Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987
29
DV __________Sviðsljós
Rekinn á hol af bola
Frægustu nautabönum getur líka förlast. Þannig (ór fyrir spænska nautabananum Carlos Aragon Cancela á tuttugasta nautaati San Isidro-hátíöar-
innar sem haldin er árlega á Spáni. Sært og tryllt nautið fann veikan punkt i vörninni hjá Aragon og var ekki seint á sér að reka hornin í kvalara sinn
og hefja hann á loft. Aragon er alvarlega slasaður á síöunni eftir aðför bola og bíður þess nú að sárin grói svo hann megi hefna harma sinna.
Rob Lowe
Ólyginn
sagði...
Madonna
gerir það gott báðum megin
við Atlantshafið og hefur nú
unnið hug og hjörtu Sovét-
manna. Þó ekki opinberlega,
því plötur hennar sjást hvergi
í sovéskum plötubúðum. Hins
vegar rennur síðasta breið-
skífa hennar út á svarta
markaðnum í Sovét og kostar
eintakið einungis því sem
nemur tæpum 3000 íslenskra
króna.
Stórstjörnur
r
1
Jerúsalem
Heimurinn er lítill, a.m.k heimur fræga fólksins. Á dögunum
átti poppstirnið Anne Lennox leið um ísrael í tónleikaferð og
í þjóðminjasafni ísraels í Jerúsalem rakst hún á annan góð-
kunningja okkar íslendinga, Nigel Hawthorne, betur þekktan
í hlutverki hins óborganlega aðstoðarmanns í þáttunum „Já,
forsætisráðherra”. Ljósmyndari, sem átti leið hjá, sló tvær flug-
ur í einu höggi og smellti þeim saman á filmu.
Vökvadrifið úr
fundið upp
Góðar fréttir fvrir svamlara. Nú er ekki einungis óhætt að dýfa úrinu í
vatn heldur er búið að finna upp úr sem beinlínis gengur fyrir vatni. og
ef menn stunda alls ekki sund þarf einungis að láta úrið liggja í vatns-
glasi á náttborðinu vfir nótt. rétt eins og fölsku tennurnar. Gabi
Vollbrecht heitir sá sem á heiðurinn af uppátækinu og er hann V-Þjóð-
verji búsettur í Berlin. Það er ekki nóg með að úrið gangi fyrir vatni.
heldur nægir hvaða vökvi sem er. bjór eða mjólk. það má jafnvel liggja
í koppnum vfir nóttina. Undraúrið. sem sést á meðfylgjandi mynd. ku
vera hið eina sinnar tegundar í heiminum.
veldur fjölskyldunni ómæld-
um áhyggjum um þessar
mundir vegna ástarsena sem
hann kemur fram í í nýjustu
kvikmynd sinni. Þykja sumar
þeirra nefnilega heldur i
svæsnara lagi. Unnustan,
Melissa Gilbert sem flestir
kannast við úr hinum hugljúfu
framhaldsþáttum, Húsinu á
sléttunni, er ævareið yfir því
að hún þurfi að deila Robba
með þúsundum aðdáenda
hans um allan heim og hefur
hún grátbeðið hann um að
láta klippa þær allra verstu út.
Rob verður þó ekki haggað
og geta aðdáendur hans því
beðið spenntir eftir næstu
mynd.
Charlene Tilton
eða blondínan Lucy í Dallas
helgar nú dóttur sinni, Cher-
ish, allan sinn tíma. Hún hafði
nefnilega nauman tíma til að
sinna dótturinni þegar hún
fæddist, enda á kafi í að leika
í Dallas. Nú er Charlene hins
vegar hætt í Dallas þar sem
henni þóttu þættirnir vera
farnir að gerast fullgrófir og
hefur hún sinnt fjölskyldunni
meira eftir það. Þær eiga líka
mörg sameiginleg áhugamál,
mæðgurnar, Cherish þykir
vera reglulega sæt, lítil dama,
með sérstakan áhuga á að
kaupa sér fín föt og klæða sig
upp og snyrta.