Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
Spumingin
Hvað finnst þér um úrsiit
kosninganna?
Oddgeir Þór Árnason, garðyrkju-
stjóri á Akranesi: Þau eru að mörgu
leyti áhugaverð. Ég er mjög ánægður
með frammistöðu Kvennalistans og
finnst mér hann koma sterkur út úr
þessum kosningum. Ég bjóst nú hálf-
partinn við því að D-listinn tapaði
meira fylgi út af S-listanum.
Berta Sigurðardóttir kennari: Ég er
mjög ánægð með minn flokk,
Kvennalistann. Það kom mér samt
mikið á óvart hvað D-listinn tapaði
. miklu á kostnað S-listans og ég er
mjóg óhress með það.
Sigurður Lúðvíksson lagermaður:
Mér finnst þau afar slæm og á bágt
_með að sætta mig við þau. D-listinn
missti allt of mikið fylgi, hann hefði
Iátt að fá miklu meira þó að Albert
hefði klofið sig úr honum. Ég get vel
jsætt mig við að G-listinn sé á niður-
? leið, það er gott eitt um það að segja.
Guðbrandur Bjarnason verslunar-
maður: Mér líst bara vel á þau. Það
sér kominn tími til að breyta aðeins
|til og fá 3-4 flokka stjórn. Maður
'bjóst allt eins við þessum úrslitum
; svo þau koma manni ekkert á óvart.
Jóhann Guðlaugsson ellilífeyrisþegi:
:Mér finnast þessi kosningaúrslit í
'einu orði sagt ákaflega ruglingsleg.
Það er einnig skrýtið hvað V-listinn
. tekur mikið fylgi frá G-listanum en
mér finnst stefnuskráin hjá þessum
flokkum nánast nákvæmlega eins.
$ Ég er ánægður með það að D-listinn
skuli hafa farið halloka í þessum
kosningum enda er hann með vond-
an málstað er illt er að verja.
Guðbjörg Ingibertsdóttir húsmóðir:
Ég veit ekki, ég hefði nú búist við
því að S-listinn fengi meira þó maður
geri sig ánægðan með það sem hann
fékk.
Lesendur
Oiyrkjar:
Lífeyrisbætur jafnháar
lágmarkslaunum
Jón Jónsson skrifar:
Það er fyrst núna sem maður
heyrir eitthvað talað um hversu
málefhi fatlaðra hafa verið van-
rækt og lítið sinnt.
Manni finnst það furðulegt að
í velmegunarþjóðfélagi okkar,
þar sem alltaf er verið að tönnl-
ast á góðæri í landinu, skuli á
sama tíma vera mikill niður-
skurður fjárframlaga til Fram-
kvæmdasjóðs fatlaðra. Hvemig
má þetta vera?
Svo ekki sé talað um lífeyris-
bætur fatlaðra sem eru lægri en
lágmarkslaun í landinu. Ef þetta
er ekki mismunun, hvað er það
þá? Ég er sjálfur öryrki get varla
Öryrkjar hljóta ad eiga kröfu á að lífeyrisbæturnar hækki í samræmi við
lágmarkslaunin í landinu hverju sinni.
náð endum saman með þær ör-
orkubætur sem ég hef. Öryrkjar
hljóta að eiga kröfu á að lífeyris-
bætumar hækki í samræmi við
lágmarkslaunin í landinu hverju
sinni.
Krafa fatlaðra er ekki um for-
réttindi heldur um jafnrétti til
að lifa í í þessu þjóðfélagi og taka
þátt í vexti þess.
Lög um Framkvæmdasjóð fatl-
aðra tryggja rétt fatlaðra vel, en
það er ekki nóg að semja sann-
gjöm lög, það verður að ffarn-
fylgja þeim einnig, en það virðist
hafa dottið upp fyrir að hluta.
Ég sem öryrki vona að næsta
ríkisstjóm sinni okkur betur en
sú síðasta gerði.
„Bubbi er alveg æðislegur söngvari og semur floft lög.“
Marklaus gagniýni
Leyfið
bjórinn-
flutning
Einar Einarsson hringdi:
Hvernig stendur á því að áfengis-
siðapostular drottna hér í öllu sínu
veldi og stoppa allan bjórinnflutning.
Það er svo fáránlegt að fámenn klíka
geti predikað um óheilindi bjór-
drykkju og komið i veg fyrir að við
fáum bjórinn hingað. Mér þykir bjór
góður og vil því gjaman geta fengið
mér einn góðan, kaldan bjór þegar ég
kem heim og vil slappa af.
Fólk hlýtur að fá að ráða því sjálft
hvort það drekkur bjór eða ekki og
það er alveg út í hött ef alþingi ætlar
að fara leika stóra bróður með eilífum
boðum og bönnum.
Landsmenn eiga rétt á því að fá bjór-
inn ef þeim sýnist svo og því vil ég
biðja ráðamenn þjóðarinnar að hætta
þessu mikilmennskubrjálæði og fara
að vilja meirihluta landsmanna með
því að leyfa bjórinnflutning.
„Af hverju fær meirihluti landsmanna
því ekki framgengt að bjór verði flutt-
ur inn í landið?"
Alla og Eva Óskarsdætur skrifa:
Við viljum svara lesendabréfi sem
Guðjón Stefánsson skrifar um söngv-
arann Bubba Morthens. Okkur finnst
að sumt fólk, og þar á meðal Guðjón,
ætti að hugsa um sjálft sig og hvað
það skrifar! Að niðurlægja svona
hljómlistarmenn okkar. Segja Bubba
raddlausan! Hvílík fyirstæða. Guðjón,
við þig viljum við segja, þér væri nær
að hlusta á sjálfan þig og athuga hvort
þú syngur betur.
Og söngvakeppnin.sem þú varst að
gagnrýna. Þú álítur að það sé gagns-
laust fyrir íslendinga að taka þátt í
söngvakeppninni því enginn skiji ís-
lensku. Til hvers ert þú að fylgjast
með henni? Segjum að þú skiljir ekki
frönsku. Þú getur þá ekkert frekar
dæmt franska lagið en Frakkar það
íslenska. Þetta er því algjör fjarstæða
sem enginn ætti að halda á lofti.
Kosningaskrum
framsóknarmanna
Konráð Friðfinnson skrifar:
Framsóknarmenn eru nú allt í
einu orðnir hrikalegir fríðarsinnar
svona rétt fyrir kosningarnar. Við
skulum vona að það sama standi
eftir. Gott er að vita til þess, ekki
veitir af að j^étta þær raðir.
Ég hef sótt nokkra slíka baráttu-
fundi en aldrei hef ég rekist á hina
nýju meðlimi. Er mótmælasam-
koman var haldm í kjölfar utan-
ríkisráðherrafundar Norðurland-
anna í mars síðastliðnum um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
barst íslensku friðarhreyfingunni
baiáttuskeyti frá hinni virðulegu
ekkju Johns heitins Lennon, Yoko
Ono. Hún blessunin mundi eftir
skerinu, þó svo að framsóknar-
skarfarnir gerðu það ekki frekar
en fyrri daginn.
Af hveiju kom t.d. ekki háttvirt-
ur forsætisráðherra og ávarpaði
nefndan fund ellegar einhver úr
hans röðum úr því þeir eru friðar-
sinnar? Gleymdu þeir að mæta?
Eða voru þeir ekki búnir að átta
sig á því að þeir elskuðu friðinn
er áðurgreind útisamkoraa fór
fram.
Páskaegg fyrir
sykursjúka
Sykursjúkur hringdi:
Sykurlausa súkkulaðipáskaegg-
ið frá Mónu veitti mér mikla
ánægju um páskana og gerði mér
kleift að taka þátt í páskastemn-
ingunni. Ég vil þakka súkkulaði-
verksmiðjunni Mónu fyrir þetta
framtak sitt og þeim er útbjuggu
og gerðu uppskriftina að þessum
páskaeggjum fyrir sykursjúka.
Páskaeggin voru sérlega vel
merkt og gaf þar að finna leið-
beiningu um það magn sem borða
mátti í hvert skiptd og um innihald
páskaeggsins.
Það var alveg nýtt fyrir mér að
borða slíkt páskaegg en ég hef
vanalega ofnæmi fyrir súkkulaði,
Þessi prófraun mín kom mjög vel
út og á súkkulaðiverksmiðjan
Móna mikið lof skilið fyrir þessa
nýjung sína.
„Aum kjör
íslenskra námsmanna“
Margrét H. skrifar:
Heldur er dapurlegt að lesa pistil
eftir námsmann í Danmörku í DV
hinn 31. mars sl.
Þar er lýst aumum kjörum ís-
lenskra námsmanna þar í landi, að
þeir jaíhvel svelti, sumir gefist upp
frá hállkláruðu námi vegna skerð-
ingar námslána.
Ekki er undarlegt að fólk hýsi
beiskju og gremju í garð ráðamanna
velferðarþjóðfélagsins íslenska.
Greinarhöfundur minnist einnig á
að íslenski forsætisráðherrann okk-
ar, Steingrímur Hermannsson, hafi
komið á fund með námsmönnum og
eftir skraf og skrum tilkynnt að eng-
ir peningar væru til svo hægt væri
að bæta hag þeirra. En á sama tíma
hafi hann sjálfur búið í svo dýrri
svítu á lúxushóteli að gjald fyrir eina
nótt hafi nægt 2 námsmönnum til
lífsviðurværis í mánuð sé miðað við
námslánin núna. Þar er einnig gefið
til kynna að kostnaðurinn af stuttri
dvöl forsætisráðherrans þar í landi
hefði nægt 150 námsmönnum til
uppihalds í heilan mánuð.
Er þetta ekki hneyksli? Við viljum
trúa að ráðherra hafi greitt eitthvað
af þessu óhófi úr eigin vasa. Ekki
munu danskir bera mikla virðingu
fyrir montrófuhætti Islendinga því
danskir ráðamenn vita að á hólman-
um okkar búa fáeinar hræður
stórskuldugar við útiönd. Enda ráku
Danir einn ráðherrann sinn fyrir
eyðslusemi á hóteli í París.
Við viljum meiri aga á þjóðarskút-
unni okkar.