Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Blaðsíða 14
Heimsreisufarar DV áttu dýrðardaga á Fiji rétt fyrir byltingu:
Aldingarðurinn Eden
gæti vart verið betri
Sigrún og Auðbjörg
heimsreisuferðalangar
halda hér enn áfram frá-
sögn sinni. Að þessu sinni
var staldrað við í mánað-
artíma á Fiji-eyjum.
Þegar þær stöllur voru
þar á ferð var umhverfið
rólegt og þægilegt. Þarna
hvíldu þær sig og létu sér
líða vel eftir erfiðari
ferðalög mánuðina á und-
an. Aðeins hálfum
mánuði eftir að þær vin-
konur hurfu brott frá
eyjunum hófst þar bylting
sem komst í heimsfrétt-
irnar í maí sl. En látum
þær segja frá dýrðardög-
unum sem þær upplifðu á
Fiji.
Lögreglumenn i fullum skrúða á Fiji, reyndar í höfuðborginni Suva.
Á dimmum vetrardögum hefur
draumur um grænar Suðurhafseyjar
sjálfsagt vermt frostbólgnar hjarta-
rætur flestra íslendinga. Flestir láta
þó sitja við orðin tóm og kastala-
smiðar - þetta er bara eitthvað sem
aðrir gera. Ástæður gætu þó e.t.v.
verið þær að fólki hefur vaxið í aug-
um að það er yfir hálfan hnöttinn
að fara. Þar sem við vorum þarna í
næsta nágrenni ákváðum við að
bregða okkur bæjarleið og við dvöld-
umst á Fiji-eyjum í um mánaðartíma.
Fiji-eyjaklasinn er um það bil 300
eyjar sem eru miðja vegu á milli
Nýja-Sjálands og Hawaii. Fiji er
heimili tveggja gjörólíkra kynþátta
sem telja um sjö hundruð þúsund
manns.
Indverjar helmingur íbúanna
Um miðja nítjándu öld fluttu Bret-
ar sextíu þúsund Indverja til Fiji,
sem er hluti breska samveldisins, til
starfa á sykurplantekrunum. Ind-
Þannig átti lífið að vera, segja Fiji-búar. Auðbjörg kann svo sannarlega að notfæra sér það Kókóshnetan kom sér vel við þorsta, enda vildu þær stöllur lifa sparlega, þó á Fiji væru. Á
sem Fiji býður upp á. einni eyjunni kostar dagurinn t.d. sextán þúsund krónur. Hér er það Sigrún sem svalar þorst-