Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritsliórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sínrii 27022 Frjálst, óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 19. MAI 1987. Keflavíkiirfliigvölliir: Kakkalakkar yfir girðinguna Óvenjumikið er um kakkalakka á Keflavíkurflugvelli um þessar mundir. Hafa þeir einnig borist niður í Njarðvík þar sem meindýraeyðir hefur lagt fyrir þá eiturgildrur. „Það er óhjákvæmilegt annað en að þessar skepnur berist út af Vellin- um með fólki sem þar vinnur. Kakkalakkamir lifa góðu lífí á Keflavikurflugvelli þar sem húsa- kostur er víða mjög bágborinn. I sumum tilvikum eru þetta ekki ann- að en hundakofar," sagði Magnús Guðjónsson, heilbrigðisfulltrúi í Keflavík. Að sögn Magnúsar lifa kakkal- akkar góðu lífi í óþrifum, sérstaklega er tengjast eldamennsku. Fituskán er myndast við loftræstingu yfir eldavélum er þeirra yndisreitur. Kakkalakkar eiga hins vegar erfitt uppdráttar í góðum, íslenskum hús- um þar sem hreingemingar teljast til daglegra verka: „Kakkalakkar þola til dæmis ekki venjulegar jóla- og páskahreingemingar," sagði Magnús Guðjónsson. -EIR Hannes Hlífar sigrar enn og er efstur Sigurganga Hannesar Hlífars Stef- ánssonar heldur áfram á heimsmeist- aramóti unglinga í skák í Innsbruck í Austurríki og hann er enn efstur á mótinu ásamt Adams frá Englandi með 7 vinninga af 8 mögulegum. I gær sigraði hann Frakkann Lautier, en Adams sigraði Hollend- inginn Wely, sem fyrir þá umferð var 3ji maðurinn í efsta sætinu. I dag er frídagur en 9. umferð verðm- tefld á morgun og er talið að Hannes tefli þá við Bandaríkjamanninn Gurevic, en sn er stigahæsti keppandinn á mótinu. Guðfríður Lilja tefldi í gær við Ili- evu frá Búlgaríu. Skákin fór í bið en er talin dautt jafhtefli. Guðfríður er með 4 vinninga og biðskák eftir 8 umferðir. -S.dór LOKI Er ákvæði um þessa fjölg- un í varnarsamningnum? Tilboð Borgarafiokksins: Sjálfstæöismenn útiloka ekkert Þingmenn Sjálfstæðisflokks virðast hikandi við að taka afstöðu til tilboðs Borgaraflokksins um að ganga inn í núverandi ríkisstjórn. „Eg er að heyra þetta núna og vil bara ekkert tjá mig um þetta,“ sagði Eggert Haukdal. „Menn eiga auðvitað ekkert að útiloka og ræða saman í róleg- heitura. Það hastar ekkert að mynda ríkisstjóm,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson. „Málið er auðvitað til umræðu í okkar þingflokki og hjá okkar for- ystu og þú getur haft það orðrétt eftir mér að mér finnist kjaftæðið í sambandi við allar þessar stjórn- armyndanir og yfirleitt í sambandi við pólitíkina vikum og mánuðum saman með þeim hætti að ég vil ekki segja orð um þetta á þessu stigi. Menn eiga ekkert sfð vera að mynda ríkisstjórnir í fjölmiðlum," sagði Eyjólfur. „Það er mín skoðun að Sjálfstæð- isflokkurinn eigi að hafa stjómar- forystu í þeirri ríkisstjóm sem hann fer f,“ sagði Pálmi Jónsson. „Síðan veltur það auðvitað á málefnum og, könnunarviðræður standa nú yfir. Ég tel að enn sé of snemmt að segja til um það til hvaða niðurstöðu þær kunna að leiða. Ég tel að allir möguleikar geti komið til greina,“ sagði Pálmi. „Það er spuming hvenær á að taka mark á svona yfirlýsingum. Borgaraflokkurinn er margsinnis búinn að taka það fram að besti kosturinn við stjórn landsins sé fjórir flokkar,“ sagði Egill Jónsson. „Þessi yfirlýsing að forminu til hefði getað gengið meðan formaður Frarasóknarflokksins var með stjórnarmyndun vegna þess að þessi afstaða er skilyrt við það að hann fari með forystuna. Tíminn verður að leiða í Ijós hverjir kunna að eíga málefhalega samleið við myndun næstu ríkis- stjórnar. Ennþá hefur ekkert verið útiiokað í þeim efhum,“ sagði Egill. -KMU Erkifjendur i islenskum stjórnmálum, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag, sendu fulltrúa sina til könnunarviðræðna um hugsanlega stjórnarmyndun í gær. Eftir fundinn sögðu þeir Þorsteinn Páls- son og Svavar Gestsson að ágreiningur flokkanna væri mikill en þó útilokuðu þeir ekki samstarf. DV-mynd KAE Veðrið á morgun: Hægvest- lægátt um ailt iand Á miðvikudaginn verður hæg vest- læg átt um allt land. Skýjað og dálítil súld við vesturströndina en annars þurrt. Víða léttskýjað á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti á bilinu 5-10 stig. Fræðsluráð mælir með Stuiiu: Hef ekkert um þetta háttariag að segja A .................I - segir menntamálaráðherra Fræðsluráð Norðurlandskjördæmis eysta mælti með því á fundi sínum i gær að Sturla Kristjánsson yrði ráðinn fræðslustjóri og var bókun þess efnis samþykkt með sex atkvæðum, en sjö- undi fulltrúinn sat hjá, samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Þráni Þórissyni, formanni fræðsluráðs í gær. Aðspurður um efni bókunarinnar að öðru leyti sagði Þráinn að hann vildi ekki upplýsa það. „Það er best að menntamálaráðherra sjái hana fyrst,“ sagði hann. Þrír umsækjendur voru um starf fræðslustjóra en hinir tveir hlutu ekk- ert atkvæði. „Ég hef ekki séð samþykkt fræðslu- ráðs og hef ekkert um þetta háttarlag að segja," sagði Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra í morgun þegar hann var spurður um samþykkt fræðsluráðs Norðurlandskjördæmis eystra frá í gær. Spumingu um það hvort farið yrði að samþykkt ráðsins sagði Sverrir: „Um þetta þarf ekki að spyrja. Mál Sturlu er fyrir dómstólum og á meðan niðurstaða liggur ekki fyrir þarf ekki að búast við því. Ég fæ gögn frá fræðsluráðinu í dag eða á morgun og skoða þá málið," sagði Sverrir. Búðardalur: Varanleg matareitrun Enn liggur fólk rúmfast eftir matar- eitrunina er rekja mátti til kjúklinga er framreiddir voru í fermingarveislum í Búðardal á páskum. Eru sjúklingam- ir til meðferðar á sjúkrahúsum í Reykjavík og á Akranesi. „Ég hef talið að um 40 manns hafi veikst hér í Búðardal og 20 manns utan héraðs. Að sjálfsögðu vonumst við til að allir nái sér aftur en það er ekki loku fyrir það skotið að matar- eitmnin hafi varanleg áhrif á ein- hverja. Um það er að vísu ekkert hægt að segja á þessu stigi,“ sagði Sigurbjöm Sveinsson, læknir í Búðar- dal, í samtali við DV. Sjúklingamir sem enn liggja neyttu kjúklinganna á páskum fyrir rúmum fiórum vikum og einkenni eitmnar- innar komu í ljós viku síðar. -EIR Fiskverð hækkar á Bandaríkjamarkaði é Stærsti viðskiptavinur Coldwater í I viðskiptavinur Bandaríkjunum, Long John Silver’s veitingahúsakeðjan, er nú farin að greiða markaðsverð fyrir þorskflök og við það hækkað verð á 3ja og 5 punda pakkningum til seljenda hér heima um 14%. Samningurinn sem Coldwater gerði við Long John Silver’s var orðinn mjög óhagstæður en hann er nú út- mnninn en þar var um langtíma samning að ræða. Þá hefur verð á þorskblokk á almennum markaði í Bandarikjunum hækkað úr 1,75 doll- urum í 1,80 dollara. Eins og kom fram í viðtali við Magn- ús Gústafsson, forstjóra Coldwater í Bandaríkjunum í DV, fyrir skömmu hefur birgðastaða fyrirtækisins aldrei verið jafnslæm og nú. Þar ræður mestu um hve lágt verð Long John Silver’s greiddi fyrir fiskinn og ekki síður fall dollarans. Seljendur hér heima töldu sig fá meira fyrir að selja fiskinn ann- að. Þetta ætti að breytast nú eftir þessa miklu hækkun. -S.dór ^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.