Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987.
DV
Fréttir
Tímamótaaðgerð á Borgarspítalanum í dag:
AffiiHU if ■ (i,< !’ ] ■ IB ÆTWk Hi m JpjP 1 MMM
Fotur sttiiKu lengdur
um 4 sentímetra
Gunnar Þór Jónsson yfirlæknir með lengingartækiö. DV-mynd GVA.
Nýsmíði fiskiskipa
Búið að samþykkja smíði á
31 skipi hjá Fiskveiðasjóði
og búið að gera smíðasamninga á hátt í áttatíu bátum undir 10 tonna markinu
í dag verða ný lengingartæki
tekin í notkun ó Borgarspítalan-
um. Gunnar Þór Jónsson, prófessor
og yfirlæknir, mun þá beita tækj-
unum í fyrsta skiptí á unglings-
stúlku sem er með annan fótinn 4
sentímetrum styttri en hinn eftir
ígerð er hún fékk í fæðingu.
„Svipuð aðgerð hefur að vísu ve-
rið gerð norður á Akureyri með
hluta þeirra tækja sem hér um
ræðir. Þetta er hins vegar í fyrsta
skipti sem lengingartækin eru not-
uð í heild sinni. Þetta er sams
konar búnaður og notaður hefur
verið í Sovétríkjunum en við vor-
um alltaf að biða eftir að fram-
Eftir að Fiskveiðasjóður fór aftur
að lána til nýsmíði fiskiskipa 1. mars
1986 hefur smíði á 31 skipi verið sam-
þykkt hjá sjóðnum og er það miðað
við 11. maí síðastliðinn. Hjá sjóðnum
liggja óafgreiddar 14 umsóknir. Þessar
upplýsingar fékk DV hjá Birgi Guð-
mundssyni, starfsmanni Fiskveiða-
sjóðs.
Til þess að fá lán til nýsmíði hjá
leiðsla á honum hæfist á Vesturl-
öndum. Tækin okkar eru framleidd
í Sviss og eru gjöf frá Lionsklúbb-
num Þór,“ sagði Gunnar Þór
Jónsson prófessor.
Halldór Baldursson, yfirlæknir á
Fjórðungssjúkrahúsínu á Akur-
eyri, verður Gunnari Þór til
aðstoðar við aðgerðina í dag. Þeir
félagar hafa ferðast víða um heim
og kynnt sér lengingartæki en það
var einmitt Halldór sem stóð að
lengingaraðgerðinni á Akureyri
sem fyrr var frá greint. Önnur slík
aðgerð mun vera í bígerð fyrir
norðan.
-EIR
Fiskveiðasjóði verður lánsumsækj-
andi að selja úr landi eða úrelda skip
á móti. Akveðnar reglur eru um það
hvað nýja skipið má vera stærra en
það sem fer í staðinn og munar þar
litlu eða um 20%.
Þá er búið að gera nærri'80 smíða-.
samninga um þilfarsbáta sem nær allir
eru 9,9 tonn að stærð. Þetta eru bátar
sem í raun eru mældir niður sam-
kvæmt mælingareglum sem innan
skamms verða lagðar niður. Að sögn
Páls Guðmundssonar hjá Siglinga-
málastofnun er hér um að ræða báta
sem eru svipaðir að stærð og venjuleg-
ir vertíðarbátar voru íyrir 30 árum
síðan.
„Það sem okkur hjá Siglingamála-
stofnun líst illa á varðandi þessa báta
er að vegna nýju gerðanna af tölvu-
stýrðum handfærarúllum getur einn
maður róið á svona báti yfir sumarið.
Hér áður fyrr voru 4 til 5 menn á svona
bát,“ sagði Páll Guðmundsson.
Þessir 9,9 tonna bátar eru smíðaðir
á Isafirði, Skagaströnd, Vestmanna-
eyjum, Hafharfirði, Akranesi, Seyðis-
firði, í Stálvík og hjá Stálsmiðjunni í
Reykjavík.
-S.dór
Kjaradeila rafeindavirkja:
Verkfall
hefst
á föstu-
daginn
Verkfall rafeindavirkja hjá Pósti og
síma, vitamálaskrifstofunni og flug-
umferðai-stjóm hefst aðfaranótt
næstkomandi föstudags hafi samning-
ar ekki tekist fyrir þann tíma. Verkfall
rafeindavirkja hjá Ríkisútvarpinu og
Ríkisspítulunum er boðað viku síðar.
A morgun, miðvikudag, er búist við
að boðaður verði sáttafundur í deil-
unni en deiluaðilar hafa ekkert ræðst
, við síðan í síðustu viku.
„Ég á von á því að fulltrúar íjármála-
ráðuneytisins komi með nýtt tilboð á
fimdinn, því ég veit að þeir hafa verið
að skoða málið vandlega siðustu
daga,“ sagði Magnús Geirsson, form-
aður Rafeindasambands íslands, í
samtali við DV.
Magnús sagði að rafeindavirkjar
væm ekki að fara fram á annað en
það sem þegar hefúr verið samið um
fyrir ákveðna hópa rafiðnaðarmanna
sem vinna hjá ríkinu. Hér væri því
aðeins um samræmingu á launatöxt-
um að ræða.
-S.dór
Keflavík - Njarðvík:
Þrjú minni
háttar
óhöpp
Um miðjan dag í gær varð umferðar-
slys í Njarðvík. Bifreið ók á tvö ung
böm þegar þau vom að fara yfir götu
á merktri gangbraut. Bæði hlutu þau
minni háttar skrámur.
Skömmu síðar var ekið á bam í
Keflavík. Bamið skarst í andliti en
ekki em meiðslin talin alvarleg.
I gærkvöld varð síðan árekstur í
Keflavík, þar skullu saman tveir ný-
legir bílar. Ekki urðu slys á fólki en
bílamir em mjög mikið skemmdir.
-sme
Boi|araflokkur býðst til að endurreisa núverandi ríkisstjórn:
Afram undir foiystu
Framsóknarflokksins
Viðræður Sjáifstæðisflokks og Alþýðubandalags:
Flokkamir úti-
loka ekkert
„Þetta var tillaga stjómar þing-
flokksins og þessir aðilar, sem getið
er um í upphafi bókunarinnar, sam-
þykktu þetta allir einróma,“ sagði
Albert Guðmundsson, formaður
þingflokks Borgaraflokksins, um
óvænta bókun sem samþykkt var í
gær:
„Fundur haldinn í þingflokki
Borgaraflokksins 18. maí 1987 ásamt
varaþingmönnum flokksins og trún-
aðarmönnum samþykkir að falla ftá
fyrri samþykktum sömu aðila um að
Borgaraflokkurinn stefhi að því að
vera í stjómarandstöðu þegar Al-
þingi hefiir starfsemi sína á komandi
kjörtímabili og lýsir sig reiðubúinn
til að styðja að því að sú stjóm sem
sat að völdum á síðasta kjörtímabili
starfi áfram undir forystu Fram-
sóknarflokksins með þátttöku Sjálf-
stæðisflokksins og Borgaraflokks-
ins.
Með þessari nýju afetöðu sinni vill
Borgaraflokkurinn stuðla að því að
möguleikar til stjómarmyndunar
aukist og að land og þjóð fái hið
fýrsta ríkisstjóm með endumýjuðu
umboði.
Með ofangreint í huga lýsir Borg-
araflokkurinn sig reiðubúinn til að
taka þátt í viðræðum um hugsanlegt
málefhasamkomulag þessara flokka
þegar í stað.“
-KMU
Borgaraflokkurinn hefur nú breytt afstöðu sinni. Fram aö þessu hetur flokkurinn stefnt að stjórnarandstöðu, en
lýsir sig nú reiðubúinn að taka þátt i stjómarmyndunarviðræðum við Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk.
- sogðu Þorsteinn og Svavar eftir fundinn
Erkifjendur íslenskra stjómmála,
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubanda-
lag, sendu fulltrúa sína til könnunar-
viðræðna um hugsanlega ríkis-
stjómarmyndun í gær.
Það voru Þorsteinn Pálsson og
Friðrik Sophusson frá Sjálfstæðis-
flokki og Svavar Gestsson og Ragnar
Amalds frá Alþýðubandalagi sem
tóku þátt í þessum könnunarviðræð-
um og stóðu þær mun lengur en
menn höfðu gert ráð fyrir.
Að loknum fundinum útilokuðu
þeir Svavar og Ragnar ekki að frek-
ari viðræður gætu átt sér stað. Þegar
þeir voru spurðir hvort Alþýðu-
bandalagið væri nú tilbúið í formleg-
ar viðræður um stjómarmyndun
með Sjálfstæðisflokknum svömðu
þeir: „Ekki öðmvísi en að við hefð-
um einhverja von um árangur."
Bæði fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Alþýðubandalags tóku það fram að
mjög margt skildi flokkana að en
Þorsteinn Pálsson bætti við: „Sam-
komulag hefur áður náðst milli
flokka um ríkisstjómarmyndun þó
mikill ágreiningur sé.“
Þrátt fyrir þessar dræmu undir-
tektir fulltrúa flokkanna er langt frá
því að samstarf þeirra og Alþýðu-
flokks sé útilokað. Eins og áður
hefur verið bent á í DV er talið lík-
legt að raunvemlegar viðræður milli
þeirra komi ekki til fyrr en að nokkr-
um tíma liðnum. Ef umboð til stjóm-
armyndunar gengi árangurslaust
milli manna gætu flokkamir sagt
að með samstarfi væru þeir að leysa
stjómarkreppu.
Það myndi auðvelda baráttuna við
þau öfl innan flokkanna sem em
mjög andvíg slíku samstarfi Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðubandalags og
AlJjýðuflokks.
I dag munu Þorsteinn Pálsson og
Friðrik Sophusson eiga könnunar-
viðræður við fulltrúa Kvennalistans,
þær Guðrúnu Agnarsdóttur, Krist-
ínu Einarsdóttur og Danfríði K.
Skarphéðinsdóttur. I framhaldi af
því ákveður þingflokkur Sjálfstæðis-
manna hvort tilefni sé til þess að
hefja formlegar stjómarmyndunar-
viðræður við einhveija flokka á
þessu stigi. -ES