Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1987.
Kvikmyndahús
Bíóborg
3. sýningar aðeins sunnudag.
Moskítóströndin
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
Morguninn eftir
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Krókódila Dundee
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhúsið
Blátt flauel
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bíóhöllin
Leyniförin
Sýnd kl. 5, 7, 9 óg 11.
Lögregluskólinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Með tvær í takinu
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Vitnin
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Litla hryllingsbúöin
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
Paradisarklúbburinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Koss köngulóarkonunnar
Sýnd kl. 9.
Háskólabíó
Á toppinn
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Laugarásbíó
Fyrr ligg ég dauður
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16. ára.
Hrun ameríska
heimsveldisins
Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Litaður laganemi
Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11.
Regnboginn
Þrir vinir
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Gullni drengurinn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
Milli vina
Sýnd kl. 5, 7 og 11.15.
Fyrsti apríl
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10
Guð gaf mér eyra
Sýnd kl. 9.
Herbergi með útsýni
Sýnd kl. 5, 7. 9 og 11.15.
Stjörnubíó
Fjarkúgun
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Engin miskunn
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Svona er lifið
Sýnd kl. 7.
Ógnarnótt
Sýnd kl. 11.
Bönnuð innan 16. ára.
Andlát
Sigríður Stefánsdóttir lést 2. júní
sl. Hún var fædd á Krókarvöllum í
Fljótum 21. júní 1895. Foreldrar
hennar voru hjónin Stefán Jóhanns-
son og Margrét Kjartansdóttir.
Sigríður giftist Friðbirni Níelssyni
árið 1918 en hann lést árið 1952.
Þeim hjónum varð sex barna auðið
en auk þess áttu þau eina uppeldis-
dóttur. Útför Sigríðar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Jón Guðmundsson lést í Landa-
kotsspítala þann 11. júní.
Rannveig Sigríður Bjarnadóttir,
fyrrum húsfreyja í Stóru-Sandvík,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands 11.
þ.m.
Sigríður J. Þormar, Barmahlið 15,
lést í Landakotsspítala aðfaranótt
12. þ.m.
Agnes Einarsdóttir frá Vogi, Berg-
þórugötu 53, andaðist á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund föstu-
daginn 12. júní.
Sigþrúður Steinþórsdóttir Thörl-
ings frá Egilsstöðum, Ölfusi, andað-
ist í New York 19. júní 1987, 94 ára
gömul.
Anna Jónsdóttir frá Hvallátrum,
Langholtsvegi 132, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
16. júní kl. 10.30.
Guðrún Tómasdóttir, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 16. júní kl. 13.30.
LAUSAR STÖÐUR KJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Staða forstöðumanns við dagheimilið Valhöll, Suður-
götu 39.
Umsóknarfrestur er til 28. júní. Upplýsingar veita fram-
kvæmdastjóri og umsjónarfóstrurá skrifstofu dagvistar
barna, sími 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fuHrí ferð
Skilafrestur í bílagetraun
er til fimmtudags.
í gærkvöldi________________________________dv
Ámi Harðarson tónlistarmaður:
Auglýsingamar leiðinlegasta efnið
Á þessum bjartasta tíma ársins
þykir mér líklegt að sjónvarpsgláp
Islendinga sé undir meðallagi. Að
minnsta kosti fær tækið mitt lengri
hvíldir með hækkandi sól þótt
reyndar sé það almennt minna notað
en á meðalheimili og ég teljist því
varla hæfur til að gera ítarlega út-
tekt á dagskránni. Eg hef hins vegar
skoðanir á því hvað ég vil láta bjóða
mér og um helgina voru það einkum
tvö dagskráratriði sem vöktu áhuga
minn. Það fyrra var júgóslavneska
kvikmyndin sem Ríkissjónvarpið
sýndi á laugardagskvöld. Aðalper-
sónurnar, faðir og sonur, og sam-
band þeirra, voru snilldarvel
skapaðar og kvikmyndin varð fyrir
vikið eftirminnileg þótt viðbjóðurinn
væri á köflum óþægilega yfirþyrm-
andi. í gærkvöldi var svo sýnd
breska framhaldsmyndin um herra
Pye en hún er unnin eftir skáldsögu
hins ágæta rithöfundar, ljóðskálds
og myndlistarmanns Mervyn Peake.
Þessi kostuleg saga, um mann sem
verður fyrir þeim óþægindum að dag
nokkum taka að vaxa á hann væng-
ir, gefur vissulega góð fyrirheit og
verður eflaust til þess að ég brýt þá
reglu mína að forðast framhalds-
þætti. Auk þessara mynda greip ég
niður í þátt sem nefndist Athyglis-
verðar auglýsingar. Sjónvarpsaug-
lýsingar í því fádæma magni, sem
Ámi Harðarson.
hellt er yfir þjóðina á hverju kvöldi,
eru vafalaust það mest þreytandi og
umfram allt leiðinlegasta efhi sem
boðið er upp á í sjónvarpi en því er
þó ekki að neita að innan um birt-
ast auglýsingar sem hafa beinlínis
listrænt gildi eða ena á einhvem
hátt lifandi sköpun. í þættinum var
velt upp ýmsum áhugaverðum hlið-
um á hinum vaxandi iðnaði sem
framleiðir þessu litlu „leikrit" sem
flest okkar fá að sjá oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar.
Með sumrinu minnkar notkun
sjónvarps en það þarf ekki nauðsyn-
lega að eiga við um útvarpið enda
má njóta þess við allar mögulegar
aðstæður. Gamla Ríkisútvarpið hef-
ur á dagskrá sinni mikið af góðu
efni og er þrátt fyrir allt eina út-
varpsstöðin sem byggir á fjölbreyttu
efnisvali. Eðli hinna frjálsu stöðva
virðist ekki leyfa slíkt þótt ásetning-
urinn geti verið góður. Það verður
þó fróðlegt að fylgjast með því hvaða
stefnu nýja Bylgjurásin fylgir þegar
hún verður send út í keppnina um
eyru landsmanna.
Tilkyriningar
Spakmælið
Óhóflegt lítillæti er aöeins hulið dramb.
Gothe
Geðhjálp með kaffisölu
17. júní
Geðhjálp verður með kaffisölu miðviku-
daginn 17. júní nk. í Félagsmiðstöðinni
Veltusundi 3b milli kl. 14 og 18.
Kvöldferð Kvenfélags
Neskirkju
Hin árlega kvöldferð Kvenfélags Nes-
kirkju verður farin mánudaginn 22. júní
nk. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl.
18. Upplýsingar gefa Hildigunnur. s. 13119,
og Hrefna. s. 13726.
Mígrensamtökin,
Suóurgötu 14
Skrifstofan er opin á mánudögum frá kl.
17-19, sími 623620.
Bók á vegum Kvenfélags
Sauðárkróks
Nýlega er komin út bók á vegum Kvenfé-
lags Sauöárkróks og ber hún nafnið „Við
ósinn“. Undirtitill bókarinnar er Saga
kvennasamtakanna í Hegrariesi, Hins
skagfirska kvenfélags og Kvenfélags
Sauðárkróks. Tilefni útgáfunnar er 90 ára
afmæli félagsins sumarið 1985. Höfundur
er Aðalheiður B. Ormsdóttir. Bókin er 143
bls. með myndum. Henni fylgir nafna- og
heimildaskrá ásamt skrá yfir stjórnir fé-
lagsins frá upphafi. Bókin er prentuð í
Odda og er til sölu í bókabúð Brynjars á
Sauðárkróki.
Hellaferðir
Nýlega var stofnað fyrirtækið Hellaferðir
s/f er vinnur að ferðamálum í samvinnu
við Kerðaskrifstofuna Faranda. Kyrst um
sinn verða ferðir í glæsilega nýfundna
hraunhellaá Suðvesturlandi. Farið verður
í Hella eins og Kerið í Ölfusi, sem er 500
m langur, og Tvíbotna á Þingvöllum serh
er 350 m langur. Hellar sem þessir tveir
eru fjölmargir og eiga það sameiginlegt
að vera ósnortir. og óvíða er glæsileiki ís-
lenskrar náttúru meiri. Kerðir eru alla
sunnudaga, farið frá bensínsölu BSl kl.
11 og tekur ferðin um 6 klst. Þar af er
dvaliö neðanjarðar 2 4 klst. Hellaferðir
s/f bjóða, auk leiðsagnar jarðfræðings,
ljós, hjálma og annan útbúnað sem þarf
til slíkra ferða. Upplýsingar, skráning og
farmiðasala er hjá Ferðaskrifstofunni Kar-
anda, Vesturgötu 5. sími 622420.
Námskeið í loðdýrarækt á
Hólum í Hjaltadal
Hólaskóli hefur ákveðið að bjóða þeim sem
íhuga að fara í loðdýrarækt að dvelja 3-5
daga á námskeiði við skólann á tímabilinu
júní ágúst. Þátttakendur munu taka
þátt í daglegri hirðingu á loðdýrabúi skól-
ans undir leiðsögn. Farið verður í gegnum
alla helstu verkþætti í hirðingu refa og
minka ásamt nokkri bóklegri kennslu.
Þátttakendum verður jafnframt bent á
hvar sé að finna ritaðan fróðleik um loð-
dýrarækt. Námskeiðin eru fyrst og fremst
ætluð þeim sem eru að byrja í loðdýrarækt
eða velta því fyrir sér hvort refur eða
minkur séu húsdýr sem þeir geti fellt sig
við og haft að atvinnu. Gert er ráð fyrir
mjög takmörkuðum fjölda þátttakenda
hvert sinn. Umsjónarmaður og kennari
verður Álíheiður Marinósdóttir, kennari
í loðdýrarækt við Hólaskóla.
Símaskráin 1987 komin út
Símaskráin 1987 er komin út. Hún verður
afhent símnotendum á póst- og símstöðv-
um urn land allt næstu daga gegn fram-
vísun sérstakra afhendingarseðla, sem
póstlagðir hafa verið, og er afhending þeg-
ar hafin. Upplag símaskrárinnar að þessu
sinni er um 137 þúsund eintök. Símanot-
endum er bent á að kynna sér símaskrána
sem fyrst eftir að þeir hafa fengið hana í
hendur tii að auðvelda sér notkun henn-
ar. í því sambandi er vakin athygli á skrá
yfir öryggis- og neyðarsíma á kápusíðum
og kaflanum frá Almannavörnum ríkisins
á bls. 758 768. Skrá um ný og breytt síma-
númer á höfuðborgarsvæðinu á meðan
prentun stóð yfir er nú á bls. 28.
Afmæli
75 ára afmæli á í dag, 15. júní, Hol-
geir Pétur Gíslason, Smáraflöt 1,
Garðabæ. Hann og kona hans ætla
að taka á móti gestum á heimili sínu
eftir kl. 16 á afmælisdaginn.
80 ára afmæli á í dag, 15. júní, Pétur
M. Sigurðsson, safnvörður á Sel-
fossi, áður bóndi að Austurkoti,
Sandvíkurhreppi. Hann verður að
heiman í dag.
BLAÐBURÐAR- ÆSTF
FÓLK /mMif/
VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI
Lindargata Frakkastígur 1-9 Klapparstígur 1-30 ****************************
Bergstaðastræti Hallveigarstígur Spítalastígur
DV AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022