Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1987, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 1987.
15
Hefjum hagsmunabaráttu okkar
yfir dægurþras stjómmálanna
„Mikilvægt er að stúdentar hefji hags-
munabaráttu sína og skóla okkar ,Há-
skóla Islands' yfir dægurþras stjórnmál-
anna. Um það snúast þessar kosningar.“
Háskóli íslands er æðsta mennta-
stofoun þjóðarinnar. Hann ber að
efla til þess að hann geti sinnt því
mikilvæga hlutverki sem honum ber
í tæknivæddu þjóðfélagi. Mennta-
stefaa Háskólans verður að vera sú
að efla bæði æðri menntun í landinu
og þá undirstöðumenntun sem há-
skólakennslan og atvinnulíf lands-
manna byggir á.
Kiknar Háskólinn undan
þessum kröfum?
Kröfur til nemenda fara sífellt vax-
andi. Að mínu mati er farið að beita
óbeinum göldatakmörkunum í æ
ríkari mæli við Háskólann. Það
kemur bersýnilega í ljós ef skoðuð
er síhækkandi fallprósenta, til dæm-
is í ákveðnum greinum á fyrsta ári
í viðskiptafræði og lögfræði. Ekki
vil ég eingöngu um kenna lakari
undirbúningi stúdenta frá fram-
haldsskólum eins og oft hefur verið
gert. Ég vil undirstrika að Háskóla
Islands er nauðsynlegt að halda uppi
miklum kröfum gagnvart stúdentum
en hins vegar verða gæði kennsl-
unnar að aukast að sama skapi.
Lengi hefur verið barist fyrir af-
kastahvetjandi launakerfi við
Háskóla Islands. Skapar slíkt kerfi
möguleika á stöðuhækkun og launa-
hækkun á grundvelli aíkasta og
ágætis í starfi. Slíkt kerfi myndi
virka sem hvatning til kennara og
stuðla að auknum gæðum mennt-
unar er stúdentar hlytu,
Húsnæðisvandinn er og verður á
næstu árum eitt erfiðasta vandamál
Háskólans. Húsnæðisþarfimar eru
KjaUariim
Sigrún Traustadóttir
viðskiptafræðinemi
miklar og munu aukast enn, því
frekari uppbygging á kennslu og
rannsóknarstarfsemi er aðkallandi.
Tengsl Háskólans og
atvinnulífsins
Stofauð hefur verið rannsóknar-
þjónusta Háskólans með það
meginhlutverk að efla og auðvelda
rannsóknir í þágu atvinnulífsins.
Markmið slíkrar þjónustu er að
skapa tengsl milli þeirra sem leita
vilja ráða og þjónustu annars vegar
og sérfræðinga Háskólans hins veg-
ar sem veitt geta umbeðna aðstoð.
Vel er mögulegt að nemendur, er
lengra eru komnir í námi, geti tekið
að sér, undir leiðsögn kennara,
margvísleg verkefni fyrir smærri fyr-
irtæki sem ekki telja ástæðu til að
ráða sérfræðinga til sín en þurfa
samt sem áður sérfræðilega úrlausn
sinna mála. Úrlausn slíkra raun-
hæfra verkefaa em mikilvægur
þáttur í undirbúningi stúdenta fyrir
störf þeirra að námi loknu í þágu
atvinnulífsins.
Tekjur af slíkri þjónustu mætti
nota til uppbyggingar Háskólans til
þess að ekki þurfi í síauknum mæli
að seilast í vasa skattgreiðenda
þessa lands.
Mikilvægt er að byggja upp stutt
og hagnýtt nám á háskólastigi í
tengslum við mikilvægar atvinnu-
greinar. Slíkt nám myndi henta
mörgum stúdentum betur en lengra
fræðilegra nám í Háskóla íslands.
Auk þess sem slík lausn myndi spara
stórfé fyrir þjóðfélagið.
Kostnaður við Háskóla íslands er
mikill en við verðum að hafa það
hugfast að menntun og þekkingar-
öflun verða sífellt mikilvægari
gmnnur að bættum lífskjömm og
leiða til aukinnar farsældar og hag-
sældar fyrir þjóðina.
Lánasjóður íslenskra
námsmanna
Vart er hægt að skilja svo við
málefai Háskólans að ekki sé minnst
á Lánasjóð íslenskra námsmanna'
Tilgangur sjóðsins er að jafaa rétt
allra þegna þessa lands til náms
óháð efaahag, að uppfylltum
ákveðnum námsárangri. Enginn
ágreiningur er um þetta hlutverk
sjóðsins. Ágreiningurinn hefur hins
vegar staðið um hvemig unnt sé að
tryggja fjárhagsgrundvöll sjóðsins
til frambúðar. Það er skoðun mín
að langflestir stúdentar, er taka lán
úr sjóðnum, vilji greiða sín lán að
fullu til baka og þannig geta hags-
munir stúdenta og skattgreiðenda
farið saman.
Stúdentaráð — hagsmuna-
samtök stúdenta
Fimmtudaginn 12. mars em kosn-
ingar í Háskóla íslands til stúdenta-
ráðs og háskólaráðs. Því vil ég
hvetja stúdenta til að kynna sér
rækilega málefni þessara kosninga.
Mikilvægt er að stúdentar hefji
hagsmunabaráttu sína og skóla okk-
ar, Háskóla Islands, yfir dægurþras
stjómmálanna. Um það snúast þess-
ar kosningar. Veitum Vöku, félagi
lýðræðissinnaðra stúdenta, brautar-
gengi til að halda áfram á sömu
braut og mdd hefúr verið í vetur
undir þeirra stjóm.
Sigrún Traustadóttir, skipar annað
sæti á lista Vöku til stúdentaráðs.
ast að menntun og þekkingaröflun verða sífellt mikilvægari grunnur að
bættum lífskjörum og leiða til aukinnar farsældar og hagsældar fyrir þjóð-
ina.“
Þegar spenamir snúa
Á fimmtudaginn býðst stúdentum
við Háskóla Islands að skipta um
stjóm stúdentaráðs. Þessu boði ættu
stúdentar að taka fegins hendi. Eins
og allir vita fer Vaka, félag frjáls-
hyggjumanna með stjómina núna
með stuðningi nokkurra pabbapóli-
tíkusa af Framsóknarætt. Sams
konar stjóm hefur því setið í Háskól-
anum og sú sem situr í Stjómarráð-
inu. Vaka hefur verið að hrósa sjálfri
sér þessa dagana af því að Mennta-
skelfinum og valdsmanninum Sverri
Hermannssyni hefur ekki tekist að
setja vexti á námslán. Á laugardög-
um situr svo meirihluti Vökumanna
á fúndi hjá Heimdalli og semur
skeyti til stóm strákanna í Sjálf-
stæðisflokknum þar sem heimtuð er
meiri frjálshyggja.
Kjarabarátta kennara kemur
stúdentum við
Vaka er ófær um að fara með hags-
munamál stúdenta vegna samúðar
sinnar með stefau ríkisstjórnarinn-
ar. Ef stúdentar ætla að láta Vöku
fara með sín mál em þeir að láta
Sjálfstæðisflokkinn semja við sjálfan
sig um hagsmunamál stúdenta.
Vaka hefur hindrað oftar en einu
sinni að Stúdentaráð álykti með
kjarabaráttu kennara, segja að
kjarabarátta kennara komi háskóla-
stúdentum ekki við. Þetta er eitt
dæmi um samúð Vöku með ríkis-
stjóminni. Auðvitað kemur kjara-
barátta kennara stúdentum við, eins
og flest kjarabarátta gerir. Kennarar
em opinberir starfsmenn og þó for-
ustumenn Vöku ætli sér að taka við
einhverjum fyrirtækjum þegar þeir
hafa lokið námi liggur það fyrir
mörgum að verða opinberir starfs-
menn. Þannig snertir kjarabarátta
kennara stúdenta beint. En kjara-
barátta kennara sem og annarra
snertir stúdenta líka óbeint. Stúd-
entar em ekki eingetnir innan
Háskólans frekar en aðrir. Þó svo
að foreldrar forystumanna Vöku
kunni að vera sæmilega vel stæðir
er ekki víst að þannig sé það hjá
KjaUaiiim
Heimir Már
Pétursson
stjórnmálafræðinemi
öllum. Þeir sem þurfa mest á náms-
lánum að halda em synir og dætur
hinnar vinnandi stéttar. Ríkisstjóm-
in hefúr séð til þess að það er ekki
mikið eftir af laununum hjá þeirri
stétt þegar helstu lífsnauðsynjar
hafa verið borgaðar. Sú stétt stendur
því verst að vígi í að styðja afkvæmi
sín til náms. Kjarabarátta þessarar
stéttar kemur því stórum hluta stúd-
enta við og fallyrðingar um annað
em því eins og hvert annað bull og
geta ekki þjónað neinum tilgangi
öðrum en að einangra stúdenta í
baráttu sinni gegn Menntaskelfin-
um. Það er einmitt það sem Vaka
vill. Vaka vi 11 fá næði til að sitja á
fúndum með fulltrúum Sverris og
semja um vexti og lántökugjald í
friði fyrir hinum almenna stúdent
sem fær ekki fréttir af gangi mála
nema eftir dúk og disk. Þannig hefur
starf Vöku farið fram.
Vaka hefur verið að hrósa sér af
því sem hún kallar vamarsigur á
glanssíðum Vökublaðsins. Því að
ríkisstjómin þorir ekki að fram-
kvæma frjálshyggjuhugmyndir sínar
til fulls, svona rétt fyrir kosningar,
flaggar Vaka sem meiriháttar sigri.
Námslánin em nú 22.500, stúdent i
leiguhúsnæði lifir ekki af þessari
upphæð frekar en aðrir þjóðfélags-
þegnar. Þessi upphæð er svona lág
vegna frystingar Sverris Hermanns-
sonar. Það hefur ekki heyrst orð frá
Vöku um að leiðrétta eigi þessa tölu.
Það er enginn vamarsigur til í
þessumáli og fjöldasamstöðu stúd-
enta getur Vaka ekki eignað sér,
vegna þess að frá Vöku hefur ekkert
komið nema þögnin.
Pólitískt elskendabros
Vaka hélt á dögunum fund í Há-
skólabíói sem boðið var á fúlltrúum
stjómmálaflokka og lista í landinu.
Fordæmi em fyrir fundi sem þessum.
Vinstrimenn héldu slíkan fund í
fyrra og stútfylltu Háskólabíó. Á
þeim fundi fékk samstaða stúdenta
að njóta sín vegna þess að þar fékk
hinn almenni stúdent tækifæri til
að leggja sínar spumingar sjálfur
fyrir fulltrúa flokkanna. Þessi til-
högun hentaði Vöku aftur á móti
ekki. Engar fyrirspumir vom leyfðar
utan úr sal. Enda var það áberandi
þeim sem sátu úti í sal, hvað þeir
brostu innilega til hvor annars, Frið-
rik Sophusson og Eyjólfur Sveins-
son, formaður Vöku. Þetta pólitíska
elskendabros var ekki þurrkað af
andlitum þeirra allan fundinn og það
er sjálfsagt á andlitum þeirra enn.
Með því að kjósa vinstrimenn geta
stúdentar kannski þurrkað brosið
af þeim, svo ekki sjái í frjálshyggju-
tennumar í bráð. Lýðræðisást
Vökumanna kom síðan vel fram í lok
fundarins þar sem Eyjólfur hélt sína
kosningaræðu og ég hélt að Friðrik
ætlaði úr hálsliðnum þegar hann
sneri sér við í sætinu til að brosa
framan í litla vin sinn, slík var gleð-
in yfir boðskapnum. Fulltrúar
annarra námsmannahreyfinga inn-
an H.í. fengu hins vegar ekki að
halda neina ræðu.
Vöku hefur nýlega borist óvæntur
stuðningur sem er Jón Sigurðsson
hagtröll. Hann mætti á umræddan
fund með ræðu sem hefði sómt sér
ágætlega sem setningarræða á aðal-
fimdi Félags íslenskra iðnrekenda.
Boðskapur hans var á þá leið að ef
Lánasjóðurinn væri fyrirtæki þætti
arðurinn ekki merkilegur og þama
hélt ég að varimar ætluðu að rifaa
af Friðriki og Eyjólfi. Áfram hélt
hagtröllið; ef þeir peningar, sem í
dag em settir í Lánasjóðinn, yrðu
settir í gott fyrirtæki myndu þeir
skila arði'. Þegar hér var komið sögu
bað Friðrik hagtröllið að lána sér
ræðuna og aumingja Jón settist
hálfringlaður og hrærður yfir
óvæntum vinsældum sínum, sjálf-
sagt hugsað að nú yrði Jón Frelsari
glaður því viðreisnin hefði færst
þumlungi nær. En, stúdentar. vom
1 ekki eins glaðir. Þeir vom ekki glað-
ir yfir boðskap hagtröllsins sem vill
láta reka Lánasjóðinn eins og hvert
annað einkafyrirtæki, með gróða-
sjónarmiði, að Lánasjóðinn ætti að
gera að einum besta tekjustofai rík-
isins. Eitthvað fannst þeim beljan
skrítin á básnum þegar spenamir
vom famir að snúa upp.
Ólán sjóðsins felst í ólánsöm-
um stjórnvöldum
Lögin um Lánasjóð íslenskra
námsmanna frá 1982 em góð lög.
Ef ríkissjóður heföi staðið við skuld-
upp
bindingar sínar við sjóðinn væri
hann sjálfeagt einn best rekni sjóður
i landinu í dag. Ólán sjóðsins felst í
ólánsömum stjómvöldum. Stjóm-
völdum sem hafa það á stefau-
skránni að reka í þessu landi
velferðarkerfi fyrirtækja og skera
miskunnarlaust niður til félagsmála.
Heilu deildir sjúkrahúsa standa auð-
ar, dagheimili em á sölulista, trygg-
ingarbætur em sárgrætilegar, en
Jagúörum og öðrum lúxuskerrum
fjölgar á götum borgarinnar. Gróð-
anum er mokað af landsbyggðinni í
vasa braskara og lögbundinna okr-
ara í Reykjavík. Hinar vinnandi
stéttir geta svo horfl og hlustað á
bíræfaa lygi um velferð í landinu.
Velferðarmllan er lygi vegna þess
að velferðin nær ekki niður til vinn-
andi fólks. Verðmæti útflutnings
hefur aldrei verið eins mikið; sem
dæmi varð verðmætaaukningin í
saltfiskverkun 51% á milli áranna
1985 og 1986. Samt er hinn vinnandi
maður ekki með nema um 27-40.000
í brúttólaun á mánuði, synir hans
og dætur hafa 22.500 í námslán sem
duga engan veginn og hinum vinn-
andi manni er ætlað að leggja það
fram sem upp á vantar af afgangi
þessara líka stórkostlegu launa.
Stúdentar! Háskóli íslands er ekki
eitthvert einangrað fyrirbæri í þjóð-
félaginu. Stöndum með hinum
vinnandi stéttum í baráttu þeirra og
þær munu standa með okkur. Látum
ekki Vöku og ríkisstjómina etja
okkur saman við foreldra okkar eins
og þeir hafa gert undanfarin miss-
eri. Það er ekki námslánunum að
kenna að launin em lág, ekki lágum
launum að kenna að námslánin em
lág. Við eigum sameiginlegan and-
stæðing, stöndum saman gegn
honum. Stoppum samúðarskeyta-
sendingar Vökumanna úr stúdenta-
ráði og gefum vinstrimönnum
hreinan meirihluta. Þeir em verðug-
ur andstæðingur handa ríkisstjóm-
inni.
Heimir Már Pétursson,
skipar þríöja sœti á lista vinstri manna
til stúdentaráðs.
„Það er ekki námslánunum að kenna að
launin eru lág, ekki lágum launum að
kenna að námslánin eru lág.“