Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Page 18
18 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987. Suðiiriand: Beðið eftir stóra skjálftanum Innan 25 ára verður stór og öflugur landskjálfti á Suðurl- andi. Líklegt er að upptök skjálftans verði á sömu slóðum og upptök skjálftans 1896 og að styrkleikinn verði áþekkur og 1896. Þessu slá vísindamenn föstu og byggja á söguleg- um heimildum annars vegar og þekkingu á hreyfíngum jarðskorpunnar hins vegar. í vikunni heimsótti DV íbúa jarðskjálftasvæðisins. -pal Áætluð upptök stærstu skjálfta á Suðurlandi síðan árið 1700. Tölur undir ártölum sýna áætlaðan styrkleika á Richter. Hvar ber næsta stóra skjálfta niður? Heimild: Náttúra íslands Vona það besta - segir Gréta á Geldingalæk „Þegar við fundum skjálftann á mánudaginn vorum við með gesti inni í húsi. Það þustu allir út á tún því húsið nötraði allt.“ sagði Gréta Kristjánsdóttir á Geldingalæk í Rangárvallahreppi. Gréta sagði fólk í sveitinni tala um skjálftana fyrst eftir að þeir finnast en síðan hættir það að leiða hugann að þeim. Sjálf sagðist Gréta ekki hafa gert neinar sérstakar ráðstafanir vegna mögulegs skjálfta. ..Maður verður bara að vona það besta og að húsið haldi.“ -pai Ég verð bara að vona að húsið haldi, segir Gréta Kristjánsdóttir. Byggingafulltrúinn á Selfossi: Burðarþolið í lagi á byggingum bæjarins Sinnuleysi um íbúðarhús Árið 1982 var gerð könnun á bygg- ingum Selfossbæjar og athugað hve vel þær væru undir landskjálfta bún- ar. Að sögn Bárðar Guðmundssonar byggingafulltrúa, reyndust allar byggingar vera nægilega sterkar til að þær stæðust þann skjálfta sem búast mætti við. Minna er vitað um skjálftaþol íbúðarhúsa Selfyssinga því aðeins einstök hús hafa verið athuguð og þá að frumkvæði íbú- anna sjálfra. - Það var ekki fyrr en með nýju byggingarreglugerðinni frá 1978 að farið var að ganga ríkt eftir að hús- byggjendur skiluðu inn burðarþols- teikningum. Þau hús, sem byggð eru eftir þann tíma, ættu að vera nokkuð trygg. Um eldri hús er ekkert hægt að segja. Bárður sagðist ekki vita til þess að aðrar opinberar byggingar en þær sem bærinn á hefðu verið kannaðar. Reglugerðin frá 1978 kveður á um að byggingafulltrúar skuli ekki teikna þurðarþol húsa sem þeir taka út sjálfir. Á þessu hefur orðið mis- brestur í Reykjavík, eins og kunnugt er. Aðspurður sagðist Bárður geta fullyrt að síðastliðinn áratug hefði hvorki hann né forverar hans í emb- ættinu teiknað hús sem þeir sjálfir taka út. Sinnuleysi Bárður sagði að Almannavamir hefðu lagt að bæjaryfirvöldum að gera úttekt á öllum húsum á Sel- fossi og kvaðst Bárður hlynntur slíkri úttekt. Bæjarstjóm hefur hing- að til ekki viljað eyða tíma og peningum í þetta verkefni. - Þetta mál hefur oft komið upp en aldrei komist á rekspöl. Það er fyrst og fremst sinnuleysi um að kenna. Auk þess yrði að fá utanaðkomandi aðila til að annast úttektina og kostnaðurinn vex mönnum í augum, segir Bárður. Bæjarbúar sjálfir skiptast í tvö hom. Sumir gera þær ráðstafnir sem hægt er að gera til að undirbúa sig undir skjálfta. Aðrir láta sér fátt um finnast og ætla að taka því sem að höndum ber. Á skrifstofu byggingafulltrúa ber- ast stundum beiðnir um að íbúðar- hús yrðu athuguð með tilliti til styrkleika þeirra. Sagði Bárður að hann sinnti þessum beiðnum eftir getu og gæti annað þeim á meðan þær eru ekki fleiri en raun er á. -pal Kirkjan á Selfossi á aö vera skjálftaþolin, samkvæmt athugun. Enn hafa íbúarhús á Selfossi ekki verið prófuð. Ljósm. e.j. Það hiynur allt í stóra skjálftanum - segir Steindór Guðmundsson „Það hrynur allt í þeim stóra,“ segir Steindór Guðmundsson, bóndi á Egilsstöðum, en það er næsti byggði bær við Amarbæli. í skjálft- anum 1896 gjöreyðilögðust öll bæjarhús á Egilsstöðum en útihús sluppu flest óskemmd. „Það er helst að tréhúsið á bak við og stálgrindarskemman myndu standa uppi,“ heldur Steindór áfram, þar sem hann stendur fyrir utan tví- lyfta steinhúsið sem er bærinn sjálf- ur. Steindór sagði fáa hafa tekið eftir skjálftanum á mánudaginn, fyrir ut- an þá sem vom innandyra. í Ölfusinu hefur Steindór búið alla sína tíð og hann sagði fólk þar skki hugsa mikið um jarðskjálfta. Ekki kannaðist Steindór við að hús væm byggð sérstaklega til að þola jarð- skjálfta, hvorki fyrr né síðar. „Sá verður munurinn á næsta stóra skjálfta og skjálftanum 1896 að í dag getur miklu meira eyðilagst en þá,“ sagði Steindór Guðmunds- son. „Hús í Ölfusi hafa aldrei verið byggð til að þola jarðskjálfta,“ segir Steind- ór á Egilsstöðum. Ljósm JAK Bygging og hönnun mannvirkja: Island verra en Mexíkó Islensk nefnd fór til Mexíkó til að sjá verksummerki eftir skjálftann þar í september 1985. í nefndinni voru sér- fræðingar á sviði almannavama, verkfræði og jarðeðlisfræði. Þegar heim kom gerði nefndin samanburð á hönnun og byggingu mannvirkja á íslandi og Mexíkó. Eins og sést á töfl- unni er ástand þessara mála verra á íslandi en Mexíkó. JARÐSKJÁLFTAHÖNNUN MANNVIRKJA Mexíkó ísland Staðlar Góðir Hönnun Ábótavant EftirlitTeikning Lélegt Efni Ekkert Rannsóknir Jarðeðl. Allgóðar Verkfr. Góðar Lélegir (engir/rangir) Ábótavant Ixdegt Ekkert Allgóðar Mjög litlar/engar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.