Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987.
Útlönd
Barbie settur í
sögulegt samhengi
Réttarhöldin yfir Klaus Barbie,
íyrrum foringja Gestapó í Lyon í
Frakklandi, tóku á sig nýja mynd í
gær þegar reynt var að setja glæpi
hans í sögulegt samhengi með vitnis-
burði um hugmyndir þær er nasistar
gerðu sér um kynþáttamál, sögu
frönsku andspyrnuhreyfingarinnar
og lífið í fangabúðum nasista.
Geneviéve De Gaulle, frænka
Charles De Gaulle, íyrrum forseta
Frakklands, var meðal þeirra sagn-
fræðinga og annarra sérfræðinga
sem gengu í vitnastúku i gær og
skýrðu frá þeim atburðum er áttu
sér stað íyrir fjórum áratugum.
Klaus Barbie, sakbomingurinn
sjálfúr, var ekki viðstaddur vitna-
leiðslur í gær. Hann neitar að vera
viðstaddur réttarhöldin og hefúr
tvisvar þurft að draga hann i dómsal
með lögregluvaldi þegar nauðsyn-
legt hefur verið að láta vitni bera
kennsl á hann.
Dómarinn i máli Barbies tók það
fram í gær að ekki bæri að skoða
framburð þeirra vitna sem nú kæmu
til réttarins sem tillag í réttarhöldin
um glæpi Barbies. Framburður
þeirra væri sögulegs eðlis til þess að
skýra bakgmnn atburða í Lyon en
tengdist ekki beint athæfi Barbies.
Jacques Verges, lögfræðingur
Barbies, áminnti af þessu tilefni
kviðdóm í málinu um að gæta þess
að vfirfæra ekki áfellisdóm um hug-
myndafræði nasista á Barbie. Bað
hann kviðdómendur að minnast þess
að þeir væm í réttarsalnum til að
fella dóm yfir manni fyrir það sem
bái'ii kynni að hafa brotið af sér
-jálfur en ekki til þess að kveða upp
úrskurð um hugmyndafræði nasista.
Geneviéve De Gaulle, frænka Charles De Gaulle, fyrrum Frakklandsfor-
seta, bar vitni við réttarhöldin yfir Klaus Barbie I gær.
** Simamynd Reuter
Bob Hawke, forsætisráðherra og leiðtogi ástralska verkamannafíokksins,
heidur nokkru forskoti á aðra flokka landsins i kosningabaráttunni.
Símamynd Reuter
Stjórnarflokkur-
inn heldur
forskoti sínu
Skoðanakannanir í Ástralíu sýna
að verkamannaflokkur landsins, undir
forystu Bob Hawke forsætisráðherra,
hefúr um fimm prósentustiga meiri-
hluta fylgis í kosningum þeim sem
framundan em þann 11. júlí næstkom-
andi.
Stjómarandstaðan tilkynnti í gær
að hún myndi grípa til vemlegra
skattalækkana ef hún hlyti meirihluta
í kosningunum, þar á meðal lækka
tekjuskatt einstaklinga og fyrirtækja
úr 55 prósent, sem er hæsta skatt-
prósenta, í 38 prósent hátekjuskatt.
Myndi það koma öllum fjölskyldum í
landinu sem og iðnaði og öðrum fyrir-
tækjarekstri til góða, að sögn stjómar-
andstöðunnar.
Verkamannaflokkurinn segir þessar
skattabreytingar myndu verða skref
aftur á bak og koma illa við efhahag
Ástralíu.
Kjósendur í Ástralíu virðast heldur
ekki ginnkeyptir fyrir kosningaloforð-
um af þessu tagi því fylgi verkamanna-
flokksins jókst fremur en minnkaði
við þetta áhlaup stjómarandstöðunn-
ar.
STAÐREYNDIR UM INNIÁNSREIKN
FULLIR VEXTIR STRAX FRÁ 0 FULL VERB
INNLÁNSDEGI **
0 VEXTIR EKKIIÆGRI EN Á VERÐTRYGGÐUM^
INNIÁNSREIKNINGUM MEÐ RRIGGJA
MÁNAÐA BINDINGU ^
0ENGINN UTTEKTAR