Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1987, Síða 32
OLYMPIAf Sviösljós MÁNUDAGUR 6. JÚLÍ 1987. I>V „Svo skelli ég henni á skeið,“ gæti Bjarni Bragason verið að hugsa. Þrátt fyrir að veðrið væri gott þrjá daga mótsins var lokadagurinn eftirminni- legur vegna kulda. Mótsgestir tóku þá fram allan þann klæðnað sem hönd á festi, jafnvel teppi og svefnpoka. Sumir létu sér nægja spæjarafrakka. Magnús Benediktsson á Skarði, sigursæll knapi i stökkgreinunum, með nokkra hlaupagikki. Mannfagnaöur á meramóti Það er tvennt sem einkennir hestamót: hestar og menn. Þrátt fyrir að hestarnir séu yfirleitt aðalatriðið hjá flestum þá koma margir til að hitta kunningja og vini. Á fjórðungsmótinu á Melgerðismelum í Eyjafirði hittust hestamenn af öll- um landshornum og var þá kátt með ýtum. Dansleikir, kvöldvaka, sameigin- legur útreiðartúr og varðeldur; allt varð þetta til að hressa mannskapinn, svo ekki sé talað um skemmtiatriði sem áttu sér stað og stund á milli sýninga á hestum, en þó aðallega um nætur. Næstu fjórðungsmót verða á Vesturlandi og Austurlandi næsta sumar. Dögg passar litla bróður sinn, Grét- ar, og telur vissara að tengja hann við sig með snúru. DV-myndir ej sem fylgir þér hvert semer Olympia Carrera, þýska ritvélin sem fékk verölaun fyrir hönnun, er ritvélin fyrir hina fjölhæfu. Ferðaritvél í sérflokki, einungis 6,5 kíló og meö innbyggöum alspennubreyti. Lyklaboröið er aölagaö aö fingrunum og auöveldar hraöa og villulausa vélritun viö hvernig borð sem er. Getur allt sem þær stóru gera, dregur lóöréttar línur, og hefur mismunandi leturgerðir, 24 stafa leiðréttingaminni, síendurtekningu á öllum stöfum og sérstakan ásláttarjafnara (buffer) - þannig nærðu góöum frágangi án fyrirhafnar. Olympia Carrera er tengjanleg við allar tölvur. ...hún hefur þaö allt og meira til. Ekjaran ÁRMÚLA 22, SlMI (91) 8 30 22, 108 REYKJAVlK Gunnlaugur Karlsson, tólf ára blaðaútgefandi. „Get vel hugsað mér að verða blaðamaður síðar meir,“ segir hann. DV-mynd JAK Tólfárablaðamaðurogritstjóri „Okkur datt þetta bara í hug, mér og nokkrum vinum, síðan hættu þeir við en ég ákvað að fara í þetta einn,“ sagði Gunnlaugur Karlsson, 12 ára blaðamaður og ritstjóri, um útgáfustarfsemi sem hann stendur í. Um er að ræða blað sem hann semur allt efni í og gefur út á eigin vegum. Gunnlaugur er nemi í Vesturbæjarskólanum og blaðið sem hann gefur út ber nafnið Bekkjarrit. „Það er alls konar efni í blaðinu, skrýtlur, viðtöl, uppskriftir og margt fleira. Ég er í sumarfríi núna en í haust byrja ég að gefa út aftur og þá verð- ur blaðið miklu stærra, kannski stækkar það úr átta í sextán síður. Ég fæ dálitla hjálp frá mömmu við útgáfuna, hún vélritar og ljósritar stundum fyrir mig. Annars sé ég um allt hitt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.