Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1987, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 1987
9
Gangandi vegfarendur veittust að lögreglunni í Seoul eftir að hún beiffi
táragasi á stúdentana. simamynd Reuter
Lögreglan í Seoul
lét undan í gær
Lögreglan í Seoul, höfuðborg Suð-
ur-Kóreu, lét undan í deilum sínum
við stúdenta í borginni í gær, dró sig
til baka frá dómkirkjunni þar sem
stúdentarnir hafa komið sér fyrir og
bað þá að yfirgefa kirkjuna friðsam-
lega. Um þrjú hundruð stúdentar voru
í kirkjunni sem lögreglan hefur nú
setið um í fimm daga.
Stúdentarnir ákváðu síðan í nótt að
verða við tilmælum lögreglunnar og
yfirgáíú flestir by gginguna, við mikinn
fögnuð fjölda almennra borgara sem
safnast höfðu saman fyrir utan kirkj-
una.
Nokkrir stúdentar munu þó enn vera
í kirkjunni.
Mikil spenna hefúr ríkt i Seoul und-
anfama daga vegna umsátursins um
dómkirkjuna. Um tíma hótaði lögregl-
an að ráðast inn í hana og taka
stúdentana með valdi. Þúsundir al-
mennra borgara veittust að lögregl-
unni eftir að hún beitti táragasi gegn
stúdentum sem höfðu uppi mótmæli
gegn ríkisstjórn landsins. í gær gaf
lögreglustjóri borgarinnar sínum
mönnum þau fyrirmæli að handtaka
hvem þann sem sýndi málstað stúd-
entanna samúð. Ekki varð þó mikið
úr þeirri ætlan lögreglunnar.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Utlönd
Sikhar myrða tólf
manns á Indlandi
Ijögreglan í Nýju-Delhi á Indlandi
leitar nú ákaft Sikha sem í gær myrti
tólf manns og særði um tuttugu, í
borginni.
I Punjab, þar sem Sikhar berjast fyr-
ir sjálfstæðu heimalandi sér til handa,
létu fimmtán manns lífið í átökum á
laugardagskvöldið.
Þúsundir lögreglumanna leituðu
hús úr'húsi í nokkrum hverfúm Nýju
-Delhi í gær, eftir að ungur Sikhi réðst
inn í bamaafmæli á heimili byggingar-
verktaka eins í borginni og hóf
skothríð á afmælisgestina úr vélbyssu.
Sikhinn rændi síðan bíl, felldi nokkra
gangandi vegfarendur og myrti loks
fólkið sem var í bílnum sem hann
rændi.
Talsmenn Sikha lýstu óhugnaði sín-
um vegna atburðarins í gær.
Þrír afmælisgestanna féllu í árás
Sikhans. Þegar hann gekk út úr húsi
byggingarverktakans skaut hann til
bana ungan mann sem átti leið fram
hjá á skellinöðru. Hann rssndi síðan
biireið með ökumanni og tveim far-
þegum, neyddi þá til að aka um með
sig, meðan hann skaut til bana fimm
vegfarendur til viðbótar og særði
marga aðra. Loks myrti Sikhinn
mennina þrjá í bílnum.
Með byssumanninum var annar Sik-
IM ítótóte__________ 4
Ættingjar fórnarlamba Sikhana syrgja hina föllnu
hi en sá mun ekki hafa tekið þátt í
skothríðinni.
Nýju-Delhi i gær.
Simamynd Reuter
Nú geta allir
flaggað!!!
Stuttar fánastangir með
einföldum festingum utan á hús.
Tilvalið fyrir
fyrirtæki og einstaklinga.
Heiídsaia og smásala.
VATNS VIRKINN/ /
Ármúli 21, 128 Reykjavík - Sími í verslun: 686455.
Skrifstofa: 685966 - Lynghálsi 3, símar 673415, 673416.
ERU
ÞITT
EF SVO ER, VERÐUR ÞÚ AÐ GERA
EITTHVAÐ í MÁLINU.
HROTUSTOPPARINN er einfalt og öruggt tæki
sem stoppar hrotur og tryggir væran svefn,
semer öllum lífsnauðsynlegur.
Hrotur eru ekki bara hvimleiðar, þær
geta verið lífshættulegar.
HROTUSTOPPARINN er
hljóðnæmt lítið rafeindatæki,
sem fest er á fót eða
handlegg þegar
menn fara að sofa.
Hann sendir frá
sér boð er hann
nemur hrotur.
Boðin valda
örlítilli ertingu
sem líður hjá strax,
en veldur því að
menn hætta (stoppa)
að hrjóta og ná að festa
svefn þannig að
full hvíld fæst jafnt fyrir
sál og líkama.
Verð kr. 3.950,-
*JAPIS
BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133
Kosið í Eþíópíu
Kosningar fara nú fram í Eþíópíu,
í fyrsta sinn síðan her landsins steypti
Haile Selassie keisara, af valdastóli í
landinu, fyrir þrettán árum.
Atkvæðagreiðsla gekk hægt fyrir sig
um helgina, þrátt fyrir miklar aðgerð-
ir stjórnvalda til þess að fá kjósendur
að kjörborðinu. Búist er við að um
tuttugu milljónir Eþíópíubúa neyti
kjörréttar síns, en það er um helming-
ur þeirra 46 milljóna manna sem búa
í landinu.
Ríkisstjóm marxista í Eþíópíu gekk
nýlega frá nýrri stjómarskrá fyrir
landið, þar sem kveðið er á um að lýð-
ræðislega kosið þing skuli taka við
sem æðsta stjórn landsins. Tekur þing-
ið við af stjómarráðum hersins sem
hafa stýrt málum í Eþíópiu síðan i
byltingunni árið 1974.
Kenýa
Eþiópia er við suðurenda Rauðahafs-
ins.