Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987. Fréttir Höfn í Homafirði: Hart deilt um fullyrðingar í burðarþolsskýrslunni: Humarver- tíöin hefur fariö vel af stað Humarvertíðin hefur farið mjög vel af stað og afli verið öllu meiri en var ó sama tíma í fyrra, en það þótti góð vertíð. Að sögn Sverris Aðalsteinssonar hjá ffystihúsi kaupfélagsins á Höfh í Homafirði voru um helgina komnar á land 88 lestir af humri af 15 bátum. Aflahæstur var þá Sigurður Ólafsson með 8.5 tonn f fimm sjóferðum. Kvóti Hornafjarðarbáta er 240 lestir, þannig að þriðjungur kvótans er þegar kominn á land. Eins og áður hefur komið fram í fréttum er verð á humri ffjálst á þessari vertfð. Kaupfélagið á Höfn hefur samið við sína viðskipta- báta um að greiða 595 krónur fyrir humar f 1. flokki. sem er 25 grömm og yfir humarhalinn. Fyrir 2. flokk. 10-25 grömm, eru greiddar 285 krónur og 120 krónur fyrir 3. flokk, 10 grömm og minni eða gallaðan humar. Þetta er um 10% hærra verð en var á vertíð- inni í fyrra. Flestir humarkaupendur biðu eftir verðinu á Homafirði, enda eru Horn- firðingar langstærstu humarkaup- endur og verkendur á landinu. Mun humarverðið vera svipað á öllum stöð- unum á þessari vertíð. -S.dór Peningainarkaöur INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur óbund. 10 12 Ib.Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn • 11 15 Sb 6 mán uppsogn 12 20 Ib 12 mán. uppsogn 14 25.5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 22 24.5 Bb Avisanareiknmgar 4 10 Ab Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4 7 Sp Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 2 Ab.Bb. Lb.Sb. Úb.Vb 6 mán. uppsögn Innlán með sérKjörum 2.5 4 10 22 Ab.Úb Innlángengistryggð Bandaríkjadalur 5.5 6.5 Ib Sterlingspund 7,5 10 Vb Vestur-þysk mörk 2.5 3.5 Ab.Vb Danskarkrónur 9-9.5 Ab.Sb, Sp.úb ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir vixlar(forv) 21 24 Bb.Úb Vidskiptavixlar(forv.)(1) 24 26 eða kge Almenn skuldabréf 21.5 25 Ub Vidskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareiknmgaríyfirdr.) Utlán verötryggo 21.5 25 Ub Skuldabréf Að 2 5árum 6.5 7,5 Lb Til lenari tíma Útlán til framleiðslu 6.75 7.5 Ub ísl. krónur 18.5 24 Ab SDR 7.75 8 Bb.Lb. Ub Bandarikjadalir 8 9 Sb Sterlingspund 10,25 11.5 Lb Vestur-þýsk mörk 5.25 5.75 Bb.Lb Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5 6.75 Dráttarvextir 33.6 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júni 1687 stig Byggingavísitala 305 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 3% 1 april HLUTABRÉF Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 110kr. Eimskip 248 kr Flugleiðir 170 kr Hampiðjan 114 kr. Iðnaðarbankinn 134 kr. Verslunarbankinn 116 kr Úgerðarf. Akure. hf. 150 kr. Skagstrendingur hf. 350 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavixla gegn 24% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DV á fimmtudögum. Hver ber ábyrgð a öllu þessu fúski? Frá því að félagsmálaráðuneytið birti skýrslu, sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (RB) vann fyrir ráðuneytið um burðarþol tíu bygg- inga í Reykjavík, hafa orðið miklar umræður um þetta mál og ekki að ástæðulausu. Hvemig könnunin á burðarþoli var framkvæmd hefur vakið deilur meðal manna. Hafsteinn Pálsson hjá RB stýrði könnuninni. Hafsteinn hefúr sagt að hann hafi valið öll húsin sem könnunin náði til. Haf- steinn fékk til liðs við sig sex verkffæðinga. Flestir þeirra starfa á stóru verkffæðistofunum hér í Reykjavík. Athygli hefur vakið að Fréttaljós Sigurjón M. Egilsson engin þeirra bygginga, sem könnun var gerð á, er hönnuð af þessum stóru verkfræðistofum. Þess vegna em til menn sem draga í efa að þeir verkffæðingar, sem unnu að gerð skýrslunnar, hafi ekki verið með í ráðum um val á byggingum og að þeir hafi notað þetta tækifæri til að koma höggi á ákveðna menn en því hefur Hafsteinn alfarið neitað. Einn- ig hafa menn dregið í efa að Haf- steinn Pálsson hafi ekki vitað hverjir væm hönnuðir þeirra bygginga sem hann valdi. Menn segja að Hafsteinn komist ekki hjá því, starfs síns vegna, að vita hluti sem þessa. „Reglur þverbrotnar11 Síðastliðinn föstudag gekkst Verk- ffæðingafélag íslands fyrir fundi um burðarþolsskýrsluna. A fúndinum, sem var fjölsóttur, fluttu framsögu Hafsteinn Pálsson, Þórður Þ. Þor- bjamarson borgarverkffæðingur, Gunnar Torfason, formaður Félags ráðgjafarverkffæðinga, Viðar Ólafs- son, formaður Verkffæðingafélags íslands, og Ragnar Sigbjömsson, for- stöðumaðui' Verkffæðistofnunar Háskólans. Ragnar deildi hart á verkffæðing- ana sem unnu að skýrslunni. Ragnar sagði meðal annars að í skýrslunni væm þverbrotnar þær reglur og hefðir sem almennt em viðurkennd- ar sem homsteinn vísindalegra rannsókna. Ragnar sagði einnig að í skýrslunni hefðu verið bornar fyrir borð þær siðferðilegu skyldur sem hvíla á verkfræðingum og vísinda- mönnum. Ragnar sagði á fundinum að skýrslan væri móðgun við félags- mólaráðherra. Ráðherra ætti kröfu á vandaðri vinnubrögðum. Hafsteinn Pálsson hjá Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins vildi ekki tjá sig um gagnrýni Ragnars Sigbjömssonar þegar DV hafði tal af honum í gær. „Ég tel ekki rétt að svara á þessu augnabliki, ég er ekkert að flýta mér,“ var svar Haf- steins. Hann bætti við að svar ffá nefndarmönnum væri væntanlegt bráðlega. Engar teikningar til Við lestur skýrslunnar vekur furðu að í flestum tilfellunum tíu vom ekki til allar teikningar hjá bygging- arfulltrúanum í Reykjavík. I einu tilfelli var ekki til ein einasta teikn- ing að öllu húsinu. Það er húsið að Eldshöfða 16. Verkfræðingur þess húss er Björgvin Víglundsson, fyrr- verandi starfsmaður hjá byggingar- fulltrúa. Er nema von að spurt sé hvemig þetta megi vera? Byggingarfúlltrú- inn í Reykjavík, Gunnar Sigurðsson, hefur ítrekað sagt að innan embætt- isins hafi orðið trúnaðarbrestur milli sín og starfsmanna. Þegar Gunnar var spurður um þetta atriði í Kast- ljósþætti í sjónvarpinu sagði hann: „Hvemig á einn maður að fylgjast með öllu sem gerist?“ Ekki er hægt að lesa annað úr orðum Gunnars en að hann vilji færa þau mistök, sem gerð hafa verið hjá embætti bygging- arfulltrúa, sem mest á starfsmenn sína. Gunnar sagði í sama sjónvarps- þætti að hann væri tilbúinn til að axla ábyrgð og jafnvel láta af störf- um en hann bætti við að aldurs vegna hefði hann hvort eð er verið búinn að hugleiða að hætta. Eftir að umræðurnar hófust hefur einum starfsmanni hjá byggingar- fulltrúa verið vikið frá. Það er Hallgrímur Sandholt deildarverk- fræðingur. Hallgrímur var að vísu ekki rekinn úr starfi hjá borginni, hann verður fluttur til. Hallgrímur tekur nú út sitt sumarfri. A meðan er verið að finna pláss fyrir Hallgrím Var það tilviljun hvaða hus voru mí innan borgarkerfisins. Þetta hafa menn kallað peðsfórn. Eru forsendur við gerð skýrsl- unnar rangar? Menn eru ekki sammála um að þær forsendur, sem verkfræðingam- ir sem unnu skýrsluna gáfu sér, séu réttar. Landinu er skipt í þrjú jarð- skjálftasvæði. Svæði 1 er sá hluti landsins þar sem nónast engin jarð- skjálftahætta er. Reykjavík hefur hingað til talist til svæðis 2. A svæði þrjú, t.d. Suðurlandi og Norðurlandi eystra, er jarðskjálftahætta hvað mest. Verkfræðingamir, sem unnu skýrsluna, settu Reykjavík mitt á milli svæða 2 og 3. Um þetta em menn ekki sammála. 1 grein, sem Júlíus Sólnes skrifaði í DV, segir: „Ef Suðurlandsundirlend- ið er talið á svæði 3, með 100 % ólag, er víst að Reykjavík er í versta falli á svæði 2 með 50 % álag. Þess má geta að í jarðskjólftasögu landsins, en Sigurður heitinn Þórarinsson prófessor hefur rannsakað annála og sögurit hennar vegna, allt frá ell- eftu öld, er aldrei minnst á tjón af völdum jarðskjólfta á bæjum í Reykjavík.“ Síðar í grein Júlíusar segir: „... teljast verður ólíklegt, að húsbyggingum i Reykjavik sé mikil hætta búin af völdum jarðskjálfta". Þessar staðreyndir, sem Júlíus bendir á, em helstu rök þeirra sem segja að þeir sem unnu skýrsluna hafi ætlað byggingunum að standast óþarflega strangar kröfur. Hönnunarfúsk Flestir ef ekki allir þeir verkfræð- ingar, sem haft var samband við, vom sammála um að í byggingariðn- aðinum viðgengist fúsk. Það ætti ekki bara við um hönnunarvinnuna þótt hún væri umræðuefnið hér. Gunnar Torfason verkfræðingur, einn þeirra sem unnu að gerð skýrsl- unnar, hefúr sagt að hér á landi „viðgengist drullusokkadýrkun" í þessum málum. En af hveiju stafar fúskið? í fyrr- nefndri grein Júlíusar Sólness segir: ...fólk, sem heldur sig vera að spara fé með því að kaupa ódýra hönnun, gerir þar sín stærstu mistök í húsbyggingunni. Það fær nákvæm- lega það sem það greiðir fyrir. Hönnunarfúskið kostar húsbyggj- andann yfirleitt margfaldan hönn- unarkostnaðinn." Júlíus Sólnes segir að burðarþols- til burðarþolsathugunar? fúskið fari oft þannig fram „... að hönnuður reiknar lítið sem ekki neitt, en mokar jámum í húsið, oft á vitlausum stöðum, til þess að tryggja sig.“ Hverjir bera ábyrgðina? Einn þáttur umræðunnar er hver ber ábyrgð ó hönnunargöllum. I byggingalögum nr. 54/1978, í 5. mgr. 12. gr., er tekið fram að þeir sem heimild hafi til að gera uppdrætti skuli árita þá með eigin hendi og bera á þeim ábyrgð. I lögunum er ábyrgðin ekki skilgreind né gmnd- völlur hennar. Stanley Pálsson verkfræðingur flutti erindi á námstefhu á vegum endurmenntunamefndar Háskólans. Erindi Stanleys var um ábyrgð hönnuða. í erindinu segir Stanley m.a.: „Þegar leggja skal mat á það hvort hönnuðir em skaðabótaskyld- ir vegna starfs síns ber fyrst og fremst að líta til samnings aðila og túlka hann. Hönnuður getur aug- ljóslega orðið bótaskyldur á gmnd- velli ákvæða í samningi þar sem hann ábyrgist berum orðum ákveð- inn árangur eða gæði verksins. Garantíábyrgð, eða ábyrgð á áskild- um kostum, er sjaldgæf." Stanley segir einnig: „Hönnuður er skaðabótaskyldur vegna þess tjóns, sem viðsemjandi hans verður fyrir, sem rekja má til þess að hann hefur ekki leyst verkefni sitt af hendi af þeirri faglegu kostgæfni og þekk- ingu sem ætlast má til af honum, miðað við menntun hans, reynslu og þekkingu.“ Einn þáttur í fúskinu er sá að húsbyggjendur vilja komast af með sem minnsta greiðslu til hönnuða. Þetta hefur viðgengist og fyrr í greininni var vitnað í orð Júlíusar Sólness um þetta atriði. Stanley Pálsson segir um þetta: „Telji hönn- uður eða ráðgjafi að endurgjaldið sé ekki í samræmi við vinnuframlagið, eða að hann geti ekki gefið sér nægi- legan tíma til starfsins, þá leysir það hann ekki undan ábyrgð. Hann ætti einfaldlega ekki að taka verkið að sér.“ Fáirdómartil um hönnunargalla Fyrir Hæstarétt hafa fá mál vegna hönnunargalla farið. Á árinu 1971 var flutt eitt þeirra mála sem flutt hafa verið í Hæstarétti um hönnun- argalla. I þeim dómi segir: „B höfðaði mál til greiðslu skaðabóta gegn byggingarfulltrúanum á Akureyri og sýslumanni Eyjafjárðarsýslu, f.h. sýslunefndar, vegna galla og skemmda sem komu fram á íbúðar- húsi B og taldi hann að byggingar- fulltrúinn bæri ábyrgð á tjóninu á grundvelli byggingasamþykktar og 1. 108/1945 og að sýslunefnd bæri jafnframt ábyrgð á störfum hans. B. hófst handa árið 1966 um bygg- ingu íbúðarhúss að Dvergasteini í Eyjafirði. Teikningu fékk hann hjá Teiknistofu landbúnaðarins í Reykjavík, að tilvísun byggingar- fulltrúa sem ákvað einnig staðsetn- ingu hússins. Hann kannaði jarðveg á byggingarstæði og ráðlagði bygg- ingu hússins á „flotgrunni". Bygg- ingarfúlltrúinn teiknaði undirstöðu og gólfþlötu gegn gjaldi, kr. 1.000,-. Hafði frilltrúinn eftirlit með bygg- ingunni. Eftir að byggingu lauk tók húsið að síga. Byggingarfulltrúinn og sýslunefnd voru dæmd ábyrg fyr- ir tjóni stefnanda vegna þess að óráðlegt hefði verið að byggja á flot- grunni eins og á stóð.“ í þessum dómi var byggingarfull- trúi dæmdur fyrir afglöp í starfi. Hann ráðlagði byggingarstað, teikn- aði undirstöðu og gólfplötu og fylgdist með verkinu (tók það út). Erfúskið náttúrulögmál? Svo er ekki. Þetta segir Stanley Pálsson um leiðir til úrbóta: „Hönn- uðir verða að eyða tíma í að fylgjast með á sínu sérsviði. Það er útilokað að gera kröfu til þess að hönnuður geti kynnt sér allt sem hefur verið skrifað um ákveðið tæknivandamál áður en hann leysir það. Islenskir hönnuðir mættu gjarnan eyða held- ur meiri tíma í að fylgjast með nýjungum á tæknisviðinu. Það kom fram í könnun, sem gerð var meðal þýskra ráðgjafa, að þeir eyddu meira en helmingnum af vinnutíma sínum í að leita að tækni- upplýsingum. Hönnuðir ættu aldrei að afhenda teikningar nema búið sé að fara yfir þær af öðrum hönnuði." I niðurstöðum nefhdarinnar sem vann burðarþolsskýrsluna, segir: „Til þess að bæta núverandi ástand í þessum málum er þörf á að herða til muna þær reglur sem gilda um löggildingu hönnuða og auka veru- lega eftirlit bæði með hönnuðum og framkvæmdum. Jafhframt er brýnt að gera verulegt átak í staðalmálum á sviði þolhönnunar, þ.e. endurskoða núgildandi staðla og gefa út þol- hönnunarstaðla sem ekki eru til.“ -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.