Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Page 16
16
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987.
Veiðivon
Veiðisumarið 1987
- hvað segja veiðiklærnar?
Silungsveiðivötnin hafa verið opin í nokkurn tíma og laxveiðin hefst innan skamms. Spennan er mikil því spáð er góðu
sumri og stórum löxum. Við fengum nokkrar veiðiklær til að svara einni spurningu sem margir hafa velt fyrir sér: Hvern-
ig verður veiðisumarið 1987?
Hans Kristjánsson.
„Ætli sá stóri
sleppi ekki í sumar“
- segir Hans Kristjánsson
„Mér líst vel á sumarið og það verð-
ur mikið um stórlaxa, örugglega gott
veiðisumar," sagði Hans Kristjánsson.
„Þetta verður meiriháttar sumar ef allt
verður eðlilegt, fyrst mjög gott en svo
versnar veiðin vegna þess að enginn
snjór er i fjöllum. Það á að fara eitt-
hvað og ætli Laxá í Dölum verði ekki
framarlega á listanum. AUt er samt
þetta dálítið óráðið ennþá. Maður
reynir að fá þann stóra í sumar en
ætli hann sleppi ekki eins og síðustu
sumur, ég á frekar von á þvi.“
„Stangaveiði-
menn mega
standa betur
saman“
- segir Einar Guðmundsson
„Þetta verður miðlungsveiðisumar
og svipar líklega til síðasta sumars.
Það verður töluvert af stórum laxi
og allar ytri aðstæður eru góðar. Það
hefur verið hlýtt í hafínu kringum
landið og fiskurinn ætti að koma
fyrr vegna þess en það er ótrúlegt
hvað laxinn kemur alltaf á réttum
tíma,“ sagði Einar Guðmundsson,
„Það á að fara í nokkra veiðitúra í
sumar og renna meðal annars í
Stóru-Laxá í Hreppum, Elliðámar,
Leirvogsá og Miðfjarðará. Mér
finnst að stangaveiðimenn megi
standa betur saman en þeir gera og
við getum ekki þolað það ár eftir ár
að veiðileyfin hækki ótrúlega mikið
miðað við annað verðlag. Þetta kem-
ur við beinið á veiðimönnum þegar
þetta er farið að kosta 2-3 sólar-
landaferðir á sumri.“
Einar Guðmundsson.
„Byrja 6. júní
í Norðurá“
- segir Ingólfur Arnarson
„Mér líst vel á sumarið. Veiðitíminn
hjá mér byrjar í Norðurá i Borgar-
firði 6. júní og svo koma fleiri
veiðitúrar í kjölfarið, eins og í Flóku
og Brennuna. Svo er fluguveiðitúr í
Norðurá seint í ágúst,“ sagði Ingólf-
ur Amarson.
„Þetta verður vonandi gott í Norð-
urá í byrjun og það er spennandi að
fara svona snemma. Fiskifræðingar
spá góðu veiðisumri og ætli það verði
ekki stór lax til að byrja með en fari
svo smækkandi þegar líður á tím-
ann.“
Ingólfur Arnarson.
Davíð Oddsson borgarstjóri.
„Það er kominn
fiðringur í mann“
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„Mér líst mjög vel á þetta veiði-
sumar, eins og það síðasta. Þetta
verður mikið stórlaxasumar og ég
ætla töluvert í veiði því í fyrra
komst ég ekki eins mikið og ég vildi
vegna afmælis Reykjavíkurborg-
ar,“ sagði Davíð Oddsson borgar-
stjóri. „Það er kominn fiðringur í
mann í sambandi við Elliðaámar
og ég á von að fá fisk, þó það verði
kannski ekki 5 mínútur yfir sjö
éins og fjölmiðlar vilja.“
Valgerður F. Baldursdóttir.
„Gaman að veiða
í Laxá í Aðaldalu
- segir Valgerður F. Baldursdóttir
„Þetta hlýtur að verða gott sum-
ar, sjórinn er búinn að vera svo hlýr
að það er gott fyrir fiskana. Stórlax-
amir koma fyrst á veiðitímanum og
það verður spennandi að byrja veið-
ina snemma. Árnar á Austurlandi
verða ennþá á uppleið og þetta veður
gott sumar,“ sagði Valgerður F.
Baldursdóttir." Ég mun fara víða til
veiða, eins og í Miðíjarðará, Set-
bergsá, Laxá í Aðaldal og Hofsá í
Vopnafirði, Stóru Laxá og Straum-
fjarðará.
Ég hlakka mest til að fara í Stóm-
Laxá í Hreppum og í Laxá í Aðaldal,
Nessvæði. Þar er gaman að veiða því
maður veit aldrei hvað laxinn er stór
þar.“
„Flugan verður
víða reynd í sumar“
- segir Sigurður Sigurjónsson
„Mér líst vel á sumarið og það á
að veiða bæði silung og lax, verð
líklega meira í silungnum en laxin-
um. Ég hef farið það sem af er sumri
nokkrar ferðir í vötnin í kringum
bæinn og veiðin hefur verið ágæt,“
sagði Sigurður Sigurjónsson. „Ég
hlakka mest til að fara á urriða-
svæðið í Mývatnssveit. Þar er
stórkostlegt að veiða og maður
veit aldrei hvað stórir bíta á. Svo
er veiðiferð í Laxá í Aðaldal, á
Hraunið, í september sem gæti orð-
ið góð, þar em víst stórlaxar.
Maður verður mikið að vinna í
sumar svo veiðin verður að vera
númer tvö á eftir vinnunni. Það
verður samt reynt víða. Flugan
verður reynd í sumar, hvort sem
það verður í vötnum eða ám.
„Allar ár verða
fullar af laxi“
- segir Leifur Benediktsson
„Mér líst vel á sumarið og er mjög
bjartsýnn, það verða stórar göngur.
Fiskifræðingar segja að allar veiðiár
verði fullar af laxi frá ósi og upp um
alla hylji,“ sagði Leifur Benedikts-
son. „Þetta verða í bland stórlaxar
og smálaxar, stórlaxar til að byrja
með og svo kemur smálaxinn. Ég fer
í Álftá á Mýmm og Leirvogsá, Álftá
er skemmtileg veiðiá. Svo er það efra
svæðið í Laxá í Mývatnssveit en þar
hef ég ekki veitt áður, bara á því
neðra. Mér finnst verð á veiðileyfum
vera orðið alltof hátt.“
Sigurður Sigurjónsson.