Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987. 5 Fréttir Vinstri sósíalistar: Hópur til starfa í Alþýðubandalaginu „Félagið gengur ekki í Alþýðu- bandalagið sem slíkt að svo komnu en það var ákveðið að töluvert marg- ir vinstri sósíalistar gangi í flokkinn og að þeir, ósamt þeim sem fyrir voru, leggi áherslu á að nýta alla mögu- leika í Alþýðubandalaginu til þess að vinna sjónarmiðum okkar fylgi,“ sagði Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðingur í morgun. I félaginu Vinstri sósíalistar eru um 100 manns. Um helgina var hald- inn fundur í því og rætt um inngöngu í Alþýðubandalagið. „Við ræddum ítarlega um þessi nýju viðhorf sem skapast hafa með kosningunum. Eft- ir þær hefur komið fram veruleg gagnrýni innan flokksins sem er sams konar og við höfum haldið uppi í garð Alþýðubandalagsins. Það eru því breytt viðhorf og líklegra að okk- ar sjónarmið njóti sín,“ sagði Ragnar. Hann er einn af fjórum kjörnum stjórnarmönnum Vinstri sósíalista en 3-4 til viðbótar eru fulltrúar ein- stakra hópa í félaginu. í því er hins vegar enginn formaður. -HERB Úrskurður launanefndar: Laun hækka um 2,85% um næstu mánaðamót Launanefnd Alþýðusambandsins, Vinnuveitendasambandsins og Vinnumálasambandsins hefur úr- skurðað að laun skuli hækka um 2,85% um næstu mánaðamót. Eftir það verða lágmarkslaun 27.866 krón- ur á mánuði hjá ófaglærðum en 36.681 króna hjá faglærðum fyrir fullt starf. Samkvæmt desember- samningunum áttu laun að hækka um 1,5% en vegna þess að vísitala framfærslukostnaðar hefur farið 1,33% upp fyrir hið svonefhda rauða strik er hækkunin 2,85%. í greinargerð launanefndar kemur fram að mikil óvissa ríkir nú um framvindu mála í efnahags- og kjara- málum. Segir þar að saman fari óvissa um stjórnarmyndun og hver verði stefna nýrrar ríkisstjómar, auk þess sem fram sé komin krafa um endurskoðun kjarasamninganna frá þvf i desember. Þá segir að útlit sé fyrir 16% verð- bólgu fram yfir mitt þetta ár en að hún fari niður í 11% á 3ja ársfjórð- ungi og gæti farið niður í 10% síðustu mánuði þessa árs ef vel tekst til um aðgerðir til að koma á jafn- vægi í viðskiptum við útlönd og um aðgerðir á sviði ríkisíjármála. Því er spáð að verðbólgan á árinu verði 13,5 til 15% en tekið er fram að lítið megi út af bregða til þess að hún verði enn meiri. Segir nefndin að þessar horfúr í verðlagsmálum séu mun lakari en reiknað hafi verið með í desember- samningunum. Þær feli það í sér að verðlagshækkanir verði tvöfalt meiri á árinu en reiknað hafi verið með þá. Ástæðumar fyrir því eru lækkun dollars gagnvart öðrum myntum, almenn þensla í efnahags- lífinu og launahækkanir sem samið hefúr verið um í kjarasamningum síðustu mánuðina, einkum í samn- ingum opinberra starfsmanna. -S.dór Stofnfundur Fiskmiðlunar Akureyrar var haldinn um helgina og reyndust margir hafa áhuga á að gerast hluthafar i fisksölufyrirtækinu. Hilmar Daníelsson, stjornarmaður Fiskmiðlunar Norðurlands: „Ég er bjartsýnn" Jón G. Haukssan, DV, Akureyii „Ég er bjartsýnn á fyrirtækið, að því standa fyrst og fremst fiskselj- endur, þ.e.a.s. útgerðar- og sjómenn," sagði Hilmar Daníelsson á Dalvík við DV í gær. Hilmar er í stjórn Fiskmiðlunar Norðurlands sem stofnuð var á Dal- vík um sl. helgi. Alls skráðu sig þrjátíu og tveir aðilar fyrir hlutafé að upphæð tólf hundruð og fjörutíu þúsund. En að sögn Hilmars er stefnt að því að hlutafé félagsins verði tvær milljónir króna. „Þeir lifa sem standa sig betur,“ sagði Hilmar þegar hann var spurð- ur hvort hann óttaðist ekki sam- keppnina við fiskmarkaðinn á Akureyri sem hefur störf bráðlega. Hibiai- bætti við að um væri að ræða óþarfa framtakssemi hjá Akur- eyringum. Þeir ættu ekkert erindi á þennan markað. -sme Óskemmtileg reynsla fréttaritara DV á Ítalíu: Btur af lögreglu og filman gerð upptæk „Ég gat lítið gert annað en bölvað þeim hressilega á íslensku og haft mig á brott en fólkið á staðnum stöðvaði þá þegar þeir ætluðu að fara aftur á eftir mér,“ sagði Baldur Róbertsson, fréttaritari DV í Genúa á Ítalíu, í gær, en hann varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu síðastliðinn föstudag að lögreglan í Genúa réðst á hann þar sem hann var að sinna störf- um sínum og gerði upptæka filmu úr myndavél hans. »Ég var að ljósmynda mótmæla- göngu sem haldin var vegna spreng- ingarinnar í olíuhreinsunarstöðinni hér skammt frá heimili mínu,“ sagði Baldur Róbertsson, fréttaritari DV á Ítalíu. Baldur ennfremur „og töldu lögreglu- menn að ég hefði verið að mynda þá í aðgerðum gegn göngufólkinu. Þeir eltu mig nokkum spöl, náðu mér ekki, en fúndu mig svo aftur á jámbrautar- stöð innan um þá sem voru að mótmæla. Þar rifu þeir af mér mvnda- vélina, tóku filmuna úr henni og eyðilögðu það sem ég hafði verið að taka. Upp úr því spunnust svo deilur milli mín og þeirra sem þátttakendur í mótmælunum blönduðust í. Þegar þeir ætluðu svo að taka mig aftur stöðvaði fólkið þá svo ég komst á Margir vilja í físksöluna Jón G, HaukssanJDVAkureyri; Ellefu sóttu um stöðu framkvæmda- stjóra hjá Fiskmarkaði Norðurlands sem verður með starfsemi sína á Akur- eyri. Að sögn Gunnars Arasonar verður ráðið í starfið í næstu viku. Gunnar sagði að staðan hefði verið auglýst sem trúnaðarmál og við það yrði staðið, engin nöfn yrðu gefin upp um hverjir hefðu sótt um. -sme Mjög góður grálúðuafli Hluturinn 250 þúsund Togarinn Venus frá Hafnarfirði kom nýlega úr veiðiferð með 305 lestir af grálúðu sem er mjög góður afli. Talið er að þetta megn nemi um 420 til 430 tonnum upp úr sjó og að háseta- hluturinn nemi um 250 þúsund krónum. Venus hefur verið á grálúðu- veiðiun undanfarið. -ój KVÖLDSKUGGAR Stærð: 41x53 cm. Verð: 1.253,- Saumuð i gíamal rósa bómullariafa með aroruqarni. ÞÚ OG ÉG Staerð: 44x60 cm. Verð: 1.685,- Saumuð í mildan bláan bó- mullarjafa með ullar- og aroragarni. Á PÁLMASTRÚND Stærð: 47x56 cm. Verð: 1.800,- Saumuð í Ijósferskjulitaðan bómullarjafa með ullar- og bómullargarni. POSTSENDUM. Hiannprbaberölunín (£rla Snorrabraut 44 — pósthólf 5249 Simi 14290.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.