Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
AUGLYSING
frá Útvegsbanka íslands
um greiðslustað skuldaskjala.
Samkvæmt 8. gr. laga nr. 7, 1 8. mars 1987, um stofn-
s n hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Islands skal
greiðslustaður skuldaskjala í eigu eða til innheimtu
hjá Útvegsbankanum vera í Útvegsbanka Islands hf.
eftiryfirtöku hansá Útvegsbankanum þann 1. maí nk.
Útvegsbanki íslands.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Starfsmaður óskast í fullt starf við Afangastaðinn,
Amtmannsstíg 5A, sem er heimili fyrir konur sem
hafa farið í áfengismeðferð.
t
Félagsráðgjafamenntun eða sambærileg háskóla-
menntun áskilin eða reynsla á sviði áfengismeðfe^ðar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 26945
f.h. virka daga. Umsóknarfrestur er til 18. maí nk.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
8LAÐSÖI
Sdjið ■"
Vinnið ykkur inn
vasapeninga.
Komið á afgreiðsluna
um hádegi virka daga.
AFGREIÐSLA
Þverholti 11
SÍMI27022
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skaftahlíö 9, efri hæð, þingl. eigandi Hallgrímur Hansson, fer
fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl.
11.45. Uppboðsbeiðendureru Lúðvík Kaaber hdl. og Hjalti Steinþórsson hdl.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Logafold 5, þingl. eigandi Skúli G. Jóhannsson, fer fram í
dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru Tómas Þorvaldsson hdl., Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hdl., Iðnaðarbanki íslands hf„ Ólafur Thoroddsen hdl„ Sigríður Thorlacius
hdl„ Sigurður H. Guðjónsson hdl„ Gjaldheimtan í Reykjavík, Reynir Karlsson
hdl. og Ólafur Axelsson hrl.
______________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Mávahlíð 23, 2.hæð, tal. eigandi Örn Sigurðs-
son, fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlið 6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl
'87 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
___________________Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Neðstaleiti 28, þingl. eigendur Ingvar Her-
bertsson og Svanborg Daníelsd., fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð
6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjald-
heimtan í Reykjavík og Veðdeild Landsbanka Islands.
______Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Seljalandi 1, 2.t.v„ þingl. eigendur Hannes
Einarsson og Guðrún Sigurðard., fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð
6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan
í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Neðstaleiti 5, 3.t.h„ þingl. eigendur Þórir Ing-
varsson og Guðný Diðriksdóttir, fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlið
6, 3. hæð, fimmtud. 30. apríl '87 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan
í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Utlönd
Waldheim óvelkom-
inn í Bandankjunum
Kurt Waldheim, forseti Austurrikis, kominn á svarta listann hjá Bandaríkjamönn-
um.
Ólaíiir Amaison, DV, New York
Dómsmálaráðuneyti Bandarríkj-
anna setti í gær Kurt Waldheim,
forseta Austurríkis, á lista yfir fólk
sem meinað er að koma inn í Banda-
ríkin. Ástæðan fyrir þessum aðgerðum
ráðuneytisins er sú að það hefur undir
höndum sannanir um að Waldheim
hafi tekið þátt í aðgerðum gegn gyð-
ingum og öðrum borgurum Grikk-
lands og Júgóslavíu í síðari heims-
styrjöld.
Ráðuneytið hefur haft Waldheim til
rannsóknar í eitt ár og mun það hafa
fúndið ný, óbirt sönnunargögn gegn
forsetanum.
Þessari ákvörðun var í gær fagnað
meðal gyðinga og annarra þeirra sem
barist hafa fyrir því að Waldheim yrði
settur á svarta listann.
Meðal þess sem Waldheim er sakað-
ur um að hafa staðið fyrir í stríðinu
eru aftökur á gíslum og öðrum
óbreyttum borgurum, flutningur á
gyðingum í þræla- og útrýmingarbúðir
og framsal á stríðsfóngum úr herjum
bandamanna í hendur sérsveita SS.
Austurríska ríkisstjórnin brást við
með því að kalla heim sendiherra sinn
í Washington til skrafs og ráðagerða.
Bandarísk stjómvöld lögðu áherslu
á að þetta væri einungis gegn Wald-
heim sem einstaklingi fyrir gamla
glæpi. Bandaríkin vildu eftir sem áður
hafa sem allra best samband við Aust-
urríki.
Svarti -listinn, sem Waldheim er nú
kominn á, inniheldur um fjörutíu þús-
und nöfii. Þeir sem á listanum eru fá
ekki vegabréfsáritun til Bandaríkj-
anna og reyni þeir að komast inn í
landið er þeim tafarlaust snúið til
baka. Waldheim er fyrsti þjóðhöfðing-
inn sem settur er á listann.
Á þennan lista eru menn settir fyrir
einhverja af þrjátíu og þrem ástæðum,
allt frá þvf að vera nasistar til þess
að vera haldnir hættulegum smitsjúk-
dómum. Flestir á listanum em glæpa-
menn, hryðjuverkamenn, kommúnist-
ar og fólk sem hefúr verið vísað úr
landi í Bandaríkjunum.
Sem þjóðhöfðingii hefur Waldheim
rétt á að fá bráðabirgðaáritun ef hann
hyggst heimsækja Sameinuðu þjóðim-
ár.
Danskur bílstjóri í sex
ára fangelsi í Júgóslavíu
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmarmahöfn:
Vagn Kristensen, fimmtíu og átta
ára gamall vöruflutningabílstjóri frá
Danmörku, hefúr við rétt í Júgóslavíu
verið dæmdur í sex ára fangelsi sem
ábyrgur fyrir dauða tuttugu og fjög-
urra Júgóslava með óábyrgri keyrslu
þann 2. febrúar síðastliðinn.
Bílstjórinn hafði reynt framúrakstur
á sjötíu kílómetra hraða og í hálku.
Missti bílstjórinn vald á þrjátíu og
átta tonna þungum flutningabílnum
þegar hann reyndi að sveigja aftur inn
á eigin vegarhelming til að forðast
árekstur við rútu sem kom á móti.
Keyrði rútan, sem var full af júgóslav-
neskum fjölskyldum á leið heim úr
fríi, inn í vöruflutningabílinn.
Rútubílstjórinn og tuttugu og þrír
farþegar biðu bana við áreksturinn,
þar á meðal mörg böm. Slysið átti sér
stað á svokölluðum dauðavegi í Júgó-
slavíu og er talið alvarlegasta um-
ferðarslys þar frá stríðslokum.
Réttarhöldin vegna slyssins hafa
verið mjög tilfinnmgaþrungin, ekki
síst vegna allra þeirra bama er dóu.
Verjandi bílstjórans telur að dómurinn
eigi að virka sem áminning fyrir júgó-
slavneska vöruflutningabílstjóra.
Sjálfúr segist bílstjórinn vera gerður
að skotspæni í málinu. Hafi hann
reynt allt til að forðast áreksturinn
en sé útlendingur og því tilvalið fóm-
arlamb réttvísinnar.
Danska utanríkisráðuneytið mun
reyna að fá bílstjórann framseldan til
afþlánunar í Danmörku á mannúðar-
forsendum. Er óttast að heilsa hans,
sem ekki er góð fyrir, bresti í harðn-
eskjulegum fangelsum Júgóslavíu þar
sem fangar em látnir vinna erfiði-
svinnu.
Kosningaráíslandi
fá mikla umfjöllun
KetSbjöm Tryggvason, DV, V-Berlín:
Fjölmiðlar hér í Þýskalandi
sinntu kosningunum á íslandi
mikið að þessu sinni. í ílestiun virt-
ari dagblöðum landsins mátti í
síðustu viku lesa eitthvað um pól-
itíkina á íslandi, framboðin og
skoðanakannanir. Þar bar málefni
Alberla Guðmundssonar og flokks
hans hæst og þau aímennt notuð
í fyrirsagnir til að auka áhuga le-
senda á fréttinni. Kvennalistinn
fékk einnig nokkra umræðu í
fréttaskýringum en hinir flokkam-
ir minni.
Úrelit kosninganna voru svo birt
í kvöldfréttum á báðum aðalrásum
sjónvarpsins á sunnudag, almeimt
í útvarpsfréttuni og í sunnudags-
og mánudagsútgáfum dagblað-
anna.
Ferjan komin
til hafiiar
Feijan Herald of Free Enterprise
kom til hafnar í Zeebrugge í gær sjö
vikum eftir að henni hvolfdi undan
ströndum Belgíu. Kafarar leita enn
tuttugu líka sem talin eru vera í ferj-
unni en hingað til hafa fundist
hundrað sjötíu og sex lík. Rannsókn
er nú hafin á orsök slyssins og hefur
komið í ljós að sá sem loka átti stafn-
lúgunni lá og svaf í klefa sínum. Gerði
hann ráð fyrir að einhver amiar myndi
loka lúgunni en hún var skilin eftir
opin og fossaði þá sjór inn í ferjuna.
Einnig hefúr komið fram að skipstjór-
inn hafði margsinnis varað útgerðina
við að ferjan hefði tilhneigingu til að
síga að framan.
Símamynd Reuter •