Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Blaðsíða 26
38
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1987.
9 LAUSAR STÖÐUR HJA
' REYKJAVÍKURBORG
STÖÐUR YFIRFÓSTRA
á leikskólanum Brákarborg v/Brákarsund og á dag-
heimilinu Laufásborg, Laufásvegi 53-55. Upplýsingar
veita umsjónarfóstrur á skrifstofu dagvistar barna í
síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
ff! LAUSAR STÖÐUR HJÁ
’l' REYKJAVÍKURBORG
Staða forstöðumanns við leikskólann Árborg, Hlaðbæ
17.
Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 28. júní. Upplýsingar veita fram-
kvæmdastjóri og umsjónarfóstrur á skrifstofu dagvistar
barna, sími 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást.
Skór
framtíðarinnar.
Skóval við Óðinstorg,
skóverslun fjölskyldunnar.
LOKSINS!
Þá eru þeir
komnir sumar-
skórnir.
Skóverslun Kópavogs,
Hamraborg 3.
Sími 14955.
Simi 41754.
Verslunin Mílanó,
Laugavegi 20.
Sími 10655.
Verslunin Skóey,
Bárustíg 15.
Sími 98-2349.
HLEÐSLUSKRÚFJÁRN
I>V
Unglingar
vinsælir
Ungiingarnir á Húsavík eru
þrælvinsælir þessa dagana
enda hefur ekki í mörg ár ve-
rið jafnauðvelt fyrir unglinga
að fá vinnu. Er nú svo komið
að fiskvinnslan er farin að
keppa við bæinn um að fá
unglingana í vinnu. 1 þessari
samkeppni styðjum við skófl-
umar eins og löngum hefur
verið gert í bæjarvinnunni.
Kaupfélögin
Kaupfélögin græddu 50
milljónir á síðasta ári en í
fyrra varð 305 milljóna tap á
rekstri þeirra. Dagur segir í
frásögn af þessu að kaupfélög-
in hafi skilað 50 milljóna
króna hagnaði. Margir spyrja
sig hvers vegna kaupfélögin
hirtu ekki gróðann sjálf.
Mungo Jerry
Popparinn Mungo Jerry,
sem söng lagið In the sum-
mertime fyrir margt löngu.
tróð upp í Sjallanum um helg-
ina. Ýmsum datt i hug að
þarna væri um að ræða
Mango Jerry og að Jón Helga-
son dómsmálaráðherra stæði
fyrir komu mysunnar.
Pésapylsur
5ára
Pylsuvagninn á ráðhústorgi
útti 5 ára afmæli í síðustu
viku. Það er Pétur Bjarnason
handknattleikskappi sem á
vagninn. Salan hefur ætíð
gengið vel hjá Pétri enda siður
margra Akureyringa að fá sér
eina með öllu hjá honum eigi
þeir leið um.
Akureyringum
fjölgar
Akureyringum fjölgaði á
fyrstu fjóru mánuðum ársins.
Þá fæddust 158 böm en á sama
tíma í fyrra 145. Þess má geta
að þegar Sigfús Jónsson bæj-
arstjóri var á Skagaströnd
ruku fæðingar þar upp líka.
Enda hvatti Sigfús fólk til
bameigna. Sigfús er greini-
lega kominn til Akureyrar.
Blaðamaður
gefurtogara
í frásögn Dags af togaranum
Ólafi Bekki frá Ólafsfirði
gerði blaðamaðurþá meinlegu
villu að hann eignaði Skag-
firðingum skipið. I leiðrétt-
ingu skrifaði blaðamaðurinn:
„Blaðamaður gefur togara".
Það er deginum ljósara að
blaðamenn á Degi hljóta að
vera á rokna kaupi og vonandi
skila Skagfirðingar togaran-
um aftur.
Tré rjúka upp
Það var vel til fundið hjá
þeim á Húsavík að planta
trjám á uppstigningardag en
þá var allsherjargróðurdagur
hjá þeim. Trén hljóta líka að
rjúka upp. :
Böm
eftirhermur
Dagur sagði frá því á föstu-
dag, úr þýddri grein, að
niðurstöður umfangsmikilla
sálfræðikannana erlendis á
ungabörnum leiddi í ljós að
þau væru hermikrákur. Mikil
vísindi þetta. Hægt hefði verið
að segja sálfræðingunum að
það læra börn sem fyrir þeim
er haft. Annars „herma" sum
börn svo eftir foreldrum sínum
að þau eru nánast eins og þau
í útliti.
Sjómanna-
dagurinn
Sjómannadagurinn var í
gær. Það var víða tekið á enda
heyrist að handlæknisdeild
Sjúkrahússins á Akureyri hafi
verið full.
Sniglar farnir til Noregs.
Sniglar
til Noregs
Félagar í bifhjólasamtökun-
um Sniglunum lögðu í hann
frá Akureyri á miðvikudaginn
til Noregs á noirænt mót bif-
hjólaunnenda. Það er spurn-
ing hversu lengi þeir verða á
leiðinni. Eitt er víst að mótið
verður haldið í rjóðri.
Sandkom
Nautin vaxa hægt.
Galloway
Hreinræktun nauta af
Gallowaykyni í Hrísey hefur
gengið hægt þau 11 ár sem
nautin hafa verið í eyjunni.
Ástæðan er sögð sú að hjörðin
sé allt oflítil. Sumum hefur
þó dottið í hug að kjötið sé svo
seigt að nautin vaxi hægt.
Engin Stjama
Nýja útvarpsstöðin Stjarn-
an næst ekki á Akureyri og
ku svo ekki verða á næstunni.
Það verður því engin norður-
stjarna í sumar en ef sendirinn
verður sterkur gæti þetta orð-
ið pólstjarna í haust.
Rjóma-
vandamál
Erfitt hefur verið að fá
ijóma í verslunum á Akureyri
undanfarið. Stafar þetta af því
að kaupmenn panta ekki
nægilegan rjóma fyrir helgar.
Svo mikill er þeytingurinn á
milli verslana hjá fólki að
sumir eru farnir að tala um
rjómarall.
Jón G. Hauksson
Menning
Bjöm Steinar á
Hallgrímskirkjuhátíð
Kirkjulistahátið Hallgrimskirkju.
Orgeltónleikar Björns Steinars Sólbergs-
sonar 9. júni.
Efnisskrá: Dietrich Buxtehude: Prelúdia og
fúga í D-dúr og Ciaconna i e-moll; Pier-
redu Mage: Fimm þættir, úr „Livre
d’orgue"; Johan Sebastian Bach: lch ruf
zu dir, Herr Jesu Christ og Bach/Vivaldi:
Konsert í a-moll.
Listvinafélag Hallgrímskirkju
gengst fyrir mikilli tónlistarhátíð í
kirkjunni, sem hófst um hvítasunnu
og stendur út vikuna. Tónlistarhá-
tíð, þar sem aðrar listgreinar eiga
þó sína fulltrúa, því haldin er sýning
á passíumyndum eftir Snorra Svein
Friðriksson í anddyri og Kirkjuleik-
húsið á einnig inni á þessari hátið.
En fyrirferðarmest er tónlistin. Sakir
íjarveru undirritaðs varð ekki fjallað
um fyrstu tónleika þessarar hátíðar,
sem að sögn voru hinir glæsilegustu.
Átakalitið, en lipurt
Á þriðja í hvítasunnu lék Bjöm
Steinar Sólbergsson á kórorgel Hall-
grímskirkju. Enn er auður krókur
þar sem orgelinu mikla er ætlaður
staður í framtíðinni og ímyndunin
ein verður að fá að ráða í hvemig
þeir hljómar verði sem þaðan komi.
Til síns brúks er kórorgelið ágætt,
en að sönnu full lítið til flutnings
viðameiri verka. Það mátti greini-
lega sjá, eða öllu heldur heyra, á
verkefnavali Bjöms Steinars Sól-
bergssonar. Hann valdi verk án
mikilla átaka, en sem þó leyfðu lipr-
um og litríkum túlkunarmáta hans
að njóta sín.
Leikurinn hófet með nokkrum
verka Buxtehudes. Þótt Danir eigi
að sönnu rétt á að telja Buxtehude
sinn mann lítur heimurinn yfirleitt
á hann sem þýskt tónskáld og organ-
ista. Það leiðir til dæmis hugann að
því hve afetætt þjóðemishugtakið
Björn Steinar Sólbergsson.
Tórúist
Eyjólfur Melsted
er þar sem saga íslands og hertoga-
dæmanna í núverandi Norður-
Þýskalandi á sér, til dæmis, miklu
meira sameiginlegt en saga hertoga-
dæmanna og syðstu fylkja Vestur-
Þýskalands.
Landamæri tónlistarinnar
En tónlistin á sér sem betur fer
engin landamæri. Hér úti á íslandi
erum við svo blessunarlega laus við
þjóðlegan skóla (þjóðrembuskóla) í
tónlist. Því þykir sjálfsagt að bera
gott að úr öllum áttum. Björn Stein-
ar Sólbergsson hefur borið með sér
ferskan rómversk-gallískan blæ inn
í íslenskan orgelheim, en er um leið
vel heima í leikmáta hins vel þekkta
germanska skóla. Pierre du Mage
er kannski einum um of venjulegt
barokktónskákl til að taka sem
dæmi um gallískan stíl. En ég hygg
að það hafi verið bæði hljófærisins
vegna og inntaks hátíðarinnar í
Hallgrímskirkju að hann valdi ekki
verk nýrri franskra tónskálda, sem
hann er þegar svo þekktur fyrir, til
flutnings á þessum tónleikum.
Það var heldur ekki neitt slor að
hlýða á hann flytja Bach Vivaldi
konsertinn. Þar naut lipurð hans og
íhugandi framsetning tónmálsins til
fulls. Hann gaukaði svo smá broti
af iðandi fótamennt, sem aukagetu
að áheyrendum, svona rétt til að
lyfta brúninni í lokin og um leið festa
með manni það álit að þar fari mikil-
hæfúr organisti, en um leið skemmti-
legur flytjandi þar sem Bjöm Steinar
Sólbergsson er. EM