Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987. 13 Myndar Kvennalistinn næstu ríkisstjórn? Alþingiskosningum er lokið og rík- isstjórnin hefur misst meirihluta á Alþingi. Þetta er niðurstaðan og svona eru 'stjómmálin. Samt var rík- isstjómin vinsæl og henni tókst að lækka dýrtíðina og halda fullri vinnu. Hún hafði allt með sér og stóra flokka sér að baki en örlögin réðu. Þau flýr enginn. Eða vom þetta mannanna verk þrátt fyrir allt? Mannleg mistök, eins og stundum er sagt. Alþýðuflokkurinn Þessar kosningar marka þáttaskil fyrir Alþýðuflokkinn. Hann kemur vel út og er nú stærri en Alþýðu- bandalagið, sem ekki hefur gerzt lengi. Þetta em stórar fréttir. Samt ber annað hærra hjá Alþýðuflokkn- um. Hann hefur lýst yfir að hann sé tilbúinn til að fara í stjóm og taka á sig ábyrgð á ríkisstjórn. Þetta hef- ur flokkurinn gert að vel athuguðu máli og með meiri hógværð og raun- sæi en oft áður. Það ætti því að vera góður möguleiki að Alþýðuflokkur- inn breyti til og gerist stjórnarflokk- ur í stað þess að stunda stjórnarand- stöðu. Það er ekki hægt að tala um kosn- ingamar og Alþýðuflokkinn án þess að minnast á tiltölulega nýjan for- mann hans, Jón Baldvin Hannibals- son. Hann hefur átt mestan þátt í því að hrista flokkinn, vekja hann og koma honum frá deilum innan flokks í sókn til áhrifa og stjómar- þátttöku. Þetta var sérstaklega undirstrikað fyrir kosningamar þeg- Kjallaiiim Lúðvík Gizurarson hæstaréttarlögmaður ar Jón Baldvin Hannibalsson vék úr fyrsta sæti flokksins í Reykjavík og studdi tillögu um að bjóða þar fram Jón Sigurðsson, áður þjóð- hagsstjóra. Jón Sigurðsson er af öllum talinn mjög hæfúr maður. Hann er flestum öðrum þaulkunn- ugri í stjómkerfinu og liðsinni hans er heppilegt Alþýðuflokknum þegar finna þarf leiðir til að koma tillögum og kosningamálum Alþýðuflokksins i framkvæmd. Stjómkerfið er orðið flókið og það þarf oft sérfræðinga til að fá það til að láta að s'tjóm og hreyfast. Kvennalistinn Eins og sagt hefur verið frá í blöð- um kom Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, með þá tillögu fyrir kosningar að Sjálfstæð- isflokkur, Alþýðuflokkur og Kvennalisti mynduðu nýja stjóm. Margir hafa rætt tillöguna þessa dagana og telja hana koma til greina. Því er hún rædd hér sem hugsanlegur möguleiki um nýja stjórn. Kvennalistinn hefur hingað til lát- ið sér nægja að hafa óbein áhrif. Konumar hafa kynnt baráttumál sín og látið þau berast inn í aðra flokka og út í þjóðfélagið. Með þessu móti hafa þær haft veruleg áhrif. Um það em allir sammála og úrslit kosning- anna sýna þetta bezt. Margar kvennalistakonur telja þetta nóg í bili og vilja ekki tefla þessum góða árangri í hættu með stjórnarþátttöku sem getur snúist til beggja átta með árangur. Þetta er visst raunsæi sem ber að meta. Á hinn bóginn er til svar við þessu og það er ekki nema eitt. Lausnin er sú að Kvennalistinn fengi forystu í stjóminni og forsætisráðherra. Þessu gætu konumar varla hafnað ef til boða stæði enda meiri stuðning- ur og virðing við baráttu þeima en nokkuð annað sem til greina gæti komið. Sjálfstæðisflokkurinn Gert er ráð fyrir því í þessari til- lögu, sem hér er til umræðu, að Sjálfstæðisflokkurinn tæki þátt í rík- isstjórninni. Væntanlega yrði hann þá stærsta aflið á bak við ríkisstjóm- ina, enda öflugur og með mikla reynslu í stjómarstörfum og valda- mikill í ríkiskerfinu. Ég ætla ekki að blanda mér í mál Sjálfstæðisflokksins en vil einungis benda á að samstarf Sjálfstæðis- flokks við Alþýðuflokk og Kvenna- lista myndi breyta ímynd Sjálfstæð- isflokksins og hann næði með því lengra til vinstri. Núna finnst mörg- um kjósendum á miðjunni að flokk- urinn sé of mikið til hægri eða þannig mætti túlka úrslit kosning- anna. Mikilhæfui' formaður Sjálístæðis- flokksins, Ólafúr Thors, myndaði „Það er vist að Guðrún Agnars- dóttir af Kvennalista myndi ekki siður sóma sér vel sem torsætis- ráðherra heldur en Vigdis Finn- bogadóttir hefur gert sem forseti." fyrir um 40 árum ríkisstjóm með Alþýðuflokki og þáverandi Alþýðu- bandalagi, svokallaða Nýsköpunar- stjórn. Þetta gerði hann ekki einungis af sögulegum ástæðum heldur breytti hann ímynd Sjálf- stæðisflokksins með þessu og hélt í kjósendur sem hefðu annars hikað við að fylgja hreinum hægri flokki. Niðurstaða Það er nauðsynlegt að mynda strax nýja ríkisstjórn, halda áfram uppbyggingu og hefja marga ný- sköpun í atvinnu og þjóðmálum. Jafnrétti kvenna er þar mjög ofar- lega á blaði. Það er víst að Guðrún Agnars- dóttir af Kvennalista myndi ekki síður sóma sér vel sem forsætisráð- herra heldur en Vigdís Finnboga- dóttir hefur gert sem forseti. Þróunin verður að halda áfram. Nýir foringjar koma og með þeim nýjar hugsjónir og nýir siðir. Lúðvík Gizurarson „Lausnin er sú að Kvennalistinn fengi forystu í stjórninni og forsætisráðherra.“ Islenskt góðæri Það er mikið talað um góðæri á Islandi. Það er vissulega góðæri á mörgum sviðum en þetta góðæri virðist einungis eiga að haldast við þessi sömu svið. Það er niðurskurður á mjög mörgum sviðum félagsgeir- ans, m.ö.o. stefnan virðist vera sú sama og oftast áður í góðærum á íslandi, að flýta sér að virkja skjót- fenginn gróða góðærisins til öfga- fenginnar uppbyggingar verslunar- og þjónustugreina, sbr. hina öru þró- un í stórmarkaðaæði og uppbygg- ingu bankakerfisins. Um þetta eru mýmörg dæmi úr þjóðfélaginu í dag. Þetta er mjög einhæf þensla sem á sér stað á meðan undirstöðuþættir í þjóðfélaginu sitja á hakanum og koma okkur í koll seinna meir, menntunar-, félags- og heilbrigðis- mál mæta afgangi. Síðan er vaninn að verða hissa þegar allt er komið í óefni og tala um vondu verðbólguna. Stór hluti fólks lifir á launum sem gætu sæmt föngum vel. Lágmarks- launin eru um 26.000 kr. Það kostar 20.000 kr. að borga mánaðarleigu af tveggja herbergja íbúð. Það kostar um 35.000 kr. á mánuði að kaupa tveggja herbergja íbúð þó notuð séu hagstæðustu lánakjör á markaðn- um. Það er því skilyrði í íslensku þjóðfélagi að vinna a.m.k. 12 tíma vinnudag, erfa ríka ættingja eða eiga ótakmarkaðan aðgang að fjöl- skylduauð ef meiningin er að leigja eða kaupa íbúð og lifa í henni. Það fer bara í verra ef viðkomandi getur ekki uppfyllt þessi skilyrði af ein- hverjum orsökum og lítið annað en betl sem sá hinn sami getur lagt fyr- ir sig. Gallar í kerfinu Af hverju er boðið upp á þetta? Er það vegna þess að rekendur versl- unar- og þjónustufyrirtækja eru forréttindastétt sem ákveður sín laun vegna úreltrar hefðar þar að KjaUaiiim Magnús Einarsson nemi lútandi. Er engin ástæða til að setja spumingarmerki við að rekendur fyrirtækja hafi einir aðgang að góð- ærinu vegna galla í kerfinu sem er réttlættur með hefðinni einni? Það er mjög ört vaxandi þróun sem á sér stað í dag í átt til einhvers konar upplýsingaþjóðfélags, sbr. tölvur o. s.frv. Hvemig er háttað undirbún- ingi fólks fyrir þjóðfélag sem verður óhjákvæmilegt eftir 10-20 ár? Það gefúr augaleið að endurskoðun og allsherjar uppstokkun er nauðsynleg til þess að ekki skapist upplausn í samfélaginu vegna þess að fjár- magnsdreifingin híndrar að eðlileg þróun eigi sér stað. Þessi svokallaða upplýsingaöld verður búin að taka á sig mun skýrari mynd eftir nokkur ár og íslendingar virðast ætla að mæta því með stórmörkuðum og tog- urum o.s.frv. á meðan menntamál, félagsmál og heilbrigðismál em af- velta en em þó þeir þættir sem gæfú þjóðinni hvað mestan arð á nýjum tímum. Fyrirtækin geta fært út kvíamar vegna þess að góðærinu er beint til þeirra, með sköttun, álagningu o.þ.h. sem er ekki undir sömu viðmiðunar- reglum, miðað við forsendur, og hjá hinum almenna borgara. Það er ekki Markaður er ekkert lögmál Kanna þarf rækilega að hve miklu leyti bankar og auðhringar, s.s. SÍS og ýmis stórfyrirtæki, stjóma þeim markaði sem þeir eiga þó að stjóm- ast af. Möguleikar þessara aðila til að hafa gífurleg áhrif á markaðinn em vissulega mjög miklir. yÞað er ekki hægt að græða peninga á Islandi án leyfis ríkisins, þ.e. ríkið ákveður hvaða stéttir hafa þau forréttindi að mega græða með þeim forsendum sem gengið er út frá þegar reglur um viðmiðun í t.a.m. sköttun eru settar.“ hægt að græða peninga á íslandi án leyfis ríkisins, þ.e. ríkið ákveður hvaða stéttir hafa þau forréttindi að mega græða með þeim forsendum sem gengið er út frá þegar reglur um viðmiðun í t.a.m. sköttun eru settar. Það að reglur em ekki settar er þvi vissulega regla í sjálfu sér. Það er nauðsynlegt að breyta nú- verandi skattalöggjöf þar sem viðmiðunum væri gjörbreytt m.t.t. aðstæðna. Það er líka nauðsynlegt að skoða söluskattsmál og tolla nið- ur í kjölinn því þar em viðmiðanir vissulega út í hött og reyndar allt mat gamalt og skaðandi fyrir kerfið. Einnig ætti að koma á fót nefndum sem könnuðu rækilega bankakerfið, það að Útvegsbankinn sem ríkis- banki gat farið á hausinn með þeim hætti sem raun ber vitni virðist ýta undir þá skoðun að bankakerfið sé sjálfstætt ríki í ríkinu sem geti sett ríkið á hausinn. Galli ■ þess að fela markaðinum ákveðin svið þjóðfélagsins er vissu- lega sá að markaðurinn lætur stjóm- ast. Markaður er ekkert lögmál því markaður er ekkert annað en kaup og sala og það er ljóst að í þeim við- skiptum gilda það mörg lögmál að ómögulegt er að ætla sér að reyna að fella þau öll undir einn hatt. Rík- ið hlýtur að verða að gera sér grein fyrir þessu og skilgreina markaðinn mikið betur til þess að takast á við raunveruleg vandamál í fjármagns- dreifingu hér á landi sem í dag er flokkað undir og afsakað með þessu asnalega markaðskerfi sem ætti ekki að vera annað en skemmtilégt hug- tak til að leika sér með eins og t.d. Hannes Hólmsteinn er orðinn fræg- ur fyrir. Nauðsynlegt hlýtur að vera að gera ítarlega og vel skilgreinda auðhringalöggjöf ef fela á markaðs- kei'fi ákveðin svið þjóðfélagsins. Hvað hefði mátt lagfæra þjónustu í heilbrigðis-, félags- og menntunar- málum fyrir andvirði nokkurra stórmarkaða, skemmtistaða og svo sem eins banka sem rökrétta afleið- ingu af minni þenslu. Myndum við lifa það af? Þó fjárveitingar í heil- brigðis-, félags- og menntunarmál skili sér ekki beint og hratt í au- kinni veltu þá er veltan sem skapast kringum stórmarkaðinn alls ekki jafngjöful og hún er sýnileg þó hún viðhaldi sjálfri sér og þeim sem halda á henni og rúmlega það. Hins vegar er heilbrigðisþjónustan fær um að aðstoða fólk til að vera hæfara, betra og jafnvel ánægðara, það sama á við félagsþjónustu og menntun. Það gef- ur augaleið að slíkt fólk er bæði betri neytendur, framleiðendur og starfskraftar. En þetta er velta sem er ósýnileg vegna þess hve erfitt er að benda á hana, kannski vegna þess hve árangur á þessum sviðum er tímafrekur en að sama skapi ár- angursríkur. Menntunarmál geta verið úrslitavaldur varðandi hvar íslenskt þjóðfélag stendur eftir 20 ár. Reyndar má spyrja spumingar sem þessarar: Hve mörg mistök fortíðar- innar stafa af vanþekkingu? Svarið verður sjálfsagt sjö stafa tala og verður enn hærra eftir 20 ár með þessu áframhaldi. Það er ekki forsvaranlegt að fólk vinni 12 tíma vinnudag til þess að komast af í þessu þjóðfélagi vegna þess eins að ákveðnir hópar sam- félagsins takmarka dreifingu íjár- magnsins við ákveðin svið. Það er augljóst að neytendumir em jafri- mikilvæg forsenda þjóðfélagsins og framleiðendur og seljendur. Það hlýtur að liggja í augum uppi að þessari fjármagnsdreifingu verður að breyta án þess að stjómmála- flokkar leyfi sér að snúa þessu upp í hagsmunapot undir formerkjum mismunandi ýktra, úreltra og gam- alla stefiia. Magnús Einarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.