Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987. 7 Atvinnumál______________________ Suðureyri: DV Allmargir ungir Hornfirðingar voru að vinna utan við Hótel Höfn, þegar fréttaritari DV rakst á þá á dögunum og smellti að sjálfsögðu af þeim mynd. Mikið hefur verið að gera í unglingavinnunni á Höfn i sumar og hafa marg- ir unglingar notið góðs af. Þá nýtur bærinn einnig góðs af þessari atvinnu- starfsemi, því það er ótrúlega mikið sem krakkarnir í unglingavinnunni vinna að fegrun og snyrtingu hans á einu sumri hafi þeir góðan leiðbeinanda. DV-mynd Júlía Imsland SENDUM í PÓSTKRÖFU ERU ÞITT EF SVO ER, VERÐUR ÞÚ AÐ GERA EITTHVAÐ í MÁLINU. Erling Auðunsson skipstjóri um borð í Villa Magg. DV-mynd GVA HROTUSTOPPARINN er einfalt og öruggt tæki sem stoppar hrotur og tryggir væran svefn, semer öllum lífsnauðsynlegur. Hrotur eru ekki bara hvimleiðar, þær geta verið lífshættulegar. HROTUSTOPPARINN er hljóðnæmt lítið rafeindatæki, sem fest er á fót eða handlegg þegar menn fara að sofa. Hann sendir frá sér boð er hann nemur hrotur. Boðin valda örlítilli ertingu sem líður hjá strax, en veldur því að - menn hætta (stoppa) að hrjóta og ná að festa svefn þannig að full hvíld fæst jafnt fyrir sál og líkama. Verð kr. 3.950,- wJAPIS BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133 „Við vorum búnir að undirbúa þetta í tíu ár áður en við fórum að stað. Það er markaður fyrir kúfiskinn í Banda- ríkjunum og einnig höfum við von um að komast inn á Japansmarkað, þar fengjum við hærra verð. Það hafa all- ir útreikningar sýnt okkur að þetta getur gengið, enda hefðum við ekki farið af stað annars," sagði Erling Auðunsson, skipstjóri á Villa Magg ÍS 87, en Villi Magg er fyrsti sérsmíð- aði kúfiskveiðibátur í Evrópu. Auk Villa Magg eru Erling og félagar hans að leggja síðustu hönd á verksmiðju til að vinna aflann. Fyrirtæki þeirra félaga heitir Bylgjan hf. „Nú er svo komið að hér á Suður- eyri er erfitt að fá keypt eða leigt húsnæði, það er af sem áður var. Á bátnum hjá mér eru fimm menn, bara vegna hans eru að flytja hingað þrjár stórar fjölskyldur. Það hefúr verið er- fitt að útvega þessu fólki húsnæði. Vinnslan fer af stað í næsta mánuði. Þar munu starfa átta til tíu manns ef okkur dugar ein vakt annars verðum við að bæta við sex til átta manns,“ sagði Erling. Villi Magg ÍS er nýsmíði, hann kom til landsins í byrjun máí en samningar um smíðina voru undirritaðir í nóv- ember í fyrra. Villi Magg var smíðaður hjá Damen Shipyards í Hollandi. Bát- urinn er 145 tonn að stærð og aðalvélin 510 hestöfl. Báturinn er allur hinn huggulegasti. Erling sagðist vera afar ánægður með bátinn, hann hefði reynst vel hingað til. Villi Magg er á tilraunaveiðum á vegum Hafrann- sóknastofhunar og sagði Erling það hafa gengið vel hingað til. Aflinn er ekki hirtur, heldur er honum sturtað jafnharðan í sjó aftur. Verið er að leita að kúfiskmiðum og hafa þau fundist víða. Helstu miðin sem þeir hafa fund- ið eru í Súgandafirði, í Aðalvík, á Jökulfjörðum og út af Sléttanesi. Erling sagði að þessi veiðiskapur þyldi ekki brælu en staðhættir væru þannig fyrir vestan að finna mætti skjól fyrir öllum áttum. Veiðamar á Villa Magg fara þannig fram að báturinn dregur á eftir sér plóg en í plóginn liggur barki frá bátn- um sem dælir sjó í gegnum plóginn. Dælan sem dælir sjónum er knúinn af 400 hestafla vél og getur dælt allt að 840 tonnum af sjó á klukkustund. Lestamar um borð í Villa Magg em nokkuð sérstakar. Þar em 60 tonn af sjó og er kúfiskurinn settur í sjóinn og getur hann lifað þar allt að viku- tíma. Hvert hal stendur yfir í um fjórar mínútur og mesta veiði í einu hali hingað til er 1200 kíló. „Það var vitað að hér í Súgandafirði væri mikið af kúfisk, áður fyrr veiddu menn skel með því að stinga hana og var hún notuð til beitu. Á Villa Magg höfum við veitt allt upp á sjö faðma dýpi. Nú getum við ekki farið dýpra en 22 faðma en það ræðst af lengd barkans. Við erum með 50 faðma langa barka en erum að fá lengri svo við getum farið dýpra,“ sagði Erling. Erling sagði að hann væri mjög án- ægður með samskiptin við hið opin- bera. Hrafnkell Eiríksson hjá HafrEmnsóknastofnun hefur verið með á tilraunaveiðunum og sagði Erling að samstarfið við hann hefði gengið mjög vel. „Fyrirgreiðslur sem við höf- um fengið hjá Byggðastofiiun gerðu okkur kleift að ráðast í þetta. Einnig hafa viðkomandi ráðherrar verið mjög jákvæðir. Ég er því ánægður með þátt þess opinbera," sagði Erling Auðuns- son að lokum. -sme Villi Magg á Suðureyri tilbuinn i slaginn. Bjaitsýnir a kúfiskveiðar jurti-:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.