Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Málefnasamningur væntanlegrar nkisstjómar:
Verðbólgu á svipað stig
og í viðskiptalöndum
Alþýöuflokksmenn fögnuðu stjórnarmyndun í veitingahúsinu Naustinu i gærkvöldi. Verðandi fjármálaráð-
herrafru, Bryndís Schram, stýrði hófinu. Karlmennirnir, sem umkringja hana, eru Karl Steinar Guðnason,
Jón Sæmundur Sigurjónsson, Jón Sigurðsson, Eiður Guðnason og eiginmaðurinn, Jón Baldvin.
DV-mynd JAK
„Markmið efnahagsstefhu ríkis-
stjómarinnar eru að örva hagvöxt
og framfarir í atvinnulífinu á grund-
velli aukinnar framleiðni og nýsköp-
unar, að bæta lífskjör, tryggja
jafnvægi í viðskiptum við útlönd,
sem stöðugast verðlag og fulla at-
vinnu."
Þannig er efnahagsmarkmiðum
lýst í 24 síðna málefnasamningi
væntanlegrar ríkisstjómar Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks.
„Ríkisstjómin mun beita hag-
stjómartækjum með samræmdum
hætti. Fjárlögum, lánsfj;iráætlun,
peninga- og gengismálum verður
markvisst beitt til þess að draga úr
sveiflum og treysta jafnvægi í þjóð-
arbúskapnum."
Meginþættir í efhahagsstefriunni á
næstu árum era taldir upp þessir:
„Að verðbólgu verði náð niður á
svipað stig og í helstu viðskipta- og
samkeppnislöndum.
Að halla á ríkissjóði verði eytt á
næstu þremur áram.
Að jafnvægi verði náð í viðskiptum
við útlönd.
Að erlendar skuldir sem hlutfall
af þjóðartekjum lækki.
Áð innlendur spamaður aukist.
„Ríkisstjómin mun stuðla að því
að launaákvarðanir í þjóðfélaginu
samræmist þessum markmiðum,
jafnframt því sem kaupmáttur
lægstu launa verði aukinn," segir
ennfremur um efiiahagsstefnuna.
Sem minnst ríkisafskipti
Um atvinnustefhu segir meðal
annars að markmið hennar sé að búa
atvinnulífinu sem best vaxtarskil-
yrði. Ríkisafskipti og ríkisrekstur á
atvinnufyrirtækjum verði sem
minnstur.
Opinber afskipti af verðlagningu
verði sem minnst en stuðlað að auk-
inni samkeppni. Löggjöf um hringa-
myndun verði endurskoðuð.
Fríverslun verði meginstefhan í
viðskiptum. Áfram verði leitað sam-
starfs við erlend fyrirtæki um stór-
iðju. Verktakastarfsemi fyrir
Vamarliðið verði tekin til endur-
skoðunar.
Gjaldeyrisverslun og fjármagns-
hreyfingar milli íslands og annarra
landa verður frjálsari og dregið úr
skilaskyldu á gjaldeyri. Erlent
áhættufé geti komið í staðinn fyrir
erlent lánsfé við fjármögnun at-
vinnufyrirtækja.
Átak verði gert til að stytta vinnu-
tíma.
Fiskveiðistefnan endurskoð-
uð
Um sjávarútveg segir að fiskveiði-
stefhan verði tekin til endurskoðun-
ar og stefna mörkuð sem taki gildi
þegar í upphafi næsta árs. Endur-
skoðunin verði falin sérstakri nefhd
sem hafi samráð við helstu hags-
munaaðila.
Meðal þess sem nefndinni er ætlað
að taka afstöðu til er hvort veiði-
heimildir verði alfarið bundnar við
skip og hvemig taka megi meira til-
lit til byggðasjónarmiða.
í landbúnaði er boðað að stærri
hluti fjárveitinga renni til nýrra
búgreina. Menntun, starfsfræðsla og
rannsóknir í landbúnaði verði efld-
ar. Jafhframt verði unnið skipulega
að Qölgun nýrra starfa í sveitum
landsins.
Landbúnaðarkerfið endur-
skoðað
Ríkisstjómin taki upp viðræður
við Stéttarsamband bænda um fram-
kvæmd á samningi um verðábyrgð
ríkisins með það að markmiði að hún
verði sem hagkvæmust og ódýrast.
Meðal annars verði skipting heild-
arfjárframlaga milli útflutningsbóta
og búháttabreytinga athuguð út frá
því sjónarmiði að stærri hlut verði
varið til að greiða fyrir breytingum
á búháttum í ljósi markaðsaðstæðna.
Boðuð er endurskoðun á reglum
um framleiðslustjóm og fullvirðis-
rétt, hlutverki Framleiðnisjóðs,
starfsemi afurðastöðva, sölu- og
verðmyndunarkerfi landbúnaðar,
sjóðakerfi, starfsemi stofnana land-
búnaðarins, jarðræktar- og búfjár-
ræktarlögum, jarðalögum og fleira.
„Að loknum aðlögunartíma er
stefht að jafnvægi milli framboðs og
eftirspumar eftir búvörum á inn-
lendum markaði," segir loks í
landbúnaðarkaflanum.
„íslendingar taki virkan þátt í
starfsemi Atlantshafsbandalagsins.
Til þess þarf að efla starf utanríkis-
ráðuneytisins á sviði vamar- og
öryggismála,“ segir meðal annars
um utanríkisstefnuna.
Staðgreiðsla skatta
f skattamálum er boðað að stað-
greiðsla skatta komi til framkvæmda
um næstu áramót. Jafhframt verði
. stefnt að nýrri skipan tekjuskattsá-
lagningar atvinnurekstrar á næsta
ári.
Virðisaukaskatti, eða nýju og end-
urbættu söluskattskerfi, verði komið
í varanlegt horf árið 1989.
í kafla um endurmat ríkisútgjalda
er boðað að ýmsar stofhanir ríkis-
ins, til dæmis þær sem gagngert
þjóna atvinnuvegum, fái aukið sjálf-
stæði og rekstrarábyrgð og afli sér
í auknum mæli tekna fyrir veitta
þjónustu. Jafiiframt verði lögð meiri
fjárhagsleg ábyrgð á stjórnendur
stofnananna, meðala nnars hvað
varðar starfsmannahald og launa-
mál starfsmanna.
Útboð era boðuð á rekstrarverk-
efhum ríkisins í auknum mæli svo
og sala ríkisfyrirtækja.
Eftirlit Alþingis með aukafjárveit-
ingum, fjárhagsskuldbindingum
ríkisins utan fjárlaga og útgjöldum
ríkisins verður treyst.
Stefnt að samruna banka
í bankamálum er boðað að dregið
verði úr ábyrgð og afskiptum ríkisins
af bankarekstri. Stefht verði að
samrana banka.
í húsnæðismálum mun þeim sem
lent hafa í greiðsluerfiðleikum vegna
húsnæðiskaupa á undanfömum
árum gefast kostur á endurfjármögn-
un lána vegna öflunar eigin hús-
næðis með vaxtakjörum húsnæðis-
lánakerfisins.
í umhverfismálum hyggst ríkis-
stjómin setja almenn lög um
umhverfismál og fela einu ráðuneyti
samræmingu þessara mála. Boðað
er að ríkisjarðir verði nýttar til úti-
vistar, skógræktar og orlofsdvalar
fyrir almenning.
í kafla um stjómkerfisbreytingar
boðar ríkisstjómin framvarp að nýj-
um lögum um Stjómarráð íslands
ásamt drögum að nýrri reglugerð um
verkaskiptingu ráðuneyta.
Hreyfanleiki milli embætta verði
aukinn og æviráðning embættis-
manna afnumin. Undirbúin verði
lagasetning um hagsmunaárekstra.
-KMU
Selma Jóns-
dóttir er látin
Látin er í Reykjavík, á sjötugasta
aldursári, Selma Jónsdóttir, for-
stöðumaður Listasafns fslands. Hún
var fædd í Borgamesi 22. ágúst árið
1917. Foreldrar hennar vora Jón
Bjömsson frá Bæ, kaupmaður í
Borgamesi og kona hans, Helga
María Bjömsdóttir.
Selma var ráðin að Listasafhi ís-
lands árið 1950. Hún var skipuð
umsjónarmaður safnsins árið 1953
og forstöðumaður þess árið 1961.
-KGK
Bílvelta á
Njarðargötu
Bíll valt á horni Njarðargötu og
Hringbrautar á laugardagskvöldið.
Ökumaður slasaðist nokkuð. Hann
meiddist í baki og handleggsbrotnaði.
Ölvun mun ekki hafa verið með í spil-
inu heldur er talið að bíllinn hafi verið
á miklum hraða og beygjan verið of
snörp. -Ró.G.
Ráðherraefhi nýju
stjómarinnar valin
Alþýðu- og framsóknarmenn með hluta viðskiptaráðuneytisins Þá er valið á ráðherram Sjálf-
gengu frá vali á ráðherraefnum sín- og dóms- og kirkj umálaráðuneytið. stæðisflokksins eftir. Það mun fara
um í nýju ríkiastjómina f gær. Það Því tók hann ákvörðun um að fram á þingflokksfundi flokksins á
kom mjög á óvart að Jón Baldvin skipta við Jón Sigurðsaon. Jó- morgun kl. 15. Ekki er enn ljóst
Hannibalsson gerði tillögu um hanna Sigurðardóttir verður síðan hverja Þorateinn Pálsson, verðandi
sjálfan sig en ekki Jón Sigurðsaon félagsmálaráðherra fyrir Alþýðu- forsætisráðherra, gerir tillögu um
sem fjármálaráðherra. flokkinn. sem ráðherraefni en hann mun
Eftir því sem næst verður komist Hjá Framsóknarflokknum fór nota daginn í dag til samráðs við
er hér um að ræða ákvörðun hjá allt eina og búiat hafði verið við. þingmenn Sjálfstæðiaflokksins.
Jóni Baldvin sem tekin var á sfð- Steingrímur Hermannsson tók ut- Almennt er talið að þeir Friðrik
ustu dögum. Þrýst var á hann viða anríkisráðuneytið, Halldór Ás- Sophusson, Birgir Isleifur Gunn-
að taka sjálfur áhrifamesta emb- grímsson sjávarútvegsráðuneytið, arsson og ólafur G. Einarsson
ætti Alþýðuflokksins, fjármála- Jón Helgason var valinn land- skipti með sér ráðuneytum
ráðuneytið. Auk þess mun honum búnaðarráherra og Guðmundur menntamála, iðnaðarmála og sam-
hafa þótt sinn hlutur nokkuð rýr Bjarnason heilbrigðis- og trygg- göngumála.
eftir að ljóst var að hann sæti eftir ingamálaráðherra. _ES