Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Laufbrekku 26, þingl. eigendur Þórmundur
Hjálmtýsson og Hólmfríður Jónsdóttir, fer fram í skrifstofu embættisins,
Auðbrekku 10 í Kópavogi, fimmtud. 4. júni kl. 10.20. Uppboðsbeiðendur
eru Eggert B. Ólafsson hdl„ Landsbanki Islands, Ólafur Axelsson hrl. og
Bjarni Asgeirsson hdl.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Kársnesbraut 106, þingl. eigandi Skipafélagið Víkur hf„ fer fram
í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, fimmtud. 4. júní kl. 10.35.
Uppboðsbeiðendur eru Jón Ólafsson hrl. og Brynjólfur Kjartansson hrl.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Ásbraut 13, 1. hæð t.v„ tal. eigandi Gunnar Emilsson, fer fram
í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, fimmtud. 4. júní kl. 10.40.
Uppboðsbeiðandi er Ari ísberg hdl.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Smiðjuvegi 20, hluta, þingl. eigandi Þórarinn Þórarinsson, fer
fram i skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, fimmtud. 4. júní kl.
10.45. Uppboðsbeiðendur eru Iðnlánasjóður og Bæjarsjóður Kópavogs.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
annað og síðara á fasteigninni Melgerði 20, hluta, þingl. eigandi Hannibal
Helgason, fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi,
fimmtud. 4. júní kl. 10.50. Uppboðsbeiðandi er Jón Ólafsson hrl.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 35., 45. og 51. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Heimatúni 2, Bessastaðahreppi, þingl. eign Öldu Guðbjörnsdóttur og
Vilhjálms Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka ís-
lands, Valgarðs Sigurðssonar hdl„ Iðnlánasjóðs og Þórunnar Guðmunds-
dóttur hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði,
mánudaginn 1. júni 1987 kl. 17.15.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Víðiteig 18, Mosfellshreppi, þingl. eign Hafþórs
Svendsen, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. á skrifstofu embættis-
ins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, þriðjudaginn 2. júní 1987 kl. 16.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Víðiteig 28, Mosfellshreppi, þingl. eign Reynis
Brynjólfssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar á skrifstofu embættis-
ins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, þriðjudaginn 2. júní 1987 kl. 16.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu,
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Hamarsteig 3, Mosfellshreppi, þingl. eign Unu
Hrannar Kristinsdóttur og Birgis Haraldssonar, fer fram eftir kröfu Arnar
Höskuldssonar hdl„ Brynjólfs Kjartanssonar hrl. og Veðdeildar Landsbanka
íslands á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, þriðjudaqinn
2. júní 1987 kl. 16.15.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Sumarbúðum í Elliðakotslandi, Mosfellshreppi,
tal. eign Birnu Magnúsdóttur, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl.
á skriístofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, miðvikudaqinn 3.
júní 1987 kl. 16.30.
_______Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Flugubakka 6 (hesthús), Mosfellshreppi, þingl.
eign Kristins Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. á
skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, miðvikudaginn 3. júní
1987 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn I Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987, á eigninni Flugubakka 10 (hesthús), Mosfellshreppi, tal.
eign Sveinjóns Jóhannessonar, fer fram eftir kröfu Amar Höskuldssonar hdl.
á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, miðvikudaginn 3.
júní 1987 kl. 14.15.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eigninni Saurbæ í Kjalarneshreppi, þingl. eign dánarbús
Guðlaugar Jónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 3. júní 1987
kl. 13.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Klausturhvammi 9, Hafnarfirði, þingl. eign Guð-
jóns Arinbjörnssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, mánudaginn 1. júní 1987 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Feröamál dv
Evrópulestir
breyta um svip
Framundan eru kaflaski! í lestar-
sögu Evrópu. Transevrópulestirnar
T.E.E., sem hafa ekið um álfuna um
þriggja áratuga skeið, vérða nú
leystar af hólmi og við tekur nýtt
kerfi Eurocity.
T.E.E. voru fyrsta farrýmislestir
sem óku milli helstu borga álfunnar.
í þeim var lögð áhersla á þægindi
og góða þjónustu og voru þær taldar
með þvi besta sem þekktist í lestar-
ferðum í heiminum. I hinu nýja kerfi
verður einnig boðið upp á annað far-
rými og verður það þriðjungi ódýrara
en fyrsta farrými.
Frönsku hraðlestirnarTGV, en það
stendur fyrir train a grand vitesse
eða háhraðalestir, eru inni í nýja
kerfinu. Þetta eru hraðskreiðustu
lestir álfunnar, aka á næstum 300
kílómetra hraða. Fimm þeirra munu
aka á milli Parísar og Genfar.
Þónokkuð af gömlum nöfnum T.E.
E. lestanna koma til með að haldast
óbreytt í nýja kerfinu. Sem dæmi um
það má nefna Cisalpin, Transalpin,
Blauer Enzian og Rembrandt. Önnur
munu hverfa. Þar á meðal eru þekkt
nöfn eins og Rheingold, sem ók milli
Amsterdam og Basel en hefur nú
verið leyst af hólmi.
Nýjar nafngiftir verða af ýmsum
gerðum. Margar lestir koma til með
að heita í höfuðið á þekktum mönn-
um úr þróunarsögu evrópskrar
einingar. Dæmi um þetta er Robert
Schuman lestin sem ekur milli París-
ar og Lúxemborgar en hugmyndir
Schumans um sameiginlegan Evr-
ópumarkað fyrir stál og kol voru
undanfari Evrópubandalagsins.
Önnur nöfn eru til dæmis Frans
Hals sem var flæmskur málari. Lest-
in sem ber nafn hans kemur til með
að tengja saman Amsterdam, Frank-
furt, Núrnberg og Múnchen. Jóhann
Strauss ekur milli Vínar og Kölnar
og Erasmus ekur frá Innsbruck um
Múnchen og Wúrzburg til Amster-
dam.
Annar flokkur nafna eru landa-
fræðiheiti. Þannig ekur Mont Blanc
mil)i Genfar og Hamborgar og Hansa
milli Kaupmannahafnar og Ham-
borgar.
Nýja kerfið tekur gildi á morgun
og tekur það til 56 daglesta og átta
næturlesta sem koma til með að
tengja saman 200 borgir í þrettán
löndum.
Forsvarsmenn kerfisins segjast
reyna að tryggja að lestirnar séu sem
fljótastar og þægilegastar. Til þess
að geta þetta hefur verið komið á
ákveðnum reglum um lestirnar. Þær
eiga að vera loftkældar, bjóða upp á
mat, halda um 85 kílómetra meðal-
hraða og stoppa sem minnst.
Dæmi um verð: Fargjald í TGV lest
milli Parísar og Lauzanne kostar um
kr. 2.000 aðra leiðina á fyrsta farrými
en um kr. 1.400 á öðru farrými.
Fargjald í Bavaríu hraðlestinni
milli Múnchen og Zúrich er kr. 2300
á fyrsta farrými en kr. 1500 á öðru
farrými.
-PLP
__••••*•«
••••••••*«
• ♦•••• «aM» ■
. >••••«•• • • «
••••••• I >#•♦••••••• •• *
EuroCity
Merki Eurocity. Punktar tengja stafina og gefur það hraða í skyn. E-ið verð-
ur blátt að lit en C-ið gyllt. Þetta merki verður málað á lestirnar og starfsfólk
þeirra ber það í barmi.