við þvi að farið sé
með mannverur (jafnvel þótt þær séu
V-þýski kardínálinn, Joseph Ratzin-
ger á fundi með Iréttamönnum í
Páfagarði i gær þar sem hann gerði
grein fyrir boðskapnum sem varar
visindamenn við að fara inn á vald-
svíð æðri máttarvalda yfir lifi og
dauða.
ekki lengra komnar en fóstur í móður-
kviði) eins og tilraunadýr.
Thatcher til fúndar
við Mtttenand
Forsætisráðherra Frakka, Franeois
Mitterrand, tilkynnti í gær að hann
myndi hitta Margareth Thatcher, for-
sætisráðherra Breta, í París þann 23.
mars næstkomandi, viku áður en hún
fer til fundar við Mikhail Gorbatjov
Sovétleiðtoga.
Mitterrand hefúr einnig greint frá
því að hann muni hitta kanslara Vest-
ur-Þýskalands, Helmut Kohl, í París
síðar í þessum mánuði.
Hrín í svínum
heymarskemmandi
Hrín í svínum getur eyðilagt heyrn
þeirra er hirða um þau og sérstaklega
þegar þau eru fóðruð.
Þetta fullyrða tveir danskir læknar
í læknariti. Hávaði innan um ellefu
hundruð svín mældist allt að 104 desi-
bel en í Danmörku eru lögleg mörk
90 desibel.
Mestur hávaði er í svínunum á þeim
tíma sem þeim er gefið að éta og
mæla læknamir með sjálfvirkri fóðrun
svo að starfsfólkið geti dvalið utan-
dyra á meðan á henni stendur.
Fyrirbyggja
eyðnismtt
á tannlæknastofum
PáD Vittyálmsson, DV, Ostó:
Heilbrigðisyfirvöld í Noregi hafa
sent tannlæknum leiðbeiningar um
aðgerðir til að sponia við eyðnismiti.
1 leiðbeiningunum er sagt að einnota
tæki skuli nota sem mest og að hrað-
bor eigi að nota sem minnst. Tann-
læknastofur þurfa einnig að fá sér
uppþvottavélar og sótthreinsibúnað.
Enn sem komið er er ekki vitað um
að neinn hafi smitast af eyðni á tann-
læknastofu í Noregi en heilbrigðisyfir-
völd vilja hafa allan varann á og
fyrirbyggja smit í tæka tíð.
Á ísjaka í viku
Tveir bjamdýraveiðimenn á Græn-
landi voru á reki á ísjaka í \iku áður
en þeim var bjargað heilum á húfi, að
því er danska blaðið Politiken greinir
frá.
ísjakann með mönnuniun rak burt á
meðan þeir vom við veiðar og viku
seinna kom annar veiðimaður auga á
þá og gerði viðvart. Misstu veiðimenn-
imir sextán hunda í svaðilförinni.