Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987. Sviðsljós Jóakim prins Danaveldi er nú kominn heim frá Ástralíu. Liðnir eru sæludag- ar sólbrúnku og sveitasælu en alvara lífsins tekin við. Prinsinn hefur verið settur á sinn stað í hernum - svo sem vera ber - og þar er hann pískaður áfram. Stóribróðir - Friðrik erfðaprins - getur nú tekið gleði sína á ný en hann átti bágar öfundar- stundir þegar hann sat fastur undirströngum heraga og skoð- aði myndir af bróðurnum þar sem hann spókaði sig alsæll meðal andfætlinga eins og Dan- mörk með öllum sínum íbúum kæmi honum sama og ekkert við lengur. Ólyginn sagði... Prins Filippo: Með lassa- rónum og rottum Rómaborgar Plastpokar, teppisbútar og snúrur eru meginuppistaðan i hýbýlum prinsins og vinirnir eru flækingarnir á bökkum Tiberfljótsins. Italski prinsinn Filippo Odescalchi getur valið um búsetu í fimmtán höllum víðs vegar um Ítalíu en hann leitar ekki eftir slíkum lúxus - þvert á móti. Hann var fimmtán ára þegar hann hætti á drengjaskóla Vatikans- ins og hljópst að heiman. t fjögur ár var Filippo leitað en án árangurs og að lokum gafst fjölskyldan upp á að reyna að endurheimta svarta sauð- inn. Tveimur árum síðar stóð dökkhært ungmenni frammi fyrir dómara í Rómaborg og svaraði til saka fyrir búðahnupl. Aðspurður um nafn og stöðu svaraði sá tötrum klæddi hnuplari: „Filippo Odescalchi prins.“ Fæstir lögðu trúnað á orð ung- mennisins en fjölskyldunni var gert viðvart. Sektir voru greiddar í snatri og týndi sonurinn sóttur. Það eru ekki allir fingralangir sem yfirgefa fangelsið í límúsínu með einkabíl- stjóra undir stýri eins og gerðist í þessu tilviki. Um nokkurt skeið virtist allt ganga upp og Filippo giftist, eignaðist ynd- islega eiginkonu og þrjú börn. En skömmu eftir fæðingu yngsta barns- ins endurtók sig gamla sagan - Filippo hvarf til baka í faðm lassar- óna og rottna í undirheimum Rómaborgar. Hann er orðinn tuttugu og átta ára gamall og komst nýlega í kast við hinn langa arm laganna fyrir búðahnupl. Dómarinn skipaði honum að snúa heim til konu og barna og slíta kunningsskap við all- an undirmálslýð. Heimkynnin við Tiberána voru aftur yfirgefin og Filippo fór heim í höllina. Odescalchifjölskyldan, sem er ein valdamesta og ríkasta ætt ítala, var yfir sig ánægð með málalok. En þá kom babb í bátinn - eiginkonan hvarf og hefur nú verið týnd í nokkra mánuði. Hennar er leitað logandi ljósi um alla Ítalíu en ennþá hefur hvorki heyrst frá konunni stuna eða hósti. Hvort hún varð fyrir slysi eða fór að dæmi eiginmannsins og slóst í hóp með rónum og ræningjum veit enginn. Fjölskyldan hefur þungar áhyggjur en segir að ástæðan fyrir hegðan Filippos hafi verið af geð- rænum toga og ef til vill eigi kona hans við svipað vandamál að stríða. Hver veit? Joan Collins sló hressilega í gegn þegar vinnufélaginn Diannah Caroll átti afmæli á dögunum. Joan mætti til leiks banahress og spil- aði á píanóið í veislunni - við mikla aðdáun viðstaddra. Eftir drykklanga stund fór bombunni að leiðast þófið og steig á fætur til þess að næla sér í einn lau- fléttan. Öllum til mikillar und- runar hélt tónlistin áfram að hljóma eins og ekkert hefói ísko- rist og fóru þá tvær grímur að renna á viðstadda. Þarna var þá alsjálfvirkur skemmtari að verki og þurfti síst af öllu á fingrum Joan að halda til þess að geta staðið í stykkinu. Julio Iglesias er grútspældur yfir hvarfi eigin- konunnar fyrrverandi en hún hætti við að taka saman við hann aftur. Sú góða kona opin- beraði snarlega með fyrrum ráðherra á Spáni og er þar um að ræða töffara sem Julio segir að sé ekki einu sinni sætur - hvað þá annað. En það fara ekki allir í fötin hans Julios hvað sykrað útlit snertir og sama má segja um fasteignaviðskipti. Sér til huggunar kaupir nú Julio hallir í hinum ýmsu heimshorn- um og flytur milli dvalarstaða í fullkomnu eirðarleysi. f Lo ■ :'-v. Hin eina sanna ást er sögð geta lifað af alla erfiðleika og það er svo sannarlega raunin hvað varðar Sam Lorgen og Ingeborg Pedersen. Þau kynntust á unga aldri heima í Noregi, opinberuðu trúlofun sína en vildu láta hjónabandið biða þar til væntanlegur brúðgumi hefði lokið námi. Fjögurra ára frestun brúðkaups getur verið afdrifarík. Ingeborg smitaðist af ferðalöngun margra landa sinna og þegar Ameríkuferð bauðst varð freistingin öllu yfir- sterkari. Sam hvatti Ingeborg til að grípa tækifærið og ætlunin var að hún kæmi aftur eftir að henni hefði tekist að vinna inn aura fyrir heimferðinni. Þetta var árið 1924 og auðæfin létu bíða eftir sér. Svo fór að Inge- borg sendi hringinn heim ásamt bréfi þar sem hún sagðist gefast upp á erfiðleikunum. Tveimur árum síðar giftist hún vestra og Sam gekk í hjónaband heima í Noregi átta árum síðar. Þau lifðu bæði i hamingjusömu hjónabandi, áttu börn og barnabörn en gleymdu aldrei fyrstu ástinni. Þegar Sam var orðinn ekkill leit- aði hann upplýsinga um Ingeborg hjá fjölskyldu hennar í heimal- andinu og þar var honum sagt að Ingeborg væri orðin ekkja fyrir allmörgum árum. Hann skrifaði henni og spurði hvort hún hefði áhuga á því að hitta sig eftir öll þessi ár. Ingeborg var síður en svo áhuga- laus og tók næstu vél til Noregs. Þar á flugvellinum komust þau að því að lengi lifir í gömlum glæðum og gengu í hjónaband hálfu ári síð- ar. Ingeborg og Sam eru 84 og 82 ára gömul en sprellfjörug ennþá. „Það kemur stundum upp í hug- ann hvað hefði gerst ef ég hefði ekki farið til Ameríku," segir Inge- borg. „En fortíðinni fær enginn breytt og fjölskyldur okkar hafa það ágætt saman. Og hópurinn er væntanlega mun stærri fyrir vik- ið!“ Arið 1924 fór Ingeborg til Ameríku en Sam gleymdi henni aldrei. Glæðurnar voru ekki kulnað ar eftir sextíu og tvö ár -timinn virtist hafa staðið í stað. Túristamir og krían Krían kemur yfirleitt fyrst á vorin en túristarnir fylgja fast á hæla henni. Þessi tveir voru á vappi fyrir framan aðsetur forsetans á Laufás- vegi þegar Sveinn ljósmyndari var þar á ferð og virtust viðbúnir öllum hugsanlegum veðrabrigðum. Varla eiga þeir möguleika á að slá út kríuna sem er líklega heimsins mesti ferðalangur - hún fer árlega milli heimskautanna og er í loftinu megin- hluta leiðarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.