Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAl 1987. Fréttir Fíkniefnamarkaðurinn: Amfetamín minnkar en kókaín eykst Á undanfömum mánuðum hefur framboð á amfetamíni minnkað mikið en framboð á kókaíni aukist að sama skapi, og dæmi em um að nú sé hægt að fá kókaín á götunni, en slíkt hefur áður aðeins fengist í mjög lokuðum klíkum. Þetta kom ffam í máli Amars Jens- sonar, yfirmanns fíkniefhalögreglunn- ar, á námstefnu sem Blaðamannafé- lagið og fíknivamanefnd standa nú fyrir. Amar sagði að starfsmenn fíkniefna- deildarinnar hefðu að sjálfsögðu velt þessari þróun fyrir sér og ástæðum hennar, því amfetamínneysla hefur aukist hér hröðum skrefum undanfar- in þrjú ár. „Við höfum gert fleiri húsleitir það sem af er árinu en gerðar hafa verið á sama tímabili undanfarin ár og í þeim hefur komið ffam að minna og minna hefur borið á amfetamíni," sagði Amar. „Ástæður þessarar þró- unar geta verið háðar tilviljunum, ástæðumar geta einnig legið í að ver- tíð hefur verið í gangi en mikið af amfetamínneytendum fer út á land að vinna á vertíðum og einnig getur spil- að hér inn í að margir af afkastamestu amfetamíndreifendunum eru nú í fangelsi. Hins vegar lítum við á þetta ástand sem tímabundið.“ Hvað kókaínið varðaði sagði Amar að lítið hefði borið á því þar til á síð- asta ári er fíkniefhalögreglan fór að verða vör við aukið magn þess í um- ferð hérlendis „... við höfum séð það í ríkari mæli á götunni, sem kemur á óvart, því þetta er dýrt fíkniefni, helm- ingi dýrara en amfetamín," sagði Amar. Hann taldi líklegt að neysla kókaíns væri vaxandi hérlendis en aðspurður vissi hann ekki til þess að nýjasta form þess, „crack“, hefði komið hingað til lands. Klíkur og rugludallar Erindi Amars fjallaði almennt um ástand fíkniefhamarkaðarins fi"á sjón- Neysla á kókaíni fer vaxandi hérlendis. arhóli fíkniefnalögreglunnar og af- ti stöðu lögreglunnar gagnvart s- umfjöllun fjölmiðla. í máli hans kom v fram að fíkniefnalögreglan einbeitti ti sér í störfum sínum að því að stöðva innfluting og dreifingu á fíkniefhum. n Þessi mál væm nú að verða flóknari e og flóknari því fíkniefnasalar lærðu o af reynslunni. e Hjá honum kom fram að til væm k menn sem stundað hefðu þessa „versl- á un“ í allt að 15-20 ár og hefðu ekki haft annan starfa þann tíma. Hann l sagði að markaðinum mætti skipta í tvennt, gamalgrónar klíkur sem erfitt u væri að komast inn í og hins vegar v tilviljanakennt fikt hjá einstaka fólki, sukkurum og mgludöllum. Yfirleitt væri mun auðveldara að upplýsa mál tengd seinni hópnum. Fyrri hópurinn ætti sér það sam- merkt að stunda ekki önnur lögbrot en dreifingu og neyslu á fíkniefnum og væri ekki á sakaskrá fyrir annað, en hinn seinni tengdist yfirleitt alls konar afbrotum öðrum, innbrotum, ávísanamisferli o.fl. Umfjöllun fjölmiðla hefur áhrif í máli Amars kom fram að mikil umflöllun fjölmiðla um fíkniefha- vandamálið hefði haft þau áhrif að fíkniefnasalamir hefðu dregið sig í hlé meðan á umfjölluninni stóð. Og „sniff- málið“ taldi hann dæmigert um þau fyrirbyggjandi áhrif sem fjölmiðlar gætu haft, því að innan við sólarhring frá því að byrjað var að fjalla um það var búið að banna sölu á kveikjara- gasi því sem var undirrót vandans. Á fyrsta degi námstefnunnar héldu, auk Ámars, þeir Ómar H. Kristmunds- son félagsfræðingur, Ásgeir Friðjóns- son sakadómari og Kristinn Ólafsson tollgæslustjóri erindi en í upphafi kynnti Helga Jónsdóttir, aðstoðar- maður forsætisráðherra, námstefhuna og greindi frá skýrslu þeirri sem fram- kvæmdanefhd, sem ríkisstjómin skipaði til þess að samhæfa aðgerðir í baráttunni gegn fíkniefnum, hefur sent frá sér, en DV greindi frá inni- haldi þeirrar skýrslu í vetur er hún var lögð fram til bráðabirgða á Al- þingi. Ásgeir Friðjónsson, sakadómari í ávana- og fíkniefhamálum, sagði m.a. í erindi sínu að frá áramótum væm komin á annan tug mála hjá dóminum þar sem kókaín kæmi við sögu. í flest- um tilfellum væri um lítið magn að ræða, hið mesta væri 11 grömm sem náðust í póstsendingu. -FRI I dag mælir Dagfari Botninn uppi í Borgarfirði Hún er fræg Bakkabræðrasagan um tunnuna sem lak. Eftir mikil heilabrot og handagang kvað einn þeirra bræðra upp úr með það að ekki væri nema von að tunnan héldi ekki vatni. Botninn væri uppi í Borgarfirði! Bakkabræður nútímans, leifamar af Alþýðubandalaginu, vom af hyggjuviti sínu búnir að uppgötva að botninn á Alýðubandalagstunn- unni væri einnig uppi í Borgarfirði. Þeir félagarnir tygjuðu sig vestur á land um helgina og hófu leit að tunnubotninum sínum. Sátu þar að Varmalandi og ræddu um lekann í kosningunum. Það mun hafa verið mikið fjör á þessum fundi. Hver Bakkabróðirinn á fætur öðrum stóð þar upp og sagði hinum til synd- anna. Forystan fékk á baukinn, verkalýðsforystan fékk á baukinn, Þjóðviljaritstjórnin fékk á baukinn, lýðræðiskynslóðin, flokkseigendafé- lagið og hvað þær nú allar heita, klíkumar í flokknum sem vilja ráða ferðinni. Þetta hét á máli formannsins rót- tækt endurmat. Það endurmat gengur út á það í stórum dráttum hvort Alþýðubandalagið á áfram að taka þátt í pólitík eða hvort leggja á niður stjómmálaafskipti og snúa sér að öðm. Þar kemur margt til greina, svo sem fuglaskoðun, fiski- rækt eða bridds. Það má til að mynda geta þess að Breiðfirðingafélagið hefur haldið góðu lífi um árabil, löngu eftir að allir Breiðfirðingar em gengnir úr félaginu. Þetta gerir Breiðfirðingafélagið með því að skipuleggja bridds og hefur náð góð- um árangri á því sviði. Alþýðubandalagið er að hugsa eitthvað á þessum nótum, ef marka má umræður innan flokksins um þessar mundir. Pólitíkin er orðin þeim andsnúin. Kjósendur em að mestu hættir að kjósa flokkinn og verkalýðsfylgið er flúið í aðra flokka. Sjálfir vita flokksmenn ekki lengur hvaða stefhu flokkurinn hefur og ef hann hefur stefnu þá er þess gætt í kosningum að minnast ekki á hana. Það þykir nefnilega einna verst fyrir framgang flokksins ef kjósendur komast að því fyrir hveiju hann vill beijast. Sumir segja þess vegna að best sé að leggja Álþýðubandalagið niður og sameina það Alþýðuflokkn- um. Sú kenning á þó nokkm fylgi að fagna vegna þess að allaböllum er sérlega í nöp við Alþýðuflokkinn og vita sem er að fátt mundi koma krötunum verr heldur en að fá á sig kommastimpil þegar búið er að gera þessa tvo flokka að einum. Seinna meir væri svo hægt að sprengja og kljúfa Alþýðuflokkinn einn ganginn enn og sagan endurtæki sig. Svo em það hinir sem vilja ganga til liðs við Kvennalistann. Þeir segja sem er að Kvennalistinn sé miklu meiri vinstri flokkur heldur en Al- þýðubandalagið eða aðrir flokkar og þar eigi leifarnar af allaböllum heima. Vinstri sinnað fólk kýs Kvennalistann og hvers vegna ættu allaballar að vera rembast við að halda úti flokki sem enginn nennir að kjósa vegna þess að það er til annar og betri vinstri flokkur? Enn em þó þeir til í flokknum sem þráast við að kasta rekunum yfir þennan flokk sem þeir hafa fengið að erfðum. Flokkseigendafélagið má vart til þess hugsa að leggja fiokkinn niður vegna þess að hvað sem líður fylgisleysinu þá á flokkurinn marg- víslegar eignir sem flokkseigendur passa upp á. Allar þessar eignir mundu lenda í höndunum á vanda- lausum. Þess vegna vill flokkseig- endafélagið viðhalda flokknum sem stofhun, enda þótt pólitik verði lögð niður. Engin niðurstaða fékkst á þessum Bakkabræðrafundi vestur í Borgar- firði. Botninn fannst ekki og tunnan lekur enn. Samþykkt var að fresta landsfúndi fram á haust og flokks- forystan lifir enn í þeirri von að íhaldið skjóti yfir hana skjólshúsi í næstu ríkisstjóm til að framlengja líf Alþýðubandalagsins. Líkir sækja líkan heim. íhaldið hefúr verið að týna fylginu eins og allaballar og er ennþá að leita að botninum á tunn- unni. Munurinn er sá einn á Bakkabræðrum og þessum flokkum að þeir síðamefndu fundu botninn. Bakkabræður höfðu nefnilega greindina fram yfir hina! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.