Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987.
17
Iþróttir
IBR
KRR
„Ég er hálfdaufur
enda átti ég von á
aðverðaíhópnum“
- segir Lárus Guðmundsson sem ekki var valinn í leikinn gegn Frökkum
„Ég er hálfdaufur enda átti ég von
á að verða í hópnum þótt ég kynni
að sitja á bekknum þegar á hóhninn
yrði komið. Ég hef margsagt að í
landslið eigi enginn erindi sem skortir
leikæfingu. Sjálfur gæfi ég ekki kost
á mér ef ég stæði í slíkum sporum.
Ég hef átt við meiðsl að stríða um
hríð en nú hef ég náð mér á strik og
því leikið með mínu liði í síðustu við-
ureignum þess.“
Þetta sagði Lárus Guðmundsson í
spjalli við DV í gær. Eins og flestum
. er kunnugt um var rétt eina ferðina
géngið fram hjá honum við val ís-
lenska landsliðsins í knattspymu.
„Ég lék síðast með íslenska liðinu á
dögum pýramídanna," segir Lárus og
hlær við, „ekki vegna þess að ég hafi
ekki gefið kost á mér því ég er reiðubú-
inn að leika með landsliðinu hvenær
sem til mín verður leitað. Sem stendur
verð ég þó að una við dóm landsliðs-
nefndar enda gengur ekki að hengja
haus þótt maður verði út undan við
val liðsins.
Ég hef nú spilað tólf landsleiki og
verð að vona að þeir verði fleiri áður
en yfir lýkur. Það hefur ávaflt verið
mér ómældur heiður að leika fyrir
hönd íslands, bæði heima og á erlend-
• „Ég lék siðast með islenska liðinu
á dögum pýramidanna," segir Lárus
Guðmundsson sem enn er úti á gadd-
inum hjá KSÍ. Lárus er ekki sáttur við
sinn hlut en segist þó reiðubúinn að
leika með landsliðinu hvenær sem til
hans verður leitað.
um vettvangi. Ég hlýt því að bíða
áfram eftir kallinu."
Fer að öllum likindum til
Kajserslautern
„Ég stend nú á vegamótum hvað
mín mál varðar hjá Bayer Uerding-
en,“ segir Lárus og ræðir þar félaga-
skipti sem nú virðast í sjónmáli.
„Ég eygi enga framtíð hjá Uerdingen
og er því búinn að fá mig fullsaddan
á félaginu. Eins og málum er nú kom-
ið stefnir allt í að ég fari til Kaisers-
lautem. Ég hef þá trú að leikstíll þess
liðs falli vel að mínum og vona því
að félagaskiptin komi á daginn. For-
seti Kaiserslautem hefur rætt við mig
og sagt sölumálin jákvæð. Telur hann
líkur á að saman gangi í viðræðum
milli félaganna. Forráðamaður Uerd-
ingen hefur hins vegar orðað að
félagið megi illa missa mig. Hann hef-
ur á hinn bóginn heitið því að setja
mér ekki stólinn fyrir dyrnar. Ég vona
bara það besta en hef þó í huga að
ekkert sé tryggt fyrr en samningar
nást milli þeirra aðila sem hlut eiga
að þessu máli,“ sagði Lárus Guð-
mundsson að lokum. -JÖG
„Það er framtíð fyrir
Lárus í landsliðinu“
- segir Sigi Held landsliðsþjálfari og spáir góðum úrslitum gegn Frökkum
Siguröur Már Jónsson, DV, Paris:
„Jú, vissulega tel ég að þetta eigi
eftir að verða erfiðui' leikur. Ég tel
eigi að síður að við eigum möguleika
á morgun, svo framarlega som leik-
menn eiga góðan leik og berjast vel
gegn Frökkum," sagði Sigi Held,
landsliðsþjálfari í knattspymu, þegar
hann var spurður um möguleika ís-
lenska liðsins gegn Evrópumeisturum
Frakka.
Held var spar á yfirlýsingar og bætti
við að það væri svo margt sem þyrfti
að taka með í reikninginn í leik eins
og þessum.'
- Varðandi val þitt á landsliðs-
hópnum hefur það vakið nokkra
athygli að þú sérð ekki pláss fyrir
Láms Guðmundsson í liðinu en ákveð-
ur þess í stað að nota leikmenn sem
ekki hafa náð að leika mikið að und-
anfömu. Hverju má það sæta?
„Ég get einungis bent þér á að í lið-
inu er mikið af sóknarleikmönnum.
Þama em Pétur, Sigurður Grétarsson
og Amór. Ég tel einfaldlega að ég
þurfi ekki fleiri í þetta skipti. Ég veit
að Lárus hefur leikið síðustu fjóra
leiki með liði sínu og er í framför. Ég
tel einnig að það sé tvímælalaust fram-
tíð fyrir Láms í landsliðinu. Hann er
góður leikmaður en núna vildi ég til
dæmis hafa Pétur með ef þú átt við
að Pétur sé ekki i mikilli leikæfingu.
Varðandi Ágúst Má þá hefur hann
leikið bæði í Kuwait og á Ítalíu og er
ömgglega nógu sterkur. Þetta er gam-
alkunnugt íslenskt vandamál hve
erfitt er að halda leikmönnum heima
á íslandi í leikæfingu. Það vandamál
var ekki leyst að þessu sinni með því
að senda þá til Vestur-Þýskalands."
- Vilt þú spá einhverju að lokum
um úrslit?
„Ég held að við fáum góð úrslit,"
sagði Held og vildi ekki tjá sig meira
um leikinn gegn Frökkum á morgun.
Pétur og Amór verða
í fremstu víglínunni
Sigurður M. Jónsson, DV, Paris:
Sigi Held landsliðsþjálfari var tví-
ræður á svip er hann var spurður um
byrjunarlið íslands gegn Frökkum.
Svaraði hann engu þar um og sagðist
ekki opinbera liðið fyrr en rétt fyrir
leik. Þó mátti ráða í íslenska liðið út
frá uppstillingu þess á æfingu. Sam-
kvæmt henni er hugsanlegt byrjunar-
lið með þessum móti:
• Bjami Sigurðsson í marki.
• Sævar Jónsson, Ágúst Már og
Gunnar Gíslason aftastir í vörn.
Atli Eðvaldsson og Siggi Jóns á könt-
unum með hliðsjón af varnarhlutverki
- nokkurs konar bakverðir eins og
Held hefur iðkað áður.
í framlínunni leika svo þeir Pétur
Pétursson og Arnór Guðjohnsen.
• Ómar Torfason, Ragnar Margeirs-
son og Ásgeir Sigurvinsson verða
síðan á miðju vallar, skammt undan
skæðum sóknarmönnum íslenska liðs-
ins. Er þó ekki ólíklegt að þeir gegni
umtalsverðu varnarhlutverki með
sama lagi og félagar þeirra á köntun-
um, þeir Siggi og Atli.
Vitanlega er lið þetta ekki veruleiki
en ef hann verður eins og þessj spá-
dómur segir til um klæðast þeir Ásgeir
og Pétur aftur landsliðspeysunni eftir
hlé. Hvorugur þeirra lék með í A-
Þýskalandi.
Eins og margir muna beið fslenska
liðið lægri hlut í glímunni gegn heima-
mönnum þar i landi, 0-2. Mikill hugur
er nú í mönnum enda er stefnt að því
að ná góðum úrslitum í viðureigninni
annað kvöld. Áhangendur íslenska
liðsins mega þó ekki vænta of mikils.
Verða þeir að gæta að andstæðingnum
og gera réttmætar kröfur til okkar
manna. Frakkar hafa aldrei þótt au-
kvisar í knattspymu enda unnu þeir
bronsverðlaun á HM í Mexíkó. Að
auki eru Fransmenn handhafar álfu-
titils í knattspymu eða Evrópumeist-
arar í íþróttinni. -JÖG
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR
Þriðjudag kl. 20.30.
VIKINGUR-ÞROTTUR
A GERVIGRASINU I LAUGARDAL
LYFTARAR ATH! Nýtt heimilisfang
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra raf-
magns- og dísillyftara, ennfremur snúninga- og
hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum
lyftara, flytjum lyftara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.
Vatnagörum 16, símar 82770-82655.
AUGLÝSING
frá Útvegsbanka íslands
um innlánsreikninga
Samkvæmt 7. gr. laga nr. 7, 1 8. mars 1 987, um stofn-
un hlutafélagsbanka um Útvegsbanka ’lslands skulu
innlánsreikningar við Útvegsbankann flytjast til Út-
vegsbanka Islands hf. þann 1. maí nk. nema innstæðu-
eigendur óski annars.
Jafnframt er bent á að ríkisábyrgð á innstæðum í
Útvegsbanka Islands hf. helst til 1. maí 1989.
Útvegsbanki íslands.
LAUS STAÐA
Laus er til umsóknar hálf dósentsstaða í matvæla-
fræði við efnafræðiskor raunvísindadeildar Háskóla
Islands. Aðalkennslugreinar eru matvælaefnagreining,
og gæðamat og matvælalöggjöf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms-
feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 20. júní nk.
24. apríl, 1987,
Menntamálaráðuneytið.
VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI
Laufásveg Markarflöt Lindargötu
Miðstræti Sunnuflöt Klapparstig 1-29
Bakkaflöt Karfavog Kleppsveg 62-110
Móaflöt Nökkvavog Hjallaveg 1-25
Tjarnarflöt
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022