Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Síða 36
F R
TTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
- AaágSýsÍrigar * Áskrift - Dreifing: Sími 27022
■ *** MHk ■ ■ ■ m
Jon Baldvin og
Steingrímur bítast
um forsætið
Skiptíng ráðuneyta og málefna-
samningur voru aðalumræðuefiii
Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í gær. Jón Bald-
vin Hannibalsson og Steingrímur
Hermannsson ræddu í gærmorgun
um það hvor ætti að fá forsætisráðu-
neytið. Hvorugur gaf eftir.
Eftir þíðu í fyrradag var hljóðið
heldur þyngra í forystumönnum í
gær. Sú skoðun virðist þó vera al-
menn að úr þessu verði ríkisstjóm.
Helstu efasemdimar eru hjá fram-
sóknarmönnum þótt áhugi þeirra
hafi aukist við að formaður þeirra
virðist eiga mikinn möguleika á for-
sætinu.
Sjálfstæðisflokkur gerir kröfu um
að fá fjármálaráðuneyti og við-
skiptaráðuneyti í staðinn fyrír að
falla frá tilkalh til forsætisráðuneyt-
is. Þetta útspil kom aiþýðuflokks-
mönnum og reyndar einnig
framsóknarmönnum í opna skjöldu.
Þeir svöruðu með því að setja fram
þá skoðun að ráðuneytin, sem helst
snertu efrtahagsmál og fjármál, for-
sætis-, viðskipta- og fjármálaráðu-
neyti, ættu að fara hvert á sinn
flokkinn.
Ljóst er að sá minni flokkanna,
sem fengi forsætisráðuneytið, yrði
að sætta sig við aðeins tvö önnur
ráðuneyti með. Sjálfstæðisflokkur
fengi hins vegar fimm ráðuneyti ef
Þorsteinn verður ekki í forsæti, sem
þó er alls ekki útilokað.
Af öðrum ráðuneytum er helst
búist við að sjávarútvegsráðuneytið
verði bitbein. Framsóknarflokkur
gerir sérstaka kröfú til þess. Hinir
flokkamir gimast það einnig.
Taflið um forsætisráðherrann mun
líklega verða til að draga úr vinnu
við afgreiðslu annarra mála. Lausir
endar em enn í húsnæðismálum,
landbúnaðarmálum og sjávarút-
vegsmálum.
Ekki er gert ráð fyrir sameiginleg-
um fiindi flokkanna þriggja fyrr en
Jón Baldvin og Steingrímur hafa
gert upp hvort annar þeirra tekur
forsætisráðuneytið. Síðdegis á morg-
un hittast þingflokkar Sjálfetæðis-
flokks og FVamsóknarflokks.
-KMU/ES
Midstjórnarfundurinn:
Átökin haSda áfram
í Alþýðubandalaginu
Um þessar mundir verður vart þverfótað fyrir erlendum ferðamönnum
í borginni og því algengt að sjá mann sem rýnir í kort og spyr til veg-
ar. Leifur heppni Eiriksson getur vonandi verið einhverjum til viðmiðunar
og aðstoðar eins og þessum ferðalangi. DV-mynd GVA
- skýrslurnar breyta engu
vonm reKin i mnn
Þeir miðstjómarmenn Alþýðu-
bandalagsins, sem DV hefur rætt við,
eru á þvi að skýrslumar, sem sex-
menningamir hafa samið um ástæður
kosningaósigurs flokksins í vor, muni
engu breyta um ástandið í flokknum.
Valdabarátta einstaklinga og hópa
iiman flokksins muni halda áfram í
það minnsta fram að landsfundi í
haust, hvað sem þar kunni síðan að
gerast.
„Ég hef ekki trú á því að pappíram-
ir leysi vanda flokksins enda segja
EINANGRUNAR
GLER
LOKI
Skyldi Ólafur Ragnar vera
búinn að af-skrifa Svavar?
þessar skýrslur mér ekkert nýtt ,“
sagði Svavar Gestsson, formaður
flokksins, í samtali við DV rétt áður
en miðstjómarfúndurinn hófst í gær.
Hann vildi ekki skýra frá því hvort
hann gæfi kost á sér áfram sem form-
aður á landsfúndinum í haust eða
hvort hann ætlaði að hætta, sagði það
ekki tímabært.
Margir miðstjómarmenn flokksins
halda því fram að nú sé svo komið að
stefni í einvígi milli Svavars Gestsson-
ar og Ólafs Ragnars Grímssonar um
formannssætið á landsfundinum í
haust. Hvomgur sé tilbúinn til að gefa
þar eftir, nema báðir dragi sig i hlé
og málamiðlunarformaður verði fund-
inn. Ragnar Amalds hefur verið
nefridur í því sambandi en mun vera
tregur til að' gefa kost á sér.
Yfirlýsing Svavars Gestssonar, form-
anns Alþýðubandalagsins, sem fram
kemur í skýrslu hans, að allir sem
merktir em af innanflokksátökum síð-
ustu ára eigi að skipta um vettvang
og að líta beri svo á að öll sæti trúnað-
armanna séu opin, mun að sögn
kunnugra engu breyta um innan-
flokksátökin. Þau muni halda áfram.
-S.dór
Vonin ST 6, sextíu tonna rækju-
bátur, var rekin til heimahafiiar á
Hólmavík í gær. Ástæða þess var sú
að engirrn réttindamaður var um
borð í bótnum. Báturinn var á veið-
um í Reykjafjarðarál og vom þrír
menn um borð. Allir vom þeir rétt-
indalausir, þ.e. enginn með skip-
stjómarréttindi eða vélstjórapróf.
Enginn áhafnarmeðlima hafði und-
anþágu.
Að sögn starfemanns hjá Land-
helgisgæslunni hefúr orðið breyting
til batnaðar í þessu málum. 1 fyrra
var mikið um að reka þyrfti báta í
land þar sem ekki vom um borð rétt-
indamenn. Nú heyrir það hins vegar
til undantekninga.
Mál áhafriarinnar á Voninni verð-
ur nú sent sýslumanni Strandasýslu.
-sme
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Óbreytt helgarveður
Hæg austlæg átt eða breytileg átt, súld við suðurströndina. Skúrir síðdegis á Suðvesturlandi - annars þurrt. Hiti 8-15 stig.
Þessi spá gildir fyrir báða dagana þannig að sólböð verða að bíða um sinn.
i
i
í