Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
Ógleymanleg
ferð í Elliðaey
■ —---—
Myndir og texti: Omar Garðarsson
Eitthvað hafa allir staðir til
síns ágætis sem gerir það að
verkum að þar vill fólk búa.
Hægt er að stunda hesta-
mennsku á einum stað á meðan
þeir sem áhuga hafa geta stund-
að trillumennsku eða annað
tengt sjó, nú eða annarri úti-
veru. I Vestmannaeyjum er lítið
um hesta og reyndar lítið land-
rými til útreiða. Þess í stað
stunda margir Eyjamenn
úteyjalíf og klifur í klettum.
Hér verður sagt frá ferð í Ell-
iðaey og minnst aðeins á
úteyjarlífið sem verður að telj-
ast mjög sérstætt og einkenn-
andi fyrir Vestmannaeyjar og
kemur í stað hestamennsku og
annars sports sem stundað er á
fastalandinu.
Á sjálfan þjóðhátíðardaginn
átti ég kost á því að fara skot-
túr í Elliðaey sem er ein af
stærstu eyjum Vestmannaeyja.
Farið var á trillunni Lubbu
undir öruggri stjórn Ólafs Jóns-
sonar kapteins, enda ekki
vanþörf á því farmurinn var
dýrmætur, nokkrar eiginkonur
og börn Elliðaeyinga sem voru
úti í eyju við húsbyggingu.
Framkvæmdir við húsið voru á
lokastigi og var ætlunin að
vígjaþaðfljótlega.
Veður þennan dag var eins
og best verður á kosið, glamp-
andi sól, stilla og sjórinn eins
og heiðartjörn. Var ógleyman-
legt að fylgjast með flugi
bjargfuglsins sem naut veðurs-
ins ekki síður en við mannanna
börn. Elliðaey liggur austan
Heimaeyjar í um 3ja mílna fjar-
lægð og naut fólk ferðarinnar
sem tók um 20 mínútur.
Heimurút affyrirsig
Land var tekið austan í eyj-
unni þar sem er stórkostlegt
bátalægi frá náttúrunnar
hendi. I því miðju er hringlaga
klettur sem myndar eins konar
hringtorg. Landtaka gekk
greiðlega, enda voru karlar
mættir til að taka á móti hópn-
Búrið heitir kletturinn sem þarna rís úr sjó.
Nokkur börn sem voru með i ferðinni.